Þjóðviljinn - 20.03.1968, Blaðsíða 10
10 SíBA — ÞJÓÐVBLJíiN'N — 5*>övfiteiKiíi@ar 20. maœz KK8.
SAKAMÁLASAGA
Eftir
J. B. PRIESTLEY
26
— Og tenn væri Ibersýnilega í
miklu andlegu uppnámi. Það
sem ég held að hafi gerzt — þó
ég geti ekki sannað það — er,
aið Lemmert læknlr hringdi í
Aricson — eða fékk Dews til að
gera það — og Aricson .talaði
síðain við stórlaxinn rrmkla Sir
Arnold Donnington, æm gaf
síðan einhver fyrirmseli —
— Erl af hverju allt þetta
veður út af föður mínum — ef
ÞEKKIRDU
MERKIÐ?
A10
ÖNNUR HÆTTA
Upphrópunarmerkið er hættu-
mé'rki, sem gefur til kynna, a5
einhverskonar hætta sé á ak-
brautinni framundan, venjuiega
önnur en gefin er til kynna með
sérstökum aðvörunarmerkjum,
svo sem vegavinna eða þreng-
ing vegarins. Þessi hætta getur
verið af ýmsu tagi, svo sem brött
brekka eða blindhæð. Venjulega
er hættan skilgreind á sérstöku
skýringarmerki ferhyrndu, sem
sett er neðan við þrihyrninginn,
og ökumenn ættu að gefa sér
tíma til að lesa þá skilgreiningu.
HFRAMKVÆMDA-
NEFND
HÆGRI
UMFERÐAR ' 1
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steiny og Dódó
Laugav 18. III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyTtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968.
?hafnin var þá ekki hættulega
Veikur —
— Það var hann ekki. Það
var ekki aðalatriðið. Hann var
óþæglegur vegna þess að hann
hafði verið að spyrja spuminga
um Noreen Wilks, og gerði sig
bersýnilega ekki ámægðan með
svörin og fór að snuðra í gamla
Worsley húsinu, eða í kringum
það. Þess vegna vissum við að
hann var ekki á spítala, því að
þá hefði ykkur verið gert aðvart.
'Xommert læknir gerði ráðstaf-
arrir til þess að hann yrði flutt-
ur í einum af verksmiðjubílun-
um á hjúkrunairheimili, þar
-sem hann hefur legið í móki —
á kostnað verksmiðjufélagsins.
Annars er ég viss um að Lemm-
ert læknir hefur veitt honum
rétta aðhlynningu og meðferð
eirts og hver annar læknir. Láttu
þér ekki detta í hug, að neitt
gruggsugt hafi átt sér stað á þessu
hjúkrunarheimili. Það kemur á-
reiðanlega í Ijós að hann hefur
fengið góða aðhlynningu. En
þegar Lemmert var búinn að
leysa frá skjóðunni um betta,
skrúfaði hanfr fyrir upplýsing-
amar og neitaði' að segja mér
hvar hann væri niðurkominn.
Þegar við finnum staðinn, þá
getur verið að ég þurfi á að-
stoð þinni að hslda — sem
dóttur hans — til að styðja
kröfu mína um það að ég taki
sjúklinginn hér rheð i mína um-
sjá og flytji hann hingað. Ég
hreyfi hann að sjálfsögðox ek'ki
fyrr en ég er búinn að skoða
hann og ganga úr skugga um að
honum verði ekki me;nt af til-
færslunni. Jæja, Maggie, þá
skulum við koma-
— Ég er tilbúin. En um leið
og þau gengu út, sagði hún: —
Það er aðeins eitt. Þetta rmkla
uppnám sem Lemmert læknir
minntist á við þig — er það í
einhverju sambandi við Noreen
Wilks?
— Já, þ»ð er það, Maggie.
— Eða heldurðu það bara?
— Nei, ég veit það. Jæja —
hvar er nú taskan mín? Verð að
hafa hana — var næstum búinn
að gleyma henni.
Þau voru komin inn í bílinn
en þó ekki af stað, þegar hún
tók aftur til máls: — Geturðu
sagt mér hvemig þú veizt með
vissu, að pabbi er í svona* miklu
uppnámi út af þessari stúlku?
— Ekki núna, Maggie. Við
skulum finna hann fyrst.
Bíllinn var kominn a'f stað, og
þótt hana langaði mjög til að
spyrja fleiri og beinskeyttari
spuminga, þá þagði hún, því að
hún mundi að honum var illa
við að tala þegar hann var við
stýrið. Þrátt fyrir allan léttinn
yfir því að vita nú nokkurn
veginn um afdrif föður síns, þá
v'ar það dálítið truflandi hugs-
un, að þessi maður sem var
svnna örvílnaður út af Noreen
Wilks, persónu sem hún hafði
aldrei heyrt nefnda fyrr en í
gær, var eigfnlega að sumu
leyti ókunnugur maður. Hún
kveið hálfpartinn fyrir því að
hitta hann og heilsa honum, en
svo ávxtaði hún sjálfa sig fyrir
að hugsa svona um föður sinn,
sem hún elskaði enn eins og hún
'hafði gert frá baimsaldri (þótt
bún ekkaði ekka móður sína á
sama hátt), og hún skammaðist
sín fyrir að ala með sér slílka
þanka þegar hún var á leiðinni
að leita hann uppi.
Það vair annað smávægilegra
sem hún hafði áhyggjur af, sem
var í rauninni ofurkjánalegt.
Henni var farið að finnast sem
hún gæti ekki talað eðlilega
við Sait læicni — gæti eklki
spurt hann, beðið hann afsök-
unar né þakkað honum fyrir —
aðeins vegna þess — og það var
svo hjákátlegt — að hún gat
ekki ráðið það við sig hvað hún
ætti að kalla hann. Salt læknir
var of formlegt; hann hafði óbéit
á skírnamöfnunum Lionel Og
Humphrey, endai hæfðu þau hon-
um einhvern veginn ekki; og
þótt hann hefði sagt henni að
kalla sig einfaldlega Salt, þá
fannst henni það minna um of
á samtöl milli karlmanna f vín-
stúku; og hvað var þá eftir?
Auðvitað var hægt að nota upp-
hafsstafina, en L. H. sem varð
Ellhá minnti á ungan undirfor-
stjóra að taia við yfirmann sinn.
Nei, húft yrði að finna upp nafn
á hann. Að minnsta kosti ef hún
ætti eftir að talai eitthvað við
hann að ráði, sem var auðvitað
alls ekki víst fyrst hann var
búinn að finna föður hennar fyr-
ir hana. Eða næstum því.
Þau fundu hann í þriðju til-
raoxn, við götu ekki ósvipaöa
þeirri sem Salt læknir bjó við,
en í hinum enda bæjarins. Frú
Coleman, sem rak hjúkrunar-
heimilið, viðurkenndi samstund-
is, að herra Oulworfh væri einn
af sjúklingum sínum. líún var
mjög há og mögur, með blá-
leitt hár og þrjár stórar fíla-
beinstennur og minnti á dömu-
lega galdrakerlingu.
— Ég geri ráð fyrir, sagði hún
þegar þa<u voru komin á skrif-
stofuna til hennar, — að þið sé-
uð búin að tala við doktor
Lemmert.
— Ég er búinn að því, sagði
Salt læknir. — Og ég sagði hon-
um að ég myndi taka við sjúkl-
ingnum — að beiðni fjölskyldu
herra Culworths. Er ekki svo,
ungfrú Culworth?
— Jú, Salt læknir, sagði
Maiggie og horfði á hann og ekki
frú Coleman, sem var í rauninni
dálítið ógnvekjandi.
— Ég ætla að líta á herra
Culworth. Ef mér finmst hann
fær um að fara í smáferðalag
um borgina. þá fer ég með hann
heim til mín.
Frú Coleman gaf frá sér eins
konair hviss, rétt eins og hún
ætlaði að fara að .kalla til sín
ga'ldrakött, en svo kom í Ijós að
hún var bara í dálitlum vand-
ræðum- Hún var fórnarlamb
virðingar sinnsr fyrir læknum.
Hún vissi, að Lemmert' læknir
hafði vonað að hún gæti haft
herra Cullworth þarna, en hér
var kominn annar læknir, eldri
og sýnilega méiri persóna, sem
sagði henni að hann ætlaði að
taka herra Culworth burtu. —
Að vísu, læknir, stamaði hún, —
er þetta allt — dálítið óvenju-
legt — er það ekki? Ég fe við —
En Salt læknir greip fram i
með festu. — Það hefur verið ó-
venjulegt frá þvi fyrsta, frú
Coleman. AHlt sarnan gruggugt
og undarlegt. Lemmert læknir
hcfur ti;úlega séð fyrir sjálfum
sér, en þér gætuð fljótlega lent
í klandrf. Ef þér gætið ekki að
yður, er ekki að vita nema þér
þyrftuð að breyta þessp hjúkr-
unarheimili í greiðasölustað.
Virðulegur borgari en sennilegai
laminn niður af starfsmanni
Sameinuðu verksmiðjanna, síðan
er honum laumað hingað í
snatri og hann fóðraður á róandi
lyfjum, fjölskyldu hans ekki til-
kynnt neitt —
— En — en — en — og frú
Coleman var svo augljóslega
skeltouð, að það lá við að Maggie
vorkenndi henni — Lemmert
læknlr sagði mér — hann sagði
mér afdráttarlaust — að haun
tæki á sig alla ábyrgð — aíla
ábyrgð —
SaSt læfcmr sagði e4dd neitt.
Harm tók upp tösku sína og
starði á hina vansælu frú Cóle-
man.
— Jæja, þá. SalH læknir, saigði
hún bljúg í bragði. — Ég skal
fylgja yður upp í herbergi herra
Culworths.
Salt læknir leit á Maggie. —
Ég er hræddur um að þú ' verðir
að bíða, góða mfn. Ég verð
að ganga úr skugga um að faðir
þinn þóli bæði flutninginn og
að hitta þig. Ef þú vilt heldur
fara —
— Nei, auðvitað ekki. Ég verð
að bíða.
— Farðu þá yarlega ef og þeg-
ar ég kem með hann niður.
Faðmlög — kossar, tár, alTt í
jagi með það. En engar spum-
ingar — engar ásakanir —
mundu það.
— Heldurðu að ég sé algert
fífl? byrjaði hún reiðilega.
— Nei, alls ekki, Maggie. En
mundu það að þú kernst í geðs-
hræringu. Siðan brosti hann —
það var alvöru bros, ekki glott
— og henni brá næstum- —1 Ég
er í alvöru að gera mitt bezta
fyrir Culworthana. Það er ekki
allt í sambandi við Noreen
Wilks. Allt í lagi, frú Coleman
— þér á undam.
Maggie sat og beið og það var
eitthvert óttalegt umrót í huga
hennar, næstum verra rót en í
setustcfuiruni . hjá Salt iækni,
sem hún mundi nú hálfskömm-
ustuleg að hún hafði verið að
fordæma. Jafnvel þótt hann
hefði álitið hana • óttalegt fífl,
sem hún vissi nú. að hamm gerði
ekki, þá hafði hann allan rétt
til þess, því að hún hagaði sér
hreint eins og fífl, brýndi róm-
inn og s-kammaðist við hann,
þegar hann gerði allt sem unnt
var til að hjálpa henni. Án að-
stoðar hans hafði hún ráfað um
Birkden eins og glópur. vonlaus
og ráðþrota.
Hún var rétt að Ijúka við
sjálfsásakánimar, þegar frú
Coleman kom til baka. Þegar
Salt læknir var hvergi nærri,
var frú Coleman ekki vitund
lúpuleg. Maggie vair aðeins enn
einn ungur kvenmaður, og ' frú
Colem-an bar enga virðingu fyr-
ir ungum kvenmönnum. Maggie
sá þetta um leið og frú Coleman
kom inn.
— Salt læknir er búinn að
rannsaka föður yðar, frú Cul-
worth, tilkynnti hún ofanúr
hæðunum, ef til vill af jökul-
tindi í Andesfjöllum. — Og hann
segir að hægt sé að flytja hann
undir eins. Auðvitað ber ég enga
frekari ábyrgð- Þetta mál kemur
mér ekki lengur við. Þér skiljið
þaði ungfrú Cúlworth?
— Auðvitað. Hvað er að ger-
ast núna?
— Ég býst við að Salt læknir(
sé að hjálpa föður yðar að klæða
sig. Frú Colemam var nú komin
að skrifborði sínu og hún færði
til einhver skjöl, þýðingarmikil
á svipinn. — Og ég er önnum
kafin og þarf ef til vill að
hringja í einkaerindum, ungfrú
Culworth, og því verð ég að
biðja yður að bíða þeirra frammi
í anddyrinu.
TAKMÖRKUN
KL. 0300-0700
fJG-RAVJÐKÁL - IJIVDR 4 GOTT
Nouðungamppboð
Að kröfu Iðnaðarbanka íslands verður annað og
síðasta uppboð á veitingahúsinu Ferstiklu í Hval-
firði haldið á eigninni sjálfri laugardaginn 23.
marz og hefst kl. 15.
Á sama stað verður einnig boðinn upp stór ís-
skápur, eign uppboðsþola.
Sýsliunaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu.
AÐALFUNDUR
Styrktarfélags vangefinna verður haldinn
að Ljmgási laugardaginn 23. marz 1968 kl.
2 eftir hádegi.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjómar.
2. Reikningar félaigsins.
3. Stjómarkosniiíg.
4. Önnur mál.
F.'l.lfJ'.líilJ.'l.gj
I Casino-Stereo
Tækifærískuup
Höfum kven- og herrafatnað til sölu. Tökum kven-
og herrafatnað í umboðssölu. Móttaka fimmtudaga
klukkan 6 — 7.
VERZLUN GUÐNÝJAR
Grettisgötu 45.
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjálf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJONUSTAN
Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145.
Látið stilla bílinn
Önnumst hjóla- ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti. platínur. ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðqerðír '
• Rennum bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.
1