Þjóðviljinn - 15.08.1970, Síða 9
Laiuigairdaigur 15. áigúsit 1970 — ÞjÓÐVIU I'NN — SlÐA Q
Þeir Andrei Gromiko og Walter Scheel, utanríkis ráðherrar Sovétríkjanna og Vesturi-Þýzkalands,
ræddust við nær sleitulaust í tólf daga áður en þeim tókst að hamra saman griðasáttmálann sem
undirritaður var í Moskvu nú í vikunni af forsætisráðherrum þeirra, Kosygin og Brandt. Við-
ræðurnar gengu heldur erfiðlega í upphafi en að lokinni fyrstu vikunni bauð Gromiko Scheel til
dvalar í sumarbústað sínum og eftir það fóru viðræðurnar að ganga greiðlegar. Þeir utanríkis-
ráðherrarnir (Gromiko gestgjafj t.h.) eru hér að fá sér hressingu í sumarbústaðnum
IsyniSu að smygla
ur togara
Lögreglan í Reykjavík handtók
tvo menn í fyrrakvötld, annan
útLendan, hinn reykivískan, er
þeir voru að smyigla bjór. Höfðu
þeir keypt bjórinn um borð í
pólsikum skiuttogara í höfninni
og smyglað honum í land. Tók
lögreglan 6 bjórkassa oig 12
flös'kur af þeim. Tollverðir munu
hafa tekið smyglvarning af
fleirum sem komu frá skipi
þessu.
er fresteð
FORT MENNING 14/8 — Mál-
inu, sem Bandaríkjaiher hefur
hö'fðað gegn William Calley, og
átti að koma fyrir rétt 24. ágúst
n.k. hetfiur verið frestað. Calley
er svo sem kunnugt er gefið að
sok að hatfa drepið 102 suöur-
vietnamska borgara við fjölda-
morðin í My Lai.
Ástæða þess að máliniu er
frestað er sú, að dómarinn vill
gefa sér tíma til að svara fyrir-
spurnum frá verjandanum, sem
óskar eftir að fá aðgang að
heimildum svosemýmsum skjöl-
um, sem varða My Lai fjölda-
morðin. Ekki var frá því skýrt,
hversu lengi ætti að fresta mál-
imu.
Hjartans þakkir til allra þsirra er sýndu okkur sam-
úð við andlát og jarðarför fósturmóður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömma
RAGNHEIÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Eskifirðj
Kóngsbakka 4.
Fyrir hönd vandamanna
Ása Ásmundsdóttir.
Þökkum hjartanlega sýnda samúð við andlát eiiginmanns
míns, föður okikar, tengdaföður og afa
BJARNA BJARNASONAR
frá Laugarvatni
Anna Jónsdóttir
Védís Bjarnadóttir Vilhjálmur Pálsson
Ragnheiður Ester Guðmundsdóttir Þorkell Bjarnason
og barnabörn.
Jairðarför
SIGRÍÐAR HELGU GISLADÓTTUR
frá Steinholti, Skagafirði,
verður gerð frá Langboltskirkju mánudaiginn 17. ág-
úst kl. 11.39.
Vandamenn.
Máli Galley
Höfðingleg
gjöf til
Hallgrímskirkju
• Mér helfiur í dag verið atf-
hmt gjöf að upphæð fimmtíu
þúsund kr. til Hallgríms'kirkju
frá fimm systrum, sem allar
eru búsettar vestan hafs. Gjöf-
ina getfa þær til minningar um
foreldra sína jóhönnu Soffíu
Jóhannesdóttur oig Þorvald
Gunnarsson frá Borgarlæk á
Skaga í Skagafjarðarsýslu.
Tvær þessara systra hafa
verið á ferðalagi um ísland og
notuðu stfðustu stundir ferðar-
innar til að aflhenda gjölfdna.
Þannig kveðja þær „gamla
landið“ þessu sinni, og um leið
og ég óska þeim fararheilla,
þakka ég fyrir kirkjunnar hönd
þann hlýhug og vdlvild, sem
býr að baki áikvörðun þeirra.
Nafn foreldra sinna vilja þær
tengja við gjöfina, vegna þess
að á heimili þeirra voru passíu-
sálmarnir í heiðri hafðir, lessn-
ir og sungnir. Er þar um að
ræða eitt dærni af mörgum
um það, hvers virði Hallgríms-
sálmar voru landnemunum
vestan hafs. Guð Messi systum-
ar fimm og láti dæmi þeirra
verða til uppörvunar öllum
þeim, vestan og austan hafs,
sem rækja minningu séra Hall-
giríms.
Reykjavík 13. ágúst 1970.
Jakob Jónsson.
SALT-vsðræðir
VÍN 14/8 — Annarxi umferð
viðræðna Bandaríkj amanna og
Sovétmanna um takmörkun á
notkun hvers kyns gereyðingar-
vopna, lauk í Vínarborg í daig
og þriðja umferð hefst ekki fyrr
en 2. nóvember. Fer hún fram
í Helsinki.
Báðir aðilar létu í ljósi á-
nægju yfir þeim árangri, sem
þegar hefði náðst í þessum vjð-
.ræðum, en ekki vildu þeir ræða
Mkurnar á því að komizt yrði
að samkomúlaigi mjög bráðlega.
Leiðtogi samninganefndar Sov-
étríkjanna, Vladimir Semjanov
lýsti því yfir samkvæmt yfirlýs-
ingu, sem gefin var úit í Sovét-
ríkjunum í dag, að viðræðuirnar
í Vín hefðu verið verulega gagn-
legar, en hann benti jafnframt
á, um hversa fflókið mál væri
að ræða og varaði menn við of
mikilli bjartsýni. Leiðtogi banda-
rísku viðræðunefndarinnar er
Gerhard Smith.
Breiðablik — ís-
firðingar 0:0
I gærkvöld var háður á í-
þróttavellimim í Kópavogi leikur
í 2. deild Islandsmótsins í
knattspyrnu. Léku þar lið UMF
Breiðabliks í Kópavogi og lið
ísfirðinga. Jafntefli varð, ekkert
mark var skorað.
Síldveiðarnar
Framhald af 1. síðu.
heimdid verlð veitt saimkvæmt
auglýsingu sjávarútvegsráðumeyt-
isins 11. þ.m. og gíldir hún frá
16. ágúst.
Af friamiatngreindu er ljóst, að
í þessu efni ríkja mijög mtfsmiun-
andi skoðamir, en Sildarútvegs-
netfnd telur eins og áður óæski-
legit að leyfa undanþágu frá sild-
veiðibanninu á þann hátt, sem
gert hefur verið. Einnig er það
álit nefndarinnar að ekki ætti
að leyfa neina stfldveiði við Suð-
ur- og Vesturfland fyrr en 15.
septemiber n.k. Þrátt fyrir þetta
viffl nefndin miæfla með því sem
málamáðlun við sjávarútvegs-
ráðuneytið, að stfldveiði við Suð-
ur- og Vesturland verði leyfð til
manneldis og beitu frá 1. sept-
ember n.k. á grundiveilfli ragflu-
gerðar nr. 7 frá 22. fiebrúar 1966
um bann við veiði smásildar.
Jafnfxamt skorar nefndin á ráðu-
neytið að feflfla úr gildi undan-
þágu sem auglýst var 11. ágúst
Leikur hinna ...
Framhald af 2. síðu.
hannesi Eðvaldssyni, er hafn-
aði í þversflá hjá KR, það gerð-
ist á 10. mínútu og aftur héldu
menn niðrj í sér andanum 6
mínútum síðar, er Húsvíking-
urinn í KR-liðinu Sigþór Sig-
urjónsson, skaut af stuttJ
færi í þverslá.
Oft á þessum tíma sýndu
bæði liðin mjög glæsiflega
leikk'afla, sem unun var á að
horfa en á milli daitt leikur-
inn niður á núffl. Upp úr einu
af þessum fallegu leikköflum
skoraði Ingvar Elísson mark
Vals. Alexiander. Þórir Jóns-
son og Ingvar léku mjög
skemmtilega upp vinstri kant-
inn og írá vítateiigsihomi skor-
aði Ingvar glassilegt mark.
Meira að segja skoraði Ingvar
þama með vinstri fæti, en
hann hefur til þessa verið ein-
fættasti leikmaðjr 1. deildar,
svo að þetta var mjög óveriju-
legt. Þanniig var svo staðan í
leikhléi.
Hún var heldur bjiartari
brúnin á áhangendum Vals í
þessu leikhléi en í undanförn-
um leikjum. En alflar vonir
Vafls um 1:0 sigur gerði Ellert
Schram að engu á 10. mín-
útu síðari hálfleiks, er hann
skoraði stórglæsilegt mark
með skalla upp úr homspyrnu.
Aðeins mínútu síðar munaði
ekki nema hársbreidd að Ell-
eirt endurtæki þetta, en þá var
Páffl Ragnarsson tffl bjarigar á
marklínu.
Áfram var sótt og varizt á
vM, og fallegir lédkikafflar og
leikleysa sáust tij skiptis. Á
25. og 26. miínútu áttu Vals-
menn tvö stórhættuleg mark-
tækifæri, en hvorugt nýttist.
En tækifæri tækifæranna átti
Ingvar Elísson. á 37. mínútu
er hann stóð fyrir mannlausu
markinu en skaut í þversflá.
Hvernig hann gat komizt hjá
því að skora þarna er mér
hulin ráðgáta. Það væri siynd
að segja að lánið hafi leikið
við Val í þessum tveim leikj-
um gegn KR í 1. deildinni í
ár.
Beztu menn Vals-liðsins ‘í
leiknum fannst mér þeir
Halldór Einarsson, Helgi
Skokkið
Framhald af 2. síðu.
meistaratátlar tala sínu máli.
Þá hefur þú sjálfsagt teikið
eifitir því, að dagblöðin hafa
ósjaldan mimizt á háttvísa
og prúða framkomu frjálsd-
þróttafólks úr Kópavogi, svo og
góða samhefldni þess og dreng-
skap á leikvelli.
Deildin hafði íþróttanámskeið
í sumar fyrir böm 6-14 ára, og
vegna þeirrar reynslu sem af
því fékkst, hefur verið ákveðið
að stórauka þá starfsemi næsta
sumar.
„Skokk fyrir alla“:
Við viljum gera íþróttir og
útilíf að almenningseign. Þess
vegna hefjum við nú á næst-
unni sikipulagðar skokkæfingar
á vegum deildarinnar. Æfing-
arnar verða tvisvar í viku fyrir
fóílk á aldrinuim 20-90 óra.
íþróttalœnnari verður með
hópnum og fláum við aðstöðu
til að nota böðin í Kópavogs-
skólanum. Þátttökugjald verður
væg!t, og aðeins míðað við ó-
hjákvæmilegan kostnað.
Áætlað er að æfingamar
hef jist um miðjan ágúst, en það
verður nánar auglýst síðar á
iþróttasíðum dagblaðanna.
Góðir Kópavogsbúar, íþróttir
eru fyrir alla, við ætlum ekki
að miða starfsemi oikkar við
keppnislið og afreksfólk ein-
göngu. Þetta er einn liðurinn
í þéirri viðleitni okkar og við
köfflum hana „Skokk fyrir aflla“.
Nánari upplýsingar veita.
Sigurður Geirdal sími 12546
Hörður Ingólfsson 41955
Karl Stefánsson 40261
Þórður Guðmunðss. 25879.
• Minningarspjöld Minning-
sjóðs dr. Victors Urbancic fást
í Bókaverzlun Isatfoldar í
Austurstræti, á aðalskrifstotfu
Landsíbankans og í Bókaverzl-
un Snæbjamar í Hafnarstræti.
Bjöngvinssion og Bergsveinn
Alfonsson, er kom inn á í leik-
hléi. Þjálfari Vafls notfærði sér
ekki að skipta tveirn leik-
mönnum inná þrétt fyrir það
að hægri útherjinn væri svo
sflakur, að varla hefur annað
eins sézt. Þessi piltur hlýtur að
hafa verið veikur. Það getur
ekki verið að nokkur 1. deild-
arleikmaður sé jafn áhuigalaus,
latur og klaufsikur og hann
var í þessjm leik.
Vörn KR, sem til þessa hef-
ur verið betri helmingur liðs-
ins, var afar siök ; leiknum
og varla hef ég sáð Ellert
Schram eiga jafn sflakan- fleik
í mörg ár og að þessu sinni.
Sama má raiuriar se,gja um
hinn annars trausta leikmann
Þórð Jónsson. Aítur á móti
varði Magnús vej markið og
Bjöm Árnason bakvörður átti
ágætan leik. En bezti maður
liðsins var að miínum dómi Jón
Sigurðsson, sívinnandi, og send-
ingar hans eru afbragð. Þá átti
hinn kunni handknattleiksmað-
ur Bjöm Ottesen góðan leik,
en hann lók nú með KR í
fyrsta sinn í mieistaraflokki
í knaittspyrnu.
Dómari var Magnús V. Pét-
ursson og dæmdi all-vefl. En
Magnús dæmir affltaf öðru
hvom á eitthvað sem enginn
sér nema hann, en það eru
sérréttindi Ma;gnúsiar og því
verður ekki breytt. — S.dór.
Frá Gagnfræðaskólanum
r
á Isa firði
í athugun er hvort unnt verður að starfrækja
framhaldsdeild (5. bekk) við Gagnfræðaskólann á
Isafirði næsta vetur. Umsóknir um deildina skal
senda fyrir 25. ágúst til skólastjóra, Gústafs Lár-
ussonar, Hlíðarvegi 23, sem veitir nánari upplýs-
ingar.
Fræðsluráð ísaf jarðar
LAUSAR STÖDUR
við gagnfræðaskólann og barnaskólann á ísafirði.
Að gagnfræðaskólanum vantar skólastjóra næsta
vetur, einnig 3 kennara. Kennslugreinar: Eðlis-
fræði og stærðfræði, íslenzka, danska, enska og
verzlunargreinar. — Að bamaskólanum vantar 1
kennara, og söngkennara vantar að báðum skól-
unum sameiginlega.
Umsóknarfrestur er til 25. ágiíst. Upplýsingar gefa
skólas'tjóramir; við gagnfræðaskólann, Gústaf
Lárusson, sí’mi 3177; við barnaskólann. Björgvin
Sighvatsson, sími 3064.
Fræðsluráð ísafjarðar
Handa vinnukennara-
námskeið
Smiðakennarafélag íslands og fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur gangast fyrir kennaranámskeiðum
dagana 31. ágúst til 6. september. Kennt verður:
fríhendisteikning, leirvinna, leðurvinna, homa-
vinna, trésmíði og smelti.
Hverjum kennara gefst kostur á þátttöku í þrem
greinum.
Námsskeiðsgjald verður 800,00 kr.
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst til fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur í síma 21430.
KENNARAR
Kennara vantar að Barnaskóla Borgamess. Um-
sóknarfrestur til 30. ágúst n.k.
Skólanefnd.