Þjóðviljinn - 31.05.1972, Side 4

Þjóðviljinn - 31.05.1972, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikuciagur 31. mai 1972- Frá þingi Veríkainannasambandsins. KAUPMÁTTUR LÁGLAUNA ALDREI BETRI Kér fer á efíir ályktun um !:;j/amjl er samþykkt var a G. þingi Verkamannasam- bands íslands núna um helg- ína. 5. þing Verkamannasambands íslands fagnar þeim tveim mikJu áföngum, sem verkalýðssamtök- in liafa náð frá því er síðasta þing sambandsirtó var haJdið í okt. 1969. Hinn fyrri áfanginn, samningarnir í júní 1970, réttu mjög verulega hlut verkafólks eftir það undanhald varðandi vísitölugreiðslur, sem atvinnu- rekendur og ríkisvaJd knúðu fram í samningunum 1968 og 1969 studdir af mjög ólragstæðri þróun viðskiptakjara og mildu atvinnideysi. Svo alvarlegt var þetta undanhaJd að þrátt fyrir það að samningarnir í júní 1970 tryggðu einar mestu kauphækk- anir í krónutölu, sem náðst hafa í einum samningum, náðist ekki að fulJu sá kaupmátnir verka- mannalauna, sem beztur varð á áratugnum frá 1960—1970. Með samningunum frá 4. des. 1971 voru þau met hins vegar jöfnuð að fullu, þannig að kaup- máttur tímakaups almenns verkafóJks hefur ekki í annan ríma orðið mciri en um þessar mtindir né hcldur vikukaupsins. Þingið fagnar sérstaklega því ágæta samstarfi, sem tókst við undirbúning síðusru kjarasamn- inga og gerð þeirra með öllum aðildarsamtökum innan A. S. í. og liakkar sérstaklega samtökum iðnaðarmanna fyrir þeirra mik- ilsverða hlur að mótun þeirrar stefnu að lilurur hinna lægst launuðu vrði nokkru meiri en liinna sem betur mátru. Þingið relur þó að sú srefnu- rnótun um Iaunajöfnuð, sem sigraði með samningum 4. des., hafi enn ckki nándar nærri skil- að þeim árangri, sem nauðsyn- Iegt er að tryggja, ef iáglauna- stéttirnar eiga að geta Jifað mannsæmandi Jífi af hóflegum vinnudegi. Telur þingið því höf- uðnauðsyn að stefna aukins launajafnaðar verði um nokkra framtíð, a. m. k. Iiin ráðandi stefna innan verkaJýðshreyfing- arinnar sem heildar, og fulJ- treystir því, að um slíka stefnu verði ekki síður samstaða én reyndin varð í síðustu samn- ingum. Þingið telur þá nýbreytni mikilsverða og merka að semja ril lengri tíma en áður og tryggja þar með nokkurt friðar- tímabil, sem ætti að geta orðið undirstaða aukinnar festu og ör- yggis í efnahagskerfi þjéiðarinn- ar ef rétt er á haldið og í kjöl- far þess öruggum og árvissum kjarabótum vinnustéttanna, leggja verður þó áherzlu á að sú tilraun til langtímasamninga, sem nú var gerð, reynist því að- eins til hagsbóta og farsældar fyrir vinnustéttirnar að stjórn- völd nái fullu vaJdi á verðlags- þróuninni og takist að hemla þá verðhækkanaskriðu, sem dunið hefur yfir að undanförnu og þingið telur háskalega hagsmun- um vinnustéttanna, heilbrigðum atvinnurekstri og öllu efnahags- kerfi þjóðarinnar. Þingið brýnir fyrir einstökum verkalýðsfélögum og heildarsam- tiikum þeirra, að nota til hins ýtrasta það friðartímabil, sem nú er fram tmdan á almennum vinnumarkaði, til þess að styrkja aila innviði sína félagslega, á sviði fræðslumála hreyfingarinn- ar, tryggja tiryggi, hollustuhærri og bærtan aðbúnað á vinnustöð- um, fjárhagslega og með því að auka áhrif sín með hverjum eðlilegum og tiltækilegum hætti gagnvart stjórnvöldum sérstak- lega varðandi áætlanagerðir um framtíðaruppbyggingu atvinnu- veganna • og á öðrum sviðum efnahagsmála. Verði allt þetta starf miðað við það að verka- lýðshreyfingin í heild, standi sem sterkust að vígi, þegar næsta latinauppgjör og allsherj- arendurskoðun á öllum kjara- samningum fer fram síðari hluta næsta árs. Væntir þingið þess sérstaldega að næsta þingi A. S. í. takist. að Ieggja sem tra'ust- astan og raunhæfastan grundvöll að stefnu og starfi samtakanna í þessum efnum. FeJur þingið sambandsstjórn sinni að leggja allt sem hún megnar af mörkum til þess að svo megi verða. Útboð Akranesi 1972 Stjórn verkamannabústaða á Akranesi leitar eftir tilboðum i byggingu 18 ibúða fjölbýlishús. Útboðslýsinga má vitja á Verkfræði- og teiknistofunni s/f, Kirkjubraut 4, Akra- nesi, gegn tiu þúsund kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð sama stað þriðju- daginn 20. júni 1972 j. 11 f.h. Stjórn verkamann. ■ aða á Akranesi. _________:_____________________________ FELUR AÐFERÐIN í SÉR FÓSTUREYÐINGU? Höggmyndir eftir ungverska listamanninn Miklós Melocco

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.