Þjóðviljinn - 29.10.1972, Síða 4
4 SÍÐA — Þ.IÓÐVIL.JINN Sunnudagur 29. október 1972.
BYLTING
í GERÐ
BIFVÉLA
Spjallað við Lárus Jónsson hjá Mazda-umboðinu
Mcngun og hávaöi frá bifreið-
um er orðið eitt mesta vandamál
hverrar stórborgar i heiminum.
Það er þvf ekki að undra þótt á
siðustu árum hafi einstaka borgir
eða fylki i ýmsum löndum sett
bifreiðaframleiðendum það skil-
yrði að úr þessu verði að bæta
fyrir ákveðinn tima.
Á l'áum stöðum i heiminum
mun mengun vera komin á jafn
alvarlegt stig og i Japan. Það er
þvi eðlilegt að Japanir, sem einir
mestu bifreiðairamleiðendur
heims, yrðu fyrstir til að l'ram-
leiða bii'vél, þar sem mengun og
hávaði er i algeru lágmarki. Það
voru Mazda bifreiðasmiðjurnar i
Japan.sem lyrstar náðu að fram-
leiða hina svo kölluðu Wenkel-vél
þannig(að hún yrði ekki óhóflega
dýr, en Wenkel-vélin er nær al-
gerlega hávaðalaus og mengun
Irá henni er svo mikið minni en
frá hinni venjuíegu bifvél að vart
er orö á hafandi. Okkur datt þvi i
hug að ræða litillega við umboðs-
menn Mazda -bifreiðanna hér á
landi l'orráðamenn Hilaborgar.
Fyrir svörum varð Lárus Jóns-
son.
Lárus sagði, að Mazda-bilarnir
með Wenkelvél væru nú til
reynslu hér á landi, en það væri
siður Mazdaverksmiðjanna að
setja aldrei bil i sölu i nokkru
landi fyrr en hann hefði verið
þrautreyndur við aðstæður i land-
inu, og ef einhverju þyrfti að
breyta svo það hentaði betur i
viðkomandi landi, þá væri það
gert. Þannig hefði það til að
mynda veriö i sambandi við
fyrstu Mazda-bilana sem hingað
komu i júni 1971. Þeir hefðu verið
reyndir hér, einir 4 bilar, i 11 mán-
uði áður en þeir voru settir i sölu
og þá höfðu verið gerðar á þeim
ýmsar lagfæringar sem hentuðu
betur islenzkum aðstæðum. Mætti
þar nefna stærri rafgeymi, stærri
rafal, stærri felgur og dekk og
fleira.
Lárus sagði aö nú væru hér til
BIFREIÐ AKAUPENDUR!
Varið
á vegheflunum
Athugið að þeir bilar sem aðeins eru 11-14 cm. háir undir
lægsta punkt, eru ekki ætlaðir islenzkum staðháttum, heldur
aðeins fyrir steypta eða malbikaða vegi.
DATSUN
bilarnir eru hinsvegar 17,5-21 cm. undir lægsta punkt og auk
þess er yfirbygging og allur búnaður bilanna sérstaklega ætl-
aður fyrir jafn slæma vegi og hæð hans leyfir. 400 nýir
DATSUN bilar á Islandi siðustu 18 mánuði sanna þetta svo
ekki verður um villzt.
Komið skoðið og reynsluakið DATSUN og sannfærizt um að
DATSUN er óskabill íslendinga.
INGYAR HELGASON heildverzlun
Vonarlandi við Sogaveg Simar 84510 og 84511.
reynslu 4 Mazda-bilar með
Wenkelvél og yröi almenn sala á
þeim ekki hafin fyrr en að þeirra
reynslu fenginni. Wenkel-vélin er
enn sem komið er nokkuð dýrari
en venjuleg vél, en innan fárra
ára.svona 2ja til 3ja yrði hún ekki
lengur dýrari en venjuleg bilvél.
Þessi Wenkel-vél hefur marga
kosti framyfir venjulega vél. Hún
er nær hljóðlaus, mengun frá
henni er hverfandi. Hún er mun
kraftmeiri en venjuleg vél og það
svo, að til þess að fá sama kraft
og Wenkelvélarnar sem eru i
reynslubilunum hér, þyrfti
stærstu gerð af 8 cýlendervélum,
en þó er benzineyðsla Wenkel-vél-
anna ekki nema eins og i kraft-
mikilli 4ra cýlendravél.
— Er það ekki rétt,Lárus, að
Mazdaumboðið er eina umboðið
hér á landi fyrir japanska bila
sem flytur þá beint inn frá
Japan?
— Jú,það er rétt,og þess vegna
getum við haft okkar bila mun
ódýrari en aðrir japanskir sam-
bærilegir bilar eru. Þetta stafar
af hinum fullk’omna tölvuútreikn
ingi Mazdaverksmiðjanna i
Japan.
— Hvernig er með varahluta-
þjónustu hjá ykkur?
— Við höfum hana hér hjá um-
boðinu á Hverfisgötunni og ég má
segja að hún sé orðin mjög góð.
En ég vil taka það fram, að við
erum aðeins búnir að flytja
Mazda-bilana inn siðan i mai i vor
og hefur enginn þeirra enn þurft á
einu einasta stykki að halda og
það hafa reynslubilarnir sem viö
erum búnir að vera með i rúmt ár
hér ekki þurft heldur. Við flytjum
varahlutina beint inn frá Japan,
en ef svo færi að viö ættum ekki
eitthvert stykki, þá getum við
pantað það með örfárra daga
fyrirvara.
— Hvað flytjið þið inn margar
gerðir af Mazda-bilum?
— Við erum með Mazda 1300,
818 og 616 og svo er ein enn gerðin
að koma á markaðinn, RX4.
Þessar gerðir eru ýmist 2ja eða
4ra dyra. Þá eru til hinar svo
kölluðu ,,fastback”-gerðir af
þeim,svo og station-gerðir.
— Eigið þið bila á lager, eða
þarf að biða eftir þeim frá þvi að
pantað er?
— Jú,við eigum oftast á lager,
þannig að viðskiptavinur getur
fengið þá svo til strax. Annars
höfum við aldrei þurft að biða
lengur en um 25 daga frá þvi við
sendum skeyti til Japan, þar til
bflarnir eru komnir til landsins.
— Og hvernig gengur salan?
— Mjög vel. Það er augljóst að
við munum selja um 200 bila á
þessu ári,en þó hófum við ekki
söluna fyrr en i mai i vor. Og
vissulega lofar þetta góðu.
—S.dór.
BÍLASALA KÓPAVOGS
Glæsilegt bilaúrval.
Glæsilegur sýningarsalur.
Sýningarsalurinn er jafnframt glæsilegur
sýningargluggi.
Okkar þjónusta — ykkar öryggi.
BÍLASALA KÓPAVOGS
Nýbýlavegi 4 — Simi 43600.
Síaukin sala sannar
öryggi þ jónustunnar
Hjá okkur gerast örugg bilaviðskipti.
Allar tegundir bifreiða.
Allir verðflokkar
Allir mögulegir greiðslusamningar
Alli Baldur.
BÍLASALA GUÐMUNDAR
Rei gþórugötu 3, simar 19032 og 20070.
BÍLAHÚSIÐ
Sigtúni 3, simar 85840 og 85841.