Þjóðviljinn - 20.10.1972, Blaðsíða 3
Föstudagur 20. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
ÞEIR
YERZLA
MIKINN
WASHINGTON 19/10. — Banda-
rikjaforseti og viðskiptamálaráð-
herra Sovétrikjanna, Patolitsjev,
undirrituðu i gærkvöldi samning
um að þrefalda viðskipti þessara
stórvelda á næstu þremur árum.
Er gert ráð fyrir að verzlunin
milli landanna muni nema cinum
og hálfum miljarði bandariskra
dala á þremur árum (eða um 13
þúsundum miljarða isl. króna).
Nixon sagði við þetta tækifæri að
þessi viðskiptasamningur væri til
marks um sibatnandi sambúð
rikjanna.
MERKJASALA
TIL STYRKTAR
TAUGAYEIKL-
UÐUM BÖRNUM
Á fyrsta vetrardag
verða seld merki og ritið
Sólhvörf 1972 fyrir
Heimilissjóð tauga-
veiklaðra barna. Verða
merkin afhent sölubörn-
um i öllum barnaskólum
í Reykjavik og Kópavogi
þennan dag.
Það er nú liðinn áratugur siöan
Barnaverndarfélag Reykjavikur
stofnaði þennan sjóð. Var stofn-
framlag þá 100 þúsund kr., en nú
menur sjóðurinn 4 miljónum kr.
Þá barst gjaldkera sjóðsins í gær
Kópavogsbúar
Mynda- og skemmtikvöld Al-
þýðubandalagsins verður haldið i
Þinghól við Alfhólsveg, laugar-
dagskvöldið 21. okt. 1972. Sýndar
verða skuggamyndir og kvik-
mynd úr sumarferðum Alþýðu-
bandalagsins.
Aðgangur ókeypis en veitingar
fást á staðnum.
300 þúsund kr. sem framlög frá
ýmsum aðilum undanfarna mán-
uði.
„Ætlunin með stofnun og efl-
ingu sjóðsins er sú, að vekja at-
hygli á hinni brýnu þörf á að
koma upp lækningastöðvum fyrir
þau börn, sem þjást af geðrænum
truflunum”, sagði Matthias
Jónasson, formaður stjórnar
heimilissjóðs i gær.
„Fyrir ári tók til starfa geð-
deild fyrir börn, við Dalbraut hér
i borg. Stjórnar henni Páll As-
geirsson barnageðlæknir. Sinnir
sú stofnun bæði dvalar- og
heimangöngus júklingum.
Hins vegar er fjöldi taugaveikl-
aðra barna miklu meiri en svo, að
ein litil stofnun fái annað þörfum
þeirra. En þar er unnið ágætt
starf”, sagði Matthias.
„Stjórn Héimilissjóðs tauga-
veiklaðra barna hefur áhuga á
þvi að reisa lækningastöð handa
börnum með taugaveiklun i væg
ara formi, en illa farnir sjúkling-
ar þarfnast meðferðar á spitöl-
um. Forsenda framkvæmdar af
hálfu sjóðsins er sú, að opinber
aðili lýsi sig fúsan til að annast
rekstur lækningastöðvarinnar,
þegar hún er fullbúin”.
A myndinni sjást nokkrir
samningainanna verkaiýðs-
félaganna og verkafólks i
Straumsvik.
Talið frá hægri: Hermann
Guðmundsson formaður
Verkamannafélagsins Hlifar i
Hafnarfiröi, Þórir Danielsson
frainkvæmdastjóri Verka-
mannasambands lslands,
Ólafur Þorsteinsson trúnaðar-
maður rafvirkja i Straumsvik.
Magnús Geirsson formaður
Félags islenzkra rafvirkja,
Guðjón Jónsson formaður Fé-
lags járniðnaðarmanna, örn
Friðriksson sameiginlegur
aðaltrúnaðarmaður verka-
lýðsfélaganna i Staumsvlk,
Jóhannes Halldórsson trún-
aðarmaður á vélaverkstæði I
Straumsvik, Hermann Val-
steinsson trúnaðarmaður i
kersmiðju i Straumsvik, Þór-
arinn Sófusson fulltrúi skrif-
stofufólks i Straumsvik og
Sigurður T. Sigurðsson trún-
aðarmaður i kerskála i
Straumsvik.
Samning-
ar við Isal
Kjarasamningar standa nú
yfir milli Islenzka Alfélagsins
h.f. i Straumsvik (isal) og 10
verkalýðsfélaga i Reykjavik
og nágrenni.
Kröfur voru lagðar fram
þann 17. október, og var annar
samningafundurinn haldinn i
gær. Þarna er samið fyrir um
það bil 500 manns, eða álika og
verið væri að semja við allt
Starfandi fólk i 4000 manna
bæjarfélagi.
Karfi seldur fyrir 150 milj.
króna til Sovétríkjanna
í vikunni var undirrit-
aður sölusamningur við
Prodintorg V/O i
Moskvu, um sölu á allt
að 2.500 tonnum af fryst-
um karfaflökum. Er
verðmæti flaka þessara
um 150 miljónir króna.
Með sölu þessari hefir allur
karfi verið seldur, sem borizt
hefur á land, það sem af er árinu.
Ekki er búizt við frekari sölum til
Sovétrikjanna á þessu ári, en alls
hafa þau keypt af Islendingum i
ár 14 þúsund tonn af ýmis konar
flökum, þó aðallega ufsa- og
karfaflökum, og 4 þúsund tonn af
heilfrystum smáfiski og flatfiski.
Aðilar að þessum sölusamning-
um eru Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeild
StS.
Frá Alþýðubandalaginu í Reykjavík:
F rumkvæði
fagnað
„Félagsfundur A1
þýðubandalagsins i
Reykjavik, haldinn mið-
vikudaginn 18. október
1972, fordæmir harðlega
itrekaðar ofbeldisað-
gerðir brezkra veiði-
þjófa i islenzkri land-
helgi.
Fundurinn fagnar þvi
frumkvæði Alþýðu-
bandalagsmanna, að
opna með myndarlegu
framlagi sparisjóðsbók,
sem afhent skal land-
helgissöfnuninni, þegar
fyrsti brezki eða þýzki
veiöiþjófurinn hefur
verið færður til hafnar
og dæmdur, en spari-
sjóðsbók þessi er nr.
10372 hjá Sparisjóði
Mýrasýslu i Borgarnesi.
lagsins i Reykjavik i fyrrakvöld
og lét Þór Vigfússon, formaður
félagsins.þess getið, að skrifstofa
Alþýðubandalagsins i Reykjavik
tæki með ánægju við framlögum i
söfnun þeirra Vestlendinga.
Framsögumenn á fundinum
voru þeir Ragnar Arnalds, for-
maður Alþýðubandalagsins, sem
ræddi um stjórnmálaástandið og
greindi nokkuð frá för sinni til
Chile, og Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri flokksins, sem
ræddi skipulagsmál og flokks-
starfið.
Meðal þeirra, sem tóku til máls
voru Sigurður Magnússon raf-
vélavirki, Jónas Arnason al-
þingismaður, Gunnar M.
Magnúss rithöfundur, Jón
Timótheusson sjómaður og Páll
Bergþórsson veðurfræðingur.
A fundinum voru kjörnir full-
trúar félagsins i flokksráð Al-
þýðubandalagsins, en þaö kemur
saman til fundar i Kópavogi i
kvöld.
Listi yfir fulltrúa Alþýöubanda-
lagsins i Reykjavik i flokksráði
Alþýðubandalagsins verður birt-
ur næstu daga ásamt nöfnum full-
trúa annarra Alþýðubandalagsfé-
laga i flokksráði.
Með stuðningi við þessa söfnun,
sem nú hefur verið hrundið af
stað gefst landsmönnum kostur á
að sýna hug sinn til brezku og
þýzku sjóræningjanna á tslands-
miðum.
Alþýðuþandalagið i Reykjavik
skorar á alla islenzku þjóðina að
sýna einhug og festu i landhelgis
málinu og hvika hvergi fyrir of-
beldi yfirgangsseggja”.
Þetta er samþykkt, sem gerð
var á félagsfundi Alþýðubanda-
r
Askorun
Að marggefnu tilefni vilja
Neytendasamtökin skora á fólk
að kaupa einungis fatnað, sem
meðhöndlunarmerking fylgir.
20 þúsund
vilja helzt til
Kanada
KAMPALA 19/10. — Yfir 20.000
manns af Asiuuppruna, sem
hefur verið visað frá Uganda,
hafa sótt um dvalarleyfi I
Kanada. Kanadisk yfirvöld hafa
þegar samþykkt að veita 3.500
manns dvalarleyfi, en jafnmörg-
um mun hafa verið neitað um
landvistarleyfi.
KVOLD-
VAKA
Að loknum flokksráðs
fundi Alþýðubanda-
lagsins næstkomandi
sunnudag verður haid-
haldin kvöldvaka i
Glæsibæ
og hefst hún kl. 2.
Alþýðubandalagsfólk
Reykjavík.
Njótið góðrar
kvöldstundar með
félögum utan af landi,
og tryggið ykkur
miða á skrifstofunni á
Grettisgötu 3.
DAGSKRÁ
1. Kastljósi brugðið á
minnisstæða daga.
Þáttur í samantekt
Þorsteins frá Hamri.
2. Karl Guðmundsson
skemmtir.
3. Guðrún Á. Símonar
syngur.
Sameiginleg kaffi-
drykkja að dagskrá
lokinni.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ