Þjóðviljinn - 13.08.1972, Page 16
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Sunnudagur 13. ágúst 1972
ÍÚÐVIUINi
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavíkur,
simi 18888.
Jakob
Jóhannesson
Smári látinn
Jakob Jóh. Smári lézt i Reykja-
vik fimmtudaginn 10. ágúst, 82
ára að aldri.
Jakob var fæddur að Sauðafelli
i Miðdölum 1889, varð stúdent
1908, og lauk meistaraprófi i
norrænum fræðum frá
Háskólanum i Kaupmannahöfn
1914.
Jakob stundaði kennslustörf i
Reykjavik, meðal annars við
Menntaskólann, þar sem hann
kenndi i 15 ár.
Jakob fékkst mikið við ritstörf,
meðal annars samdi hann 4 ljóða-
bækur, og kom sú fyrsta þeirra út
1912, og hét Kaldavermsl. Jakob
þýddi mörg öndvegisverk er-
lendra bókmennta yfir á islenzku,
svo sem verk Ibsens, Hardys,
Strindbergs og Lao-tse. Jakob
þýddi og úr dönsku nokkrar af
bókum Gunnars Gunnarssonar.
Jakob samdi einnig rit um
islenzka málfræði og setningar-
fræði, og vann að útgáfu islenzk-
danskrar orðabókar.
Jakob kvæntist árið 1910, Helgu
Þorkelsdóttur frá Alftanesi.
Nú þrengir að Svörtu
hlébörðunum í Alsír
viljað minnast á hvers vegna eftirliti. Opinber talsmaður lét þó starfsemi samtakanna stæði fyrir
Svörtu hlébarðarnir séu nú undir að þvi liggia i dag, að rannsókn á dyrum.
Ætlaði aðdrepaNixon
Garnalt
°g nýtt
í Þykkvabœ
llér standa hlið gamla og
nýja kirkjan i Þykkvabæ.
Sjálfsagt eru skiptar skoðanir
um hvort ganili eða nýi
byggingarmátinn sé fallegri,
en eins og grcinilcga sést á
myndinni var orðin þörf á
nýrri kirkju I Þykkvabæ.
Aukin samskipti
Noregs við
Norður-Kóreu
Oslo 12/8 (NTB)»Kfkisstjórn N-
Kóreu mun setja upplýsingaskrif-
stofu á laggirnar i Oslo innan
skamms. Þessi ákvörðun rikis-
sljórnarinnar er i beinu fram-
haldi af óformlegum umræðum
milli liennar og norsku rikis-
stjórnarinnar á s.l. ári.
Norska rikisstjórnin ætlar að
senda samningamann til N-Kóreu
á næstunni, þar sem ræddir verða
möguleikar á stjórnmálalegri
viðurkenningu landanna sin á
milli.
Alsír 12/8. Lögreglan í
Alsírborg hefur nú tekið
upp strangt eftirlit með
ýmsum helztu leiðtogum
Svörtu hlébarðanna,
baráttufylkingar banda-
riskra negra. Ýmsir for-
ystumenn samtakanna
dvelja landflotta i Alsir, og
taliö er að hópurinn, sem
rændi flugvél um daginn,
heimtaði miljón dollara
lausnargjald og flúði til
Alsir, haldi sig í húsi þvi er
lögreglan stendur nú vörð
við.
Alsirstjórn hefur enn ekki
svarað bandariskum tilmælum
um að framselja flugvélar-
ræningjana, og hún hefur ekki
New York 12/8. Bandariskur
verzlunarmaður var dreginn
fyrir rétt i New York i dag,
sakaður um að hafa skipulagt
banatilræði við Nixon Banda-
rikjaforseta. Maðurinn, sem
heitir Andrew Topping og er
tuttugu og sjö ára að aldri, er
sagður hafa reynt að telja einn
starfsmanna öryggislögreglunn-
ar á að fremja morðið fyrir sig,
og boðið þúsund dollara að laun-
um fyrir viðvikið. Topping var
tekinn höndum er upp komst um
áformið, en látinn laus skömmu
siðar gegn háifrar miljón dollara
tryggingu.
Lögreglan hafði fylgzt gaum-
gæfilega með atferli Toppings
siðan það kvisaðist út að hann
væri á höttunum eftir leigu-
morðingja. Á föstudaginn þóttist
öryggisvörður einn vilja ganga að
tilboði verzlunarmannsins og
bauðst til að hitta hann i einum
stærsta skemmtigaröi New York-
borgar. Topping mætti, afhenti
manninum þúsund dollara og var
gripinn höndum á staðnum.
Topping var, að sögn
ákærandans i réttinum, tekinn
fastur i sumar fyrir óleyfilegan
vopnaburð. Þá sótti hann og um
leyfi til að sækja Nixon heim i
siðustu viku, og þótti bandarisku
lögreglunni það ills viti.
Topping er ekkill og á fimm
vikna gamlan son. Kona hans lézt
i júli.
Land og Folk um landhelgismálið
DÖNSK RÖDD MEÐ OKKIIR
9. ágúst sl. hvöttu for-
menn samtaka danskra
fiskiskipaeigenda
sjávarútvegsmálaráð-
herrann Ch. Thomsen til
þessað veita brezkum og
v-þýzkum stjórnvöldum
stuðning i aðgerðum
þeirra gegn inn- og út-
fiutningsverzlun íslend-
inga.
1 bréfi þeirra stendur m.a.:
J/ið litum svo á, að verði
viðurkenndar þjóðréttar-
reglur um frjálsar fiskveiðar
á opnu hafi brotnar i þvi tilliti
að sterkasti aðilinn eða sá að-
gangsharðasti hirðir eins stór
hafsvæði og mögulegt er til
einokunar, teljum við slikt
ranga stefnu.
Hin tvö dönsku samtök fiski-
skipaeigenda hvetja þvi
dönsku rikisstjórnina og
danska lögþingið til þess að
taka einarðlega og neikvæða
afstöðu gegn útfærslu íslenzku
landhelginnar.
Að okkar áliti ætti að veita
þeim evrópsku þjóðum, sem
eru andvígar útfærslunni,
fullan stuðning við tilraunir
þeirra til þess að koma i veg
fyrir frumkvæði tslendinga i
einhliða útfærslu landhelgi”.
Henry Sörensen formaður
Dansk Havfiskeriforening,
hefur hvatt hliðstæð samtök i
Noregi og Sviþjóð til þess að
gripa til „sameiginlegra
skandinaviskra aðgerða gegn
islenzkum skipum".
En ekki eru allir á sama
máli. Ritari utanrikisráðu-
neytisins danska, Thomas
Rechnagel, segir, að ákvöröun
islenzku rikisstjórnarinnar
hafi ekki áhrif á fiskveiðar
Dana þar eð dönsk fiskiskip
veiði alls ekki við Islands-
strendur. Hins vegar óttist
menn að mikill hluti þeirra
sem stundaðar eru við tsland
muni flytjast til annars hluta
N-Atlanzhafsins og standa
sjávarútvegi Dana fyrir
þrifum. Leiðari Land og Fólk
ber heitið „Böðulsverk”. Þar
segir m.a.:
„Við trúum varla, að meiri-
hluti danskra fiskimanna telji
sig samþykka innihaldi bréfs-
ins, sem formenn samtaka
þeirra afhentu sjávarútvegs-
málaráðherranum i gær.
Enginn vinnandi maður með
fullu viti mun hvetja dönsku
rikisstjórnina til þess að veita
stuðning stórveldum, sem
ætla að beita norræna bræðra-
þjóð valdi. Slikt getur aldrei
verið dönskum fiskimönnum i
hag og við neitum að trúa að
afstaða þeirra sé þessi.
Tilvera tslands sem nýtizku
þjóðar er óieysanlega tengd
fiskveiðum kringum landið.
Henni er ógnað af ofveiði er-
lendra þjóða, þar sem fisk-
veiðar eru litill hluti efnahags-
lifsins. Friðun ákveðinna
hrygningarsvæða mun lika
hafa góð áhrif á allar fisk-
veiðar i N-Atlanzhafi. Loks er
útfærsla landhelginnar hluti
þjóðarréttar og öll ihlutun
óverjandi. Rikisstjórnir Bret-
lands og V-Þýzkalands hóta
efnahagsaðgerðum. Efna-
hagsbandalag Evrópu styður
slika stefnu stórveidanna:
Enginn friverzlunarsamning-
ur ef af útfærslu landhelginnar
verður.
Þetta er gott dæmi um vald-
beitingu svo um munar. Ef
einhver sannleiksneisti leynist
i brjóstum norrænna stjórn-
málamanna, þá ætti hann að
sjást nú — nú ætti samstaðan
að koma i ljós.”
I Berlingi er fjallað um
málið með jákvæðum rökum
og bent á hve stór hluti út-
flutningsverðmæta tslendinga
eru fiskafurðir. Einnig er bent
á friðunarsjónarmiðið. Berl-
ingur getur þess, að danska
stjórnin hafi ekki enn tekið af-
stöðu i málinu og segir að
lslendingum sé bezt að biða
úrskurðar alþjóðadómstólsins
i Haag og viðurkenna hann.