Þjóðviljinn - 09.02.1968, Page 2
I
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 9. febrúar 1968.
f
I
Lelðsndaveður - Kynferð-
ispróf
•4r Frakkar hafa kostað miklu
til Olympíuleikjanna í Gren-
oble — framlag ríkisins mun
nema uim 11 miljörðum króna,
Tölvur miklar og aðrar frá-
bserar vélar annast skipulagn-
ingu auk um tíu þúsund að-
stoðarmanna. En þessi mikla
yfirbygging sætir mikilli gagn-
rýni erlendra gesta, sem telja
_ að hún komi að mjög tak-
mörkuðum notum. Þeir
kvarta til að mynda mikið
yfir því að erfitt sé að kom-
ast leiðar sinnar um olympíu-
svæðið, þótt fullt sé þar af
opinberum bflum á ferð —
en mjög oft tómum.
•Jr Og fbúamir £ Grenoble
og olympíúþorpunum þar. í
kring eru heldur ekki allir
jafn hamingjusamir. Sumir
likja gauraganginum við 3.
heimsstyrjöldina. Einn rosk-
inn íbúi þorpsins Autrans
sagði við norska fréttamenn
að það væri svosem ágætt að
fá vegi, hús, íþróttamanhvirki
og annað þessháttar, ög vfst
borgaði ríkið þetta að veru-
legu leyti. En við vitum lika,
sagði þessi monsjör Biquelle,
að á næstu árum verðum við
að borga 100% hærri útsvör
en nú. Við fáum sem sagt bak-
hliðina af olympíumedaliun-
um — keppnislaust.
WMPIQ^
o s°
^A/oble^
•fr Veðrátta er umhleypinga-
söm í Grenoble um þessar
mundir, eins og sést af öðr-
um fréttum hér á síðunni.
Svíinn Láftman sem sér um
skautahlaupið, segir að ef á-
fratn verði jafn hlýtt í veðri
og nú, þá verði ómögulegtað
fá sæmilega hálku á ísinn.
TÍf Iþróttakonur eru nú að
ganga undir prófun sem á að
taka af allan grun um kyn-
ferði þeirra, en i iþróttaheim-
inum hafa að undanförnu
komið upp erfið mál vegna
þess að ýmsar frægar íþrótta-
konur reyndust miður kven-
legar að líkamsbyggingu. Við
höfð er mjög kurteisleg að-
ferð — frumugreining í smá-
sjá, sem gefur til kynna hvort
allt sé í lagi með Jitningana.
J W \
Sleðabrautin i Villard de Lans
íþrótlaandi eða njósnir?
verður hún ekki notuð í ár?
Nokkur úrslit í ísknattleik
Sleðakeppninni var
frestað vegna hálku
A miðvikudagskvöld vann
sovézka landsliðið mikinn sig-
ur á því austur-þýzka í ís-
hokkey, skoraði níu mörk, en
. andstæðingamir ekkert. Aust-
ur-Þjóðverjar fóru sæmilega af
stað í fyrstu lotu, en höfðu
ekki úthald.
Þá biðu Vestur-Þjóðverjar
allmikinn ósigur fyrir Kanada
— 1:6. Fór eins fyrir þeim og
löndum þeirra austantjalds að
þeir fóru vel af stað og komu
í veg fyrir að Kanadamenn
næðu nokkrum árangri gem
máli skipti i fyrstu lotu. En
í annarri lotu hófu Kánada-
menn mikla sókn og skoruðu
þrisvar á sex mínútum og
ma?ttu, lítilli fypirstöðu . eftir.
það.
I B-riðli sigraði Rúmenía
Austurríki með 3:2.
í gærkvöld biðu Vestur- Þjóð-
verjar annan ósigur — að
þessu sinni fyrir Tékkum.
Tékkar skoruðu 5 mörk, þýzk-
ir 1.
Til
fjár
Oft er talað um að íslenzk
blaðamennska sé ófullkomin,
og er auðvelt að styðja þá
niðurstöðu með rökum. Við
megum samt þakka fyrir að
við erum enn vanþróuð þjóð
á sviði ’þeirrar æsifrétta-
mennsku sem mjög einkennir
blöð í ýmsum nágrannalönd-
um okkar. Á æsiblöðunum er
litið á ótíðindi, náttúruham-
farir, slys og afbrot sem sér-
stakan hvalreka, kærkomin
tækifæri til Jxess að græða
fé. Blaðamenn keppast um
fréttjrnar eins og trylltir gull-
leitarmenn og svífast einskis,
það fólk sem lent hefur í
miðbiki sögul^gra atburða
fær engan frið fyrir miskunn-
arlausri ágengni, og sérstak-
lega er kappkostað að hnýs-
ast í persónuleg viðbrögð
manna í gleði og harmi, gera
einkamál að féþúfu. Og vegna
þess að hér eru fjármunir
í húfi eru peningar óspart
notaðir til að tryggja „einka-
rétt“ á þvílíkum fréttum;
fólk er keypt og síðan vak-
að yfir öllu athæfi þess.
Þegar fréttirnar bárust um
að Harry Eddom, stýrimaður
á Ross Cleveland, hefðibjarg-
azt með þeim hætti sem helzt
mátti jafna til kraftaverka,
urðu viðbrögð íslendinga
undirhyggjulaus gleði, einnig
íslenzkra blaðamanna. En úti
í Lundúnum var þessi at-
burður þegar metinn til fjár.
Æsiblaðið The Sun bauðst til
að bjóða eiginkonu Eddoms
og fjöískyldu til íslands og
greiða fé að auki með því
skilyrði að blaðið sæti eitt
að öllum fréttum um einka-
mál fjölskyldunnar — eigin-
konan mátti ekki tala við
nokkum mann, ekki einusinni
orða gleði sína og þakklæti
við fslendinga. Fjölskýldan
var flutt til fslands, umkringd
blaðamönnum frá The Sun
og ennfremur kraftajötnum
sem beittu afli sínu óspart til
þess að tryggja „eign“ sína
þegar til íslands kom. Síðan
verður fjölskyldan að sæta
því hlutskipti að hafa blaða-
menn þessa sem vitni að öll-
um eínkamálum sínum, leyfa
þeim að skrásetja hin við-
kvæmustu viðbrögð og selja
þau aimenningi.
Allt er þetta tii marks um
þá siðferðilegu upplausn sem
fylgir gróðaþjóðfélaginu.
manngildið víkur fyrir pen-
ingagildinu. — Austri.
VILLARD DE LANS við Gren-
oble 8/2 — íþróttamenn telja
að ef hlákunni heldur áfram
geti svo farið að menn verði
að aflýsa með öllu sleðakeppn-
inni á þessum olympiuleikum.
í morgun átti keppnin að hefj-
ast en það varð að aflýsa
henni vegna þess að 6 stiga
hiti hafði brætt ísinn á braut-
inni.
í gærkvöld höíðu fyrirsvars-
menn liðanna mælzt til þess að
sleðakeppninni yrði frestað, en
því var ekki sinnt. Þátttakend-
ur voru reiðubúnir til atlögu
kl. sex í morgun, en hlákan
kom í veg fyrir keppni sem
fyrr segir.
Miklar tilraunir hafa verið
gerpar með allskonar málm-
blöndur til að fá sleðameið-
ana til að renna sem bezt. í
Innsbruck fyrir fjórum árum
voru stundaðar miklar’ njósnir
til að fá upplýsingar um sleða
andstæðinganna. Þá var og
notuð einföld aðferð, sem er
fólgin í því að hita upp meið-
ana fyrir keppni, en hún hefur
nú verið bönnuð.
NTB-fréttastofan segir að
norskir sleðamenn lumi á ýms-
uril leyndarmálum sem þeir
prófi að næturlagi til að ann-
arra þjóða menn komist ekki
að því hvað þeir eru að bauka.
Bruni karla var
frestað í gær
Ólánið eltir skipuleggjendur
ólympíuleikanna: í gær varð að
fresta þeirri grein sem beðið
var með mestri eftirvæntingu
— bruni karla. Fer sú keppni
fram í 'dag, föstudag, en ef að-
stæður skána ekki á sunnu-
dag. Bandaríkjamaðurinn Bill
Kidd verður með, en óttazt var
að hann kynni að falla úr leik
eftir slæma byltu, sem haqn
fékk í reynslubruni á miðviku-
dag.
Peggy Fleming er örugg um
sigur i físthluupi kvenna
GRENOBLE 8/2 — Bandariski
heimsmeistarinn, Peggy’ Flem-
ing, hefur tryggt sér öruggt
forskot í listhlaupi kvenna á
skautum. Hefur hún 77,2 stig
fram yfir Gabriele Seyfert frá
Austur-Þýzkalandi, sem kem-
ur næst. í heimsmeistarakeppn-
inni í fyrra hafði hún 69 stig
fram yfir Seyíert að loknum
sömu atriðum (skylduatriðum
svonefndum) og dugði það
henni vel til sigurs.
Bronsverðlaunahafinn frá
heimsmeistarakepninni, Beatrix
Schuba frá Austurríki er í
þriðja sæti, 25 stigum á eftir
Gabriele Seyfert en aðeins 17
stigum á undan Evrópumeistar-
anum, Hana Maskova frá
Tékkóslóvakiu. Maskova hefur
því ágæta moguleika á brons-
verðlaunum því hún er talin
sterkari í seinni greinum
keppninnar.
Yngsti þátttakendi leikjanna.
Beatrice Hustiu frá Rúmeníu,
er nr. 31 af 32 keppendum,
Hún er aðeins ellefu ára göm-
ur.
Röðin er nú þessi:
1. Peggy Fleming 1062, 2.
Gabriele Seyfert 984, 3. Beatrix
Schuba 960, 4. Hana Maskova
943, 5. Albertina Noyes, Banda-
ríkjunum 941, 6. Zsuzsa Alm-
assy, Ungverjalandi 910, 7.
Kukimo Okawa, Japan 896.
Sigrar Watts frá
USA í stökki?
Stökkmenn héldu áfram að
æfa sig í Autrans i gær.
Bandaríkjamaðurinn George
Krogh kom á óvart og átti
lengsta stökk dagsins — 81,5
m. Austurþjóðverjinn Manfred
Queck kemur næstur, stökk 81
metra og þá Tékki, sem talinn
er allhættulegur keppinautur,
Jiri Raska, með 80 m. 'Norð-
menn fóru sér að engu óðslega
í dag — Björn Wirkola lét sér
nægja 76,5 metra.
UTSALA
ÚTSALA
KARLMANNA
f SC'H
' K ?? M
FOT
TWEED-
JAKKAR
GEFJUN
Kirkjustræti
» I