Þjóðviljinn - 25.10.1972, Page 1
DJOÐVIIIINN
Miðvikudagur 25. október—37. árg.—241. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
k A
r
Ríkisstjóm Islands tilkynnir:
Ræðum ekki við Breta
að óbreyttu
Rikisstjórnin hefur nú tilkynnt brezku stjórninni,
aö af íslands hálfu sé eigi talinn grundvöllur til
frekari viðræöna um landhelgismálið meðan Bretar
halda fast við fyrri afstöðu.
Þetta kemur fram i
fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu, en nú er
lokið athugun á skýrslu
embættismannanefndar-
innar, er ræddi við Breta í
Reykjavík þann 5.-7. þ.m.
Undanfarna daga hefur
stjórnarandstaðan undir
forustu Morgunblaðsins
haft i frammi síendurtekn-
ar tilraunir, af ósvífnasta
tagi, til að telja fólki trú
um ágreining innan ríkis-
stjórnarinnar um þetta
mál.
Sérstaklega hefur Lúðvik
Jósepsson, sjávarútvegs-
ráðherra, verið borinn
verstu sökum, vegna þess
að hann lýsti strax að lokn-
um embættismannavið-
ræðunum þeirri skoðun
sinni, aö þær heföu borið
sáralitinn árangur, ef
nokkurn, og þýðingarlaust
væri að ræða frekar við
Breta nema þeir breyttu
um afstöðu.
Nú liggur niðurstaðan
skjalfest fyrir, en eftir er
að vita, hvort Morgun-
blaðið sér sóma sinn í þvi
að biðjast afsökunar á for-
dæmanlegum mál-
flutningi, sem engum gat
gagnað nema Bretum.
Fréttatilkynning utan-
riki srá ðuney tisins er
þannig:
Ríkisstjórnin hefur haft til
athugunar skýrslu em-
bættismannanefndar
þeirrar er ræddi við brezka
embættismenn um land-
helgismálið dagana 5.-7.
októbers.l. og hefúr i fram-
haldi af þeim viðræðum nú
tilkynnt brezku rikis-
stjórninni að af íslands
hálfu sé eigi talinn grund-
völlurtil framhaldandi við-
ræðna nema jafnhliða
svæðum og veiðitímabilum
sé einnig rætt um fjölda,
stærð og gerð brezkra skipa
á islandsmiðum."
t>aö kom l'ram i embættis-
mannavibræðunum, að Bretar
voru ekki til viðtals jim l'jölda,
stærðeða gerð þeirra togara, sem
hugsanlega lengju bráðabirgða-
undanþágu, né heldur vildu þeir
ljá máls á þvi, að fslendingar
Frh, á bls. 15
Heilbrigðisráðherra um mále fni geðs júkra:
Geðdeild verður reist
á Landspítalalóðinni
Samninga-
viðræður
Japana og
Sovétmanna
MOSKVU 24/10 — Fyrstu lotu i
samningaviðræðunum milli
Japana og Sovétmanna lauk i
Moskvu i gærkvöld. Takmark
viðræðnanna er að koma á eðii-
lcgu stjórnmálasambandi milli
landanna, en heimildarmenn i
japanska sendiráðinu sögðu að
ekki hefði náðst neitt samkomu-
lag um hinar fjórar Kurileyjar,
sem tilheyrðu áður Japan en
Sovétrikin hernámu 1945.
Deilan um eyjarnar f jórar virð-
ist hafa orðið að miðpunkti um-
ræðnanna. Japanir hafa jafnan
viljað fá þær aftur, en Sovétmenn
hafa neitað þvi.
Utanrikisráðherrar landanna,
Ohira og Gromyko, veittu samn-
inganefndunum forystu. Næstu
fundir verða ekki haldnir fyrr en
eftir nýár.
Kaupir SÍS
frystihús
hér i Rvík?
Rekstur frystihúss Júpiters og
Marz inni á Kirkjusandi hér i
Reykjavik hefur heldur dregizt
saman siðustu árin. Er talið að
Tryggvi ófeigsson hafi hug á þvi
að selja SiS þetta frystihús og
standi jafnvel samningar yfir um
sölu þessa húss. Yrði þá frystihús
Afurðasölunnar, lika inni á
Kirkjusandi, lagt niður.
Magnús Kjartansson,
heilbrigðisráðherra, skýrði
á fundi sameinaðs þings i
gær frá undirbúningi áð
byggingu geðdeildar við
Landsspítalann, en sérstök
nefnd, sem skipuð var í
nóvember í fyrra, hefur
annazt þann undirbúning.
Liggur nú fyrir útlits- og
skipulagsteikning af bygg-
ingunni, sem ráðgert er að
rísi í tveim áföngum, og
hefur henni verið valinn
staður á norðausturhorni
Landsspítalalóðarinnar. —
Sagði Magnús, að fram-
kvæmdir ættu að geta haf-
izt í september næsta ár, ef
nægilegt fé yrði veitt til
Þcssar gömlu byggingar að Kleppi i Reykjavik hafa verið nær eina at-
hvarf geðsjúkra i (í0-7() ár. Nú loks verður hafizt handa um byggingu
gcðdeildar við Uandsspitalann i Reykjavik.
Bretar óttast útfærslu
norsku landhelginnar
i stef nuyf irlýsingu
norsku st jórnarinnar,
sem birt var í gær-
morgun, segir aö
stjórnin muni taka það
til ihugunar, hvort færa
skuli út landhelgi
Noregs, og hún muni
berjast fyrir því aö yfir-
ráöaréttur strandríkja
yfir fisknum í hafinu við
þau veröi viöurkenndur
á næstu ráðstefnu um al-
þjóöarétt á hafinu.
Að sögn AP fréttar, sem
rikisútvarpinu barst i gær,
hefur þessi frétt vakið mikla
athygli i Bretlandi. Togara-
menn i Grimsby eru æfir, og
Jack Evans, formaður félags
yfirmanna á togurum, lýsti
þvi yfir, að færi Norðmenn út
landhelgina, eigi brezkir
togarar ekki lengur i nein hús
að venda. Nokkrir togarar séu
þegar farnir frá Islandi á
Noregsmið, og fái þeir ekki að
veiða þar sé enginn fiskur
fyrir togarana.
Brezkir þingmenn hafa
aukið þrýstinginn til að fá
stjórnina til að knýja fram
lausn á landhelgisdeilunni.
Þingmenn f iskveiðiborga
óttast mjög að útfærsla
islenzku landhelginnar og
siðan þeirrar norsku kunni að
leiða til e.k. keðjuverkana.
Þeir óttast einnig að útfærsla
norsku landhelginnar muni
stappa stálinu i fslendinga.
Ýmsir fréttamenn i Bret-
landi telja þó ekki liklegt að
Norðmenn muni færa út land-
helgina vegna þess að þeir
þurfa nú að gera viðskipta-
samning við EBE, og vilji ekki
spilla fyrir þvi að hagstæður
samningur fáist. Þeir benda
einnig á að fáir brezkir
togarar séu á veiðum við
Noreg, og þvi litlar likur á
nýju þorskastriði.
þessara brýnu fram-
kvæmda á fjárlögum. Það
mál væri nú i höndum al-
þingismanna.
Krá þessu skýrði ráðherrann i
tilefni af fyrirspurn frá Ragnhiidi
Ilelgadóttur. f ræðu sinni greindi
hann einnig frá helztu aðgerðum
sem gerðar hafa verið á s.l. ári og
það sem af er þessu ári lil þess að
bæta aðstöðu og meðferð geð-
sjúkra.
En ræöa Magnúsar um þetta
mál birtist á föstudag.
Farþegar
tyrknesku flug-
vélarinnar
komnir heim
ISTANBUl. 24/10 — Flestir
þeirra 05 manna, sem haldið var i
gislingu i rændri flugvél á flug-
vellinum i Sofia i Búlgaríu, voru
íluttir heim til Tyrklands i dag.
Yfirvöld Tyrklands hafa nú haíið
umfangsmikia rannsókn á at-
burðinum.
Eftir að flugvélin hafði verið 36
klukkustundir á flugvellinum
með farþegana um borð, gáfust
ræningjarnir upp og gáfu sig á
vald búlgörskum yfirvöldum.
Þeir höfðu hótað þvi að sprengja
vélina i loft upp, en þeir sögðu
farþegum vélarinnar samt að
þeim yrði ekkert mein gert. Ræn-
ingjarnir héldu siðan blaða-
mannafund, þar sem þeir sögðust
vera félagar i þjóðfreisisher tyrk-
neskrar alþýðu. Þeir sögðu að
þeir myndu ekki hafa drepið far-
þegana undir neinum kringum-
stæðum.