Þjóðviljinn - 16.10.1971, Blaðsíða 9
Lauigairdaigiur 16. ofctóber 19T1 — ÞJÓÐVIUINN — SlÐA Q
Viðhorf foreldra
Framhald af 6. sídu.
foreldrum sfmun í skólann eitt og
eitt í einu tii að stofna til kynna
við kennarann. Jafnframt er þá
foreldrunum gerð grein fyrir til-
högun starfsins, og þeir fá á hinn
bóginn tækifæri til að koma á
framfæri við kennarann ýmsum
upplýsingum varðandi barnið.
15. Stærð Álftamýrarskóla var
miðuð við stærð skólahverfisins,
ca. 5500 manns, en í íbúðahverfi
af þeirri stærð eru að jafnaði 100
—110 börn í hverjum aldurs-
flokki eða 4 bekkjardeildir. í ung-
um hverfum er hlutfall barna
miðað við íbúa þó jafnan talsvert
hærra í nokkur ár. Þessi varð
einnig reyndin í Álftamýrarskóla-
hverfi og hefur það valdið nokk-
Alþýðubandalagið
Framihald á 7. síðu.
um, fundáhöldutn, ritstörfum
og fleiru.
Fundurinn hvetur fflokks-
menn og fylgjendur aJla til ár-
vekni og samstöðu um baráttu-
málin Alþýðubandalagið er nú
ótvírætt söknarafflið í ísl. þjóð-
málum og því verður með öll-
um ráðum að efla styrk þess
og áhrifamátt.“
urri þrísetningu í skólanum.
Fækkunin blasir þó við og eru
nú fjórir aldursflokkar skólans af
eðlilegri stærð, þ. e. 4-skiptir.
Vegna tilkomu forskóladeilda get-
ur þó þurft að gera sérstakar ráð-
stafanir til rýmkunar í skólanum
og er það mál í athugun.
16. Hér er sennilega átt við
leikfimisal Álftamýrarskólans.
Það skal tekið fram að frá upp-
hafi hefur verið gert ráð fyrir að
salnum yrði skipt í tvennt og
verður það gert innan skamms.
Hins vegar liafa verið og eru
skiptar skoðanir um það, hvort
slík skipting sé nauðsynleg. Það
er misskilningur að halda, að ekki
hafi verið kennt nema einum
hópi Ieikfimi í senn, alltaf hefur
verið kennt þar tveimur hópum,
nema þegar skólinn hefur ákveðið
að einn hópur fengi allan salinn
í ákveðnu augnamiði.
17. Erfitt er að meta hvað eru
nægilegar upplýsingar til fjár-
veitingavalds um vandamál skóla.
Hitt skal tekið fram, að í tillögum
um fjárveitingaf, er þessum aðil-
um gerð full grein fyrir fjárþörf
skólanna, auk þess sem þeir liafa
jafnan fengið allar upplýsingar,
sem óskað hefur verið eftir.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Félags- og
stuðningsmannafundur
í Reykjavík heldur félags- og stuönings
mannafund n. k. þriðjudagskvöld, 19. þ.m., kl. 8,30 í Tjarn
arbúð. Fimdarefni: Stjómmiálaviðhorfið og stjómarsamvinnan
Stutt ávörp fflytja ráðherrar Alþýðubandalagsins, þeir Magnú:
Kjartansson og Lúðvik Jósepsson. Að því loknu svara þeii
spumingum funda'rmanna.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skráning þátttakenda í umræðuhópa A.B.R., sem starfa munu
í vetur, fer fram á skrifstofu flokksins næstu viku, í síma
18081. Þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um hópana.
Stjóm A.B.R.
Alþýðubandalag Suðurlands
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalags Suðurlands verður
haldinn laugardaginn 16_ október n.k. í Selfossbíói (litla sal)
og hefst kl. 14. — Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstöri. 2. Garðar
Sigurðsson alþingismaður ræðir um þingstöri. 3. Undirbúningur
landsfundar Alþýðubandalagsins. Fulltrúar Alþýðubandalags-
félaganna eru hvattir til að fjölmenna en auk þess er fundurinn
opinn öllum félögum Alþýðubandalagsfélaganna_ — Stjórnin,
Alþýðubandalag Suðumesja
FÓSTUREYÐINS.m
í Brúðuleikhúsi, umræðuþætti með tónlist, sem verður á
sunnudagskvöld, mun að þessu sinni verða rætt um fóstureyð-
ingar. Viiborg Harðardóttir verður gestur þáttarlns, og ræðir
hún, ásamt stjórnendunum, þeim Guðlaugu Magnúsdóttur, Jóni
Á. Sigurðssyni, Þorsteini Helgasyni og Elínu Hjaltadóttur, lög-
gjöf um fóstureyðingar. Þátturinn hefst kl. 21,15.
Viðtal við Öddu Báru
Frambald af 1. síðu.
að jöfnuði á lífskjörum manna.
Það er verið að endurskoða þessa
miklu löggjöif um tryggingamál nú
og nefndin sem að því vinnur
mun skila tillögum fyrir árarnót,
um nokkur ákvæði sem unnt
væri að breyta nú þegar lífeyr-
isþegum í vil, en síðan mun
nefndin halda áfram grundvall-
arendurskoðun sinni. Þær tillög-
ur sem nefndin sendir nú frá
sér munu ekki sízt miðast að því
að jafna aðstöðu fólks sem kom-
ið er á efri ár, en aðstaða þess
er nú mjög misjöfn eftir aðild
viðkomandi að lífeyrissjóðum.
Hinn málaflokkur þessa ráðu-
neytis eru heilbrigðismálin. Þar
komum við að málaflokki sem er
erffiður á margan hátt, Þar bíð-
ur mikil skipulagsvinna og ó-
leyst vandamál sem verður að
vinna áð í samræmi við mikimn
fjölda fólkis. Það er staðreynd
sem stjórnvöld verða að hafa
huigfast í þessum efnum, að engu
er unnt að koma fram nema með
samstarfi við það fólk sem vinn-
ur að viðkomandi málafflokki.
Slíkt útheimtir að sjálfsögðu
mjög mikla vinnu, sem krefst
mikils tíma, að hafa samstarf við
alla þá sem vinna að þessum
málefnum jafnt starfsfólk sem
félög, sem láta sig þessi málefni
nokkru varða. Einmitt þessi
nauðsyn samráðs gerði mér það
Ijóst að það væri óhjákvæmilegt
fyrir ráðherra að fá aðstoðar-
mann til þess að ganga í þessi
verkefni.
Má. þá má geta þess, sem ekki
allir vita, að undir heilbrigðis-
málaráðuneytið falla áfengis-
varnir og bindindismáh Á því
sviði gildir ekki síður það sem
ég sagði áðan um nauðsyn sam-
ráðs við alla aðila.
— Lyfsölumálin heyra undir
heilbrigðisráðuneytið?
— Já, undir ráðuneytið heyra
öll lyfjamál og er ætlunin að
setja upp sérstaka deild innan
ráðuneytisins sem fari með lyfja.
málin. í þessum málaflokki verð-
.... i i
Blómahúsið
Skipholti 37 sími 83070
(við Kostakjör skammt
frá Tónabíói)
Áður Álftamýrl 7.
• OPIÐ ALLA DAGA.
• ÖLL KVÖLD OG
• UM HELGAR.
Keramik, gler og ýmsir
skrautmunir til gjafa,
Blómum raðað saman
t vendi og aðrar
skreytingar.
YFIRDEKKJUM
HNAPPA
SAMDÆGURS
ur að sjálfsögðu umnið í anda
stjórnarsamningsins, en þar er
ákvæði um að lyfsölunni sfculi
komið undir félagslega stjórn. í
sambandi við lyfsölumálin mun-
um við hafa sarnráð við lyfja-
fræðinga og ég geri ráð fyrir
að við skipan þeirra roála verði
farið nærri hugmyndum yngri
lyfjafræðinga.
— Og að lokum Adda Bára:
Hvert er þitt fyrsta verkefni hér
í dag?
— Ég hef nú verið hér af og
til að undanfömu þannig að
ekki er hægt að tala um að það
sem ég geri í dag, só mitt fyrsta
verkefni í ráðuneytinu. En í dag
ætla ég að fljúga norður til Ak-
ureyrar og þar mun ég fá tæki-
færi til þess að skoða fjórðungs-
sjúkraJhúsið og Kristnesihælið, en
það álít ég einmitt mjög nauð-
synlegt að reyna að koma á sem
allra flesta þeirra staða sem
undir ráðuneytið heyra. Það er
ékki nóg að tala við fólkið í við-
talstímanum í ráðuneytinu, það
þarf framar öðm að kynnast
fólkinu í starfi þess á vinnu-
stadruum sjálfum og þeim aðhún-
aði sem þar er til staðar. — sv.
Ráðningaskrifstofa
Framhald af 12. síðu.
böm til sumardvalar taka því
á sig mikla ábyrgð, og þessi á-
byrgð veldur vissri tregðu sumra
bænda að taka við bömum til
sumardvalar.
Slysum verðux aldrei að fullu
bægt frá landbúnaðarstörfum, en
aukið öryggi og fullkomnari
tryggingar gegn stóráíöllum af
völdum slysa em brýn nauðsyn
bæði fyrir bændur og fóreldra,
sem senda böm sín í sveit.
Nú em engin mál rékin fyrir
dómstólum, sem risið hafa vegna
slysa á bömum í sumardvöl í
sveit að því er bezt verður vit-
að.
Atvinnuleysi
Framhald af 5 síðu
neyðiist til að staria langt unáfr
þeirri getu og kunmáttu sem bað
hefur safnað í löragu nároi.
Háskólamenn haifia haldið því
fram roeðal annars, að há-
skóilaímenintaður maður, sem
ekfci getur fengið vinmu við sitt
hæfi, sé mú meðhöndlaður af
vinnumiðlunarsfcrifstoifium sem
„ó'faglært vinnuaffl". Ef hann
sækir um bílstjórastarf, þá
gengur sá maöur fyrir, sem hef-
ur keyrt vöruM þau ár sem
hann hefur varið til náms. Það
er þvi ekki nóg, að námið
trygigir ekki lengur fagvinnu,
námið verður mönnum frekar
til trafiala og þeir fá lélegustu
almennu störiin við aðstæður
þar sem valfrelsi er í rauninni
ekltí lengur.
Margir háskóialærðir menn
eru nú orðnir andyígir forrétt-
indum eins og háum laumum
til handa sér, en vilja aðeins
að i launamálum sé tekið tillit
til útgjalda við námið og ævi-
tekna. Em þeir álíta, að það
verði að taka tillit til vals
manna á starfi og þess sem
stúdentar leggja á siig til þess
m.a. að @eta þjónað samfélaig-
inu við lausn ýmissa verkeifna.
Þá hafa komið fram raddir
um það, að reymt verði að koma
á'kerfi, þar sem stúdentum er
tryggt starf með skikkanlegum
launum áður en nám hefst.
Þetta kerfi ætti að byggjasf á
nákvæmum athugunum á vinnu-
markaðinujn, sem næðu til
allra menntumargreina.
VIPPU - BltSKÚRSHURDIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
- 210 - x r 270 sm
Aðrar stærðir.smíðaðar eftir beiðnL
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúja 12 - Sími 38220
MERKJASALA
Blindravinafélags íslands verður sunnu-
daginn 17. ok't'. og hefst kl. 10 f.h.
Fyrirhuigað er að koma upp almenmum leshring í sögu verka-
lýðshreyfingarinmar á íslandi og sósíalisma.
Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku, snúi sér til Siigríðar Jóhannes-
dóttur í síma 2349 eða Jóbanns Geirdal í síma 2381.
Fylkingin og Alþýðubandalagið á Suðurnesjum.
tm
H
Innilegustu þakkir fyrir hlýjar kveðjur og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okfcar, tengda-
föður og afa,
BJARNA KEMP KONRÁÐSSONAR.
Petra Aradóttir, Hörður Bjarnason^
Arnheiður Bjamadóttir, Magnús Guðjónsson,
Pétur Bjarni Magnússon.
"sJf ^
SELJUM SNIÐNAR
SÍÐBUXUR í ÖLLUM
STÆRÐUM OG ÝMSAN
ANNAN SNIÐINN
FATNAÐ.
☆ ☆ ☆
Bjargarbúð h.f.
Ingólfsstr. 6 Simi 25760
Sölubörn komið og seljið merki til hjálpar blind-
um. — Góð sölulaun.
Merkin verða afhent í andyrum allra Barnaskól-
anna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. —
Bamiaskóla Garðahrepps og Mýrarhúsaskóla.
Hjálpið blindum og kaupið merki dagsins.
Merkið gildir sem happdraettismiði.
Blindravinafélag íslands.
Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500
Þjóðviljinn
er
þýðingar-
mestur
fyrir þá
sem fylgjast
með
verkalýðs-
málum
Kaupið
Þjóðviljann
Fylgizt með
*—4
d
a
§
v*
o %
a-U <p
'O I
tí I
a>
O