Þjóðviljinn - 02.10.1971, Blaðsíða 3
&atö@artía®ör ^ ofettSbsr 1071 — feJÖfiVlítJOnN' — StoA 3
T
AF ERLENDUM VETTVANGI
Einingarsamtök Afríku
ákæra Vesturveidin
Stór hlti.0 þingheims reis
á fætur og klappaði fast og
len-gi þegar Moktar OuLd
Daddah, forseti Máretaniu,
harfði lokið ræðu þeirri sem
bann flutti hér á Allsherjar-
þingi S.Þ. 24. sept. í nafini
Eini n gars amtaika Afiríkurík j a.
Kamnski var þetta mikilvæg-
asta raeðan sem flutt var á
fyrstu viku þdngsins.
Ouid Daddah er í nefnd
þeirri frá Einingairsamtökun-
um, sem heimsækir island.
Til að gera lesendum Þjóð-
viijans einhverja hugmyind
um það, hvað teim liggur
helzt á hjarta Afríkumönnum
sendi ég blaðinu kafla úr
ræðu Oulds Daddah — sem á
sérstaklega við okkur sem
Natóþjóð og þótttakendur í
þeim ,,vömum“ vestrænnar
menningar sem forsetinn ræð-
ir um.
Jónas Amason.
Afrfkurilci gera sér aðsjálf-
sögðu grein fyrir því að
til eru nokkur ríki, sem hafa
mikla möguleika á að hafa
áhirií á rás viðburða utan
sinna landamæra. Þessi fáu
forréttindastórveildi geta með
siðferðilegum, hei-naðarlemm
og efnahagslegum ráðstöfun-
um flýt-t eða seinkað fram-
förum og frelsun allnanianna-
Þetta býðir að Afríkurfld
hljóta að léta sér það við
koraa, hvernig stórveld.in beita
áhrifum sínum f meiriháttar
málum. Keyndar er það svo,
að því greinilegar sem við
í Eininigarsamtokum Afríku-
ríkja (OAU) mótum sameigán-
legar aðferðir til að berjast
ýjerídustefnu, kjmþátta-
kúgun og vanþróun, því þetur
siáum við þá áþyrgð sem
. st'1órvej<^áfn þera og geta þorið
á farsælli þróun þeirra á-
ætlana, sem afrískar stjónnir
eru að framkvæma.
Afinám nýlendustefnu er
meðal þessara áætlana. OAU
lítur á það sem helga sikyldu
sina að gera allt sem þau geta
til, að frelsa þagr þjóðir sem
enn eru undir erlendum yfir-
ráðum, og hafa þau stofnað
samstarfsnefnd sem samræm-
ir alla aðstoð frjálsra Afríku-
n'kja við þær þjóðir.
Við í OAU héldum aðþessi
Þjóðfrelsisnefnd ætti sérveru-
legan stuðning í þesisari heil-
ögiu baráttu í „Yfirlýsingiu urn
frelsi til handa nýlenduþjóð-
um“, sem S.Þ. samíþykktu í
desember 1960. Við héldum
að í samræmi við það sögu-
lega skjal hefðu stórveldin
skuldbundið sig til að styð.ia
viðleitni og fómir, sem Afr-
íkia vildi á sig taka, til að
frelsa síðustu syni og dætur
sina undain oki nýlenduikúg-
unar. Reynslan sýnir að bar-
átta þjóöfrelsisafla og stuðn-
ingur OAU hefði að mestu
nægt til að útrýma erlend-um
yfirráðum í Afiríku, ef aðsíð-
ustu nýlenduherrairnir hefðu
ekki notið enn sterkari að-
stoðar af liálfu allmargi-a
þeirra ríkja sem ég nefndi
stórveldi. Enginn getur reynd-
ar neitað því, að eitt af fá-
tækustu löndum Evrópu, Port-
úgail, gæti ekki án mikillar
aöstoðar hinna voldugu banda-
manna sinna í Nató hafa
haldið jafn lengi áfram styrj-
öld heirri sem landið háir í
Angola, Mozombique og Gu-
ineu (Bissau) gegn frelsisbar-
áttu aifrísikna þjóða. Nató-
bandamenm Portúgals geta
ekki haldið því firam að
„varnarvopn“ þaiu sem þeir
a.fhenda Poi-túgölum af mikilu
örlæti, eða ,,hlutlæg“ diplóm-
atísk aðstoð sumra þeifra
þýði ekki í reymd auiknakúg-
un afrískra þjóða af hólfu
portúgailskna innflytjenda. —
Beint eða óbeimt eru þessár
bandamenn Portúgala í Nató
ábyrgir fyrir því blóðbaði
sem þeir hafa efnt til í síð-
ustu virkjum nýlendustefln-
unnar í nafni „vaxma vest-
rænnar menningar“.
Vöm vestrænnar menmingar"
— ég hefi af ásettu ráði
kosið að nota þetta vigorð
sem portúgölsk yfirvöld vitna
svo oft í til réttlætingar
grimmdai-verkum sínum á
þeim afrísku landssvæðum
sem þau enn hernema. Eins
hefði veriö hægt að vitna til
annars yfirvarps — „vöm
kristinnar siðmenningar“, ,,bar-
áttu gegn kommúnisma“. Fyr-
ir fáu.m árum sýndust þessi
slagorð ekki amnað en hlægi-
leg aísökun sem síðustu stuðn-
ingsmenn nýlendukúgunar og
kynþáttakúgunar hefðu búið
til. 1 dag bendir margt til þess,
að þessi vígorð, sem Portú-
galir nota, sem. og kyniþátta-
kúgarar í Ródesíu og Suður-
Afríku, móti í. auknum mæli
afstöðu margra stjórna Vest-
uxilanda. Við höfum í dag
ekki mest.ar áhyggjur af því,
að með þögn sinni sýni Vest-
uiveldin í reynd samstööu
með Portúga), Ródesíu og S-
Afríku, heldur af því, að þrátt
fyrir Yfirlýsámgu um frelsi t:l
handa ný'lenduþjððum, Mann-
í-éttindayfirlýsinguna orr önn-
ur slík sikjöl, halda Vestur-
veldin áfram að auka aðstoð
sína við stjói-nir sem viðhafa
hina hötuðu stjómarhætti.
Aðstoð Natóríkja við Portú-
gal er augljós, sem og það
að hún x-æður mestu um á-
framhald nýlendustríða. Og
það er jafnvíst, að aðstoðstár-
veldanna við minnihluta-
stjórnina í. Ródesíu og Suð-
ur-Afríku gejór meira en
nok'kuð annað til að auka kúg-
yn þá sem þjóðir sunnan-
verðrar álfunnar eru beittar.
Þrátt fyrir samþykktir S.Þ.
og OAU um bann við vopna-
sölu til Suður-Afríku og um
efnahagslegöir refsiað'gerðir
gegn Ródesíu, berast valdhöf-
um í þessum löndum æ meiri
vopnabirgðir og vaxandi efna-
haigsleg fyrirgreiðsla.
Okteur sýnast hvorki við-
skiptagróði né tvíhliða samn-
ingar fullgildar ástæður til að
réttlæta þá aukníngu á sviði
viðskipta og tæknilegrar að-
stoðar við minnihlutastjQj3n-
irnar, sem Evi-ópa og Amer-
íka hafa amnazt. Og það er
einmitt þessi ákveðna örfun
af hálfu Vesturvelda sem
framlengir qrlend yfirráð og
kynþáttakúgun í þessum hluta
álfuinnair. I afst/x)u þessara
ríkja verður að fSnna aðra
hvata, aði'a réttlætingu, sem
dýpra ristir en þetta skýlausa
brot á þeim siðferðilegu
grundvallarreglum sem SÞ eru
reistar á. Það er tími tilþess
komiinm að bandamenn kúg-
ara Afríkumanna segi ljóst
og skýrt hve.r afstaða þeirt-a
er til réttmætrar baráttu þjóð-
anna gegn kúgun í okkarálfu.
100 sýningnr á Kristnihaidi
Kristnihald undir Jökli eftir
Halldlór Laxness, í leikgerð
Sveins Einarssonar verður sýnt
í 100. sinm hjá Leikfélagi
Reylcjavíkur í kvöld. Krisbni-
'hald undir Jökli er 6. leikritið
sem sýnt er 100 sinnum hjá
Leikfélaginu. Hin eru Hart í
bak, Ævintýri á gönguför. Del-
eríum Búbónis, Þjófar, lík og
i'alar konur og Þið munið hann
Jörund.
'
Berklavarnar-
dagur á morgun
Berklavarnardagurinn er á morgun, suimu-
dag, og verða þá seld merki á götum úti og
blaðið Reykjalundur, sem er samkvaemt venju
efnismikið og vel úr garði .gert. Merki dagsins
ern tölusett og er vinningur Útsýnarferð til
Costa del Sol á Spáni.
Landsmenn fengu fyrir skömmu alvarlega
áminningu í sambandi við berklasmitun, þann-
ig aS Ijóst er að allir þurfa að • vera vel á
verði end.a þótt berklaveikinni hafi að mestu
verið útrýmt.
Síðastliðin tvö ár hafa verið annasöm mjög
á Reykjalundi. Viðtækar stórframkvæmdir
hafa verið á döfinni. Unnið er að mikilli
stækkun á aðalbyggingum. þannig að rúm fyr-
ir 40 sjúklinga bætast við þau 150 sem fyrir
eru.
Endurhæfingastöðin verður stóraukin, og ný
stói- sundlaug leysir hina gömlu af hólmi.
Tvær götur þorpsins hafa verið lagðar oliu-
möl og ríkulega séð fyrir götulýsingu. Nýtt
vörugeymslurými lagt, og ræktun landsins
stóraukin.
Veriur leiksvæðinu lokui fyrir umferð?
Eftir margar árangurslausar
tilraunir íbúa húsa þeirra við
Skúlagötu, Laugaveg og Rauð-
arárstíg, sem mynda sameigin-
legan húsagarð, til að láta
banha umferð bíla um garð-
inn, þar sem bæði er leiksvæði
og barnagæzluvöllur, hefurmál-
ið nú loks tekið l>á stefnu, sem
ætla má að leiði til þess, að
farsæl lausn fáist.
Sigurjón Pétursson borgar-
ráðsmaður Alþýðubandalagsins,
Iagði til á síðasta borgarráðs-
fundi, að öll umferð einkabíla
um svæðið yrði bönnuð.
íbúar téðra húsa hafa æ ofan
í æ. síðan snemma í ágúst,
reynt að fá bæjaryfirvöld eða
Íögregluma til þess að stöðva
umferð úm svæðið. Þar ereins
og áður segir, bæði opið leik-
svæði og gæzluvöllur fyrirung-
böm, en af umferðinni þarum
stalfar mikál slysahætta. T. d.
er blindbeygja á miðju leik-
svæðinu, en þar aka menn
gjarnam mjög ógætilega os
mesta mildi að ekki skuli slys
hafa hlotizt af umferðinni
þama enn.
Allar tilraunir íbúanna hafa
hingað til verið árangurslausar,
Hvorki lögregla né bæjaryfir-
völd hafa enn séð ástæðu til
að bæta þarma um. Tvívegis
hefur Þjóðviljinn birt myndir
og greinar frá þessum stað, og
einu tilþrifin sem það hafði i
för með sér voru þau, aðverka-
menn frá bænum voru sendir
á stúfana til þess að reisa við
fallina steina sem lágu med-
fram opna leiksvæðinu.
Nú hefur málið hinsvegar
verid flutt fyrir borgarráði, en
þar lagdi Sigurjón Pétursson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins eft-
irfarandi tillögu fram:
Borganáð samþykkir, að
akstur bifreiða, annarra en
sorphreinsumarbifreiða borg-
arinnar, verði bannaður í
húsaga.rði, sem afmarkast af
Skúlagötu, Laugavegi og
Rauðarárstíg, pg að íbúum
húsa við áðurnefndan húsa-
garð verði séð fyrir afmörk-
uðum bdfreiðastæðum.
Jafnframt felur borgarráð
hirei'nsumardeild og heiltorigð-
iseftirliti að gera nauðsyn-
legar ráðstafanir til áð, ó-
hollusta og sóðaskapur stafi
ektei af rusli og sorpi á áð-
urnefndu svæði.
Samþykkt var að vísa til-
lögunni til umsagnar borg-
arverkfræðiin'gs.
Þjóðviljinn mun skýra frá
endanlegri niðurstöðu málsins,
þegar að henni kemur.
Hef tif sö/u
ódýr transistortæki, triargar gerðir og verð. • Einn-
ig 8 og 11 bylgju tæki frá Koyo • Ódýr sjónvarps-
tæki (lítil), stereoplötuspilara, casettusegulbönd,
casettur og segulbandsspólur. • Einnig notaða raf-
magnsgítara, bassagítara, gítarmagnara • Nýjar
og notaðar harmonikur • Nýkomnir ítalskir kassa-
gítarar, ódýrir • Skipti oft möguleg • Póstsendi.
F. BJÖRNSSON Bergþórug'ötu 2
Sími 23889 kl. 13-18, laugardaga kl. 10-12,
þriðjudaga og föstudaga kl. 13-22.
Ritstjóri —
Framkvæmdast/ári
Stúdentasamtök óska að ráða mann til ritstjórnar-
starfa að nýju stúdentablaði, frá og með 15. októ-
ber.
Einmg framkvæmdastjóra frá og með 10. desem-
ber. — Hvort tveggja hálfs dags vinna.
Hugsanlegt er að sami maður gegni báðum störf-
unum.
Skriflegar umsóknir leggist inn á afgreiðslu blaðs-
ins merktar: RITSTJÓRI.
Við blind-hornið hjá leiksvæðinu í liúsagarðinum.
é-----—*•
Kosningaskrífstofa
séra ÞORBERGS KRISTJÁNSSONAR
Stuðningsmenn séra Þorbergs Kristjánssonar frá
Bolungarvík, umsækjanda um Digranespresta-
kall. hafa opnað kosningaskrifstofu að Reyni-
hvammi 15, Kópavogi (vesturdyr), sími 43166.
Séra Þorbergur verður þar til viðtals kl. 5 til 7
síðdegis. — Skrifstofan verður einnig opin á
kvöldin kl. 8.30 til 10.
Stuðningsmenn.
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki.
Jarðýta Allis Chakners HD 9B — árgerð ’55.
Massey Ferguson Rd 70 — árgerð ’62.
Wrecker krani.
Foco bílkrani — 2 tonn.
R-12739 — Diamond bómubíll — árgerð ’42.
Chevrolet mannflutningabíll — árgerð ’42.
R-12564 — Mercedes Benz, mannflutninga-
bíll — árgerð ’58.
Buick — árgerð ’52.
R-17886 — Taunus Transit pickup — árgerð ’65.
R-15136 Landrover, benzín. lengdur — árgerð ’62.
Ofantalið verður til sýnis í porti Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 1. mánudaginn 4.
okt. og þriðjudaginn 5. okt. n.k.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorrf miðviku-
daginn 6. okt., n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 ■ *