Þjóðviljinn - 28.07.1972, Síða 9

Þjóðviljinn - 28.07.1972, Síða 9
Föstudagur. 28. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9. Norðmenn unnu síðari leikinn 14:12 Þaö voru leiðinlegar töl- ur, úrslitin í leik Norö- „Gull- trimmar- mn að koma Svo sem áður hefur verið greint frá hefur t.S.t. ákveðið að gefa þátttakendum Norrænu sundkeppninnar, sem synt hafa 200 metrana 100 sinnum, kost á að eignast trimmkarlinn úr gulli. Verið er nú að framleiða gulltrimmarann og verður hann tilbúinn fyrri hluta ágústmánaðar. Hann verður seldur á sem næst kostnaðar- verði, fyrir 150 kr. Sérstök staðfestingarskjöl munu liggja frammi á sund- stöðunum og þarf að senda þau ásaint gulu miðunum og andvirði merkisins til skrif- stofu t.S.l. í Laugardal, Reykjavik. Sundsamband tslands, sem er framkvæmdaaöili Norrænu sundkeppninnar, mun annast um dreifingu gulltrimmarans til þeirra, sem unnið hafa til hans og óska að fá hann keyptan. manna og tslend- inga i gærkvöldi, 14:12 En i handknattleik er þetta ekki svo mjög alvarlegt. Þó var vitað aö landanum tækist ekki aö ná jafntefli eöa sigri i síðari leiknum: til þess var elikur liðsins of einfalduri fyrri leiknum aö sögn norska þjálfarans. Hann geröi hálfgert grin af ieikaöferðum íslenzka liös- ins í viðtali við fréttastof- una NTB. t fyrri hálfleik gekk allvel hjá islenzka liðinu. Tölurnar voru 5:5 i leikhléi en siðan tóku Norð- mennirnir völdin i lok siðari hálf- leiks og sigruðu eins og áður segir 14:12. Þeir Axel Axelsson, Geir Hallsteinsson, Jón H. Magnússon skoruðu 3 mörk hver. Ólafur H. Jönsson 2 mörk og Agúst ögmundsson eitt mark. Þegar 15 minútur voru eftir af leiknum var staðan 11:9 fyrir Island, en þá snéri gæfan baki i islenzka liðið og Norðmenn kom- ust i 14:11. Sem sagt 5 mörk gegn engu, og þakkar NTB norska markverðinum Pal Bye sigur norska liðsins, en hann varði af snilld lokaminúturnar. Islenzka liðið hafði oftar yfir i leiknum. Norðmenn komust að- eins tvisvar sinnum yfir fram að stöðunni 12:11, það var i þriðja sinn sem þeir komust yfir. Um helgina leikur islenzka liðið svo við V-Þjóðverja tvo landsleiki, en á mánudag kemur liðið svo heim. — S.dór. Víkingaskip í verðlaun A sunnudaginn fer fram golf- kcppni á velli Golfklúbbs Ness á Seltjarnarnesi. Þessi keppni mun bera nafnið AMBASSADOR SCOTCH INVITATIONAL, en til hennar hcfur Islenzk-Ameríska verzlunarfélagið, sem hefur um- boð fyrir Ambassador hér á landi, gefið vönduö verðlaun sem sér staklega eru fengin að utan. Eru það þrenn verðlaun bæöi meö og án forgjafar, auk þess sem 1. verölaununum án for- gjafar fylgir vandaður farand- gripur, Vikingaskip. Verður nafn sigurvegarans sett á fána, sem siðan verður festur á masturs- stöng skipsins. Ollum kylfingum er heimill að- gangur að þessari keppni, sem verður á sunnudaginn, en þetta er 18 holu keppni. Geta þeir, sem þess óska, byrjað á sunnudags- morguninn kl. 10,00 eöa þá eftir hádegi. Islandsmótið i golfi hefst n.k. þriðjudag á Grafarholtsvelli, og er búizt við að margir utanbæjar- menn taki þátt i þvi. Verða þeir flestir komnir til Reykjavikur um helgina, og er þeim sérstaklega boðið að taka þátt i þessu móti. 1 þessari keppni verður leikið á Nessvellinum, eins og hann kem- ur til með að verða i framtiðinni, en á honum hafa verið gerðar nokkrar breytingar i sumar. Hafa tvær brautir verið lengdar aö mun, 4. og 5. brautin, auk þess sem ný braut verður tekin i not kun — 6. braut, sem er par 3 rétt 100 metrar að lengd. Leggst þvi gamla 9. brautin niður. Eins og fyrr segir verður þessi 18 holu keppni á sunnudaginn og er öllum heimill aðgangur að henni. Hjalti Einarsson, Geir Hallsteinsson og Gunnsteinn Skúlason með Ólymplutöskur áður en lagt var af stað til Noregs. Þeir verða að gera betur en i gærkveldi ef þeir ætla að bera þessar töskur áfram með sóma Ringulreið i Ef grannt er skoðað Oft hefur verið minnzt á hér i Þjóðviljanuin, hve algert skipu- lagsleysi ríkir innan iþrótta- hreyfingarinnar hvað viðkemur niðurröðun iþróttamóta. Þar vinnur hvert iþróttasamband i einrúmi, án nokkurs sambands eða tillits við önnur sambönd viö niðurröðun stærstu móta. Nýjasta dæmið um þetta’var siðasta helgi. Þá fóru fram samtimis 2 stærstu iþróttamót sumarsins, fyrir utan knatt- spyrnumótin. Þetta eru Frjáls- iþróttameistaramótið og Sund- meistaramótið. Það er alveg greinilegt, að algert sambands- leysi er á inilli FRÍ og SSÍ. Annars hefði þetta slys ekki komið fyrir. Annað glöggt dæmi átti sér stað i mai i vor. Þá voru haldin um sömu helgi Fimleika- meistara m ótið, Badminton- mótið, Júdómcistaramótið og Borðtennismeistaramótið. Sem sagt fjögur stærstu mót vetrarins eöa vorsins um eina og sömu helgina. Þarna er einnig algert sambandsleysi i milli. Þó er það svo, að reglur IBR segja til um, að ekki megi halda tvö stórmót á sama tima, en for- ráðamenn ÍBR cru mestir svefngenglar iþrótta- hreyfingarinnar, jafnvel meiri svefngenglar en forráðamenn ÍSÍ og er þá nokkru saman jafnað. ÍBR bcr að sjá um að flciri en eitt stórmót séu ekki haldin á sama tima fyrst þessi mót eru haldin á ráðasvæði þess, Reykjavik. Ef svo væri ekki, þá væri það ÍSÍ sem ætti að sjá til þess að mótin færu ekki öli fram um sömu helgina. Annars ætti það áð Vera hlut- verk ÍSl að sjá til þess að lands- liiótin rækjust ekki svona á. Þetta er mjög einfalt i fram- kvæmd. Ef við tökum mótin 4 sem fram fóru i mai, þá er það vitað að þau eru alltaf haldin i april eöa inai. ÍSI gæti raðað þeim niður á 4 hclgar þannig að þau rækjust ekki á eins og átti sér stað i vor. Eins er það með mótin um siöustu helgi. Þessi tvö mót eru vanalcga haldin um miðjan júli. Þau þurfa alls ekki að rekast á. llægt hefði veriö að halda sundmótiö um komandi helgi, eða þá fyrir hálfum mán- uði, svo aö dæmi sé nefnt. Það skal því skoraö hér á stjórn ÍSt að taka þclta mál til endurskoð- unar mcð lagfæringu fyrir aug- um. Slikl yrði öllum til góös. Um niðurröðun 1. og 2. deildar i knattspyrnu annast mótanefnd KSÍ. Sú blessaöa nefnd hefur fyrir löngu gefizt upp við að reyna að hafa ein- hverja sljórn á niöurröðuninni. Þó hefur keyrt um þverbak I sumar og það svo að nefndin hefur hreinlega eyðilagt 1. deildarkeppnina með rangri niöurrööun. ÖII spenna i mótinu vegna þess að citt eða fleiri lið liafa leikið 2 lil 3 leikjum fleiri en önnur og ekkert er að marka sligatöfluna. Hvergi nokkurs slaðar þar sem knattspyrna er leikin er mótunum misþyrmt svo algerlega og hérna. Hvar- vetna eru fastir leikdagar, einn eða tveir i viku, og með þvi móti liclzt spennan i mótinu út allt kcppnistimabilið. Þaö er talað fyrir dauðum eyrum þegar minnzt er á þetta mál. svo að menn eru hreinlega að gefast uppá þvi. En um niöurrööun annarra móta, sem minnzt er á hér að framan, er vonandi hægt að tala með von um umbætur i framtiðinni. —S.dór. Verölaunagripirnir I Ambassador goifkeppninni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.