Þjóðviljinn - 31.05.1972, Qupperneq 15
Miövikudagur 31. mai 1972-ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15.
Æ sér gjöf . . .
Framhald af bls. 6.
ef við ekki gátum það strax
hefðum við bara gert það 9einna.
Hér þýðii ekkert snakk um vax-
andi tilhneigingu til hófsemi í
bandarískri utanríkisstefnu, sem
nauðsynlegt sé að koma til móts
við með auðmýkt og bugti. Eða
hvar kemur sú tilhneiging fram5
Kannski í Indókína þessa dag-
ana? Kannski í Suðurameríku?
Eða kom hún fram í Bangla-
desh? Er ekki sanni nær að hún
komi aðeins fram í lúmskari að-
ferðum, ef hún lastur einhvers-
staðar á sér kræla? Og við gát-
um afþakkað þetta gjafaboð með
fullri kurteisi og án þess að það
hefði verið á nokkurn hátt
móðgandi fyrir þann sem bauð,
hafi hann boðið undirmálalaust.
Og það eitt, að afþakka, hefði
verið í fuilu samræmi við þá
viljayfirlýsingu þessarar ríkis-
stjórnar, að herinn fari burt al-
fari á kjörtímabilinu. Og þeir
voru margir, sem gerðu sér von-
ir um að við þessa yfirlýsingu
yrði staðið af einurð og heilind-
um, ekki síst hinir yngri kjós-
endur, sem eru nú, sem full-
veðja fólk, farnir að kunna æ
verr þeirri staðreynd, að land
þeirra er setið, eins og nýlenda,
af útlendum stríðsher. Og þeir
eru margir sem bera ugg í
brjósti eftir þessu síðustu við-
brögð meirihluta ríkisstjórnar:
Er þeim treystandi sem hér
sögðu já-takk og hneigðu sig?
er þetta ekki aðeins fyrsti und-
anslátturinn? hvað verður næst?
Með því mun verða fylgst.
Hér verður allt munað og engu
gleymt. Guðm. Böðvarsson.
Samstarfsnefndir
Framhald af bls. 1.
Jónssyni, formanni Félags járn-
iðnaðarmanna.
Þá er unnið að stofnun sam-
starfsnefnda i Aburðarverk-
smiðjunni i Gufunesi og i Sem-
entsverksmiðjunni á Akranesi.
Þegar hefur verið mynduð sex
manna samstarfsnefnd i
Áburðarverksmiðjunni og voru
þrir fulltrúar úr hópi starfsfólks
valdir i nefndina á fundi i Starfs-
mannafélagi verksmiðjunnar ný-
lega. Stjórn verksmiðjunnar hef-
ur tilnefnt þrjá fulltrúa i nefnd-
ina. Hinsvegar stendur á reglu-
gerð frá landbúnaðarráðuneytinu
fyrir þessa samstarfsnefnd og
hafa ekki verið haldnir fundir i
nefndinni af þeim sökum ennþá.
Stjórn Sementsverksmiðjunnar
er nýlega farin að fjalla um stofn-
un samstarfsnefndar og er búizt
við að hún taki til starfa i sumar.
Ekki er búið að velja fulltrúa frá
starfsfólkinu eða frá fyrirtækinu i
þessa nefnd. Eru þó liðnir allt að
tveir mánuðir siðan fyrstu gögnin
komu upp eftir i sambandi við
þessa nefnd.
Fulltrúar frá Félagi járn-
iðnaðarmanna hafa átt i viðræð-
um við Meistarafélag járn-
iðnaðarmanna um stofnun sam-
starfsnefnda i vélsmiðjum og
slippum almennt. Er meginverk-
efnið bættur aðbúnaður á þessum
vinnustöðum. gm.
Innritun í 5. bekk
framhaldsdeilda
fyrir gagnfræðinga og landsprófsmenn,
búsetta i Reykjavik, fer fram i Lindar-
götuskóla, fimmtudaginn 1., föstudaginn
2. og mánudaginn 12. júni n.k., kl. 15.00-
18.00 alla dagana.
Inntökuskilyrði eru þau, að umsækjandi hafi hlotið 6,00
eða hærra i meðaleinkunn á gagnfræðaprófi í Islenzku I og
II, dönsku, ensku og stærðfræði, eða 6,00 eða hærra á
iandsprófi miðskóla.
Ef þátttaka leyfir verður kennt á fjórum
kjörsviðum, þ.e. á hjúkrunar-, tækni-,
uppeldis- og viðskiptakjörsviðum.
Umsækjendur hafi með sér afrit (ljósrit) af prófskirteini
svo og nafnskírteini.
Fræðslustjórinn i Reykjavik.
Yfirhjúkrunarkona
Staða yfirhjúkrunarkonu Grensásdeildar
Borgarspitalans er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 2. ágúst eöa eftir nánara samkomulagi.
Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðukona Borgar-
spítalans.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Heilbrigöismálaráði Reykjavlkurborgar fyrir 20.
júni n.k.
Reykjavik, 30. 5. 1972.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
frA skólagörðum kópavogs
Innritun fer fram i görðunum við Fifuhvammsveg og
Kópavogsbraut fimmtudaginn 1. júni frá kl. 13—17.
Rétt til þátttöku hafa börn sem fædd eru á
árunum 1959-1963.
Þátttökugjald kr. 800,00 greiðist við innritun.
Kolluhreiður
Framhald af bls. 1.
miklu striði bæði við veiði-
bjölluna og hrafninn. Mjög mikil
ásókn er i varpið á Álftanesi af
þessum vargi. Yzt á nesinu, þar
sem minnst er um æðarvarpið,
sáum við heilar breiður af svart-
bak, en hrafninn sáum við ekki,
en okkur var sagt, að nn væri
helzt á ferðinni snemma morg-
uns, svona milli kl. 5 og 8. Þótt
þessi vargur sæki mikið i eggin,
þá keyrir fyrst um þverbak þegar
ungar ltoma úr eggjum. Segja
menn það ekki algenga sjón að
sjáeinn varg drepa 5 til 6 i einu.
A næstunni mun Þjóðviljinn
birta ýtarlegri grein auk fjölda
mynda frá þessu draumalandi
náttúru- og fuglaskoðara, Alfta-
nesinu. —S.dór
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smtðaðar eFtir beiðnl
GLUGGASNIIÐJAN
Síðumúja 12 - Sími 38220
Frá Skólagörðum
Reykjavíkur
Innritun i skólagarða fer fram, sem hér
segir:
i Aldamótagarða við Laufásveg,
fimmtudaginn 1. júni kl. 9 - 11 fyrir börn
búsett vestan Kringlumýrarbrautar.
í Laugardalsgarða, sama dag kl. 1-3, fyrir
börn búsett austan Kringlumýrarbrautar
og norðan Miklubrautar.
i Ásendagarða, föstudaginn 2. júni kl. 9 -
11. fyrir börn búsett sunnan Miklubrautar
og austan Kringlumýrarbrautar ásamt
Blesugróf.
í Arbæjargarða, sama dag kl. 1 - 3 fyrir
börn úr Árbæjarsókn.
í Breiðholtsgarða, mánudaginn 5. júni kl.
1 - 3, fyrir börn úr Breiðholtshverfi.
Innrituð verða börn fædd 1960 - 1963 að
báðum árum meðtöldum. Þátttökugjald
kr. 650.00. Greiðist við innritun.
Skólagarðar Reykjavikur.
Ungt fólk, sem ætlar sér að ráðast í byggingaframkvæmdir
seinna, ætti að gefa því góðan gaum, að verðtryggð spari-
skírteini eru öruggasta fjárfestingin. Þeir, sem kaupa skírteini
nú geta fengið þau endurgreidd með hagstæðum vöxtum,
vaxtavöxtum og verðbótum af höfuðstól og vöxtum, að.fimm
árum liðnum. Auk þess eru skírteinin skatt- og framtalsfrjáls.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Verðtryggið
peningana núna-
byggið seinna