Þjóðviljinn - 29.10.1972, Blaðsíða 9
Sunnudagur 29. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
„Ég fæ einn
kílómetra
til reynslu”
segir Sverrir Runólfsson sem um árabil
hefur barizt fyrir nýrri tœkni í vegagerð
Hún hefur sjálfsagt ekki
farið framhjá neinum hér á
landi, barátta Sverris
Runólfssonar fyrir nýrri
tækni í gerð varanlegra
vega hér á landi. Mikið
gekk á um tíma i þessu
máii, m.a. var sérstakur
sjónvarpsþáttur um málið,
þar sem Sverrir þótti hafa
betur í umræðum við ráð-
andi menn i vegagerð hér á
landi. Nú um skeið hefur
verið heldur hljótt um þetta
mál, svo við snerum okkur
til Sverrisog spurðum hann
hvað þessu máli liði.
— A6eins hefur þetta mjakazt,
sagöi Sverrir. Ég fæ vonandi aö
sanna mitt mál meö þvi að leggja
eins kilómetra veg i vor með
þeirri aðferð sem ég hef haldið
fram að væri bæði ódýrari og mun
hraðvirkari en sú aðferð sem nú
er notuð við gerð varanlegra vega
hér á lándi. Auðvitað er þetta
alltof st'uttur spotti til þess að
hægt sé að sýna fram á þetta full-
komlega, en ég ætla samt að
reyna það. Þvi miður er enn ekki
búið aö ákveða hvar ég fær að
leggja þennan vegarspotta.
— Þú heldur þvi fram, Sverrir,
að það sé hægt að leggja varan-
lega vegi fyrir minna fé og með
meiri hraða en nú er hér á landi
með þeim vélum sem þú vilt
flytja inn?
— Já það er rétt. Ég lit svo á,
að það sé skylda okkar að reyna
allt sem hægt er til að lækka þann
mikla kostnað sem nú er við gerð
vega með varanlegu slitlagi. Ég
held þvi fram, að það sé hægt að
koma fermetranum i gerð slikra
vega niður i tvö til þrjú hundruð
kr.
Ég lýsi algerri vanþóknun
minni á nýja veginum austur
fyrir fjall sem nú er nýbúið að
opna. I reglum alþjóðabankans
um vegagerð segir, að hæðarmis-
munur megi ekki vera meira en 4
millimetrar á hverjum fjórum
metrum. Ég fullyrði að þessum
reglum hefur ekki verið fylgt. Þá
er oliumölin sjálf ekki lögð á þann
fullkomnasta hátt sem verður aö
gera, ef tala á um varanlegan
veg. Ég fullyröi að með þeim vél-
um og þeirri tækni sem ég býð
upp á er hægt aö gera þessa vegi
betri, og ódýrari, og verkið tekur
miklu minni tima en nú er.
— Hve miklum afköstum býst
þú við af þinni tækni, ég á við: hve
löngum vegakafla þinar vélar
skila á klst.?
— Fyrst af öllu verðum við aö
reyna að gera vegagerðina sem
ódýrasta. Við erum ekki það rikir
hér á landi, að við höfum efni á
svo dýrum vegum sem nú er. Um
hraðann get ég sagt það, að min
Sverrir Kunólfsson
vél gerir hálfan kilómetra á klst.
Það sem mig langar aö gera er að
setja 3 vélar i gagnið. Og ef við
hugsuðum okkur leiðina til Akur-
eyrar sem er 450 km. þá myndi
vera hægt að skipta leiðinni i
þrennt, og hver vél tæki fyrir 150
km. Miðað við að vélin skili 500 m.
á klst. myndu þessar þrjár vélar
vera rúma 3 mánuði að ljúka gerð
slitlagsins norður.
— Þú vilt leggja slitlagið á veg-
inn sem fyrir er?
— Já að mestu leyti. Ég held
þvi fram, að við höfum ekki efni á
að leggja alltaf — hvað skulum
við segja — sérstaklega vandaðar
hraðbrautir. Það er vel hægt að
lagfæra undirstöðu þess vegar
sem fyrir er þannig, að um góðan
veg verði að ræða og láta megi á
hann varanlegt slitlag. Að visu
þarf að sniða af einhverja agnúa
og leggja upp nýja undirstöðu, en
það er hverfandi. Þetta yrði
góöur vegur og svo miklu ódýrari
en þeir vegir eru sem nú eru
lagðir hér með varanlegu slitlagi.
Ég hef farið þennan veg og
rannsakað hann og held þvi fram
að nota megi 90% af honum eins
og hann er. En ég myndi vilja
breikka hann nokkuð og ger-
breyta og bæta merkingar frá þvi
sem nú er. Þá vil ég breyta hæð
þeirra og köntum nokkuð frá þvi
sem nú er. Kantar vega þurfa að
vera fyrir eina og hálfa bílbreidd,
þannig að menn geti farið óhultir
út á kantinn ef bilar hjá þeim. Frá
köntunum þarf að vera aflíðandi
halli, mjög litill, þannig að hættan
á alvarlegum veltum og um leiö
slysum minnki frá þvi sem nú er.
Að lokum vil ég segja þetta:
Þegar menn þurfa að berjast við
hagsmunahópa, þá reynir á
þrautseigjuna, en ég get nú ekki
sagt annað en að ég hafi haft
gaman af þessu öllu. Ég er alveg
ákveðinn i að sanna mitt mál, þótt
það hafi gengið illa að fá menn til
að gefa mér möguleika á að sýna
það i verki. Ég er þaö þrár að
eðlisfari, að ég gefst ekki upp. Og
ég er sannfærður um að þetta
stenzt hjá mér. —S.dór.
BÍLAKJÖR
Höfum til sölu flestar tegundir bifreiða.
Látið okkur annast sölu á bifreiðinni
Rúmgóður sýningarsalur.
BÍLAKJÖR H.F. FELLSMÚLA 26
Simar 83320 og 83321.
AF HVERJU ERU
BRIDGEST0NE
DEKK UNDIR ÖÐRUM
HVERJUM BÍL A
SPURÐU
HINN!