Þjóðviljinn - 08.12.1972, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.12.1972, Blaðsíða 1
Málefni Tækni- skólans í hnút Kennt ó 4 stöðum — Nemendur kaupa sjálfir dýr kennslutæki Kennsla i Tækniskóla isiands fer fram á 4 stöðum i höfuöborg- inni. — ICngin fjárveiting er á fjárliigum þessa árs til byggingar tækniskóla, og þær 700 þús. kr. scm voru á fjárlögum fyrra árs i þcssu skyni hafa ekki verið not- aöar til undirbúnings byggingar. — Tækjaskortur er mjög til- finnanlegur við skólann og hafa nemendur sjálfir orðið aö kaupa d/rar teikni- og rciknivélar sem eðlilegt væri að skólinn ætti sjálf- ur. — Meðan menntaskólar spretta upp hver af öðrum þá liður allt verk- og tækninám undan fjárskorti til þess að unnt sé að tryggja lágmarksaðstöðu til náms. Þctta eru nokkrir punktar sem l'ram komu i framsöguræðu Strætisvagnar a Laugaveginum - Sjá opnu Brynjólfs Brv njólfssonar nem- anda i Tækniskólanum á almenn- um fundi, sem nemendur skólans boðuðu til i þvi skyni að ræða framtið skólans og framgang málefna hans. Fundurinn var haldinn i fyrra- kvöld á Hótel Esju. Var hann fjöl- mennur og umræður hinar lifleg- ustu. Stóð fundurinn á fjórðu klukkustund. — Fundarstjóri var Sigurður Hlöðversson. Kynnti hann tilgang fundarins og gat þess að þremur ráðherrum hefði verið boðið á fundinn, mennta- mála-, iðnaðar- og fjármálaráð- herra. Sökum anna sáu ráðherr- arnir sér ekki fært að koma á fundinn, en 2 ráðuneytisstjórar mættu fyrir þeirra hönd, þeir Arni Snævar, ráðuneytisstjóri i iðnaðarráðuneytinu og Jón Sig- urðsson i fjármálaráðuneytinu. Enginn fulltrúi kom frá mennta- málaráðuneytinu, en Sveinbjörn Björnsson, form. skólanefndar Tækniskólans, gat þess að hann hefði verið beðinn að gegna þvi hlutverki. — Þá höfðu nemendur boðið til fundar þingmönnum i menntamálanefnd alþingis, en Brynjóll'ur Brynjólfsson skýrði sjónarmið nemenda. þeirra varð ekki vart á fundinum. Fulltrúar frá Tæknifræðingafé- laginu og nokkrum öðrum sam- tökum sátu fundinn. Ennfremur voru þar skólastjóri Tækniskól- ans og margir kennarar, sem tóku þátt i umræðum. Nánari frásögn af þessum fundi verður að biða betri tima. — Full- yrða má að íundurinn hafi náð þeim tilgangi að kynna þeim er hann sóttu núverandi ástand þessara mála. Og þarna áttu sér stað hreinskilin skoðanaskipti um verkmenntunina i landinu og á hvern hátt hún er orðin hemill á framhaldsmenntun á öllum stigum verk- og tæknináms. — gg Lóðaúthlutun i Stóragerði rædd i borgarstiórn i gær VIÐ HVAÐ VAR MIÐAÐ? Gróf mismunun lóðanefndar Þaö kom fram á fundi borgarstjórnar i gær, aö gróf mismunun hefur átt sér staö viö úthlutun ein- býlishúsalóöa viö Stóra- gerði. Sigurjón Pétursson, borgar- fulltrúi Al.b.. sýndi glöggt fram á, að þær reglur. sem nefndinni bar að hafa til hliðsjónar. voru að engu hafðar, og nefndi hann i þvi sambandi meðal annars þetta dæmi: Umsækjandi er einhleypur, en segist ætla að taka dóttursina, eiginmann hennar og eitt barn þeirra i einbýlishúsið i framtið- inni. Umsækjandinn einhleypi býr nú i 120 fermetra ibúð. Dóttirin og eiginmaður hennar með eitt barn sitt búa i annarri 120 fermetra ibúð, og eiga að auki 2 herbergja ibúð hér i borginni. Þessi um- sækjandi fær lóð. Það er ekki erfitt að finna fjöl- marga aðila i hópi umsækjenda, sem hafa meiri þörf fyrir út- hlutun lóðar. en þessi maður, sagði Sigurjón. Sigurjón nefndi ennfremur mörg dæmi. sem sýna fram á hróplega mismunun, og þess vegna flutti hann ásamt Kristjáni Benediktssyni tillögu um að visa úthlutun lóðanefndar frá, en kjósa i staðinn 7 manna nefnd i borgarstjórn. sem úthluti lóðum. Þessi tillaga ver felld með H at- kvæðum gegn 6 að viðhöfðu nafnakalli. Þegar sýnt hafði verið fram á, að meginreglur hefðu verið snið- gengnar. veltu borgarfulltrúar þvi fyrir sér við hvað hefði verið miðað i úthlutun lóðanefndar. I henni eiga sæti 2 menn; skrif- stofustjóri borgarverkl'ræðings og borgarritari, sem báðir eru valdir af meirihluta borgar- stjórnar. og látum við lesendum eítiraðsvara þeirri spurningu við hvað þessi ,,nefnd” tveggja manna hafi miðað helzt. Ennfremur var á dagskrá til- laga um úthlutun tveggja háhýsislóða i sama hverfi. Meirhiuti borgarráðs og lóða- nefnd lögðu til að báðum lóðunum yrði úthlutað til einkaaðila. Sigurjón Pétursson og fulltrúar annarra minnihlutaflokka fluttu tillögu á borgarsljórnarfundinum um að Byggingasamvinnufélagi alvinnubifreiðastjóra (BSAB) yrði úthlutað annarri lóðinni. Einnig þetta felldu borgarfull- trúar ihaldsins. Uá íluttu Kristján Benedikts- son og Sigurjón Pétursson lil- lögu um að borgarráð skyldi fylgjast með verðlagningu ibúð- anna i háhýsum þessum, en þessi tillaga var einnig lelld. Miklar umræður urðu um málið i borgarstjórninni i gær, og verður nánar skýrt frá þeim umræðum siðar. gjá bls. 10 Ákvörðun Sameinuðu þjóðanna: Hafréttarráðstefnan verður í Chile 1974 Stjórnmálanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti á fundi sinum i gær, kl. 6.30, samhljóða tillögu, þar sem ákveðið er að hafréttar- ráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefjist með 2ja vikna lundi i nóv.-des. 1973 i New York. Þessi fyrsti lundur ráðstefnunnar mun einungis fjalla um fundarsköp og fyrirkomulag hennar. Annar fundur ráðstefnunnar verður siðan haldinn i Santiago i t’hile. IVIun hann standa i tvo mánuði, april- mai 1974. Lkki er ákveðið hvar siðari fundir ráðstefn- unnar verða haldnir, ef haldnir verða. í tillögunni er lýst þeirri von, að Ilafréttarráðstefnunni muni ljúka 1974 eða 1975, ef aUsherjarþingið samþykkir. Það hefur mjög lengi verið beðið eftir ákvörðun um hvenær hafréttarráðstefnan yrði haldin, og er sérstök ástæða fyrir okkur íslendinga að fagna þessari ákvörðun. i hill er aöalviniiiiigurinn i llappdrætli 1»jóöviljans. Happdrætti Þjóðviljans: Skiladagur í dag Á Þorláksmessu verður dregið i Happdrælti Þjóðviljans. Það er þvi aðeins hálfur mánuður til stefnu og eru allir þeir, sem l'engið hafa heimsenda miða, hvattir til að gera skil hið allra l'yrsta. Tekið er við skilum á afgreiðslu Þjóðviljans Skólavörðustig 19 og á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3. Opið er á báðum stöðum i dag til klukkan 7 og á morgun laugardag til klukkan 6. Aðalvinningur i Happdrætti Þjóðviljans þetta árið er Skoda- bifreiö, sportmódel, en auk þess er boðið upp á 4 ferðavinninga. Verð hvers miða er 100 kr. Fjórhagsáætlun Rvíkur fyrir 1973: Fimmtungur útgjalda til gatnagerðar Frumvarp að fjárhagsáætlun Kcykjavikurborgar var lagt fram á horgarstjórnarfundi í gær og kom lii fyrri umræðu. Niður- stiiðutölur rekstrarreiknings cru 2,5 miljarðar króna. Áætluð útsvör cru langhæsta upphæðin teknamcgin, eða 1,4 miljarðar, en hæsti útgjaldaliðurinn er til gatnagcrðar, 500 milj. kr., eða um fimmtungur hcildarútgjalda. Nánar vcrður sagt frá fjár- hagsáætluninni siöar. Séö yfir Stórageröissvæðið umtalaða. Búiö er að ganga frá götum aö mestu og er nú beöið eftir þeim sem reyndust i náðinni viö úthlutun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.