Þjóðviljinn - 16.10.1971, Qupperneq 11
Lattgardagur 16. október 1971 — T>JÓÐVIL-TINN — SlÐA J J
ENGUM ER MATTHÍAS
LlKUR
Yfirleitt verður áfengi betra
eftir því sem það er eldra.
Þannig má einnig líta á Seyð-
isfjörð. Gg — þar vinna nú á
annað hundrað manns við
skipasmíðar. Á þessu ári
verða sjósettir þar átta eða
níu bátar, 12—100 tonn að
stærð. Nú liggja fyrir pantan-
ir í þrjá 100 tonna báta hjá
Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Geri
margir menntaskólar betur.
(Ferðarispa í Mogganum)
ÞAÐ ÞYNNIST VÍK-
INGABLÖÐIÐ
Maður nokkur, sem ekið
hafði konu nokikurri, kom
skelkaður mjög inn á lög-
reglustöð eigi alls fyrir löngu.
Hafði hann yfirgefið konuna
og bílinn í Tryggvagötu og
bað iögregluna aðstoðar, þar
eð konan væri með byssu,
sem hún mundaði að sér.
Lögreglan fór og aðgætti
málið. Konan sat í bíl manns-
ins við Tryggvagötu með
hendur í kápuvösum. Enga
t byssu Ihþfði hún. en gaf þá
skýrimgu, að henni hefði sinn-
azt við mianniimn út að ein-
,hverju og því mundaði hún
vísifingur í kápuvasanum, svo
að hann stóð út í kápuna og
benti á ökumann. Taldi mað-
uiriinm vísit að konan væri með
byssu í vasanum og miðaði á
sig. (Frétt í Mogga).
ALDREI ERU ÍRAR
TIL FRIÐS
Irski múlasninn Murphy,
sem nú er búsettur í Englandi,
er sérlega sólginn í epli og á
það til að borða svo mörg epli,
að hann verði veikur af öllu
saman. Frú Katlhleen Brown,
sem á þeranan asna setti skiiti
við kotfann hans, þar sem hún
bað vegfarendur um að gefa
asnanum efcki að borða.
Murphy át skiltið upp til agna.
Hún setti upp nýtt skilti, en
það fór sömu leið og hið fyrra.
Sömu örlög biðu þriðja sWlt-
Iisins. Nú er JEjórða skiltið á
leiðinrad. (t)r Mogga).
HJÓNAASTIR
Sel fyrir spottprís Chevro-
let-Impala bifreið konunnar
minnar, árgerð 1970. Loftkail-
ing, stereotæW og margt fleii-a.
Aðeins 1500 dollarar. Ef að
konurödid svarar í símann
skuluð þér leggja tólið á.
MERKILEGIR MENN
NATTÚRUUNNENDUR
Eins og úlfamir í heims-
styrjöidinni síðari hafa tígrís-
dýrin notið góðs af stríðinu í
Víetnam. Þau naarast að veru-
legu leyti á föllnum mönnum
og miWð særðum.
(Úr þýzka tímaritinu
„ViIIidýr og hundar“.)
★
Að vera eða ekW— það er
þessd spuming. — Enginn
veit hvað þetta þýðdr af því
að mörg orð sem Shakespeare
skrifaði þýða eitiihvað annað
núna.
EFTIR MARIA
Einbýlishúsið stendur á stórri
lóð á mótum Norðurgötu og
Blikksmiðsgötu og fyrir bragðið
hafla félagar Ronnies eWoi þurft
langt að fara — Nella átta
mínútna ferð úr Dalbohverfinu,
Icka fimm mínútna gang og
Janki sennilega hálfa aðra mín-
útu, en hann á heima í timb-
urhúsi við Agötu áður en hún
beygir og hverfur bakvið kirkju-
garðinn. Samt er hrollur í þeim
öllum.
Icka er í svörtu síðkápunni
sinni með kanínuskinninu Nella
nuddar rauðar kinnamar, Janki
þerrar snjóinn af gleraugunum
með óhreinum vasaklút.
Rakinn i brúnum lubba Ronn-
ies gefur til kynna að hann
hafi líka verið utan dyra.
— Það var allt á hvolfi, segir
hann og drepur í enn einrai
sígarettu í fullum öskubakka.
Lögreglubílar og rafmagnslínur
og ljósmyradarar hvert sem lit-
ið var. Já, þú hefur gengið
seinna framhjá en' ég?
Hann ávarpar Icku, granna
og dökkhærða.
— Nei. Ég stytti mér leið,
bakvið húsið hennar Svensson
görnlu. Ég... ég mátti ekW til
þess hugsa að sjá það. Og hugsa
um það að hún lægi þarna uppi
í fallegu sjónvarpsstofunni.
Evama... dáin! Ég get aldrei
nokkurn tíma sikilið það.
Janki deplar augunum noWír-
um sinnum bakvið rök gleraug-
un.
— Það er ferlegt... Ronnie,
áttu smók?
— Og hún, gellur í Nellu —
sem ætlaði að hjálpá okkur með
að undirbúa nýja disótekið þeg-
ar þeir í ölfelíuklútobnum verða
að lofca. Nú verður víst ekkert
úr því heldur.
— Haltu kjaftii segir eldri
stúlkan. — Stundum ertu svo
vitlaus að ég sWl ekki hvernig.
nokkur getur haldið þig út.
— Vertu ékki að jagast í
NeUu, segir Ronnie. — Henni
er innanbrjósts eins og okkur,
þótt hún eigi erfiðara með að
tjá sig.
— Ha? spyr JaraW hrifisrm. —
Hvað sagðirðu að hún ætti erfitt
með?
— Skiptir ekki rnáli. Ég er
að hugisa um annað. Þessi býsn
aí löggum... þeir senda ekW
rannsóknarlögregluna nema þeir
haldi...
Það er gefið mál. JanW virðist
viss í sinni sök. Einhver kerling
sagði mömmu að önnur kerling
hefði sagt henni að hún hefði
verið það.
— En það er alveg fráleitt,
andmælir Icka. — Hverjum
hefði átt að detta í hug að
myrða Evama?
Nella gefur svarið dálítið
bæld eftir áminninguna:
— Það var einhver sem
20
hringdi til hennar... í fyrra-
dag... í búðina.
Dökk augun í Ronnie blika
við minninguna:
— Það segirðu satt. Stundum
vottar fyrir vitglóru hjá þér. Eg
var búinn að gleyma þessum
símadrjóla. Hvað var það sem
hann hvæsti í eyrað á Evuma?
— „Er frú Hesser við“ segir
Icka sem hefur gott heyrnar-
minni.
— „Já“, segir Ronnie. — „Það
er hún“.
— „Þá er ég með kveðju til
yðar. Kveðju — og aðvörun."
— „Hver er þetta? Hvað viljið
þér?“
— „Aðvara yður. Það hafa
rnargir hom í síðu yðar hér í
bænum ... “ — Margir sem hafa
hom í síðu Evuma! En það
kjaftæði, ha?
— Haltu áfram. „Margir sem
hafa...“
— „Hafa hom í síðu yðar hér
í bæmum. En einn getur orðið
yður hættulegur“.
— Hamingjam sanna, hrópar
JanW, — þarna kemur það. Ég
á við... það er auðvitað þessi
drjóli!
— Hvort sem það er drjóli
eða kvensa, hún vissi ektó hvort
heldur.
Nella nagar á sér ncglumar af
æsingu.
— Hver getur það eiginlega
verið, ha? KannsW... kannski
það sé... Hann hafði ástæðu
til að vera henni reiður. Eiras
og hún hafði komið fram viö
hann, ha?
— Jæja? Hvaða snilldarhug-
mynd hefurðu nú fengið? Icka
gónir reiðilega á hana. — Tal-
aðu bara út! Ef þú segir Óli
Bodé, þá sný ég þig úr háls-
liðnum!
— Verið ekki að rífast, stelp-
ur, segir Ronnie. — Við ættum
heldur að athuga hvað við get-
um gert...
Meðan skrafið í húsi verk-
fræðingsiins heldur áfram, er
masað og velt vöngum á ótal
stöðum öðrum í bænum.
Einn staðurinn er borðsalur-
inn á hótelinu. Að vísu er venju-
lega góð aðsókn þegar boðið er
upp á hið fræga, kalda borð
sunnudagsins, „tólf krónur fyrir
fullorðna, sex krónur fyrir böm.“
En oftast eru barnmargir ferða-
menn helztu viðskiptavinirnir.
Veðu-rsins veigna er lítið um
ferðamenn í dag. Þess í stað
hafa margir bæjarbúar allt í
einu fyllzt löngun ‘ eftir síld og
svínasultu og ennfremur eftir
samfélagi við aðra, bæöi til
að tala við og horfa á með
leynd. Og þeir sem hafa komið
um hádegisleytið hafa ekki farið
til einskis.
Við tvö borð að minnsta kosti
sitja athyglisverðir gestir.
Við annað sitj'a tveir karl-
menn.
Við hitt situr karlmaður og
tvær konur.-
Gestir þessara þorða vekja
undrun og umtal.
— Hefurðu séð það? Óli Bodé
er þama. Finnst þér það við-
eigandi af honum að fara á
vertshús sama daginn og konan
hans deyr?
— En góða mín, hún var ekki
konan hans; það eru bráðum
tvö ár síðan þau skildu.
— Hann var þó einu sinni
giftur henni. Og hann er meira
að segja í gulri skyrtu.
— Tja, ég held að hún sé nú
öilu heldur ljósbrún. Hver. er
eiginlega með honum? Hann er
enn ankanalegar klæddur, en nú
á dögum er víst hægt að vera
i hvaða múnderingu sem vera
skal.
— Þetta.. .ó, þetta er Gillis
Niisson. Það er sagt... það er
sagt að hann hafi komið hingað
til að heimsækja hana, Eivu
Mari Hesser...
— Hver í fjandanum er Gillis
Nilson?
— Theódór, þú ert alveg ó-
mögulegar. Þama sérðu afliedð-
ingarnar af því að þú skulir ekW
hafa keypt nýtt sjónvarp sem
getur náð rás tvö. Allir aðrir
eru búnir að fá sér...
Nilsson tónilisitarstjóri er
klæddur kragalausum og erma-
lausum fötum úr dimmrauðu
vinyl yfir svartri pólópeysu.
Haran er næstum jafrafölur og
Bodé og hvorugur þeirra virðist
hafa hugmynd um að atfiygli
matargestanna beinist að þeim.
Þeir tala lágt og með ákafa
og Öli segir hvað eftir annað:
— E( þú hefðir ekW verið
héma, hefði ég skorið mig á
púlsinn eða hoppað í vök úti í
vatninu. Ég veit varla hvernig
ég komst hingað. en ég átti
stefnumót við þig og í miðju
kafi hlýt ég að hafa munað eftir
því. Á undan var ég víst alveg
miður mín og blessunin hún
Sylvia Mark hélt áreiðanlega að
ég væri búinn að tapa glórunni.
— Ég skil það vél. Ég fékk
líka hálfgert áfall þegar þú
reikaðir inn í herbergið til mín
og sagðir að... Nei, fjandinn
hafi það, ég get ekki elnu sinni
talað um það. Ég er ékW vanur
útvarpið
Laugardagur 16. október.
7,00 Morgunútvarp. Veðurfregn-
ir W. 7,00, 8,30 og 10,10.
Fréttir W. 7,30, 8,30, 9.00, 10,00
og 11.00. Margunbæn kl. 7.45.
Morgunstund barnar.na kl.
8.45: Sigríður Eyþcsrsdóttir les
framhald sögumraar „Kóngs-
dóttirin fagra“ (6). Að ööru
leyti leikin létt lög.
12,00 Dagskráin. Tilkynningair.
13,00 Óskailög sjúWinga. Kristín
Sveinbjömsd!óttir kynnir.
15,00 Fréttir
15.15 Stanz. Bjöm Bergsson stj.
þætti um umferðarmál.
16.15 Veðurfregnir. Þetta vM ég
heyra. Jón Stefánsson leikur
lög samkvæmt ósikum hilust-
enda.
17,00 Fréttir. Á nótum æskunn-
ar. Pétur Steingrímsson kynn-
ir nýjustu dsegurlögin.
17,40 „Gvendur Jóns og ég“ eft-
ir Hendrik Ottósson. Hjörtur
Pálsson les framhaldssögu
bama og umglinga (10).
18,00 Fréttir á ensku.
18,10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregmir og dagskrá
kvöldsins.
19,00 Fréttir og tilikynningar.
19,30 Sérkennileg sakamáí:
Hundaveðhiaup í Englandi.
Sveinn Ásgeirsson haigfræðihg-
ur segir frá.
20,00 .Hiljómplöturabb í umsjá
Þorsteins Hannessonar.
20.45 Smásaga vikunnar: „Háls-
memið“ eftir Guy de Maupas-
sant. Sigrún Bjömsdöttir les.
21,05 Létt lög leiWn af Borgar-
hljómsveitimni í Amsterdam;
Gijsbert Nieuwland stj. (Hljóð-
ritun frá hollemzka útvarpinu)
21,40 „Glataður orðstír heims-
borgarinnar New York.“ Er-
lingur E. Halldórsson les þýð-
ingu sína á Ijóðaflokki eftir
Bertoílt Brecht.
22,00 Fhéttir.
22,00 Veðurfregndr. Danslög.
23,55 Fréttir í situttu méli. Daig-
skrárlok.
— Að hún hafi verið myrt?
t
glettan
— Já ég sagrði að við hefðum náð í þrjótinn.
sjónvarpið
Laugardagur 16. október ’71:
17,00 En firancads. Emdurtekinn
5. þáttur frönskukennslunnar,
sem var á dagskrá s.1. vetur.
Umsjón: Vigdís Finnibogad.
17,30 Enska knattspyman. 1.
deild. Wolverhampton Wand-
erers — Southampton.
18,15 Iþróttir. M.a. landsleikur
í lmattspyrnu milli Norð-
mamraa og Dana (Nordvisian
— Norska sjómvarpið). Um-
sjónarmaður Ómar Ragnars-
son.
HLÉ. —
20,00 Fréttir. —
20,20 Veður og auglýsimgar. —
20,25 Smiart spæjari. Meistara-
spæjarinn. Þýðandi er Jón
Thor Haraldsson.
20,50 Nýjasta tækni og visindi.
Neðansjávarrannsóknir, Deyj-
andi stöðuvatn vakið til lífs-
ins. Hreinsun neyzluvatns. —
Nýjun,gar í nýtimgu og eyð-
ingu sorps. Umsjómarmaður
ömólfur Thorlacius.
21,20 Maður er nefndur. Gunn-
ar Benediktsson, rithöfundur
og fyrrum prestur í Grund-
arþingum í Eiyjafirði. — Jón
HnefOl Aðalsteinsison ræðir
við bann.
21,55 VirWsveggir (The Walls
of Jericho). — Bandarí.sl?
bíómynd fró árinu 1948. —
Leikstjóri: Jöhn M. Stahl.
Aðalhlutverk: Comel Wildo,
Linda Darnell, Anne Bafcíér
og- Kirk Douglas. Þýðandi er
Sigrún Hannesdóttir. Myndin
gerist í lítilli borg í ÉatúM-
ríkjunum Tveir vinir, sem
bar búa, keppa um þingsæti
Inn í baráttuna fléttast einka-
mál þeirra og ýmns óvænt
atvik.
23.40 Dagskrárlok. —
Húseigendur
Sköfum og endurnýjum hurðir og útiklæðningar
Vinnum allt á staðnum.
Sími 23347.