Þjóðviljinn - 02.10.1971, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.10.1971, Blaðsíða 8
g SÍÐA — ÞJÓÐVXLJINN — Laiuganda®ir 2. október 1971. J5 Asgeir Elíasson bczti maður ÍR-liösins um árabil hefur ekki leik- ið meft liðinu ennþá. Ekki er ótrúlegt aft hann komi inní liðið um næstu helgi. Þrír leikir í bikarkeppninni eiga að fara fram um helgina Tveir til vidbótar í næstu viku □ Þá hefst bikarkeppni KSÍ fyrir alvöru um þessa helgi. Eiga þrír leikir að fara fram og eru 1. deild- ar lið frá því í sumar þátttakendur í tveim þeirra. Tveir leikir, sem þegar er búið að draga í fara ekki fram nú, en gera má ráð fyrir að þeir verði leiknir í næstu viku og um næstu helgi. 1 dag maetast á Neskaup- stað Þróttarliðin tvö. Lið Þrótt- ar frá Reykjavík og Þróttar fná Neskaiupstað. Þessi lið haía tvívegis leikið saman í sumar og hefur Þróttur (R) unnið báða leikina með nokkrum muin. En máltæki segir — allt er þegar þrennt er — og verð- ur fróðlegt að sjá hvort það á við í þetta sinn. ★ Þá mæta Akureyringar, liðið sem féll niður í 2. deild í sum- ar, liði Isfirðinga, á ísafirði. Eitthvað mun vamta í lið Ak- ureyringa vegna þess, að 2. flokks lið þeirra ér að leika í úrslitakeppni 2. flokks um þessa helgi, en þrátt fyrir það hafa Akureyringar ekki séð á- stæðu til að fá leiknum frest- að. Sjálfsagt telja Akureyriing- ar sig nokkuð örugga um sig- ,ur enda ætti svo að vera, mið- að við frammistöðu Isfirðinga í 2. dcildarkeppninni í sumar. Reykjavíkurmótinu i handknattleik hatd- iS áfram annaS kvöld Annað kvöld kl. 19 heldur Reyk.javikurmeistaramótið i handknattleik áfram og fara þá fram tveir leikir í mfl. kvenna, en strax á eftir þrir leikir í mfl. karla. Fyrri leikurinn í mfl. kvenna verður á milli Ánnanns og Víkings og getur sá leikur orð- ið mjög jafn og skemmtilegur. Ármann er að eignast gott lið í mfl. kvenna, sem er til alls líklegt í vetur Um Víkings-lið- ið veit miaður minna en þess má geta, að það varð Reykja- víkurmeistari í fyrra og var þá skipað leikreyndum stúlkum og mun svo vera enn. Hinn leikurinn er á milli Fram og KR. Fram-liðið hef- ur misst tvær af beztu leik- konum sínum frá í fyrra. Sér- staklega mun liðið sakna hinn- ar frábæru handknattleiks- konu Sylvíu Hallsteinsdótlur, en hún er hætt iðkun hand- knattleiks. Það ætti þvi að geta orðið jafn leikur milli Fram og KR, Sírax að kvennaleikjunum loknum hefst keppni í mfl. karia og leika Víkingur og ÍR fyrsta leikinn. Þetta verður sennilega jafnasti oS skemmti- legasti leikur kvöldsins. Vík- Hörður Kristinsson sterkasti leikmaður Ármanns. ings-iiði'ð hefur verið mjög sannfærandi í tveim fyrstu leikjum sínum og verður að öU)Um líkindum sterkt í vetur. ÍR-liðið hefur hinsvegiar ekki sýnt það ennþá, sem búizt var við af því fyrir fram. Þeiss ber þó að geta að það hefur ekki enn gelað stillt upp sínu sterk- asta ii’ði ýmissa orsaka vegna. í öðrum leik kvöldsins mæt- nst Valur og Ármann og er hætt við, að þar verði um leik kattarins aö músinni að ræða. Þess ber þó að geta, að Ár- rmann kom mjög á óvart á síð- asta leikkvöldi er liði’ð sigr- aði ÍR, en þó verður að telja hæpið að því takist að sigra Val. Síðasti leikur kvöldsins verð- ur á milli KR og Fram og má fullvíst telja að þar verði það sama upp á teningnum og í leik Vals og Ármanns að um auðveldan sigur Fram verði að ræða. KR-liðið virðist alger- lega æfingalaust og ólíklegt að þa’ð veiti hinu ágæta Fram- liði nokkra mótspyrnu, sem talandi er um. — S.dór. Róbert Eyjólfsson einn af hin- m mörgu ungu og efnilegu leikniönnum Vals-liðsins eT á morgun fer til Húsavíkur og mætir Völsungum Þv'i má skjóta hér inn! aðf' A'kureyringar hafa enn ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort þeir leika undir merki IBA næsta sumar, eða hvort KA og Þór leika sitt í hvonu lagi. Halldór Björnsson, þjálfari og bezti leikmaður Völsunga. Tekst honum að leiða lið sitt til sigurg gegn Vai á morgun? Loks mun 1. deildarlið Vals saskja Húsvíkinga heim á morgun og leika gegn Völs- ungutn, liðinu er kom upp úr 3. deild í sumar. Eftir öllum sól- armerkjum að dæma, ætti Val- ur að vera nokkuð öruigigur um sigur, en þó er bezt að fara varlega í alla spádóma, ekki sízt þar eð Völsungar eru þekktir fyrir mikla keppnis- hörku og þeir eru þar að auki á heimavelli. — S.dór. J. .■:v.i'Bi;V.jViiV:Víí\íVá«iáiV.Vi^siVáiiii\íiií^ÍiVÚ:iiVtjiis,úSi5^i*iSÍtiiV.:i;;.i;;,.Vát'.'Á^siV,jáVÍiV^\iii;.v...- .... ................... ............ . Úrsliialeikir 2. flokks um helgina Úrslitaleikirnir í íslands- móti 2. flokks fara fram í Reykjavík um þessa helgi. Til úrslita leika KR Fram og IBA. Mun keppnin væntan- lega hefjast í dag en ráð- gert er að Akureyringarnir leiki háða sína leiki hér syðra um helgina. Þá fer einnig fram á morg- un úrslitaleikurinn í Islands- móti 5. flokks og leika til úrslita KR og Fram. :VV\V;VV\\UV\VnV:V:MvV;v\V:\\\Ú\VU\V\\á\VV\V\V:VvVV:'Ú\\:VVV:VV'ÚV:\VvV:VV:V'nV:VVVvV:ViVVV\\VæV:-- Þér gat feilaS eins og öSrum Nokkur orð um réttan fréttafluttnin Klp. og fleira Mér datt í hug þessi ágæta heilræðisvisa þegar ég las á- sakanir Klp. í Tímanum í gær, um sífelldar missagnir sann- leiksviðsnúning og ósannsögli mína á íþróttasiðum Þjóðvilj- arts. Vart má heilum fljúga fjöðrum fullur af veilum maðurinn. Þér gat feilað eins og öðrum enginn deila skyldi á hinn. Það vill nefnilega svo til, að einn af daglegum samnleiks- viðsnúningum Klp. í frétta- skrifum sínum er á sömu síðu og níðslkrifin um mig. Þar segir hann af sinni alkunnu fyndni, að Þróttarliðið frá Reykjavik fari til Norðfjarðar í 3 litlum fflugvélum, þar sem liðið sé svo dýrt að það fari ekki í ' einni vél. Sé þetta í annan stað vegna þess, að Þróttur (R) þurfi að kosta sig algerlega sjálfur til Neskaup- staðar og sé þetta ódýrara. Nú vill svo til að í reglugerð um bikarkeppni KSl segir orörétt: auglýsingakostnaður, gjald til KSÍ ferða- og uppihaldskostn- aður fyrir allt að 15 manns, greiðist að jöfnu arf báðum lið- unum. Ekki það, að þetta skipti svo mitalu máli, Kjartan minn, það er bara þetta heilræði að „vart má heílum fljúga fjöðrum/ fuillur af velkim maðurinnM. Um persónuileigt skítkast í minn garð hirði ég etaki um að sviara þér öðru en þessu; það lýsir bara þinum innri manni. En hvað viðvíkur því að ég hafi fyrstur gagnrýnt íslonzk lið fyrir að lei'ka báða sína leiki erlendis í EB vil ég segja þetta. Það eru liðin þrjú ár síðan ég fyrst gagnrýndi þetta hjá islenzku liöunum en þá ták en,ginn undir þá ga-gnrýni. En um það hvort einlhver Alfreð Þorsteinsson hafi skrifað í Tímann um þetta, má vel vera, ég las ekki íþróttasíðu Tímans svo vel, nerna þá helzt grínið þitt En hitt er mér ljúft að leið- rétta að mig misminnti um nafn belgíska liðsins er Val- ur lék báða leikina við ytra. Það var ekki Standard Liege, heldur Anderledht og í Ev- rópukeppni sýningarborga, en ég fæ ekiki séð að slíkt mis- minni geti breytt höfuðatriði málsins, gagnrýninni á að leifca báða leikina úti nema þá í smástrákalegri hártogun. Ásökuin um það að ég hafi ekki gagnrýnt ÍA vegna ástar minnar á liðinu visa ég á bug. Ég gagnrýndi þá alveg jafnt og aðra, en ég sagði að það hafi ef til vill oftar verið á- stæða .fyrir harðri gagnrýni en að þessu simni, þar eð öll ís- lenzku liðin áttu heimaleikinn á undan og það sama daginn 15. sept. sl. En þessu sleppti Klp. að sjálfsögðu úr sinni til- vitnun. Um kvörtun þína yfir því að vera kallaður ritstjóri íþrótta- síðunnar er það að segja að ég vissi ekki betur og ekki held— ur að það væru til einhveriar viðkvæmar sálir, sem vildu taka þenman titil af þér, varla máttir þú nú við þvi að tapa skrautfjöðrunum. Ég verð hins- vegar að játa það. að persónu- skítkaist þitt í minn garð olli mér vonbi-igða vesna þess, að ég hafði alltaf álitið þig á- gætlega innrættan, eða eins og á einum stað stendur . . . en hjartað það var gott. — S.dór. / i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.