Þjóðviljinn - 12.03.1972, Blaðsíða 11
Sunn/udiagur 12. marz 1972
OG RÆTT VIÐ SJÓMENN
OG VERKSTJÓRA
Það var ekki beint létt hljóð-
i3 í sjómönnum á Suðurnesj-
um um miðjan febrúar, þegar
blaðamaður var þar á ferð.
í Grindavik voru flestir bátar
í höfn, aðeins netabátar
höfðu farið út um morguninn.
Við gengum niður að fyrsta
bátnum þar sem hreyfing
var, það var Reykjaröstin GK
17 — eigendurnir þrír, þeir
bræður Jón og Gestur Ragn-
arssynir og Vilmundur Ingi-
marsson, voru þar að vinna.
Það var Vilmundur sem varð
helzt fyrir svörum þegar við
gáfum okkur á tal við þá, og
hann sagði að þeir væru að
skipta af linu yfir á net.
Óskar Herniannsson, verkstjóri i Arnarvík.
■'::
Jón, Gestur og Vilmuntlur við bát sinn, Reykjaröst. Þarna eru þeir að skipta um veiðarfæri, taka
í land l»að sem tilheyrir línuveiðum til að koma netunum fyrir.
ALDREI SVARTSÝNN
— Er lítið að hafa á línu?
— Já, það hefur verið anzi
lítið það sem af er, aðallega vegna
ógæfta. Mesti aflinn hefur verið
12 tonn í róðrinum. En um þetta
leyti, og svona í byrjun marz er
annars venjan að skipta yfir á
netin.
— Hafið þið von um skárri afla
á netunum?
— Ég er nú aldrei svartsýnn,
sagði Vilmundur og hló, — en
ef við fáum ekkert hérna við
nesið, þá förum við vestur á
Breiðafjörð, þar er sæmilegt fiski-
rí.
— Hvað yrðu það langir túrar?
— Þetta er svona 12 tíma sigl-
ing, og ef við drögum tvisvar ætti
túrinn að taka svona tvo sólar-
hringa.
—- En hingað til hefur þá lítið
fengizt annað en loðna á vertjS-
inni?
— Já, það má segja að það haft
verið nóg af henni.
Með það höfðu þeir komið
baujunum, aðgerðarborðinu og
línuspilinu fýrir uppi á bílpalli
og voru tilbúnir að halda af stað
til að koma því í geymslu en
taka netin í staðinn og setja þau
um borð.
SKORTUR Á GÓÐUM
MANNSKAP
Við röltum þá áfram, og höfn-
uðum næst við frystihúsið Arnar-
vík.
Af einskærri heppni hittum við
þar fyrir Óskar Hermannsson,
verkstjóra, en hann var á útleið,
og við tókum hann tali.
— Er ekki heldur lítil vinna
hjá ykkur í aflaleysinu, Óskar?
— Jú, það má segja það, en
þó hefur verið unnið að jafnaði
svona tíu tíma á dag, — stund-
um hefur orðið að vinna nætur-
og helgidagavinnu, en á móti hef-
ur suma dagana ekkert verið
unnið.
— Hvernig eruð þið staddir
með mannskap?
— Það er nóg sem stendur, og
við höfum yfirleitt nógan mann-
skaþ. En það er með okkur hérna
eins og önnur frystihús, að okkur
gengur illa að fá góðan og traust-
an mannskap. Kaupið við fisk-
vinnuna er lágt, svo bezta fólkið
fer þangað sem það fær yfirborg-
að, en til þess höfum við ekki
bolmagn. Og þegar aUtaf er ver-
ið að skipta um fólk kemur það
niður á afköstunum.
Og það er líka einkennilegt
hvað illa gengur að fá fyrir-
greiðslu til að byggja upp þennan
undirstöðuatvinnuveg þjóðarinn-
ar. Við erum t.d. núna að reisa
nýja byggingu, en fáum ekki
framkvæmdalán fyrr en hún er
fokheld. Aftur á móti virðist
lánsfjárskorturinn ekki standa
framkvæmdum eins og í Iðngörð-
um fyrir þrifum, — þar þarf ekld
að bíða eftir Iánunum.
KAUPTRYGGINGU
í FISKVINNU
— En í sambandi við mann-
skapinn. Bindurðu ekki vonir við
Fiskiðnskólann nýja?
— Jú, ég geri það, en ég segi
að hans fari ekki að gæta fyrr
en eftir fjögur ár — en þá kem-
ur vonandi nóg af góðu fólki í
fiskvinnuna.
En til þess að svo Verði þarf
líka að koma á kauptryggingu, t.
d. einsog er í Noregi. Þar e;r
starfsfólkinu tryggður átta tíma
vinnudagur þó enginn afli berist
Framhald á 12. síðu.
PANELOFNAR
LÆGRI HITAKOSTNAÐUR
BETRI HITANÝTING
HÆRRA HITAGILDI
Leitið ekki langt yfir skammt.
PANELOFNAR uppfylla allar
kröfur sem gerðar eru til mið-
stöðvarofna í dag.
Látið PANELOFNA einnig í
yðar hús.
Leitið tilboða — stuttur af-
greiðslufrestur.
ÍSLENZK FRAMLEIÐSLA.
Söluumboð:
HITATÆKI H.F.
Skipholti 70,
sími 30200
PAí\IELQFNAR HF.
— ÞJÓÐVIUINN — SÍDA J |
Movlon og
Marlín-tóg
Bezta efnið í:
BÓLFÆRI
NETASTEINA
LANDFESTAR
MÖRE-
netahringir
Þola 220 faðma dýpi.
Beztir — Ódýrastir.
HANFLO
ÁL NETAKÚLUR
8” Reyndar fyrir 400
faðma dýpi.
BAMBUS-
STENGUR
Sísal, terylene og næl-
onlína.
önglar. Taumar.
Baujubelgir. Baujuflögg.
Lóðadrekar. Lóðabelgir.
Netadrekar. Netabelgir.
Netakeðjur og -kóssar.
Netalásar. Netaflögg.
Netanálar. Netabæti-
garn.
Fiskstingir. Goggar.
Fisk- og lifrarkörfur.
GRÁSLEPPUNET
KOLANET
SILUNGANET
PLASTNETAFLÁR
Bau juluktir
Flatnings- og flökunar-
hnífar. — Hausingar-
og beituhnífar. — Gotu-
og skelfiskhnífar.
Stálbrýni. Steinbrýnt.
Hverfisteinar í kassa.
Gotupokar. Húðir.
KRANAVÍR
fleiri gerðir.
HRING-
NÓTAVÍR
2*4” og 3”
400 og 450 fm. rúllum.
TROLLVÍR
1*4”. 1*4”, 2”, 214”,
2*4”, 3” í 200 og 300
fm rúllum.
Trollbúnaður
Trolllásar. Trollkrókar.
Gálga- og gilsblakkir.
0.ELLIN6SEN HF