Þjóðviljinn - 19.05.1972, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.05.1972, Blaðsíða 3
Fðstudagur 19. mai 1972 — ÞJBÖÐVIIáJEKN ~ SÍBA J ! i Þorskurinn hrygnir sennilega norðar og austar en áður I ! Það hefur komið fram hiá sjómönnum og útgerðarmönn- um að heir telja að þorskur- inn hafi hrygnt norðar í ár, en undanfarið, vegna þess að sjórinn hefur hlýnað. Við ræddum þessa tilgátu við Ingvar Hallgrímsson fiskifr. í gær. Arganginum frá 1964 hvergi hlíft — Við höfurn að sjálfsöeöu gefið þessu gaum, sagði Ing- var. Viö bjuggumst við þvi að uðailuppistaða veiðanna nú yrði þorskárgangiurinn frá 1964. Þegar hann var viðupp- haf fjögurra ára aldurs þá á- ætluðum við stærð hans um 220 miljónir fiska, en á þeim tveimur árum, þegar hann var fjögurra ára og fimm ára telst okkur til að það hafi verið drepnir um 80 miljónir fiska af þessum árgangi. Hann rýrnaðd sem sagt um rösklega þriðjung á þessum Ingvar: Sjórinn er hlýrri og pj flytur þorskurinn sig norðar. - . tveimur árum. Nú áætlum við að af þessum árgangi 1964 séu aðeins til um 35 miljónir fiska, sem er aðeins 16%iþess fjölda sem var til við upphaf fjöigurra ára aldurs. Þetta þykir oikikur náttúr- lega býsna mikil ásókn í fislkinn áður en hann nær virkilega kymþroskaaldri og kemst í vertíðarg&ngur. Þar sem þetta er einn bezti ár- gangur, sem við höfum haft hér við Island síðustu tutt- ugu ár, hefur þetta að sjálf- sögðu gert mikið strik í reikn- inginn. Hitaaukning í sjónum Svo kemur einnig inn í myndina töluverð hitaaukn- ing í haifinu frá því í haust og sjórinn var almennt mun hlýrri en endranær að vetr- arlagi. Hefur það sjálfsagt orðið til þess að hrygningar- svæödð hefur flutzt norðar og breiðzt út — þ.e. hrygningin við Breiðafjörð og vestanverða Vestfirði, sem og líka fyrir austan land, hafi verið meiri nú en á undanförnum árum. og það þýðir um leið minni hrygningu við landiið sunnan- vert, t.d. á Vestmannaeyja- svæðinu. — Getið þið! kannað þetta mál frekar í sumar, hafiði einhverja getu til þess að spá fyrir næstu vertíð? — Já, við gietum gert eitt- hvaið í þá áttina, en þess ber að gæta að hjá okkur eru ekki nema 19 háskólamenn: aðir sérfræðingar í fiiskveið- um og skyldum greinum, og það þætti ekki mikið ef við hefðum ekki nema 19 menn til þess ad rannsaka burr- lendið hjá okkur Ef þessi hitaaukning í sjón- um helzt næsta haust, finnst mér líkur benda til þess að hrygning verði meiri á norðursvæðinu og því má bú- ast við svipaöri útkomu næsta haust að óbreyttum aðstæð- um. Sú upphitun, sem varð i sjónum allar götur frá 1930. hefur crðið þess vaidandi að útbreiðslusvæði þorskis í N- Atlanzhafi hefur auikizt þann- ig að þetta fyrirbrigði. að þorskhrygningin flytjist til eftir sjávarhita er efcki o- þekfct mál, og að sú sikýrinp muni alveg standast. — SJ. * I Nýr hæstaréttar- iögmaður Föstudaginn 12. maí s.l. lauk Jón Oddsson, löigfræðingur, flutningi prófmála við Hæsta- rétt íslands. Jón er fæddur 5. janúar 1941 í Reykjavík, son- ur hjónanna Odds Jónssonar, fyrrverandi framkvæmdiastjóra Mjólkurfélags Reykjaví-kur,- og Eyvarar Ingibj argar Þorsteins- dóttur. Hann var'ð stúdent frá Verzlunarskóla .ísiands og lauk embættisprófi í iögfræðj frá Háskóla íslands voríð 1968 með 1. einkunn 226 stigum. 7. ágúst 1968 varð hann héraðsdómslöig- • maður ög hefur síðan rekið mál- flutningsskrifstofu í Reykjia- vík. * erfiði nisnn-r Stöðugt fleiri launþegar láta færa laun sín beint inn á banka- reikning, annaðhvort ávísana- eða sparisjóðsreikning. Að sama skapi vex fjöldi þeirra ellilífeyrisþega, er láta Trygg- ingastofnunina færa ellilífeyri sinn á ávísana- eða sparisjóðs- reikning. Með þessu er tryggt að: — ekki þarf lengur að staiida í biðröðum til þess að fá lífeyri eða laun greidd, peningarnir eru komnir í bankann á útborgunardegi. — þu Iosnar við að vera með ótryggt, vaxtalaust fé á vinnustað, í vösum eða í heimahúsum. — auðveldara er að fylgjast með eigin fjárhag, þar sem bankinn sendir yfirlit yfir innlegg og stöðu reikn- ingsins við hver mánaðamót. — með því að stofna til fastra viðskipta við Aiþýðubank- ann Ieggur þú drög að fyrir- greiðslu bankans á ýmsum sviðum við sjálfan þig. S‘ Alþýðubankónn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.