Þjóðviljinn - 31.05.1972, Síða 5

Þjóðviljinn - 31.05.1972, Síða 5
Miðvikudagur 31. mai 1972- ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5, Hér er lýst nýrri bandarískri aðlerð til að koma í veg fyrir baraeign'ir.* Aðferðin sameinar getnaðarvarnir og fóstnreyðing ar en væri samt e. t. v. ekki lögbrot hér á landi. • Margar konur óska eftir að losna við hormónatöflur og aðskotahluti úr líkama sínum. • Nýja aðferðin ætti að gera þetta kleift. en hún er þó ekld laus við óþægindi og hættur. Á okkar dögum mun flestum finnast sjálfsagt að fólk eigi frjálsan aðgang að getnaðar- vörnum, þær eru ómissandi þáttur í lífi nútíma mannsins. Hins vegar eru fæstar tegund- ir getnaðarvarna lausar við nokkra ókosti og jafnvel á- kveðnar hættur. Það er þvi eðlilegt að leitað sé margra mismunandi aðferða sem unnt sé að velja á milli eftir því sem hentar. Á síðari árum hef- ur í vaxandi mæli verið minnzt á fóstureyðingar sem valkost þegar getnaðarvarnir hafa af einhverjum ástæðum brugðizt. Þarna hefur í umræðum verið farið inn á svið sem til skamms tíma hefur verið for- boðið, en löggjöf hefur reynd- ar í mörgum löndum breytzt í þá átt að gera þennan valkost frjálsan fyrir konuna hverju sinni. En í umræðum um þessi efni hefur jafnan verið skilið grein fyrir því hvort frjóvgun hafi átt sér stað eða ekki, þegar aðeins er komið nokkra daga fram yfir eðliiegar tíðir. Og því síður að konan sjálf geti haft nokkra hugmynd um það. Legtæming með sogdælu er á- kaflega einföld í framkvæmd og getur farið fram í hvaða læknis- stofu eða ráðleggingarstöð sem er. Það fylgir henni engin líkam- leg eða andleg áreynsla, en að vísu nokkur óþægindi ekki ósvipuð þeim sem ofr eiga sér stað við tíðir. Karman, upphafsmaður að- ferðarinnar segir þó sjálfur að ó- þægindih séu sambærileg því þegar gernaðarvarnalykkju er komið fyrir. Aðferðin er væntan- lega sársaukameiri hjá srúlkum sem aldrei hafa árt börn vegna þess hve leghálsinn er þröngur. Hver læknir getur framkvasmt iegtæmingu af fyilsta öryggi eftir að hann hefur kynnt sér ieiðbein- ingar með tækjunum. Það á að vera útiiokað að gera skyssu, en þó ber að hafa í huga tvenns kon- Konur i fóstureyðingastarfshópl brezku rauðsokkahreyfLngarlnnar sfcoða ,JKarman cannula" tækið. Nú þarf ef til viil ekkl lengnr & gamaldags fóstureyftiusum mefl skurðaðgerð aft halda. mjög rækilega á milli getnað- arvarna og fóstureyðinga. Margt bendir til að þau skii séu að nokkru leyti óraunhæf, og gildir það ekki sízt í sam- oandi við þá aðferð til að <oma í veg fyrir barneignir sem lýst er í eftirfarandi grein. Þessi aðferð er tekin að ryðja sér nokkuð til rúms vestan- tafs en er lítt eða ekki þekkt snn þá í flestum Evrópulönd- jm. Hér á landi mun ekki hafa ✓erið rætt um hana opinber- 'ega til þessa. Hún virðist í :ljótu bragði vera laus við ó- <osti ýmissa annarra aðferða, ?n vitanlega þarf að umgang- ast hana með varúð. Harvey Karman er maður nefndur, sálfrasðingur í Los Ang- eles í Bandaríkjunum. Hann hef- ur lagt grundvöllinn að því sem gengur undir nafninu „Karman cannula tæknin" þar vestra. Um er að ræða eins konar rör (cann- ula) sem nocað er við tæmingu á legi kvenna. Þjálu plaströri er 9tungið inn um legháisinn en við rörið er tengd handdregin sog- dæla. Aðferð þessi gefur sömu niður- stöðu og venjuiegar tíðir, þ.e. að slímhimna legsins er fjariægð. Þess vegna er aðferðin notuð þeg- ar kona hefur haft nokkra daga yfir mánaðarcaiið og grunsemdir eru um þungun. Hafi egg setzt að á slímhimnunni, þá hefur átt sér scað frjóvgun og má því 9egja að tæmingin jafngildi fóstureyð- ingu. En hafi slímhimnan verið egglaus, er hér aðeins um var- úðarráðstöfun að ræða og í mesta lagi hægt að tala um getnaðar- vörn. Jafnvel ekki læknir getur með rannsókn á tæmingunni gert ar hættu. Annars vegar væru þau mistök að dælunni væri beitt til inngjafar í staðinn fyrir að sjúga. Þó gæti loftbóla komizt inn í blóðið og það, et lífshærrulegt. Koma má í veg fyrir þetta með öryggisventli á sogdælunni. Hin hættan er fólgin í því að sýklar berizt með rörinu inn í leggöng- in og valdi ígerð og sjúkdómum. Það verður því að gæta fyllsta hreinlætis og sótthreinsa áhöld- in mjög vel fyrir notkun. í þessu sambandi segir dr. Potts, þekktur kvensjúkdómalæknir í Bretiandi: „Ég held þrátit fyrir það hvað að- ferðin er einföld — að ekki eigi að halda útbúnaðinum að almenn- ingi eins og Coca Cola". Hingað til hefur flestum fund- izt vera mikið djúp staðfest milli getnaðarvarna og fóstureyðinga, en í raun og veru sýnir „Karman cannula tæknin" hve þar getur verið mjótt á munum. En einnig eldri aðferðir til að takmaxka barneignir hníga tll sömu áttar. Hormónatafla sú sem kölluð er „pillan" í daglegu taJi hefur þrenns konar verkanir. Tvær koma í veg fyrir frjóvgun, en sú þriðja hefur þau áhrif á slím- himnu legsins að frjóvgað egg festist ekki við hana. í strangasta skilningi er þarna um fóstureyð- ingu að rasða. Sama er að segja um lykkjuna að hún gerir miklu frekar að erta slímhimnuna en girða fyrir sjálfa frjóvgunina. Legsog með aðferð Karmans kemur lögfræðinni í þeim lönd- um þar sem fóstureyðingar eru bannaðar í nokkurn vanda. Vissu- lega getur hér verið um fóstur- eyðingu að ræða, en sé aðferðinni beitt innan 14 daga frá réttu tíðatali er ekki hægt að fullyrða í hverju einstöku tilfelli hvort svo var eða ekki. Að svo miklu leyri sem aðferðin hlýmr út- breiðsiu, má ætla að jafnvel hin strangasta fóstureyðingarlöggjöf muni sætca sig við hana þegar frá líður. Eins og áður gemr er „Kar- man cannula tæknin" upprunnin í Bandaríkjunum, og þar er hún orðin talsvert þekkt. Læknarnir Goldsmith og Margolis gerðu grein fyrir vísindalegri tilraun með hana á ráðstefnu í Detroic í aprílmánuði sl. Þeir höfðu séð um framkvæmd á legsogi hjá 100 konum á venjulegum hvílubekk í viðtalsstofu læknanna. Engin vandkvasði vom á aðgerðunum og engar kvartanir bámst. Kvenfrelsishreyfingar („Wo- men’s Lib") í Bandaríkjunum hafa tekið aðferðina upp á sína arma. Þær hafa þegar þjálfað á þriðja hundrað konur í að beita henni og komið upp um 20 mið- stöðvum til slíkrar „sjálfsbjargar" um öll Bandaríkin, einnig í þeim fylkjum þar sem fósmreyðingar em bannaðar. Sumir formaelendur þessara hreyfinga halda því meira að segja fram, að með þjálfun geti kona tileinkað sér aðferðina svo vel að hún þurfi ekki á ut- anaðkomandi hjálp að halda frek- ar en við að koma fyrir hettu. (Byggt á grein eftir Patriciu Ashdcnvn-Sharp ). Onæmisaðgerðir fyrir fullorðna, gegn mænusótt Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð Reykjavikur frá 1. til 15. júni, kl. 16-18, alla virka daga, nema laugardaga. Þeir, sem eiga ónæmisskirteini eru vinsamlega beðnir að framvisa þeim. Ónæmisaðgerðin er ókeypis. Inngangur frá baklóð. Heilsuverndarstöð Reykjavikur. SÓLAÐIR NYLON-hjólbarðar til sölu á SKODA-bifreiðir, ó mjög hagstæðu verði Full óbyrgð tekin á sóluninni. Sendum um allt land ÁRMÚLA 7 SlMI 30501 REYKJAVlK. SKIPHOITI 35, REYKJAVlK, SlMI 31055

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.