Þjóðviljinn - 25.10.1972, Blaðsíða 16
DIODVIUINN
Miftvikudagur 25. októbcr 1972
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinn®r
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Kvöld- og næturþjónust
lyfjabúðanna i Reykjavik
verður sem hér segir 21.-27.
október: Lyfjabúðin Iöunn —
Garðsapótek. Lyfjabúðin
Iðunn annast ein vörzluna á
sunnudag.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Thieu hafnar tillögum Norður-
Víetnama um frið í landinu
Rœða hans hefur dregið úr h jartsýni manna
SAIGON 24/10 — Nguyen
Van Thieu, forseti Suöur-
Víetnams tók mjög haröa
afstööu til samningavið-
ræöna Bandarík janna og
Þ joðfrelsishrey fingarinnar
i París i sjónvarpsræöu,
sem hann hélt í kvöld. Um-
mæli hans hafa dregið
nokkuð úr þeirri bjartsýni,
sem ríkt hefur aö undan-
förnu.
Beðið var el'tir ræðu Thieus, þvi
að hún var fyrsta opinbera yiir-
lýsing hans eftir viðræðurnar við
Kissinger um helgina. Thieu
hafnaði tillögum Norður-Viet-
nama um l'rið og kallaði þær lúa-
legt baktjaldamakk, gert i þvi
skyni einu að blekkja almenn-
ingsálitið. Ilann aðvaraði menn
við að trúa nokkrum vopnahlés-
tilhoðum ..kommúnista”, þeir
vildu aðeins fá tækifæri til þess að
hvila sig fyrir nýja hardaga og
myndu rjúfa hvert það vopnahlé,
sem þeir semdu um. Reir hefðu
þegar tilbúnar áætlanir um það
sem gera skyldi ef til vopnahlés
kæmi.
Thieu hafnaði einnig tillögum
um samsteypustjórn i landinu, og
krafðist þess að Norður-Viet-
namar flyttu allan herafla sinn
burt frá Suður-Vietnam. Hann
sagðist myndu hafna hverjum
þeim vopnahléssamningum, sem
ekki fælu i sér pólitiska lausn á
Vietnam-deilunni.
Fréttamenn túlka ræðu Thieus
svo, að hann taki mjög harða af-
stöðu i samningaviðræðunum og
enn sé eftir að leysa ýmis helztu
vandamálin. Hún hefur þvi dregið
nokkuð úr þeirri bjartsýni, sem
rikt hefur að undanförnu, og gefið
McGovern, frambjóðanda Demó-
krata, byr i seglin. Heimildar-
menn, sem standa nærri Banda-
rikjastjórn, telja að Thieu hafi
nokkuð til sins máls, en stjórnin
sé honum þó ekki sammála að
öllu leyti.
Dr. Henry Kissinger, ráðgjafi
Nguyen Van Thieu
Nixons, kom i dag til Washington
frá Saigon og sagði frétta-
mönnum á flugvellinum að samn-
ingunum hefði nokkuð miðað
áfram. Siðan hélt hann til Hvita
hússins, þar sem hann ræddi við
Nixon forseta i hálftima. Kiss-
inger var fimm daga i Saigon og
ræddi sex sinnum við Thieu, en
ekkert hefur verið látið uppi um
efni viðræðnanna.
Meðan þetta gerðist, blossuðu
bardagar upp i Vietnam að nýju.
Bandariskar sprengjuflugvélar
fóru i fleiri árásarferðir yfir
Suður-Vietnam en nokkru sinni
áður, og herdeildir úr bjóðfrelsis-
hreyfingunni gerðu árásir með-
fram strandlengjunni i miðhluta
Vietnam. Harðir bardagar urðu
einnig i grennd við Saigon.
A. Laing framltvœmdastjóri brezka Togaraeigendafélagsins um viðbrögð brezku rikisstjórnarinnar:
Brezkir togaraeigendur eru
ánægðir með freigáturnar!
Brezk blöö geröu mikið úr
þvi i gær aö herskip úr flota
Elisabetar drottningar eru
nú komin fast að islenzku
yfirráöasvæöi og eru reiöu-
Alautt
austan-
lands
Meðan grátt er niður i sjó hér
suðvestanlands og menn eru að
bisa við að koma nagladekkjun-
um undir ökutæki sin, þá er jörð
alauð á Austurlandi. Og það er
ekki bara i byggð sem er autt
austanlands heldur sér ekki
heldur snjó i hæstu fjallalindum.
,,Við skiljum ekki þetta hálku-
tal ykkar, þarna syðra," sagði
Norðfirðingur, sem hringdi til
blaðsins i gær.
Gærusala Sfö
í lok siðustu vikú var undir-
ritaður samningur um sölu á 80-
100 þús. venjulegum gærum til
fyrirtækisins Skorimpex i
Póllandi. Er hér um aukið magn
að ræða frá þvi i fyrra, er þangað
seldust 45 þús. gærur, auk þess
sem veruleg verðhækkun hefur
orðið. Afgreiða á allt magnið fyrir
áramót.
Ferðir
Fossanna
Vegna afgreiðslubanns i
brezkum höfnum breytist áætlun
m/s Dettifoss og m/s Mánafoss
þannig, að skipin ferma vörur til
islands vikulega i Rotterdam á
þriðjudögum og i Hamborg á
fimmtudögum.
í Rotterdam lestar m/s Mána-
foss þriðjudaginn 31. október og
m/s Dettifoss þriðjudaginn 7.
nóvember. Auglýstir lestunar-
dagar i Hamborg eru óbreyttir.
búin að hlutast til um
íslenzka réttargæzlu, ef
reynt veröur aö stugga viö
brezkum veiöiþjófum.
„Harðlinumaðurinn"
Austen Laing kveöur
toga raeigendur mjög
ánægða meö undirtektir
brezku stjórnarinnar viö
málaleitun þeirra. —
utbreiddasta blaö Bret-
lands hafði þau ummæli
eftir ólafi Jóhannessyni
forsætisráöherra i gær, að
islendingar væru reiöu-
búnir tii samninga, en þó
þvi aðeins aö brezk fiski-
skip fari fyrst út fyrir 50
milna mörkin.
Eftir fréttum að dæma sem
blaðið aflaði sér i gær frá brezka
útgerðarbænum Hull, virtist
ekkert sérstakt vera á seyði i
fiskveiðideilunni fram yfir það
sem er á almannavitorði.
Heimildarmaður blaðsins átti tal
við ákveðinn verkalýðsforingja,
sem bar sig vel yfir hafnbanninu
og talaði digurbarkalega um það,
að ,,við getum látið loka höfnum á
meginlandi Evrópu fyrir
islendingum hvenærsem við vilj-
um."
i Lundúnablaðinu Daily
Kxpress. þeirri útgáfu þess sem
prentuð er i Manchester fyrir
Norður-England, var fjallað um
landhelgismálið i forsiðufrétt i
gær. Yfir þvera siðu sagði:
„Þorskastrið — herskipaflotinn
þangað — freigátnr á eftir-
litssiglingu við ísland". Visaði
þetta til þess. að herskipin
Phoebe og Achilles eru hér á
sveimi utan landhelgi reiðubúin
til átaka. t inngangi að frétt
blaðsins voru eftirfarandi um-
mæli höfð eftir Ólafi
Jóhannessyni forsætisráðherra:
,.Við erum tilbúnir til að slaka
svolitið á i samningaviðræðum,
en við teljum að Bretar verði að
fara með togara sina út fyrir i
vikutima eða svo til að viðræður
komist af stað. bað kostar Breta
ekki mikið. Við viljum að Bretar
sýni að þeir séu fúsir til þessa
skrefs i samningaátt. fslendingar
mundu vera búnir undir það að
leyfa vissum togurum að veiða
innan fiskveiðilögsögu."
Daily Express mun vera út-
breiddasta blað Bretlands (en
ekki að sama skapi viðsýnt eða
áreiðanlegt blað!). Ekki var vitað
hvort Lundúnaútgáfa blaðsins i
gær hafði þennan sama uppslátt
og Manchesterútgáfan.
t brezku útvarpi i fyrrakvöld
var skýrt frá för útgerðarmanna
undir forystu Austens Laing,
framkvæmdastjóra Togara-
eigendafélagsins, á fund Prior
ráðherra. Um þann fund sagði
Laing: ,,Við i Togaraeigenda-
félaginu erum ánægðir, þvi að við
vitum að trufli tslendingar okkar
menn við veiðar munu brezk her-
skip skakka leikinn”. Þessari
frétt fylgdi það, að brezka
stjórnin hefði málið til frekari at-
hugunar, og muni hún gefa út
yfirlýsingu um það i vikulokin.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
vilja ns ytra er það skoðun manna
þar, að meðferð fiskiveiði-
deilunnar af hálfu Breta sé nú i
umsjá þeirra Sir Alecs Douglas-
llome, utanrikisráðherra, og
James Prior, landbúnaðar- og
sjá varútvegsráðherra. Lafði
Tweedsmuir hafi ekki sama hlut-
verk i málinu og áður.
Hið virðulega ihaldsblað Daily
Telegraph i Londoil flytur frétt
um Togaraeigendafélagið og
Prior ráðherra á forsiðu, en á
baksiðu skrifar einn af blaða-
mönnum þess, Kenneth Clarke,
staddur i Reykjavik, um fisk-
veiðideiluna. Hefur hann eftir
Helga Ágústssyni fulltrúa i utan-
rikisráðuneytinu, að óumflýjan-
legt sé að leita lausnar á deilunni,
þvi að þegar vetrar og veður og
önnur skilyrði versni til muna,
verði vonlaust fyrirBretaaðhalda
hér áfram veiðum i heimildar-
leysi. Af embættismannafundin-
um um daginn hafi orðið meiri
árangur en tilkynnt hafi verið um
opinberlega til þessa.
JAPÖNSKU
NITTO umboðið hi.
NITTO snjóhjólbarðarnir komnir
ÚTSÖLUSTAÐIR
GÚMBARDINN H.F., Brautarholti 10, sími: 17984
IIJÓLBARÐAVIÐGERÐ VESTURBÆJAR v/Nesveg,
sinii: 23120
H.IÓLBARDAVERKSTÆÐID, Rey kja vikurvegi 56,
Hafnarfirði, simi: 51538
GÚMMÍVINNUSTOFAN BÓTIN, Hjalteyrargötu 1,
Akurevri, sími: 12025
NEGLUM OG SKERUM MUNSTUR i HJÓLBARÐA.
m
Á.
NITTO umboðið hf.
'U'-yö,
BRAUTARHOLTI16,
SÍMI: 15485.