Þjóðviljinn - 20.03.1968, Qupperneq 12
Umf. Reykdæla sýnir Pilt
og stúlku á afmæli sínu
Sl. sunnudag frumsýndi
Ungmennafélag Reykdæla
leikritið PWt' og stúlku eftir
Emil Thoroddsen aft Loga-
landi og er leikritið sýnt í
tilefni af 60 ára afmæli fé-
lagsinis sem stofnað var 23.
apríl 1908 að Deildartungu.
Andrés Jónsson Bárð á Búr-
felli og Jón Þorsteinssbn
Guðmund á Búrfelli.
Ungmennafélag Reykdæla
hefur öft fært upp leikrit og
hefur Andrés Jónsson í Deild-
artungu verið aðaUeikstjóri
félagsins hin síðari ár en sið-
asta verkefnið sem félagið
setti á svið var Skugga-
Sveinn er sýndur vatr árið
1966 undir stjórn Jónasar
Ámasönar og Andrésar Jóns-
sonar. Núverandi stjórn Ung-
mennafélags Reykdæla skipa
Kristján Benediktsson formað-
ur, ílalldór Bjamason og
Guðmundur Kristdnsson.
Myndin er úr fyrsta þætti
leikritsins.
Leikstjóri er Hilmir Jó-
hannesson en með nokkur
helztu hlutverkin fara hessir
leikarar: Haljdóra Þorvalds-
dóttir leikur Ingveldi í Tungu,
Steinunn Garðarsdóttir Sigríði
dóttur hennair, Lóa Kristins-
dóttir Ingibjörgu á Hóli,
Kjartan Sigurjónsson Indriða
son hennar, Hrafnhildur
Sveinsdóttir Gróu á Leiti,
■ Þjóðviijinn hafði samband við
fjórtán forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni víðsvegar um allt land
í gærdag og innti þá eftir áliti þeirra
á nýgerðum samningum A.S.Í. við
atvinnurekendur. Við bárum upp
svohljóðandi spurningu:
■ nvert er aut pitt a nygeröum
samningum?
■ Hér á eftir fara svör hinna fjórt-
án forystumanna hvaðanæva af
landinu:
Rætt við 14 forustumenn verkalýðssamtakanna
HVAÐ SEGJA ÞEIR
UM SAMNINGANA?
Örn Scheving
formaður Verkalýðsfélags Norð-
firðinga, Neskaupstað:
Þetta eru beinir nauðungar-
samningar og auðséð, að hér
hefur átt að láta sverfa til
stáls. Ég tel samningana ósdgur
fyrir verklýðshreyfinguna, án
þess að ég sé þar með að gagn-
rýna okkar menn, sem stóðu
í þessu' við mjög erfiðar að-
staeður, enda efast ég ekki um
að þeir háfia gert það sem í
þeinra valdf stóð. En þessar
kröfur, sem settar voru fram,
varu slíkar lámarkskröfur, að
það var ekki hægt að hvika frá
þeim og mér fiimst það mjög
alvarlegt að ekki' ,skyldi nást
full vísitöluuppbót á\dagvinnu-
tekjumiar, og verst fyrir þá
lægst launuðu.1 Þaffla hverfa
2,34% algerlega og sjást ekki
framar. Þá er líka erfitt að
sætta sig við sömu< krónutöluna
á eftfrvinnuna.
Alvarlegustum augum lít ég
þó á það, að við erum alltaf að
Óskar Garibaldason
fjarlægjast æ meir það tak-
mark, sem verklýðshreyfingin
hefur sett sér, þ.e. að dagvinnu-
tekjumar dugi til mannsæm-
andi lífskjara.
N
Jón Ingimarsson
formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks á Akureyri:
Ég er eftir atvikum ánægður
með þessa niðurstaðu, þótt
ekki ynnist eins mikið og vonir
stóðu til í upphafi. Miðað við
þá erfiðleika sem við var að
etja, er hægt að sætta sig við
þetta og tel ég að það sé fyrst
og fremst mikill ávinningur að
hafa tryggt vísitölukerfið,-
Aðalgallinn við samningana
var að ekki skyldi fást betri
hlutur handa þeim allra lægst
launuðu, þannig að þeir sem
eru neðan við 10 þúsund krón-
ur í mánaðarkaupi fá ekki
einu sinni krónutöluna, 300 kr..
aðeins prósentuna.
Skúli Þórðarson
formaður Verkalýðsfélags
Akraness: *
- Það er satt að segja ekki
mikið sem fólk fær út úr þessu
og dýrtíðin reyndar búin að
taka það af okkur fyrirfram.
en miðað við aðstæður og það
sem á hefur genigið, hefði það
kostað enn lengra verkfall að
ná lengra og ég tel ekki að
fólk hafi verið undir það búið.
Auðvitað hljótum við' að
leggj a höfuðáherzlu á að kaup-
ið sé miðað við verðlag og því
var mjög imikils virði að fá
vísitöluna viðurkénnda. En sú
skerðing hennar sem varð, er
verst fyrir láglaunafólkið og
því álít ég að nú sé næsti á-
fangi að vinna ötullegaír að því
að hækka lægstu flokkana.
Óskar Garibaldason
formaður Verkalýðsfélagsins
Vöku, Siglufirði:
Það hefur alltof lítið unnizt
í þessu verkfalli og sú 1-agfær-
ing og beina kauphækkun sem
fæst er ósköp rýr. Það má
vera að það sem fæst óbein-
línis sé einhvers virði, nái það
fram að ganga, svo sem bætt
atvinnuástsind o-s.frv., og vitan-
lega er gott að fá vísitöluna
viðurkennda, enda vísitalan
reiknuð af Hagstofunni algert
lágmark. '
Ég bjóst svo sannarlega við
að samnmgamir yrðu hagstæð-
yari eftir svo langt verkfall. Ég
.hefði viljað halda því úti a.m.k.
viku enn, og tel að mest hefði
unnizt á þeirri viku. Mér kom
ekki annað til hugar en að þeir
myndu halda sér við vísitölu-
kröfuna óskerta fram í rauðan
dauðann.
Björgvin Sighvatsson
formaður Verkalýðsfélagsins
Baldurs, ísafirði oé forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða.
Ég held að verklýðshreyfing-
in, geti vel við unað. Að vísu
er okkur vel Ijóst, að krafan
sem tilgreind var sem lágmark
náði ekki fram að ganga að
öllu leyti, en það var mjög
dýrmætt og fyirir öllu að fá
þessa vísitölu viðurkennda,
þótt hún sé skert. Betri er hálf-
ur skaði en allur og ég tel að
hægt sé að una þessu.
Hins vegar er kaup láglauna-
fólks ennþá alltof lágt og það
verður að laga.
Á ísafirði var mjög fjöl-
mennur fumdur í Baldri á
mánudag og voru samningam-
ir samþykktir samhljóða.
Jóna Guðjónsdóttir
formaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar:
Það sem skiptir mesbu máli
frá mínu sjónarmiði er að vísi-
talam haldi áfram að mæla
verðhækkanir á kaupið og er
enginn vafi á því, að slíkt
kerfi orkar sem hemill á dýr-
tíðina og skapar lika vinnu-
frið.
En ég er óánægð að fá ekki
fuUar vísitölubætur á kaupið
og þurfa að ganga að þessum
takmörkunum — það vonum
við öll i 18 manna nefndinni.
Ég hef orðið vör við það, að
ýmsir gera lítið úr yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar út af sam-
komulaginu. Ég vil ekki taka
undir slíkan söng og finnst
mér ýmis atriði aitihyglisverð
Margrét Auðunsdóttir
Guðjón Sigurðsson
Guðjón Jónsson
Jóna Guðjónsdóttir
Bencdikt Davíðsson
Jón Ingimarsson
Skúli Þórðarson
eins og til dæmis að flýta hús-
næðismálalánunum um tvo
mánuði — þeir sem áttu að fá
slík lán í september í haust fá
þau í júlí í sumar og þannig
mætti teija. Það er engin á-
stæða til þess að vantreysta
ennþá úrbótum í atvinnumál-
um að óreyndu.
Hermann Guðmundsson
formaður Verkamannafélagsins
Hlífar:
sem kjarabót fyrir líðandi
stund.
Þá er í öðru lagi ofarlega í
mínum huga sú mikla samstaða
stéttarfélaga, sem náðist í þess-
um átökum og hefur verkalýðs-
hreyfingin eignazt mikið vald
með þessari samstöðu og getur
í krafti þessa valds sagt öðrum
fyrir verkum í þjóðfélaginu.
Þessa samstöðu skulum við
efla og styrkja til hagsbóta
fyrir launþega í landinu.
Ég tel þetta geysimikinn sig-
ur fyrir verkalýðshreyfinguna
eins t>g á stóð. Er þetta dýr-
mætur varnarsigur og höfuð-
markmiðið fékkst fram að láta
vísitöhma mæla verðhækkan-
ir jafnóðum á kaupið í fram-
tíð’nni. Þetta atriði er núna
bundið í samningum við at-
vinnurekendur. Það var búið
að svipta verkafólk þessum
rétti með landslögum.
í fyrsta lagi lít ég á þetta
sem kjgrabót og í öðru lagi
orkar þötta Sem hemill á dýr-
tíðina. Mér fSnast það bæði
skynsamlegt og hyggilegt að
miða þetta við lægst launaða
fólkið núna að þessu sinni.
Það var meira í húfi að fá regl-
una um vísitölutryggt kaup við-
urkennda heldur en að halda
til streitu stórum hluta af
launastiganum eins og núna er
í haginn búið.
Við héldum fjölmennan Hlíf-
arfund í gærdag og voru samn-
ingarnir samþykktir þar ein-
róma — í rauninni sprengdum
váð utan af okkur húsið og í
lokin hrópuðum við ferfalt.
húrra fyrir verkalýðshreyfing-
unni.
Sigurður Einarsson
formaður Verkalýðsfél. Þórs á
Seifossi:
Menn hér eru mjög óánægð-
ir með þessi úrslit, þótt allir
geri sér að vísu grein fyrir,
að hér var við ramman reip
að draga. Þetta er vamarsigur
og þó ekki nema að hálfu
leyti; Mikilvægust er auðvitað
verðtrygging laúnanna, en vísi-
talan er skorin við alltbf lág-
an taxta og hefði að mínum
dómi átt að miða við sem lág-
■mark 13 þúsund króna mán-
aðarlaun, miðað við það sem
þarf til lífsframfæris núna.
Hér á Selfos&i hafa ekki far-
ið fram fundir í verklýðsfélög-
unum, en stjómir og trúnaðar-
mannaráð aflýst verkföllum.
En hótt menn séu vægast sagt
óánægðir, býst ég þó við, að
samningaimir verði samþykktir
á fundum félaganna nú í. vik-
unni, það er ekki mögulegt fyr-
ir lítil verklýðsfélög að standa
ein á móti.
Guðjón Jónsson
formaður Félags járniðnadar-
manna:
Benedikt Davíðsson
formaður Sambands bygging-
armanna:
I þessum samningum náðist
sð vísu ekki frám ki-afan úm
fullar greiðslur vegna verð-
hækkana. En það verður maður
að líta á sem mjög stutt tíma-
bundið fyrirbærr.. Hitt er aðal-
atriðið að með samningunum
fékkst í verki viðurkenning á
því, að launþegar eiga fullan
rétt á bótum vegna 'verðhækk-
ana.
Með gerð þessara samninga
vonar maður, að stjómarvöld-
um hafi skilizt, að verkalýðs-
hreyfingin uni því ekki, að
brhtnir séu á henni samningar
eða að þær ráðstafanir verði
framvegis gerðar, sem lækki
kaupmátt launa.
Samningagerð 18 manna
nefndar ASl er bersýnilega
gerð fyrir ákveðnar starfsstétt-
ir og samkomulagið um vísi-
tölu aðlagað þeirra kjörum.
Launakjör jámiðnaðarmanna
voru áður sérlega léleg og
þörfnuðust sérstakrar leiðrétt-
ingar- Niðurstöður þessarar
samningagerðar gerir þönfiina á
leiðréttingu á kaupi og kjör-
um járniðnaðarmanna enn
brýnni.
Ég held að bið verði á því,
atj járniðnaðarmenn láti samn-
ingsumboð i hendur nefndar,
sem svipað er samsett og sú
samninganefnd er nú fór með
umboð fyrir verkalýðsfélögin,
a.m.k. fjórir nefndarmanna
voru frá félögum, sem ekki
voru í verkfalli og greiddu þar
atkvæði um grundvallaratriði.
Guðjón Sigrirðsson Margrét Auðunsdóttir
formaður Iðju, félags verk- formaður Starfsstúlknafélagsins
smiðjufólks: Sóknar:
Það sem skiptir mestu máli
í mínum augum er að fá regl-
una um vísitölutryggt kaup
viðurkennda. þó að peningaleg-
ur ávinningur sé elcki mifcill
Mér finnst við géta unað
við þetta samkomulag enda er-
um við Sóknarstúlkur fyrir
neðan tíu þúsund króna mörk-
Framhald á 3. síðu.
DiomnuiNN
Miðvikudagur 20. marz 1968 — 33. árgamgur — 55. tölublað.