Þjóðviljinn - 10.10.1972, Side 10

Þjóðviljinn - 10.10.1972, Side 10
10 SÍÐA — ÞJóÐVILJINNÞriöjudagur 10 „któber 1972. Óvœntur stórsigur KR KR-ingar léku sér að ÍR og sigruðu 17:8 óvæntustu úrslitin í Reykjavikurmótinu í hand- knattleik til þessa er eflaust stórsigur KR yfir ÍR á sunnudagskvöldid. KR- ingarnir hreinlega rót- burstuðu IR-ingana og unnu leikinn 17:8. Þetta var mjög góður leikur hjá KR- liðinu/ einkum þó hjá markverði þess ivari Gissurarsyni sem sýnt hefur tvo stórgóða leiki í röð, og má mikið vera ef hérerekki á ferðinni lands- liðskandidat. Það er alveg Ijóst, að ef KR-liðið leikur áfram i vetur eins og það hefur gert i þessum tveim fyrstu leikjum sínum í mótinu, þá verður það ekki í neinni fallhættu í vetur, hvaö þá ef þvi fer fram frá þvi sem nú er, eins og gera má ráð fyrir. ÍR-ingarnir ætla sér stóran hlut i handknattleiknum i vetur, en þvi miður er ég hræddur um að það fari likt og áður, að litið verði úr liðinu þrátt fyrir góða viðleitni. Það vantar festu i IR-liðið nú sem áður, og meðan hún er ekki fyrir hendi verður ekki neitt úr neinu hjá þvi. Um leið og fer að ganga illa hrynur allt til grunna. Lið sem ætlar að ná langt má ekki láta slikt koma fyrir. Það verður að vera hægt að taka af skarið og rétta hlutina við þegar illa gengur, ef lið ætia að ná toppnum. KR-ingar náðu strax yfirhendinni i leiknum og komust i 2:0 og siðan i 7:1. Þar með má segja að gert hafi veriö út um leikinn. I leikhléi voru yfir- burðirnir enn meiri eða 10:3 og aðeins spurning um hve stóran sigur KR ynni, en ekki hvort liðið myndi sigra. KR-ingarnir komust i 9 marka forskot i siðari hálfleik 14:5, og þessu 9 marka forskoti héldu þeir lengst af út leikinn, og þegar flautað var til leiksloka var enn 9 marka munur 17:8. Þetta var fullkomlega sanngjarn sigur og sizt of stór. Þeir Haukur Ottesen, Björn Pétursson og Ivar Gissurarson markvörður báru af i KR-liðinu, og þeir Björn og Haukur hrein- lega léku sér að IR-vörnininni. Hjá ÍR stóð ekki steinn yfir steini, og enginn leikmanna á hrós skilið fyrir leikinn, nema ef vera skyldi Brynjólfur Markússon. Mörk KR: Björn P. 7, Björn Bl. 3, Bogi 2, Haukur 3, Jakob 1, Bjarni 1. Mörk tR: Brynjólfur 2, Agúst 2, Jóhannes 2, Vilhjálmur og Hörður 1 mark hvor. —S. dór c ..Risiiin" Agúst Svavarsson i uppstökki. Stórhættulegur sóknarleikur þegar lionuin tckst upp. ■ 'P , , | Valiir átti í erfið- leikum með Armann Vafur .....átli- helduí betur i erfiðleikum með 1.- dcildarkandiUalana, Arniann. og svo fóru leikar aö Valur rétt marði sigur 11:10 og var það meira fvrir klaufaskap Armenninga en getu Valsliðsins, sem varla hefur leikið vcrr um árabil en i þcssum leik. Greinilegt var, að Valsmcnnirnir vanmátu Armenningana og ofan á bættist að livorki Gisli Blöndal né Jón Karlsson léku með Val,svo liðið hafði aöeins tvo menn sem gátu ógnað fyrir utan vörnina. Þetta SENDlBÍLASTÖQtNHf létti Armenningum varnarleikinn með áður sögðum afleiðingum. Valur komst i 2:0 til að byrja með, en Armenningarnir komust yfir 3:2, en næstu 3 mörk skoraði Valur, 5:3. Aður en flautað var til leikhlés hafði Armenningum tekizt að jafna 5:5, og þannig stóð i hléinu. Ármenningar leiddu lengst af i siðari hálfleik 6:5, 7:6, 8:7, 9:8 en Val tókst að jafna i öllum þessum stöðum og þeir jöfnuðu 9:9 og komust svoyfir 10:9 og 11:9 og þá voru ekki nema innan við 2 minútur til leiksloka og útséð um, að sigurinn ienti til þeirra. Ármenningar áttu þó siðasta orðtð, svo lokatölurnar urðu 11:10 sigur Vals. Ungur nýliði i Vals-liðinu, hann er að visu búinn að leika örfáa leiki með Val, Þorbjörn Guðmundsson, bar af i liðinu, og ég spái þvi, að hann verði næsti nýliðinn sem tekinn verður inn i landsliðið okkar. Aðrir leikmenn voru vart umtalsverðir i Vals- liðinu að þessu sinni. Ármanns-liðið er mjög einhæft, og allt á að ganga upp á Herði Kristinssyni, enda er hann yfir- burðamaður i liðinu. Um leið og hann er hvildur dettur allt niður. Þetta atriði verður að laga, ef ekki á illa að fara hjá liðinu i 1. deild i vetur. Mörk Vals: Þorbjörn 3, Bergur 3, Ólafur 2, Stefán, Gunnsteinn og Torfi 1 mark hver. Mörk Ármanns: Hörður 3, Vil- bergur4, Björn 2;Jón Astvaldsson 1 mark. —S.dór. Víkingur náði aðeins jafn- tefli gegn Þrótti Mikiö þarf Vikingsliðið að batna frá þvi sem nú er, ef það ætlar ekki að lenda i fallhættu i vetur, ef dæma má eftir leik þeirra gegn Þrótti á sunnudaginn, þar sem þeir máttu þakka fyrir jafnteflið - 10:10. Þrottarar leiddu lengst af og voru betri aöil- inn i þessum leik. Að visu vantaði Guðjón Magnússon i Vikingsliöið og það munar um minna, en samt getur það ekki verið skýringin á hve slakt liðið var. Vikingur komst i 2:0 i byrjun, en siðan skoraði Þróttur 4 mörk i röð og staðan 4:2, og i leikhléi hafði Þróttur yfir 5:3. Bilið breikkaði i siðari hálfleik i 6:3 Þrótti i vil, en þá loks tóku Vikingar við sér og náðu að jafna 6:6, en Þróttur komst i 9:7. En aftur jöfnuðu Vikingar 9:9 og enn 10:10, og það urðu lokatölur leiksins. Þróttur var eins og áður segir betri aðilinn i þessum leik, og ungur linumaður i Þrótti, Trausti Þorgrimsson, vakti verðskuldaða athygli fyrir frábæran leik, en Frh. á bls. 15 Fylkir á varla erindi enn sem komið er í Reykjavíkurmótið Hið unga lið Fylkis getur varla enn scm komið er talizt eiga erindi i Reykjavikurmótið i hand- knattleik. Til þess er það of langt á cftir öðrum liöum hvað getu snertir. Þaö varð að þola annað rosatap á sunnudaginn, er það inætti Fram. 3:17. i fyrsta leikn- um tapaði það fyrir Val 4:16. Það er varla forsvaranlegt að láta lið með svo litla getu taka þátt i jafn erfiðu móti sem Reykjavikur- mótið er, jafnvel þótt það sé efni- legt. Það hlýtur að vera mjög svo niðurdrepandi fyrir unga og efni- lega pilta fulla af metnaði að verða að þola svona stór töp leik eftir leik. Yfirburðir Fram voru algerir eins og markatalan gefur til kynna. Þeir höfðu i leikhléi 10:3 og unnu svo leikinn 17:3. Um frammistöðu einstakra leikmanna er fátt að segja. Þeir gátu næstum gert það sem þeim datt i hug, Fram- leikmönnunum, slikir voru yfirburðir þeirra. Mörk Fram: Guðjón Marteinssi 5 Axel 5, Pétur 3, Árni, Sigur- bergur, Guðmundur, Björgvin 1 mark hver. Mörk Fylkir: Einar E. 1 og Einar Ág. 2. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.