Þjóðviljinn - 22.02.1970, Blaðsíða 9
Sunrvuda'gur 22. íebrúar 1970 — ÞJÓÐVIÍLJINN — SlÐA 0
Ræða Guðmundar Vigfússonar
Framhald af 7. síðu.
skoðun sína að þessar matvaela-
stöðvar og framleiðsla þedrra sé
í svo augljósri hœttu að ck;ki
verði um deilt. 1 vestan vindátt
og brimi gangi sjórinn og þar
með frárenmsli holræsanna upp
að og yfir matvælastöðvamar
og þá einnig yfir þau flutninga-
tæki sem annast keyrslu hrá-
efnis og matvæla að og frá
stöðvunum. Sé hér í meginat-
riðum rétt frá skýrt, og ég tiel
ekki ástæðu til að ætla amnað,
miðað við þá staðhætti sem við
öllum blasa á þessum stað, er
augljóst, að hér er um mál að
ræða, sem borgarylfirvöld verða
án tafar að láta til sín taka.
Koma þar til bæði almennir
heilibrigðis- og hollusbuhættir
innlendrar neyzluvöru sem
þama er meðhöndluð og fram-
leidd, geyrnd og aifgreidd, og
um leið sú skylda okikar að
tryggja öryggi og hollustuihætti
þeirrar framleiðslu sem seld er
til annarra landa.
Tafarlausar
ráðstafanir
Ég álít þessi tvö meginatriði
sem ég hefi gert að urrutalsefni
í sambandi við ástand holræsa-
kerfis borgarinnar, svo alvarleg
og mikilvæg, að tafarlausa at-
NÝ SENDING
PELSAR og FRÚARKÁPUR
í stórum stærðum.
KÁPU OG DÖMUBÚÐIN
Laugavegi 46.
Kefíavik — Suðurnes
Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn,
einnig bílsæti og bátadýnur. Fljót og vönd-
uð vinna. — Úrval af áklæðum og öðrum
efnum.
Kynnið yður verð á húsgögnum frá okkur.
BÓLSTURGERÐ SUÐURNESJA,
Sóltúni 4 - Sími 1484 - Keflavík.
Verkfræðingur
Tæknifræðingur
Vegagerð ríkisins óskar eftir að ráða vérkfrðéðmg
og tæknifræðing. Umsóknir þurfa að hafa bívrizt
fyrir 10. marz.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofunni,
Borgartúni 7.
Reykjavík, 20. febrúar 1970.
Vegagerð ríkisins.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Jökla h.f. fer fram opinbert uppboð í
Vöruskemmu Jökla h.f. við Héðinsgötu, laugardag
28. febrúar n.k. kl. 13.30.
Seldar verða ýmsar vörur, fluttar inn 1964 - 68,
sem innflytjendur þeirra hafa ekki hirt um að-
nálgast, svo sem gólfflísar, lampar, hreinlætis-
tæki, spónaplötur, Ford Taunus-vél, Mercedes
dieselvél, sjónvarpsmet, stálgormar, grindur, inni-
skór, ljósaperur, hjólbarðar, stálvír, leikföng,
slökkvitæki, snyrtiáhöld, súpukraftur, tóm plast-
glös, jámvara, stálrör, radiofónn, h'jólsög o.fl.
Greiðsla við hamarshögg. — Vörumar verða til
sýnis eftir því se'm við verður komið, fyrir hádegi
á uppboðsdegi.
Borgarfó getaembættið í
Reykjavík.
Minningiarathöfn um
HÓLMFRÍÐl BENEDIKTSDÓTTUR
frá Þorbergsstöðum
fer fram í Fossvogskapellu mánudaginn 23. febrúar kl.
3. — Jarðsett verður í Hjarðarholti á þriðjudag M. 3.
Börn og aðrir vandamenn.
hugun og ráðstafanir til úrbóta
þoli eklci bið. Að því er varðar
ástandið við Kirkjusand virðist
í fljótu bragði um tvennt að
velja: Að lengja holræsin það
langt í sjó fram, að straumar
og sjógangur leysi upp og skoli
burt því, sem frá útrásunum
berst, eða að velja þessum hol-
ræsum aðra og nýja leið í sjó
fram, þar sem þeirri hættu er
afstýrt sem nú er til staðar.
Að sjálfsögðu verður það
verkefni heilbrigðisyfirvalda
borgarinnar, heilbrigöisnefndar
og borgarlæknis að kanna þessi
atriði og skila tillögum til
lausnar og úrbóta í samráði við
borgarverklfræðing. Ég legg á-
herzlu á að þetta mól sé tekið
föstum, skjótum og raunhæfum
tökum og að álit og tillögur geti
borizt borgarstjóm sem fyrst.
Það er ekki ætlun mín að orð-
léngja um safeir eða mistök í
sambandi við þettá mál. Og það
geri ég m.a. í trausti þess að
allir borgarfdlltrúar skilji að
hér verður ekki við óbreytt á-
stand unað, og séu því reiðu-
búnir til að stuðla sameiginlega
að tafarlausri athugun málsdns
bg farsælli og ömggri lausn.
Barnaleikhús
Framhald af 1. siðu.
tillögu Svavars og skaut fram
þeirri hugmynd hvort ekki væri
rétt að borgin veitti fé til þess að
verðlauna góð bamaleikrit.
Þórir Kr. Þórðarson tók einnig
mjög vel í huigmyndina um sér-
stakt barnaleikhús í sambandi við
skólana í borginni. Þórir treysti
sér þó ekki til þess að samþykkja
tillöguna tafarlaust og lagði til
að henni yrði vísað til fræðslu-
róðs og borgarráðs
Svavair Gestsson tók aftur til
máls og benti á að ekkert í til-
lögunni fæli 1 sér ákvörðun um
beinar aðgerðir, aðeios stefnu-
mörkun og athugun. Það væri því
ekki minnsta ástæða til þess að
vfea tillögunni frá borgarstjóm
til sérstakra stofnana borgarinnar.
En þar sem við fu-lltrúiar minni-
hlutaflokkanna temjum okkur
ekki ofstæki meirihlutans skal ég
til mólamiðlunar fallast á að til-
lagan verði send þessum aðilum
til athugunar. En ég legg áherzlu
á, sagði ræðumaður, að athuigun
þessara aðila verði flýtt.
Að umræðum loknum var til-
lögunni vísað til fræðsluráðs og
borgarróðs með samhljóða atkv.
*-elfur
Skólavörðustíg 13
og
Vestmannabraut 33,
Vestmannaeyjum.
☆ ☆ ☆
Útsala á fatnaði
í fjölbreyttu
úrvali
☆ ☆ ☆
Stórkostleg
verðlækkun í
stuttan tíma.
☆ ☆ ☆
Komið sem fyrst
og gerið góð
kaup
☆ ☆ ☆
Kvikmyndir
Framihald aif 6. síðu.
;sem þá verða sýndar: 7 banda-
rískar smámymdir, flestar gerð-
ar nýléga af nemendum kvik-
myndaháskólanna.
Hvergi nokkuns staðar mun
vera jafn almennur áihuigi á
kvikmyndagerð meðal ungs
fólks sem í Bamdaríkjunum.
, Fjölmargir skólar þar í landi
hafa nú kvikmyndagerð á náms-
skránni. Elfni til kvikmynda
verða stöðugt ódýrari, og alltaf
. fjölgar kvikmyndáháskóllunum,
en þar haifa stúdentar þó full-
komnustu aðstöðu sem hægt er
að hugisa sér.
Þessar 7 myndir eru sannkall-
. aðar tilraunamyndir, misjafn-
lega frumlegar að vísu, en filest-
ar athyglisverðar og skemmti-
lega ólíkar. Þetta eru engar
„undergrmind“-myndir með
„óæski]egum“ boðskap eða
djörfum ástarleikjum. En yfir
þeim er léttur og ferSkur blær,
o„ ættu allir kvilrmyndaáhuga-
menn að hatfa ánægju af.
Væntanlega verður nánar
sagt frá myndum þessum og
höfundum þeirra síðar.
Kvennadeild
Framhald af 5. síðu.
luku nýlega námskeiði í björgun-
arstörfum hjá björgunarsveit
Ingólfs.
Merkin verða afihent sölubörn-
um í öllum barnaskólum borgar-
inhar, svo og húsi SVFÍ, frá kl.
10 árdegis á sunnudag. Er þeim
tilmælum beint til aðstandenda
að sjá um að bömin verði hlýlega
klædd. Þau fá sem fyrr segir 10%
sölulaun.
Launþegar fá
Frambald af 1. siðu.
gjöld, sjúkrasamlagsgjald o.fl.
hækka um 15 stig úr 124 í 139
stig. Frádráttarliðurinn fjöl-
skyldubætur er hins vegar ó-
breyttur, 110 stig. Sýnir það
glöggt hve bætur trygginganna
hafa verið hlutfallslega mikið
skertar samfara aukinni dýr-
tíð, að bótaliðurinn hefur að-
eins hækkað um 10 stig frá i
janúar 1968 á sama tíma og lið-
urinn gjöld til trygginganna hef-
ur hækkað um 39 stig.
SKÍÐI
SKÍÐASTAFIR
SKÍÐ ABINDIN G AR
SKÍÐASKÓR
HELLAS
Skólavörðustíg 17.
Auglýsingasíminn
er 17 500
ÞJÓÐVILJSNN
ALLSK0NAR
ULLARFA TNAÐUR
Laugavegi 45
Glertæknihf. sími:26395
Framleiðum tvöfalt einangrunargler og sjáum
um ísetningar á öllu gleri.
Höfum 3ja, 4ra og 5 mm gler, útvegum opnan-
lega glugga. — Greiðsluskilmálar.
GLERTÆKNI HF. Simi: 26395.
Ingólfsstrœti 4.
Auglýsing
um notkun endurgreiðsluheimildar
skv. 50. tl. 3. gr. laga nr. 1/1970 um
gjaldamismun af iðnaðarvélum.
Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að nota
framangreinda lagaheimild svo sem segir í
auglýsingu þessari.
Hver endurgreiðslubeiðni verði send ráðu-
neytinu ekki síðar en 1. júlí 1970 á þar til
gerðu eyðublaði. — Beiðni skal fylgja:
1) Tollreikningur ásamt vörureikningi
(faktúru).
2) Útreikningur á tollendurgreiðslunni,
er gerður sé á venjulegri aðflutnings-
skýrslu.
Til skýringar skal það tekið fram, að tollur
fæst einungis endurgreiddur af véluim til
iðnaðarframleiðslu, þ.e.a.s. af vélum, sem
beinlínis eru notaðar við framleiðslu á
vöru viðkomandi fyrirtækis, en ekki af
hjálparvélum eða -tækjum, t.d. eins og
vörulyfturum, loftræstitækjum, kyndi-
tækjum o.s.frv. Ennfremur verða vélarnar
að vera í eigu endurgreiðslubeiðanda 1.
marz 1970 og hafa verið tollafgreiddar eft-
ir 1. des. 1968.
Til frádrá'ttar endurgreiðslunni kemur
væntanleg söluskattshækkun hinn 1. marz
næstkomandi.
Allar endurgreiðslubeiðnir sama aðila
skulu sendar ráðuneytinu samtíimis.
Nú rís ágreiningur um endurgreiðsluhæfi
endurgreiðslubeiðna, og mun sá ágreining-
ur þá hljóta söimu málsmeðferð og lýst er
í auglýsingu ráðuneytisins um endur-
greiðslur vegna hráefna.
Umsóknareyðublöð fást hjá Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda, Lækjargötu 12,
Reykjavík, Verzlunarráði íslands, Laufás-
vegi 36, Reykjavík, og hjá tollyfirvöldum.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
20. febrúar 1970
Magnús Jónsson
Jón Sigurðsson