Þjóðviljinn - 31.05.1972, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 31.05.1972, Qupperneq 13
Miðvikudagur :$1. mai 1972 — ÞJÓÐVILJINN—SÍÐA 13 Bæði sykur og brauð MIKILMENNI Kennarinn bað nemendur sína. að skrifa nöfn þeirra ell- efu manna sem þeir teldu frægasta í landinu. Að nokk- urri stund liðinni nemur hann staðar við eitt borðið og spyr: — Ert þú búinn með list- ann, Benni? — Ég er rétt búinn, sagði Benni. Markmaðurinn er einn eftir. VANDRÆÐI Ég hefi enga ánægju af því að fara með kjaftasögur. En hvað á maður að gera annað við þær? Skaði. UMHVERFISVERND — Sem sagt, vatnið er hér mengað. Hvaða varúðarráðstaf- anir gerið þið við því? — Fyrst síum við vatnið, síðan sjóðum við það, síðan bætum við það með ýmsum efnum. Stórfínt. Og hvað svo? — Svo drekkum við bjór. KAUPSÝSLUSORGIR — Veiztu, að skartgripa- verzlunin hans Jóns hefur þrisvar verið rænd, og að lög- reglan hefur ekkert getað gert til að handsama þjófinn? Jón ákvað þá að gera það sjálfur. Hann skildi eftir í afgreiðslu- borðinu safn af fölskum gim- steinum, og kom fyrir ágætri Ijósmyndavél sjálfvirkri, sem átti að taka mynd af þjófinum að verki. — Tókst honum það? — Nei. — Af hverju þá? — Af því að þjófurinn snerti ekki við fölsku gim- steinunum en tók myndavél- ina. VÍSINDAHYGGJA — Ef slanga bítur mann, hvernig eigum við að komast að því, hvort hún er eitruð eða ekki? — Ef maðurinn heldur lífi í þrjá daga eftir bitið, þá hefur hún ekki verið eitruð. VÍSINDIN EFLA ALLA DÁÐ Ég komst að því, mér til sannrar ánægju, að húsbóndi minn er kominn af öpum. Hundurinn Tryggur. ÞEGAR HAUSINN ER OF HARÐUR — Hann barði mig í mag- ann. — Kynning í Vísi d viðtali við Albert Guðmundsson. Waldemar. — Konan mín átti hann en það væri synd að segja að hún hefði verið sérlega góð við hann. Að minnsta kosti hefur hann apað eftir henni eina af eft- irlætissetningunum hennar eins og þér heyrðuð. Æ, hver fjárinn. Fíni strákurinn Jacob hafði goggað í fingurinn á Waldemar. Nú liallaði hann undir flatt eins og hann vildi aðgæta hvernig þessi stóra manneskja brygðist við árásinni. Hann sýndist býsna illgjarn og ánægður með sig þar sem hann sat. Þacta var að sjálfsögðu aðeins smáatvik, en það var heldur ó- skemmtilegt. Rétt eins og Iátna konan hefði talað gegnum páfa- gaukinn sinn, eins og hún hefði viljað láta hann koma fram hefnd- um. Með nokkrum viðbjóði en þó heilluð horfði ég á gljáandi kúluauga fuglsins. Það var hreyf- ingarlaust og ómannlegt og gaf hvorki til kynna hugsanir né til- finningar. Waldemar sýndist líka hálf miður sín. Hann saug fingurinn gremjulegur á svip og stuggaði mér næstum inn í setustofuna aftur. — Falskt kvikindi, tautaði hann. — Heimskur og óútreikn- anlegur. Það var efns og hann væri að verjast ásökun. Og í næstu andrá skipti hann um umræðuefni. — Hvaða atvinnu stundið þér? spurði hann. — Ég er bara húsmóðir, svar- aði ég og lagði áherzlu á orðið bara. — Latt sníkjudýr sem gerir ekkert annað en gæta bús og barna, elda mat, þvo upp og taka cil. — Kona á að vera heima, sagði hann með áherzluþunga. — Þetta nýtízku .... — Nú byrjið þér aftur að al- hæfa, greip ég fram í og var búin að gleyma þeirri fyrirætlun minni að klappi honum eftir hárunum. Þér ætlið þó ekki að halda því fram að samlandi yðar, frú Curie, hefði átt að vera kyrr heima við eld9tóna og gæta barna alla sína ævi, eða hvað? Fyrst virtist hann ætla að svara, en svo sá hann sig um hönd og brosti til mín. — Við skulum ekki pexa um smámuni. Þér hafið sýnt mér mikla vinsemd með því að koma hingað úteftir og reyna að hjálpa mér, og nú vil ég endilega bjóða yður mat. — Nei, þakk fyrir, svaraði ég ákveðin. — Það kemur ekki til mála. Ég verð .... — Þvættingur, greip hann fram í. — Það eina sem þér verðið að gera er að gleðja mig með því að snatða með mér. Hvað stoðuðu andmæli mín við þennan harðstjóra? Vilji hans var lög og vilji minn lyppaðist nið- ur. Þótt undarlegt megi virðast, þótti mér þetta ekki með öllu slæmt. Ef til viil hafðr garnagaul- ið í mér sitt að segja, en það kom fleira til. Það stafaði frá honum einhverri karlmennsku, einhvetri grófri alúð sem fór ögn í taug- arnar á mér en fyllti mig líka eins konar öryggi. Hafði Katrín leitað eins konar föður hjá Waldemar? — Ég elda matinn og þér velj- ið yður plötu. Er það í lagi? sagði hann. Án þess að vita hvað ég átti að velja rótaði ég í plötusafninu. Sem snöggvast datt mér í hug að velja eina af dægurplötunum sem gest- gjafi minn hafði tekið þátt í að skapa, en svo mundi ég að ég hafði ákveðið að reita hann ekki til reiði og því valdi ég sígilda plötu. Umslagið var snoturt með mynd af píanóleikara undir stórri kristalskórónu og kertaljósum í forgrunninum. Ttitillinn var virðulegur líka: Peter Tschai- kowsky, konsert fyrir píanó og hljómsveit nr. 1 b-moll op. 23. Með öðrum orðum hinn frægi píanókonsert Tschaikowskys, þessi þarna með da-da-da-da-da- da-da, da-da-da-da-da-da-da, da- da-da-daj da-da-da-daj .... eða eitthvað í þá átt. Móðir mín elskar hann og það litla sem ég upplifði af tónlist í bernsku auk jæss sem útvarpið hafði að bjóða var einmitt þessi píanókonsert leikinn á skrámaða og rispaða plötu af stærstu gerð. Hreykin sýndi ég það sem ég hafði valið. Waldemar hristi höf- uðið og andvarpaði. — Æ, vina mín litla, þér eruð vonlaus. Alveg vonlaus. Þessa plöm gaf konan mín mér í jóla- gjöf fyrsm jólin okkar. En þetta er skelfilega ómerkileg tónlist. Hafið þér ekki tekið eftir því? Án þess að segja fleira tók hann af mér plötuna og fór sjálfur að leita. — Hvað gerir maðurinn yðar? spurði hann. I. DEILD BREIÐABLIK - KR leika á Melavellinum i kvöld kl. 8.00. Knattspyrnudeild Breiðabliks Kópavogi Hef til sölu Otlvru Astrad transistorviðtækin. Einnig eftirsóttu átta- bylgjutækin frá Koyo, ásamt mörgum gerðum með inn- byggðum straumbreyti. ódýra stereo plötuspilara meö bátölurum. kasettusegulbönd. ódýrar kasettur og segul- bandsspólur, notaða rafmagnsgítara, gitarbassa, gitar- magnara, kasettusegulbönd og kassagltara. Tek i skiptum. Póslsendi. F. Björnsson, Bergþórugötu 2. Siini 23KSÓ — opið eftir hádegi, laugardaga fyrir hádegi. ÚTBOÐ Slarfsmannafclag Keykjavíkurborgar óskar cftir tilboð- um i smiði 1» sumarliúsa i landi Olfljótsvatns. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu félagsins að Tjarnar- götu 12, frá og með fimmtudeginum 1. júni milli kl. 3 — 5 daglega, gegn 5000,- króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 15. júni kl. 5 e.h. Sölutjöld í Kópavogi á þjóðhátíðardaginn Þeir sem hyggjast sækja um leyfi til aö setja upp sölutjöld á |)j()ðhátiðardaginn'l7. júni n.k., snúi sór til félagsmála- stjóra Kópavogskaupstaðar á bæjarskrifslofum Kópavogs fyrir (i. júni n.k. Þjóðhátiðarnefnd. TILBOÐ ÓSKAST i nokkrar fólksbifreiðar og sendiferðabif- reið, er verða sýndar að Grensásvegi 9, i dag, miðvikudaginn 31. mai kl. 12-3. Til- boðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. Reiðhjólaskoðun i Hafnarfirði, Garðahreppi, Seltjárnarnesi og Mosfellssveit. Fimmtudag 1. júni n.k. við öldutúnsskóla kl. 10-12. Lækjarskóla kl. 13-15 — Viðistaðaskóla kl. 15-17. Föstudaginn 2. júni við Barnaskóla Garðahrepps kl. 10-12. Mýrarhúsaskóla kl. 13-15 — Varmárskóla Mosfellssveit kl. 14-16. Lögreglan i Hafnarfirði, Gullbringu- og Kjósarsýslu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.