Þjóðviljinn - 12.10.1972, Síða 5

Þjóðviljinn - 12.10.1972, Síða 5
Fimmtudagur 12. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 % Það má vera til marks um það að landhelgisdeilan er tekin að harðna, að andstæðingar okkar, brezkir togara- eigendur, standa fyrir dreifingu á ismeygilegum óhróðri um íslendinga. 0 Brezka útgerðarauðvaldið hefur svissneska sérfræðinga á sviði almannatengsla, hagfræði og auglýsingamennsku á launum við að rakka niður íslendinga. Meginatriðin i nýjasta áróðursbréfi hinna keyptu sérfræðinga eru þau, að íslendingar búi við allt of góð lifskjör og hafi til umráða of mikið af góðu landi. fiskinum þar er étinn ferskur upp úr sjó. Eru Bretar lika svona miklu afkastaminni i fiskvinnslu- stöðvunum heldur en við? Um nýlendugróðann Það er dálitið gaman að köflunum, sem koma næst á eftir i „fræðsluriti” Markpress. Þar er fjallað um lifskjörin á islandi og hvað þau séu miklu betri en i Bretlandi. Manni verður á að hugsa: Hvert fór gróðinn af ný- lendunum? Hvar er heimsverzl- unin með City-of-London sem miðpunkt? Sér þess nú enga stað- ina, að iðnbylting hófst i Bret- landi fyrir 200 árum? Vesöld í auði Það undruðust vist ýmsir þegar Bretar marséruðu á land hér fyrir meira en 30 árum, hvað margir þeirra voru vannærðir og vesældarlegir. En það efaðist enginn um það þá, að Bretland ætti nægan auð, spurningin væri bara, hvernig honum er skipt. Og það litur út fyrir að óeigingjarnt starf upplýsingamiðlara af tæi Markpress hafi ekki megnað að fá fólk i Bretlandi til að krefjast meira réttlætis i skiptingu auðs- ins. Grömm af gremju „tslendingar fá meiri eggja- hvitu i fæði sinu en Bretar. Meðaltalið hjá þeim 1964-’66 var 99 grömm af hréinni eggjahvitu á dag, en hjá Bretum 1968—’69 88 grömm”, segja Markpress-menn og ætla vist að valda gremju i Bretlandi. En er vist að sú gremja beinist að Islendingum? Við vitum af henni Svo kemur lýriskur milliþáttur um verðbólgu á Islandi. Og það verður vist að segjast, að sjaldan er góð visa of oft kveðin. Tima- kaup verkamanna var um 100 krónur i árlok 1971, 49 krónur 1966, 8,35 1946 og 1,45 1939. Frá 1963 til 1971 hækkaði smásöluverð um nærri þvi 350% á Islandi en tæplega 50% i Bretlandi. Meðal verðbólga á ári nam 11% frá 1950 til 1971, meira en i nokkru „þróuðu” landi. Á sama tima var meðal gengisfelling á ári miðað við dollara 9,6% met i landi vest- rænnar efnahagssamvinnu. — Þetta vitum við allt saman, ís- lendingar. Og við vitum lika að verðbólgan er aðgerð borgara- stéttarinnar — öðru nafni brask- aranna — til að sölsa til sin gróða og eignir, sem ella hefðu lent hjá alþýðu manna. Langsótt spámennska En hvaða ályktun draga mark- pressarar af verðbólgunni á Is- landi? „Á þessu ástandi verður aðeins ráðin bót með heilbrigðri stjórn á efnahagsmálum. Núver- andi og fyrrverandi óstjórn Is- lendinga i efnahagsmálum lag- færist ekki með þvi að veiða meiri og meiri fisk”. Spámannlega mælt — en óneitanlega dálitið langsótt þegar verið er að deila um yfirráð yfir landgrunninu við Island! Meö og móti iðnaöarráö- herra Eftir þennan milliþátt út i loftið koma fulltrúar brezka togaraauð- valdsins aftur niður á jörðina og taka að ræða iðnþróunarmál — ekki alls kostar ólikt þvi sem góður iðnaðarráðherra gerir. Sýnter fram á þaðgildum rökum, að iðnaður sé frumstæður á Is- landi og mikil þörf sé fyrir frekari uppbyggingu, en hingað til hafi að mestu leyti verið látið sitja við orðin tóm. Minnzt er á orkulindir i fallvötnum og jarðhita, en einnig vikið að þvi, að á Islandi ættu að vera forsendur fyrir vinnuafls- frekum iðnaði sem notar litið magn hráefna. En fulltrúar auð- valdsins gleyma náttúrlega ekki umbjóðendum sinum og þykirþvi hlýða að hnýta i það stefnumið rikisstjórnar Islands að iðnfyrir- tæki séu i islenzkum höndum. „tslendingar gætu losnað við að vera svo háðir fiskútflutningi (pú er þýðing hans allt i einu viður- kennd!) með þvi að bjóða erlendu fjármagni lokkandi kjör". Og siðar segir: Island býr yfir mikl- um möguleikum, en tslendingar kjósa þá auðveldu leið að reyna að reka alþjóðlega veiðiflota ann- arra landa burt allt að 50 milna mörkum". Auðveld leið? Hér er svarið vitanlega, að Is- lendingar gera sér þess glögga grein að renna þarf mörgum stoð- um undir efnahagslitiö, enda stefna áform núverandi rikis- stjórnar i þá átt, bæði að þvi er tekur til landhelgismálsins og iðnvæðingar. Það er ekki að kjósa neina „auðvelda leið” að færa út landhelgina, en það var nauðsyn- legur liður i margþættum áform- um um að nýta allar auðlindir landsins svo að þjóðin geti lifað sjálfstæð i landinu. Órar viöáttunnar Allra einkennilegust verður röksemdarfærslan hjá Markpress þegar þeir fara að velta þvi fyrir sér, hvilikum feikna viðáttum hver tslendingur „ræður yfir”. Á Islandi búi einn maður á hverjum 50 hekturum, en i Bretlandi komi ekki nema hálfur hektari á mannsbarn. Hafsvæðið innan 50 milna markanna sé 145 þúsund ferkilómetrar, og sé þvi hver is- lenzkur sjómaður að krefjast 30 ferkilómetra fyrir sig! Búmerang! Og þeir eru klárir á þvi hjá Markpress að tslendingar ætli sannarlega ekki að hlifa fiskinum á þessu nýja yfirráðasvæði sinu. Þar verði sko skarkað, þangað til ekki fæst lengur branda. Það er einhver munur eða hinir tillits- sömu Bretar á hinu „frjálsa” út- hafi! Þessar „röksemda - færslur” Breta eru svo kunnar, að þær verða ekki endurteknar hér. Aðeins skal bent á ályktunarorð áróðursbréfsins frá Markpress, en þau eru þessi: „Eftir að hafa skoðað málstað Islendinga, er hæfilegast að kalla framferði þeirra TAKM ARKALAUSA GRÆÐGI". En þessi orð verða bezt heimfærð upp á brezka tog- araeigendur sjálfa , enda eru það þeir— veiðiþjófarnir — sem hafa pantað og greitt fyrir þá sérfræði- legu þjónustu hins svissneska fyrirtækis, sem hér hefur verið gerð tilraun til að kynna — og svara þótt i litlu sé. h— Y * Við flytjum búðina (nokkur hænufet) að Nvbvlaiegi 8 Frá gömlu búðinni þarf aðeins að fara undir fínu umferðabrúna og smáspöl af Nýbýlaveginum (rennisléttum með nýlagðri olíumöl) að númer 8. Þar höfum við opnað svo stóra sölubúð að við getum sýnt yður allar búðarvörur okkar við góðar aðstæður — og það er meira en við gátum stært okkur af í gömlu búðinni. BYGGINGAVÖRUVERZLUN /ICV KÓPAV0GS ^ ^ BYKO NÝBÝLAVEG 8 SÍMI:41000 W

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.