Þjóðviljinn - 12.07.1970, Side 7

Þjóðviljinn - 12.07.1970, Side 7
Sunnudagiur 12. júlí 1970 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA J kvikmyndip Næsta tnánudagsmynd Há- skólabíós verður Lord of Flies og hefjast sýningar á morgun. Myndina gerði Peter Brook ár- ið 1963 eftir snilldarlegri skáld- sögu Williams Goldings, sem kom út í íslcnzkri býðingu s. 1. vetur. Ég sá myndina erlendis fyrir nokkrum árum og hafði þá ný- lokið að lesa söglina. Ég undr- aðist stórum hversu vel tekizt hefðj að kvikmynda þessa óvenjulegu sögu, sem maður hefði haldið að eldd væri unnt að filma. Hópur ungra, brezkra skóla- drengja kemst af er flugvél nauðlendir á lítilli eyju langt frá allri siðmenningu. Þeir eru einir síns liðs, verða að sjá fyrir sér sjálfir, þeir skipu- leggja nýtt samfélag. Hvernig fara þeir að bjarga sér, komast þeir af? Ekki skal þráðurinn rakinn hér til þess að spilla ekki spennunni. Sagan um litlu drengina á eyðieyjunni er auðvitað dæmi- saga um aðra og stærri hluti. Þama eru stóru þjóðféiögin í hnotskum. Hvað er siðmenn- ing? Golding tekst í magnaðri og spennandi frásögn að sýna ótrúlega marga þætti mann- legra samskipta, stjómmála o. s. frv., og við lestur hennar gleymir maður á köflum að söguhetjumar eru aðeins kom- ungir skólastrákar. Það er ein- mitt þess vegna sem hægt væri að ímynda sér að sagan kæmi ekki rétt út á kvikmynd þar sem strákamir væru bara strákar. En strákarnir hans Peters Brooks em stórkostlegir. Þótt sögunni sé nákvæmlega fylgt í öllum orðsvörum og að- alatriðum þá er margt fundið upp af strákunum sjálfum, þeir em eðlilegir, ólíkir, sjálfstæðir. Ef ég ættj að nefna einn öðmm fremur kysi ég Piggy, þann feita. Á síðuistu ámnum fyrir 1963 hafði leikhúsmaðurinn umdeildi Brook verið niðursokkinn í rannsóknir á verkum Artauds og kenningum hans um „Grimmdar-leikhúsið“, og hefði kannski enginn verið betur fallinn til að kvikmynda sögu Goldings. Lord of Flies er kynngimögnuð kvikmynd. Það er vonum seinna að ís- lenzkir kvikmyndahúsagestir fá að sjá mynd eftir Brook. Ekkert bólar á meistaraverki hans Marat/Sade (1966), sem auð- vitað hefði átt að sýna meðan sýning Þjóðleikihússins var enn í fersku minni og notfæra sér þannig hina mifclu umræðu er fram fór þá um leikritið. Þá hefur aldrei komið hingað Lord of Flies (Flugnaliöfðingjnn) Petcr Brook (1963) Háskólabíó á morgun, mánudag. myndin sem Brook gerði í Frakklandi 1960, Moderato Cantabile, eftir skáldsögu Marguerite Duras, með Jeanne Moreau og Jean-Paul Belmondo í aðalhlutverkunum. Nýjasta kvikmynd Brooks er Lér kon- ungur, með Paul Soofield, en hennar hefur áður verið ýtar- lega getið hér í blaðnu. Ég vona að aðsóknin að „Flugnáhöfðingjanuim" verði svo V, mildl að mánudagamir einir nægi ékki til sýninganna. Hér er á ferðinni afbragðsmynd, sem ætti það sannarlega skilið. Þ.S. SVONA ER LÍFIÐ Ungur piltur að leggja út í lífsbaráttuna, einn og óstudd- uir. Hann getur ekki lengur ver- ið heima, bömin eru mörg og faðirinn veikur. Hann kemur sér í vinnu, stritar við hlið fullorðinna, kynnist lífsskoðun- um eldri t>g reyndari manna og nýju umhverfi. Hann mannast, fyrsta lyfting hans er ek!d langt undan, hann verður rót- tækur í sfcoðunum. En líf hans er þó varla byrjað er mynd Jans Troells „Svona er lífið" endar. Samt hefur áhorfandinn séð svo mikið líf að enzt gæti í mannsaldur. Það er efcki oft að maður verður bergnuminn í bíó, en það varð ég að þessu sinni. Hin ljóðræna frásögn Troells er laus við alla viðkvæmni, hún FERÐAFOLK! Yerzlunin Brú, Hrútafirði, býður yður: fs, öl, gosdrykki, pylsur, sælgæti, tóbak, dagblöð, tímarit og margs kyns ferðavörur. Verði stillt í hóf. — Benzín, olíur. — Snyrtiklefar. Opið kl. 9 til 23.30. yerið velkomin. er hrein og tær, einlæg á allan hátt. Svo fjölskrúðugt persónusafn er sjaldgasft að sjá í nokkurri kvikmynd, enda val- inn leikari í hverju rúmi. En eitt er það, sem ef til vill ræður úrslitum, að Tmell er sjálfur myndatökumaðurinn og heiiur þannig allt í hendi sér, myndstjóm og leikstjórn. Hann leikur sér líka óspart með myndavélina og beitir ýmsum brögðum án þess að rjúfa heildarmyndina, t. d. hin bráð- skemmtilega kennslustund á reiðhjólinu og óhugnanlegur draumur konunnar í frásögn gamila mannisins við fljótið. Jan Troell hóf feril sinn sem Ijósmyndari. Árið 1962 kvik- myndar hann fyrstu mynd Bo Widerbergs „Barnavagninn“ og tók síðar nokkrar heimildar- kvifamyndir fyrir sjónvarp, þangað til framleiðandinn Bengt Forslund (einn af siJDfn- endum tímaritsins Chaplins) bauð honum að stjórna einum kafla í mynd þriggja annarra leikstjóra. Og Troell heimtaði Max von Sydow og engan ann- an í aðalhlutverkið. Þessi mynd Tnoells „Heimsókn í mýramar“ (eftir sögu E. Johnsons) var síðan sýnd sérstök og verðlaun- uð sem bezta stuttræma ársins. Har har du ditt liv varð svo fynsita langa mynd hans, sagt var frá viðtökunum sem hún hlaut hér í blaðinu s. 1. sunnu- dag. Næsta mynd Troells Ole dole doff fékk talsvert misjafnar móttökur í Svfþjóð, en hlaut silfurbjörninn í Berlín 1968 Og nú fcvikmyndar hann Vesturfarana eftir skáldsögum Wilhelms Mobergs. Undanfarna daga hafa marg- Svona er lífið, Jan Troell (1966) Bæjarbíó. ir komið að máli við mig og þafckað fyrir hina „rækilegu viðvörun“ sem gefin var hér í blaðinu s. 1. þriðjudag. Tileíni hennar var sú hörmungar- aðsókn sem þetta ágæta kvik- myndaverk hlaut fjrrstu dag- ana (Bæjarbíó auglýsir aðeins í Mbl.): myndin var frumsýnd á laugardegi; áhorfendur á 5- og 9-sýningum samtals tólf. Á 5-sýningu sunnudaginn eftir þrír áhohfendur, ■ samtals 15 manns á þrem sýningum. Sem betur fór komst verulegur skriður á aðsókn s. 1. þriðju- dagskvöld sem varð metkvöld hjá bíóinu í langan tíma. Er það kannski vafasamur sparnaður bíóstjóranna að aug- lýisa einungis í Mogganum? Þ.S. Húsráðendur! Geri við heita og kalda krana, WC og WC-kassa, leka á ofnum og hitaveituleiðslum. STILLI HITAVEITUKERFI. HILMAR J. H. LÚTHERSSON pípulagningameistari. §ími 17041 — til kl. 22 e.h.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.