Þjóðviljinn - 28.07.1972, Síða 3

Þjóðviljinn - 28.07.1972, Síða 3
Köstudagur. 28. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 2, Norrænt fóstruþing haldið hér á landi Yfir 600 fóstrur sitja þingið Setning í Háskólabíói á mánudag Norrænt fóstruþing verður i fyrsta sinn haldið hér á landi i næstu viku. Verða þátttakendur á sjöunda hundrað, þar af 77 frá ts- landi. Þinghaldið fer fram hér i Reykjavik, og fer setning þings- ins fram á mánudagsmorgun i Háskólabiói. Aðalumræðuefni á þinginu verður: „Fóstran sem uppalandi — nám barna á forskólaaldri”. t tengslum við þingið veröa haldnar tvær sýningar: t Norræna húsinu verður sýning á smábarnabókum og bókum um uppeldisfræðileg efni. 1 Hagaskóla verður leikfanga- sýning. Verða þar sýnd ýmis leik- föng, sem hlotið hafa viðurkenn- ingu hjá Dansk legetöjsudvalg. Leikfangasýningin er haldin á vegum Fóstrufélags tslands. Báðar þessar sýningar verða opnar almenningi og er aðgangur aö þeim ókeypis. Norræn fóstruþing eru haldin á 4ra ára fresti. Fyrirlesarar á þinginu veröa m.a.: Professor K.B.Madsen frá Danmörku, sem talar um kenn- ingar um nám og markmið. Gertrud Schyl-Bjurman lektor frá Sviþjóð og Eva Blake skóla stjóri frá Noregi flytja erindi um nám barna á forskólaaldri. Prófessor Eva Schmidt-Kollmer frá Austur-Þýzkalandi flytur er- indi um hvernig börn á aldrinum 0—2 ára læra. Lena Carlson fóstruskólakennari frá Sviþjóð ræðir um hugtakamyndun. Adjunkt Ulla Britta Bruun frá Sviþjóð og Hans Vejleskov deildarstjóri frá Danmörku flytja erindi um hvernig börn á aldrin- um 2-7 ára læra. Vanje Karlsson frá Sviþjóð talar um hugtaka- mundun. Sigurjón Björnsson prófessor flytur erindi um áhrif umhverfisins á greindarþrosk- ann. Prófessor Isto Ruoppila frá Finnlandi flytur erindi um þýö- ingu visindalegra náms- rannsókna fyrir uppeldi ungra barna. Egil Viken lektor frá Noregi ræðir um umskiptin frá forskóla til skóla. Valborg Sigurðardóttir skólastjóri flytur erindi um forskólann á Islandi i gær i dag og á morgun. Dr. Broddi Jóhannesson talar um þjóölif, þjóðsögur og sálfræði. M I | ’ Þingið mun m.a. fjalla um nám barna á forskólaaldri. Myndin er frá einu af barnaheimilum Sumar- gjafar. Meirihluti Sauðkræklinga ónægður með hóspennulínuna fró Eyjafirði Óánægja fámennrar klíku! ,,Uppblástur Morgun- blaðsins, þar sem það ræðir óánægju Sauðkræklinga vegna lagningar háspennu linu frá Eyjafirði yfir til Skagafjarðar, er uppspuni sem blaðið hefur væntan- lega fengið hugmyndina KAUP - SALA: Húsmunaskálinn á Klapparstig 29 kallar. Það erum við sem kaupum eldri gerð hús- gagna og húsmuna. Þó um heilar búslóðir sé að ræða. Komum strax, peningarnir á borðið. Simar 10099 og 10059. ÚTBOÐ Tilboð óskast í smíði og uppsetningu 2ja 80 rúmmtr. asfaItgeyma við malbikunarstöð Reykjavíkurborgar i Ártúnshöfða. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 1.000.00 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudag- inn 4. ágúst n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 TILKYNNING Athygli innflytjenda skal hér með vakin á þvi, að samkvæmt auglýsingu viðskipta- ráðuneytisins, dags. 27. des. 1971, sem birtist i 2.tbl. Lögbirtingablaðsins 1972, fer 2. úthlutun gjaldeyris- og/eða innflutn- ingsleyfa árið 1972 fyrir þeim innflutn- ingskvótum, sem taldir eru i auglýsing- unni, fram i ágúst 1972. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka Is- lands eða Útvegsbanka íslands fyrir 15. ágúst n.k. LANDSBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS um, frá rafveitustjóranum hér," sagði fréttaritari Þjóðviljans á Sauðárkróki Hreinn Sigurðsson í stuttu viðtali við blaðið i gær. Ennfremursagði Hreinn: „Hann er iðinn við kolann raf- veitustjórinn á Sauðárkróki, Adolf Björnsson. 1 viðtali, sem Morgunblaðið átti við hann, þeg- ar hafizt var handa um lagningu háspennulinu milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, lætur hann hafa eftir sér, að neytendur raforku hér fyrir norðan myndu sætta sig viö hærra rafmagnsverð, ef raf- magniö kæmi frá heimaveitu. Sannleikurinn i málinu er sá, að það er raunar aðeins örlitil klika, sem hefur þetta sjónarmið, en eg þori að fullyrða það, að meirihluti neytenda hér kýs auðvitað sem lægst rafmagnsverð. Það eru þvi orðnar skrýtnar röksemndirnar hjá rafveitustjór- anum eins og oft áður, þvi þegar verið var að bauka við hönnun Svartárvirkjunar, voru það aðal- forsendurnar, að rafmagnið yrði svo ódýrt frá þessari veitu. En nú þegar á að fara að bjóða okkur rafmagn á enn þá lægra verði, kemur hann fram með þá rök- semd að fólk muni sætta sig betur við hærra rafmagnsverð ef það aðeins kæmi frá heimaveitu, svo nú er hringavitleysan algjör. Unnið að lausn karfa- deilunnar Nokkur frystihús innan SH hafa nú hótaö aö stööva alla karfavinnslu vegna tapreksturs. Myndu þau þá um leið stööva alla gömlu togarana, sem svo til ein- göngu stunda þessar veið- ar. Þjóðviljinn haföi sam- band viö sjávarútvegs málaráöuneytið um þetta mál og fékk þær upplýs- ingar aö unniö væri nú að lausn þess á vegum ráöu- neytisins og viöbúið aö sjávarútvegsmálaráðherra leysi það mjög bráðlega. Þetta er hinsvegar ekki mál, sem leyst verður meö einu pennastriki. Allur uppblástur i blöðum um málið er þvi algerlega út í hött. Leikur nú Sauðkræklingum hugur á að fá að vita frá hverjum þetta sjónarmið er raunverulega komið öörum en Adolf. Það er þvi fullkomin ástæða til að andmæla þessum ummælum Adolfs rafveitustjóra. Annars er það haft að gaman- máli hér nyrðra, að andriki Morgunblaðsmanna skuli ekki vera meira en svo, að ummæli Adolfs séu tekin upp i leiðara Morgunblaðsins.” oöo Rétt er að benda á það, að þann tima sem Alþýðubandalagið átti fulltrúa i bæjarstjórn á Sauðár- króki, var sá fulltrúi andvigur Svartárvirkjun, og lét bóka mót- mæli á bæjarstjórnarfundum. Svo mun einnig hafa verið um Alþýðuflokksmanninn. —úþ. Y innuveitenda- sambandið undir- býr málsókn Vinnuveitendasamband tslands er nú að undirbúa stefnu á hendur Félagi islenzkra rafvirkja, sagði Bjorgvin Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri VSt, er blaðiö hafði samband við hann i gær. Sagði Björgvin, að stefnunni yrði þing- lýst eins fljótt og auðið er. Eins og sagt hefur verið frá hér i blaðinu höfðar Vinnuveitenda- sambandið þetta mál á hendur Félagi isl. rafvirkja. vegna fundarsamþykktar félagsins þess efnis að rafvirkjum sé óheimilt að vinna að nýlögnum og meiri háttar breytingum nema i ákvæðisvinnu. — Stjórn Félags isl. rafvirkja hafnaði kröfu Vinnuveitendasambandsins um að draga samþykktina til baka og skirskotaði til þess, að lausn verkfallsins hefði grundvallazt á þessari samþykkt og um það hefði atvinnurekendum verið kunnugt er samningar voru undirritaðir. Þar sem hér er um að ræða ágreining um gildi vinnusamn- ings eða tiltekins atriðis varðandi sammnga, þá er það félagsdóms að dæma i þessu máli. A.A.-samtökin taka símsvara í notkun Simsvari hefur verið tek- inn í notkun af A.A.-sam- tökunum. Er síminn 16373, sem er jafnframt simi samtakanna. Er simsvar- inn í gangi allan sólar- hringinn, nema þegar við- talstími er, sem er alla virka daga nema laugar- daga, kl. 6—7 e.h. Eru þá alltaf einhverjir A.A.- félagar til viðtals í Tjarnargötu 3c, sem er litla rauða húsið á bak við Hótel Skjaldbreið. Fundir A.A.-deildanna eru sem hérsegir: Reykjavik: mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga að Tjarnargötu 3c kl. 9 e.h. og i Safnaöarheimili Lang- holtskirkju á föstudögum kl. 9 e.h. og laujgardaga kl. 2. e.h.,Vest- mannaeyjar: að Arnardrangi, fimmtudaga kl. 8.30 e.h., simi (98) 2555. Keflavik: að Kirkju- lundi kl. 9 e.h. á fimmtudögum, simi (92) 2505. Viðines: fyrir vist- menn, alla fimmtudaga kl. 8. e.h. — Fóstbox samtakanna er 1149 i Reykjavik. Miðvikudaginn 2. ágúst n.k. er fyrirhugaður kynningarfundur A.A-samtakanna á Selfossi, með stofnun deildar i huga fyrir Sel- foss og nágrenni. Mun þ.essi kynn- ingarfundur hefjast kl. 8.30 e.h. i Skarphéðinssal, uppi. Er öllum sem hafa áhuga á að kynnast starfsemi A.A.-samtakanna boðið á þennan fund. Mallorcahiti á Akureyri Eindæma gott veður hefur verið á Akureyri i gær og fyrradag. Sunnan gola var á, en sólarlaust. Hitinn klukkan (i i gærkvöldi var 20 stig, cn i fyrradag komst hann upp i 21 stig.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.