Þjóðviljinn - 22.11.1970, Side 3
Sunnudagur 22. nóvemiber 1970 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
Samtök hægrivinstrimaima
tvískmnungsflokkurmn
Dœrhl I
I síðustu vlku var í sjónvarp-
inu þáttur um verðstöðvun. Þar
voru mættir til leiks talsmenn
stjómmálaflofckanna og þar
voru leiddir fram á sjónarsviðið
nokkrir fulltrúar verkalýðssam-
takanna og atvinnurekenda.
Meðal fulltrúa verkalýðssam-
takanna birtist á sjónvarps-
skermi Guðmundur H. Garð-
arsson. Hann er formaður eins
stærsta verkalýðsfélags lands-
ins, Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur. Hann er í mdð-
stjórn Alþýðusambands Islands.
Guðmundur er ennfremur einn
af helztu forustumönnum at-
vinnurekenda, eða a. m. k.
talsmaður þeirra; hann er
blaðafulltrúi Sölumiðstöðvar
hraðfrysti'húsanna. Þessi sami
maður er varaþingmaður og
liklega einn af frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins í alþingis-
kosningunum í vor. Þegar þessi
maður — í scnn pólitíikus 1-
haldsins, talsmaður atvinnurek-
enda og formaður í stóru
verkalýðsfélagi — var spurður
um afstöðu sína til skerðingar-
ákvæða verðstöðvunarfrum-
varps ríkisstjórnarinnar, svar-
aði hann m. a. á þessa leið:
„Vegna umbjóðenda okkar höf-
um við fleiri skyldum að gegna
en að standa í einhliða kaup-
gjaldsbaráttu. Það þarf ekki
síður að leitast við að tryggja
varanlegan kaupmátt launa,
betri aðstöðu fyrir eftirlauna-
fólk og aldraða, fulla atvinnu og
samkeppn'ishæfni útffilutninigsat-
vinnuveganna. Það er óæskilegt
að samningum milli aðila
vinnúmiárkáðsins sé breytt með
lögum á alþingi, ef þeir stríða
ek'ki gegn almenningsheill. Að
mati forráðamanna þjóðarinnar
fela verðstöðvunaraðgerðimar,
þar á meðal frestun á fram-
kvæmd tveggja vísitölustiga,
meðal annars það í sér að
tryggja heildarhagsmuni þjóð-
arinnar í atvinnu- og efnahags-
málum i nánustu framtíð. Al-
þingi er til þess valið að hafa
endanleg ráð vegna allra lands-
manna i þessum efnum sem
öðrum. Síðan er það fólksins að
taka afstöðu til þess í almennum
þingkosningum hvort ákvarð-
anjr meirihluta alþingis hafi
reynzt réttar eða rangar“.
„Umbjóðendur“ eru væntan-
lega þeir sem kjósa Guðmund
H. Garðarsson formann Verzl-
unarmannafélags Reykjavikur.
Þeir kjósa Guðmund H. Garð-
arsson formann til þess að hann
fylgi eftir málefnum verzlunar-
fólks, til þess að hann tryggi
kjör þess. Nú vita allir hvemig
kjarabarátta verzlunarmannafé-
lagsins undir forustu íhaldsins
hefur verið háð: VR hefur
hirt upp þann árangur sem
Dagsbrún og önnur félög hafa
barizt fyrir. Dagsbrúnarverka-
mennirnir, trésmiðimir, jám-
smiðirnir hafa fært fórnina í
verkföllunum. VR hefur hins
vegar látið sér nægja að hirða
árangurinn af baráttu annarra.
Það er vitað að fjöldi verzlun-
arfólks er óánægður með þessar
stanfsaðferðir VR-forustunnar,
en því miður hafur þessi ó-
ánægja ekki enn brotizt út í
beinum aðgerðum gegn þeirri
íhaldsfomstu sem þannig talar
í sjónvarp um kjaramál verka-
fólks að það er engu líkara en
að kcwninn sé talsmaður at-
vinnurekenda.
En það eru ekki aðeins al-
mennir félagsmenn í VR sem
hafa verið deigir við að ráðast
gegn þessum tviskinnungi sem
kemur fram hjá Guðmundi H.
Garðarssyni — (hann er aðeins
nefndur hér til dæmis): Á síð-
asta þingi Alþýðusambands Is-
lands var fulltrúahópur Lands-
sambands fal. verzlunarmanna
sá stærsti á þinginu. I þeim
hópi vom forstjórar, fasteigna-
salar, formenn skattanefnda
og starfsmenn stjórnmálaflokka.
Þar vom sárafáir almennir
verzlunar- eða skrifstofumenn.
Þessi hópur stóð að því
að fellt var að taka tillögu
um Vietnamstríðið á dagskrá.
Formaður VR stóð upp og flutti
langar dómadagsleiðinlegar
ræður sem hæfðu betur á þing-
um atvinnurekenda og Sjálf-
stæðisflokksins, en á fundum
verkafólks. En hvað gerðizt?
Stóðu þeir ekki upp andstæð-
ingar íhaldsins og töluðu gegn
slíkum málflutningi? Kom ekki
hver á öðmm í ræðustólinn
til þess að hneykslast á mál-
flutningi íhaldsmanna? Svarið
við þessum spurningum þekkja
allir. Enginn svaraði Guðmundi
H. Garðarssyni. Þannig er tvf-
skinnungurinn, falsið og yfir-
drepsskapurinn liðinn, enda var
Guðmundur H. Garðarsson kos-
inn í miðstjóm Alþýðusam-
bands íslands og þar situr hann
enn. Þar em líka Hannibal
Valdimarsson og Björn Jónsson
og er þá komið að dæmi tvö
um pólitíska tvöfeldni.
Thsileiizkt herlið
frá S-Víetnam
SAIGON 20/11 — Fréttir frá
Saigon herma, að stjórn Thali-
lands hafi tekið ákvörðun um að
kalla heim frá Suður-Vietnam
alla thailenzka hermenn fyrir
áramótin.
Yfirmaðui' ■ herafla Thaillands
kom til Saigon í dag til að ræða
við stjómvöld í Suður-Vietnam
og siamkivæimt heimáldum, sem
taldar em áfeiðanlegar, er þessi
ákvörðun einkum til umræðu.
Áður hafði þvi verið lýst yfir.
að heimflutningum thailenzkra
henmanna frá Suður-Vietnam,
yrði ekki iokið fyrr en í júní
1972. Thailenzkir hermenn hafa
barizt í Suður-Vietnam undan-
farin þrjú ár. Munu þeir vera
um 12 þúsund í landinu.
Dœmi II
-'v
Karl Guðjónsson er nú í læri
hjá hannibalistum í póhtískri
tvöfeldni. Hann er furðu næm-
ur á óknyttina. Þannig hefur
hann nú sagt sig úr þingflokki
Alþýðubandalagsins vegna þess
að Alþýðubandalagið væri nei-
kvsett gagnvart vinstrisam-
vinnu. En sjálfur hefur Karl
STJORNMÁL
A
SUNNUDEGI
neitað að ræða vinstrisamvinnu
við Alþýðubandalagið eftir að
viðræður komust á milli þess
og Alþýðuflokksins. Hér er
sannarlega ekki gamanmál á
ferðinni, enda þótt Karl og
hannibalistar hatfi reynt að
gera allt til þess að láta líta
svo út. Vinnubrögð af þessu
tagi eru svívirðilegur loddara-
leikur.
Nefndir þremenningar em
ekki þeir einu sem leika þenn-
an leik tvöfeldninnar, í flokki
tvískinnunga er einnig Guð-
mundur H. Garðarsson. Og þar
er líka Gylfi Þ. Gtfslason og
■MHVPPtÉfHf
Hannibalistar segjast boða
vinstri stefnu, en þeir em þó
fylgjandi aðild að EFTA.
Hannibalistar segjast vilja sam-
eina vinstri menn, en Hanni-
bal hefur haft þá aðaliðju síð-
ustu árin að kljúfa stjóm-
málaflokka. Hannibal Valdi-
marsson segist stundum vera
róttækur verkiýðsleiðtogi — en
hann hlaut vegtyllur sinar hjá
Alþýðusambandinu fyrir náð i-
haldsins; það vom íhaldsfull-
trúarnir á þinigi ASI, sem kusu
Bjöm og Hannibal forseta og
varaforseta ASl. Hannibalistar
segjast vilja yngja upp stjóm-
málin — þingflokkur þeirra
hefur elztan meðalaldur allra
þingflokka. Eftir að þeir Hanni-
bal, Bjöm og Karl yifirgáfu
þingflokk Alþýðuiblandalagsins
hetfur meðalaldur þingmanna
þess lækkað mjög, en Hannibal
er nú með elztu mönnum þings-
ins, tæplega sjötuigur. Hanni-
balistar segjast vilja heiðar-
leika i viðskiptum, þeir segj-
ast berjast gegn hvers konar
spillingu — en hafa verið at-
hu-guð öll fjármál prentsmiðju
Bjöms Jónssonar, eða hefur
það verið athu-gað hve mörg
bændabýli á Islandi bafa bæði
flugvöll og höfn?
forusta Alþýðuflokksins. Það er
dæmi III um pólitíska tvö-
feldni.
Dœmi III
Gylfi Þ. Gíslason boðar til
viðræðna um vinstrasamstarf.
Sömu dagana hefur hann for-
ustu um að skerða kjör launa-
fólks. Það ber að benda á það,
að Alþýðuflokkurinn er sprott-
inn upp úr verkalýðssamtök-
unum, en svo langt er fomsta
hans leidd í íhaldssamvinnunni
að einn helzti talsmaður Al-
þýðuÆlökksins, Bragi Sigurjóns-
son, segir á opinberum vett-
vangi um verðstöðvunarfrum-
varpið, að það skipti ekki
mestu máli hvað verkalýðs-
hreyfingin segi. Hún sé eins
konar þrihöfða þurs! Þannig
er orðinn óravegur milli upp-
hafs Alþýðuflokksins og nú-
tímans, enda er skilningur
vaxandi á því meðal kjósenda
Alþýðuflokksins að bezta leið-
in til þess að styðja verkalýðs-
hreyfinguna á stjómmálasvið-
inu, sé að efla Alþýðubanda-
lagið.
Það er að verða slitinn brand-
ari að unnt væri að gefa út
bók með öllum skoðunum á
öllu þar sem einungis væm
tilvitnanir í Gylfa Þ. Gísla-
son. En þetta er ekki einungis
brandari — heldur líka stað-
reynd.
En Gylfi Þ. Gíslason er ekki
einn um að hafa efnivið til
slíkrar bókar. Veigamikið fram-
lag gæti einnig verið frá
forustumönnum Framsóknar-
flokksins. Það er dæmi IV.
Matthías:
Að fela það sem er „óþægilegt"
Gylfi:
Hægri- eða vinstrimaður
Hannibal:
Frjálslyndur eða vinstrisinnaður
Guðmundur H. Garðarsson:
Talsmaður VR eða SH
Dœmi IV
Förmaður Framsóknarflokks-
ins kom fram í sjónvarpi á
dögunum og var m.a. spurður
um afstöðu Framsóírnarflokks-
ins til samvinnuhreyfingarinn-
ar. Formaðurinn sagði að Fram-
sóknarflokkurinn byggði m.a. á
grundvélli samvinnustefnunnar
og þess vegna hlytu að vera
góð samskipti milli flokksins
og samvinnusamtakanna. Hann
viðurkenndi að tforustumenn úr
Framsáknarflokkmim ættu sæti
í farustu samvinnusamtakanna
og að forustumenn Sambands
ísl. samvinnufélaga ættu sæti
í tforustusveit Framsóknar-
tflokksins. En ákvarðanir þess-
ara tveggja aðila eru — þrátt
fyrir sömu menn á báðum
stöðum — gjörsamlega and-
stæðar. Samband fal. sam-
vinnufélaga er til að mynda
á móti því að greiða laiuna-
fólki vísitölubætur á laun.
Samband islenzkra samvinnu-
félaga er á móti þvi að hækíka
kaup launafólks. Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga stend-
ur við hlið atvinnurekenda-
samtakanna. En þegar þeir
sömu menn, sem taka ákvarð-
anir um þessa stefnu Sambands
ísl. samvinnufélaga, skipta um
fundaiherbergi, er allt annað
uppi á teningnum: Framsókn-
arflolkkurinn þykist standa með
launafólki, ritstjórar Tímans,
tala um að verkalýðsforustan
sé máttlaus, að hún gangi
ekld nógu langt í kröfum sín-
um. Þetta skrifa ritstjórar Tim-
ans — en Tíminn er málgaign
Framsóknarflokksins, en hann
er líka gefinn út af Samband-
inu — óbeint að vísu. Um
svona fyTirbæri má lesa í bók
Símonar Jóhannesar Ágústsson-
ar „Hagnýt sálarfræði“, ekki sizt
kaflanum um kleitfhuga og í
nýrri þýðingu á bókinni „Um
sá1greiningu“ etftir Sigmund
blygðast sín. En í þeim sögð-
um eða skrifuðum orðum hafa
þeir skrifað i blað sitt að Þjóð-
viljinn styddi ekiki aðeins inn-
rásina, sem væri þó út af fyrir
sig ærin hneisa, Þjóðviljinn
fagnaði og legði blessun sína
yfi-r slíka innrás.
Morgunblaðsritstjórar fara
ekki einungis með fals og yfir-
drepsskap að þessu leyti: Þeir
breiða yfir staðreyndir með því
að þegja um þær eða að geta
þeirra í litlu einu. Þannig
birti Morgunblaðið en.gar frétt-
ir um eitmnina frá álverinu
fyrr en skætinginn í bréfi iðn-
aðarráðuneytisins vegna rann-
sóknar Ingólfs Davíðssonar og
síðan gerði Morgunblaðið stór-
frétt úr skýrslu álversins Og
Péturs Sigurjónssonar um flú-
ormengun frá álverinu, enda
þótt ekkert sé að marka þá
skýrslu. Morgunblaðið faldi
eins og það gat skýrslur um
atvinnuleysi meðan það var
mest í fyrra og hitteðfyrra, o.
s. frv. o. s. frv.
Hverju
á að trúa?
Og hverju á svo fólk að trúa
í tvískinnungsþjóðfélagi? Er
Gylfi vinstrimaður eða hægri?
Er G-uðmundur H. Garðarsson
talsmaður VH eða SH? Er
Framsóknarilokkurinn aðeins
róttsekur í orði en afturiialds-
flokkur á borði? Em hannibal-
istar frjálslyndir eða vinstri
menn? Vill Karl Guðjónsson
vinstrasamstari eða vill bann
aðeins losna við Alþýðubanda-
lagið og þingflokk þess? Segir
Morgunbiaðið sannleifcann eða
lýgur það?
Hverju á fólkið að trúa í
slíku tvískinnungssanpf clagi ?
Þar gólar hver á annan sömu
slagorðin, meinandi sitthvað
með þeim: Ég er A segir einn,
annar segir ég er A, en meinar
B, þriðji segir ég er B, en
meinar A. Stjómmálaumrasða
sem þannig einkennist af tví-
skinnungi og útúrsnúningi vek-
ur ekki áhuga almennings
heldur andúð.
Tillaga
Ólafur Jóhanncsson:
Framsókn eða SlS
Freud, sem fjallar um tvískipta
meðvitund, — bls. 52 s. o. áfr.
Dœmi V
Það má taka ótal dæmi fleiri.
Til þess er hvorid tóm né á-
stæða að rekja þennan ömur-
lega kaíla islenzkra stjómmála
öllu nánar. Nefnum þó að lok-
um eitt dæmi til þess að gera
öllum jafnt undir höfði: Rit-
stjórar Morgurublaðsins segja
að þeir ástundi heiðarlega
fréttamennsku. Þetta hafa þeir
ekiki einungis skrifað í blaði
sinu — þetta hafa þedr líka
isagt í útvarpinu án þess að
En þegar menn hafa gagn-
rýnt og rifið niður, eiga þeir
að vera uppbyggilegir Mka,
„jákvæðir“ edns og það er kall-
að. Þess vegna verður hér að
síðustu sett fram tillaga til
athugunar:
Stofnaður verði nýr stjórn-
málaflokfcur Samtök haegri-
vinstrimanna — tvískinnungs-
Slokkurinn. Aðaflstjóm samtak-
anna skipi Hannibal Valdi-
marsson, formaður, Gylfi Þ.
Gislason, varaformaður og
gjaldkeri, Ólafur Jófhannesson,
talsmaður flofcksins í sjónvarpi,
Guðmundur H. Garðarsson,
blaðatfulltrúi tflokksins. Rit-
stjórar málgagnsins „Tvi-
sldnnu“, Matthías Jöhannessen,
Bjöm Jónsson og Karl Guð-
jónsson — nefndir „tvískinn-
ungsklikan“.
—sv.
Tilboð óskast
í nofekrar fólíksbif!reiðar er verða sýndar að Grens-
ásvegi 9 miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sölunefnd vamarliðseigna.
Vólvirkjcr — Vélvirkjar!
Okkur vantar vélvirkja nú þegar. Þarf að vera
vanur logsuðu og rafsuðu.
Upplýsingar í sílna: 66300.
ÁLAFOSS H.F.