Þjóðviljinn - 31.05.1972, Side 16
DIOÐVIUINN
Miðvikudagur 31. mai 1972-
• Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu i borginni eru
gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
• Kvöldvarzla lyfjabúða vik-
una 27. mai til 2. júni er i
Ingólfsapóteki, Laugarnes-
apóteki og Holtsapóteki.
Næturvarzlan er i Stórholti 1.
• Slysavarðstofan Borg- • Tannlæknavakt i Heilsu-
arspitalanum er opin allan verndarstöðinni er opin alla
sólarhringinn. — Aðeins helgidaga frá kl. 5—6.
móttaka slasaðra. Simi
81212.
50 þúsundir
manna drepn■
ir í Búrúndi
Kampala 30/5. Útvarpsstöð
stjórnarinnar í smárfkinu
Búrúndi skýrði frá þvl i dag, að
rösklega fimmtiu þúsund manns
hefðu fallið I byitingartilrauninni
sem gerð var þar i siðastliðnum
mánuði. Auk þess mun fjöldi
manns hafa flúið land, og flestir
hverjir leitað hælis i grannríkjun-
um Tanzaniu og Zaire (áður
Kongó).
1 útvarpsfréttinni sagði, að ekki
hefðu uppreisnarmenn aðeins
ætlað að steypa stjórn landsins,
heldur einnig að útrýma Tutsi-
kynflokknum. Tutsimenn eru um
14% íbúanna, en þeir hafa þó tögl
og hagldir i stjórninni, á kostnað
Hutu-kynstofnsins, sem telur 85%
landsmanna.
1 fréttinni var harðlega neitað
þeim fullyrðingum að óánægðir
Hutu-bændur hefðu staðið að upp-
reisnartilrauninni, og sagt að
uppreisnarmenn hefðu hlotið
hernaðarmenntun erlendis og
fengið glæpamenn og úrhrakslýð
til liðs við sig, enda hefðu sveitir
þeirra gerzt sekar um hin verstu
hryðjuverk.
Umhverfisráðstefnan:
PÓLVERJAR
SEGJA
Varsjá 30/5. Pólska stjórnin
lýsti þvi yfir i gærkvcldi, að hún
myndi ekki taka þátt I umhverfis-
málaráðstefnunni sem hefst I
Stokkhólmi i næstu viku, þar eð
Austur-Þýzkaland er útiiokað frá
henni sem fuilgildur aðili.
Fréttamenn telja einsýnt, að
önnur riki Varsjárbandalagsins
muni fylgja fordæmi Pólverjá' i
þessum efnum, en stjórnir þeirra
hafa látið að þvi liggja að þau geti
ekki tekið þátt i ráðstefnunni sak-
NEI
ir þess misréttis sem Austur-
Þýzkaland er beitt.
Allshér jarþing Sameinuðu
Þjóðanna hefur ákveðið, að að-
eins þau riki sem aðild eiga að
einhverri sérstofnana samtak-
anna fái að taka þátt i umhverfis-
málaráðstefnunni. Samkvæmt
þeirri skilgreiningu er Austur-
Þýzkaland útilokað frá þátttöku,
en hins vegar fær Vestur-Þýzka-
land óskoraða aðild.
Skriður kemst á undirbún-
ing öryggismálaráðstefnu
Vestur-þýzka blaðið Der
Spiegcl býst við þvi, að utan-
rikisráðh.fundur NATO I Bonn,
sem nú er að hefjast, muni lýsa
yfir fylgi sinu við ráðstcfnu
Evrópurikja um öryggismál og
samstarf, sem Sovétmenn hafa
mjög beitt sér fyrir siöan 1969.
Þá hefst og I vikunni ráðstefna
fulltrúa almannasamtaka f álf-
unni I Brússel, sem mun f jalla um
undirbúning Evrópuráðstefnu.
Búizt er við allmikilli þátttöku i
Brússelfundinum. Sovézka
fréttastofan APN hefur skýrt svo
frá, að þar i landi hafi um árs
skeið starfaö sérstök nefnd 160
sérfræðinga og félagsmálafröm-
uða, sem unnið hefur að málatil-
búnaði i sambandi við öryggis-
málaráðstefnu. Hefur hún boðið
til sérstakra funda með innlend-
um og erlendum sérfræðingum til
að ræða t.d. umhverfismál, sam-
starf i vísindum, efnahagsmálum
o.s.frv. Þessi sovézka nefnd hefur
og mjög hvatt aðila i öðrum lönd-
um til þátttöku i Brússelfundin-
um, sem er öllum opinn.
Jákvæð afstaða Natórikja til
öryggismálaráðstefnu Evrópu
hefur m.a. strandað á samkomu-
lagi um Þýzkalandsmál og
Berlin, en nú sýnist sú hindrun úr
vegi. Der Spiegel segir, að erfið-
asta viðfangsefni ráðstefnunnar
verði vafalaust að ná samkomu-
lagi um tilhögun á gagnkvæmum
niðurskurði vigbúnaðar i álfunni.
En bæði APN og hinu vestur-
þýzka blaði kemur saman um
það, að margir möguleikar séu nú
þegar á auknu samstarfi á ýms-
um hagnýtum sviðum og á greið-
ari samgöngum manna i milli.
Nixon og sovézkir ráðamenn kiingja kristalsglösum í Kreml. Leiðtogar stórveldanna tveggja eru
ánægðir með heimsóknina og sovézk blöð hafa birt fjölda mynda af forsetanum og fyigdarliði hans og
helgað atburðinum dágott rúm á siöum sinum.
Nixon gerir víðreist
Nixon Bandarikjaforseta var
tekið með pompi og pragt i
Teheran, höfuðborg Irans, i
dag, er hann kom þangað i
tuttugu stunda heimsókn, að
lokinni reisu sinni i Sovétrikjun-
um. Forsetinn hóf viðræður við
transkeisara tveimur stundum
eftir komuna, og munu þeir
einkum hafa rætt gang mála á
Indlandshafi og i Persaflóa,
sáttmála trans við grannrikið
trak og oliuhagsmuni Irans-
stjórnar. Nixon er sagður hafa
fullvissað keisarann um, að
Bandarikin myndu halda áfram
pólitiskum stuðningi við stjórn-
ina i Teheran, enda hefur hún
alla tið verið höll undir
bandarisk sjónarmið i alþjóða-
málum.
Nixon forseti heldur til Pól-
lands að Iransheimsókninni lok-
inni, til skrafs og ráðagerða við
pólska ráðamenn. Bandarikja-
forsetar hafa aldrei heimsótt
Pólland, og skýtur Nixon þar
fyrirrennurum sinum ref fyrir
rass, enda mikill ferðalangur.
Víetnam:
VÍGSTAÐAN
SÖM VIÐ
KONTUM
Og sonur
mun rísa
gegn föður
sínum...
Þegar Nixon forseti kom til
Salzburg á dögunum i boði
Kreiskys, kanslara Austurríkis,
var efnt til mikilia mótmæla
gegn heimsókninni af hálfu and-
stæðinga Vietnamstriðsins. Sá
sem stóð fyrir mótmælunum
var sonur kanslarans, Peter
Kreisky, 28 ára gamall lögfræð-
ingur. Sézt hann hér á mynd-
inni.
Norður-Vietnamar sökuðu enn i
dag Bandarikjastjórn um að gera
loftárásir á flóðgarða og vatns-
veitur i landinu. Fréttastofa
Norður-Vietnams sagði i dag, að
markmið árásanna væri
bersýnilega að gereyða lífi og
mannvirkjum i þéttbýlustu hér-
uðum landsins. Talsmenn
Bandarikjahers segja, að i loft-
árásum síðustu daga hafi aðal-
járnbrautarstöðin i Haiphong
eyðilagzt, sem og sextán
mikilvægar brýr i Norður-VIet-
nam.
Enn i dag geisuðu harðir
bardagar i Kontumborg á mið-
hálendinu, og bandariskar
sprengjuþotur héldu uppi hörðum
loftárásum á stöðvar þjóðfrelsis-
herjanna i útjaðri borgarinnar.
Norðurhverfin eru á valdi
þjóðfrelsisherjanna, en Saigon-
hermenn halda velli i suðurhluta
borgarinnar, og þar gengur lifið
sinn vanagang, að sögn, þrátt fyr-
ir sprengjuregn og stórskotahrið
skammt frá. Sveitir þjóðfrelsis-
aflanna hafa barizt i návigi við
andstæðinga sina á götum
Kontum i fimm daga. Þær sækja
einkum fram að næturlagi, en á
daginn reyna Saigonhermenn að
hrekja þær úr stöðvum sinum,
með misgóðum árangri. Að sögn
herstjórnar Saigonmanna féllu
146 „kommúnistar” i bardögum i
borginni í gær, en af liði Saigon-
manna féllu 22 og 70 særðust.
Saigonhermenn beita óspart
skriðdrekum á götunum og stór-
skotahrið dynur dag og nótt yfir
stöðvar beggja styrjaldaraðila.
Thieu til
Kontum
Saigon 30/3. Thieu, höfuðieppur
Bandarikjastjórnar i Saigon,
flaug I dag til hinna umsetnu
borga Hue og Kontum og
staldraði þar við stundarkorn, til
að „hressa upp á móralinn”
meðal hermanna sinna. Ekki fer
sögum af árangri fararinnar.
Vinstri armur IRA:
HERNAÐAKAÐGERÐUM
HÆTT
Myndin er frá Belfast á Norður
Irlandi og sýnir herskáa mótmæl-
endur húka undir steinvegg, með
alvæpni og við öllu búna. Kaþólikk-
ar, mótmælendur og brezkir her-
menn hafa marga hildi háð sin i
millum að undanförnu, og ef þróun
mála tekur ekki aðra stefnu: er gild
ástæða til að ætla að upp úr sjóði
„fyrir alvöru”. Hinn opinberi
marxiski armur Lýðveldishersins
IRA hefur ákveðið að hætta öllum
hernaðaraðgerðum á Norður-lr-
landi, og að sögn talsmanna hans
er ástæðan sú að þeir vilja ekki
stuðla að þvi, að borgarastyrjöld
brjótist út. Hægri armur IRA, „The
Provisionals”, kveðst hins vegar
ætla að halda vopnaðri baráttu á-
fram, allt þar til brezka stjórnin
gangi að kröfum hans. „The
Provisionals” hafa ekki látið sitja
við orðin tóm, og i gærkvöldi skutu
þeir enn einn mann til bana, aðeins
þremur stundum eftir að opinberi
armurinn hafði gefið út yfirlýsing-
una.