Þjóðviljinn - 11.10.1969, Síða 4

Þjóðviljinn - 11.10.1969, Síða 4
Q SlÐA — ÞJÓÐVILJINN —, Laugardagur 11- október 1969 J — málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Utgefandl: Útgáfufélag Þ|66viljans. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.). Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttarlt8tjórl: Slgurður V. Friðþjófsson. AuglýslngastJ.: Olafur Jónsson. Framkv.stjórl: Elður Bergmann. Rltstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Slml 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 150.00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10,00. Vopn ríkisstjórnarinnar Ekki verður um það deilt að atvinnuleysið á ís- landi er skilgetið afkvæmi stjórnarstefnunnar, óhjákvæmileg afleiðing þeirrar staðreyndar að at- vinnuvegir landsmanna voru afræktir á mesta góðærisskeiði sem þjóðin hefur lifað. Hins veg- ar kunna að vera skiptar skoðanir um það hvort ríkisstjórnin hafi vitandi vits stefnt að a'tvinnu- leysi, þótt enginn þurfi að draga í efa að langlærð- ir sérfræðingar hennar þekkja mætavel þá hag- fræðikenningu að engin leið sé að hafa hemil á verklýðshreyfingunni nema með „hæfilegu at- vinnuleysi“, HvaS sem slíkum forsendum líður er það augljóst mál að ríkisstjórnin hefur haft afar takmarkað- an áhuga á því að uppræta atvinnuleysið eftir að það hafði numið land á nýjan leik. Þegar árið 1967 var á það bent af kunnugum mönnum að veruleg- ur atvinnuskortur væri framundan, en stjómar- völdin fengust ekki til að taka neitt mark á slík- um aðvörunum. Þvl dundi a’tvinnuleysið yfir haustið 1967 og var mjög alvarlegt þann vet- ur. Ríkisstjórnin hélt hins vegar að sér höndum þar til verklýðshreyfingin efndi til verkfallsaðgerða vorið 1968; þá birti ríkisstjórnin í verkfallslok langa loforðaskrá og setti á laggim- ar nefnd sem átti að beita sér fyrir ráðstöfunum til þess að vinna bug á atvinnuleysinu. Um þau fyrirheit er það að segja að þau voru svikin, hvert eitt og einasta, og nefndin lognaðis't út af. í fyrra- haust skall atvinnuleysið síðan yfir á nýjan leik, margfalt umfangsmeira en veturinn áður. Það var þó ekki fyrr en í janúar 1969 að ríkisstjórnin hafði uppi ný fyrirheit; nú var stofnað mikið nefnda- kraðak í Reykjavík og úti um allt land, og útveg- aðir fjármunir sem námu 340 imiljónum króna og áttu að endast í ’tvö ár. í sambandi við þessi fyrir- heit skorti sízt af öllu háþróaða auglýsingatækni í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, ásamt yfirlýsingum um að nú skyldi atvinnuleysið upprætt gersam- lega. En efndimar hafa síðan birzt mánaðarlega í skýrslum um skráða atvinnuleysingja; í sumar hefur það gerzt í fyrsta skip’ti síðan á kreppuárun- um fyrir stríð að menn hafa engin verkefni feng- ið um hábjargræðistímann. Og nú horfa menn fram til vetrarins imeð meiri ugg en nokkm sinni fyrr. |Jndan þeirri ályktun verður ekki vikizt, að ríkis- stjómin hafi ekki haft áhuga á því að uppræta atvinnuleysið. Ástæðan fyrir þeirri afstöðu er aug- ljós; ráðherrarnir og sérfræðingar þeirra hafa haft hug á því að nota atvinnuleysið sem tæki til þess að framkvæma þá stórfelldu tilfærslu á fjármun- um sem fylgt hefur tveimur síðustu gengislækk- unum. Kjarasamningamir 1968 og 1969 voru gerð- ir undir fargi atvinnuleysisins, og því varð árang- ur alþýðusamtakanna mun minni en rök stóðu til. Þessar staðreyndir þurfa samtök launamanna að muna í samskiptum sínum við ríkisvaldið. — m. næstu viku • Sunnudagur 12- október 1969: 18,00 Helgistund. Séra Þorsteinn L. Jónsson, Vestmannaeyjum. 18,15 Stundin okkar. — Þórunn Einarsdóttir segir sögur og syngur með bömum úr Haga- borg. Fyrsti skóladagur bama í Breiðageröisslkóla og Isaks- skóla. Helga Jónsdóttir, Sofi- ía Jakobsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir syngja. Villii-- valli í SuðurböCum, 11. bátt- ur. Þýðandd: Höskuldur Þrá- insson. Kynnir: Klara Hilm- arsdóttir. Umsjón: Andrés Indriðason og Tage Ammen- drup- 19,10 HLÉ. — 20,00 Fréttir. — 20,25 Þáttur úr ballettinum Coppelía. — Ballettinn var endursaminn a£ Colin Russ- ei og tekinn upp í sjónvarps- sal. Með aðalhlutverk fer Ingibjörg Bjömsdlóttir. Aðr- ir flytjendur eru kennararog nemendur listdansskóla Þjóð- leikhússins'- 20,55 Kvennaguilið Clark Gable. Mynd um frægðarferil hins dáða kvikmyndaleikara. Þýð- andi: Dóra Hafsteinsdóttir. 21,45 Hrun Usherhallar. Sjón- varpsleikrit. Þýðandi: Ingi- björg Jónsdóttir. Myndin fjall- air um dularfulla og voveif- lega atburði á fomu ættar- setri og er eklki ætluð börn- um. 22,35 Dagskrárlok. • Mánudagur 13. október 196!): 20,00 Fréttir. 20,30 I leikihúsinu. Umsjónar- maður er Stefán Baldursson- 20,55 Worse skipstjóri: Fram- haldsmyndaflokikur í fimm þáttuim gerður eftir sögu Alexainders Kiellands. Þýð- andi: Jón Thor Haraidsson. 2. þáttur. — Björgunin. Tore Breda Thoresen færði í leik- form og er leikstjóri- — Per- sónur og leiikendur: Worse skipstjóri: Lasse Kolsitad. Maddama Torvestad: Ragn- hild MicheJsen, Sara: Inger Lise Westby, Henrietta: Maor- it Haimdahl, Hans Nielsen Fennefos: Ame Aas, Lauritz: Kyrre Haugen Bakke, Gar- man konsúll: RoJf Bemtzen. 21,40 Framfarir í læknavísind- um. Mynd um hina öm þró- un þessara vísinda og fram- tíðarhorfur á þvi sviði. Þýð- andi: Ölafur Mixa læknir. 22.30 Dagskrárlok. Þriðjudagur 14. október 1969. 20-00 Fréttir. 20.30 Ob-la-di, ob-la-da Skemmtiþáttur (Nordvision — Finnska sjónvarpið.) 20.50 Á flótta. Bamsránið. Þýð- andi Ingiþjörg Jónsdóttir. 21.40 Skáldaþing. Fyrri þáttur. Þessum umræðum _verður sjónvarpað beint úr Sjón- varpssal. Umræðuefni er rit- höfundurinn og þjóðféJaigið. Þátttakendur eru rithöfund- amir Guðmundur Daníelsson, Hannes Pétursson, Jóhannes úr KötJum, Thor Vilhjálms- son og Þorsteinn frá Hamri-<f> Umræðum stýra Eiríkur Hreinn Finbogason og Ólafur Jónsson. Dagskrárlok óákveðin. Miðvikudagur 15. okt. 1969. 18-00 Gustur. Tryggðatröll. Þýð- andi Ellert Sigurbjömsson. 18.25 Hrói höttur. Of mangir jariar. Þýðandi Ellert Sigur- björnsson. 18-50 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.30 Suðrænn sjómannaskóli. Mynd um fiskimannaskóla fyrir unga drengi á Kúbu. Þýðandi og þulur Höskuldur Þráinsson. (Nordvision — Sænslca sjónvarpið). 20.50 Heimsókn i í Tivoli. Skyggnzt inn í hinn litríka skemmtigarð í hjarta borgar- innar við Sundið. 21.05 Miðvikudagsmyndin: Gangið í bæinn (Don't Bother to Knock) Brezk gamanmynd, Leikstjóri Frank Godwvin. AðaJhlutverk: Richaird Todd, Njoole Maurey , og Elke Sommer. Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir. Ungur maður fer í ferðalag og lætur. ýmsa hafa lykila að íbúð sinni. 22.40 Dagskrárloík. Föstudagur 17. október 1969. 20.00 Fréttir- 20.35 Apakettir- Spilagosar. Þýðaindi Júlíus Magnússon. 21.00 Það er svo margt ... K-viiíimyndaþáttur Magnúsar Jóhannssonar. 21.30 Fræknir feðgar. (Bonanza) Forvitna konan. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22-20 Erlend málefni. Umsjón- armaður Ásgeir Ingólfsson. 22.40 Dagskrárlok. WRITERS W0RKSH0P í ráði er að stofna til umræðufunda um smásög- ux þær, sem væntanlegir þátttakendur hefðu hug á að selja á erlendum mörkuðum. Frú AMALÍA LÍNDAL, ritstjóri tímaritsíns 65“ mun skýra þetta nánar sunnudaginn 12. október kl. 16 í Café Höll, uppi. fslenzk frímerki ný og notuð kaupir hæsta verði RICHARD RYEL Háaleitisbraut 37 (áður Kópavogi). Sími: 84424. — (Bezt á kvöldin). BLADDREiFING Þjóðviljann vantar blaðbera í éftirtalin borgarhverfi: Ásvallagötu Laufásveg Þingholt Talið við afgreiðsluna í síma 17-500. Laugardagur 18. október 1969- 16.00 Endurtekið efni: Réttur er settur. Þáttur í umsjá laga- nema við . Háslkóla Islands. Fjallað er um málarekstur vegna meiðsla, sem óJögráða drengur olli á leikfélaga san- uim, og ábyrgð foreldra í siík- um tilvikum. Áður sýnt 22. febrúar 1969. 17.00 Þýzka í sjónvarpi. 2. kennslustund enduirtekin. 3. kénnslustund frumflutt. Leið- beinandi Baldur Cngólfsson. 17.40 Aðeins gegn lyfseðli. Mynd um lyfjafraimleiðslu og þær rannsóknir, sem þar liggja að baki. Þýðandi Jón O- Edwald lyfjafræðingur. 18.00 Iþróttir. 20.00 Fréttir. 20.25 Smart spæjari- Staðgéng- illinn. Þýðandi Bjöm Matthí- asson. 20.50 FugJaflói. Griðlaind fugia í hættulegu nábýli við vaxandi bórg. Þýðandi og þulur Ósk- ar Ingimarsson. (Nordvision — Norska sjónvarpið.) 21.15 Vetrarmynd frá Kænu- garði. Rúsnesk mynd um- lagasmið í fögru umhverfi Kænugarðs. 21-35 Ekki er aJlt sem sýnist. (The Goddess) Bandarísk kvikmynd frá 1958. Leákstjóri Jóhn Cromwell. Aðalhlutverk Kim StanJey, Loyd Bridges og Steven Hill. Þýðandi Rann- I veig Tryggvadóttir. Lítil telpa elzt upp við ástleysi, sem síð- ar hefur afdrifarík áhrif á einkaJif hennar. 23-20 Daigskrárlok. ÚTB0Ð Kópavogskaupstaður óskar éftir tilboðum í frágang lóðar við leikskóla við Bjamhóla- stíg. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu minni gegn 2000,00 kr. skila'tryggingu. Tilboðum skal skila á föstudag 17. þ.m. Baejarverkfræðingur Kópavogs. RAUÐARÁRSTÍG 31

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.