Þjóðviljinn - 08.12.1972, Side 13

Þjóðviljinn - 08.12.1972, Side 13
Föstudagur X. dcsember 1972 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13. 50 Alistair Mair: Það var sumar í gær — F’innst þér það? - Ég ætti að vita það, eða hvað finnst þér? Við erum búin að vera saman i mánuð. Hún horfði ihugandi á hann. — Þú veizt ekki mikið um mig, sagði hún. — Ekki ennþá. — Eitt veit ég, sagði Simon hrjúfri röddu. — Ef ég rekst á Phil Carr, þá skal ég láta hann finna fyrir þvi. Hún hallaði höfðinu aftur á bak og hló. — Ó, Simon! — Hvað er svona fyndið? — Þú ert fyndinn, að verða svona bálreiður út i Phil. Ég á við að hann hefur ekki reynt annað en það sem þú hefur verið að reyna i hvert einasta skipti sem við höf- um farið út saman. Og ég man ekki til þess að ég hafi kvartað. — En þú ert ekki Susan. — Guði sé lof fyrir það, sagði stúlkan. — Þegar ég þarf að fara að beita ofbelti, þá er mér illa brugðið. — Allt i lagi, sagði Simon. — Þú ert snjöll. Þú ert eldri. Þú hefur komið viðar við. Eða svo læturðu i veðri vaka. En Susan er ekki ann- að en krakki. Það er mergurinn málsins. Hún er ekki nema átján ára — — Ekki nema! — Já, hún er ung eftir aldri — — Ung er hún. Og það er helzt á þér að heyra að þú viljir að hún verði það áfram. Þú ættir að út- vega henni skirlifsbelti og geyma lykilinn i þinum eigin vasa. Þá vissirðu að henni væri óhætt. - Láttu ekki eins og kjáni! — Það ert þú sem lætur einsog kjáni. Sjáðu nú til, Simon. Hún hallaði sér áfram, svo að brjóstin •hvildu á borðinu. — Ég var fimmtán ára þegar strákur leit- aði fyrst á mig. Og þó var það enginn strákur. Það var einn af kennurunum. — Hver þeirra? — Hugsaðu ekki um það. En jafnvel þá þurfti ég ekki að gripa til ofbeldis. Forvitni Simonar vaknaði. - Hvað gerðirðu? Hún lyfti brúnum dálitið undr- andi og brosti. — Notaðu imyndunaraflið, sagði hún. — En ég fór heim til mömmu i einu lagi, með mey- dóminn óskertan og allt það. Og þannig byrjaði ég að læra. Og þú getur sagt það sem þér sýnist um Susan og að hún sé yngri en hún virðist og allt það. Hún verður að læra að kunna fótum sinum for- ráð eins og allar aðrar stúlkur. Og þú getur ekki gert neitt til að hjálpa henni. — Nei, sagði Simon með semingi. — Ég býst ekki við þvi. — Og svo situr sizt á þér að ásaka Phil. Ég hef ekki orðið þess vör að þú stæðir með hendur i vösum. Simon brosti aulalega. - Ég helði svo sem eins getað gert það, sagði hann. — Ég hafði litið upp úr krafsinu. Hún brosti striðnislega. Hann fann að hún lagði höndina á hné hans undir borðinu. — Aumingja Simon, hvislaði hún striðnislega. — Það er illa larið með þig, eða hvað? Hann ræskti sig vandlega. Um- hverfið var ekki eins og bezt varð á kosið. Loftljósið var of skært. Kldhúsið var of heimilislegt. Og stúlkan var næstum of hrein og bein. Hann leit á úrið sitt. Iiver skollinn, sagði hann. — Hún er næstum eitt. — Er þá ekki rétt að þú farir? — Jú ég býst við þvi. Hann stóð upp, hrasaði um stól- l'ótinn og féll næstum i fangið á henni. Hún greip utanum hann. — Nema þú ferð ekki neitt, sagði hún lágri röddu. Hann leit á hana skilningssljór. — En ég má til. Hún strauk vörunum um vanga hans. striddi honum. - Af hverju, elskan? Vakir mútter eftir stráknum sinum? — Nei, það er ekki það — — Heldur hvað? Jú, hvað um foreldra þina? Ég á við að þau eru hérna rétt handan við ganginn. Hún kinkaði kolli. - Satt segirðu, sagði hún. — Og þess vegna förum viö saman út að útidyrunum og bjóðum hvort öðru góða nótt. En þegar ég kem aftur inn, þá kemurðu lika. - Svei mér þá! - Þú læðist inn i stofuna og biöur. Ég hreyfi mig til, læt sem ég sé að hátta og þegar þau halda að ég sé komin upp i, þá fara þau að sofa. Og þá þurfum við engar áhyggjur að hafa, elskan. Sem ég er lifandi! Hún strauk hendinni eftir bak- inu á honum. - Er það i lagi? Tja, er það ekki töluverð á- hætta? — Eiginlega ekki. — En ef annaðhvort þeirra kemur fram? — Það gera þau ekki. — En hvernig geturðu verið viss. Ég á við, þau gætu — Hún hló lágt. — Ertu hræddur, elskan? — Nei, ég er ekki hræddur. — Allt i lagi. Hún kyssti hann Sendisveinn óskast hálfan daginn. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMl 26844 og sleppti honum. — Komdu þá. Ifann horfði á hana setja leir- tauið i vaskinn. taka burtu kexið og hreinsa borðið og reyndi að láta sem hann vissi ekki af sinum eigin hjartslætti. Hér er frakkinn þinn, sagði hún. — Hann er vist dálitið blaut- ur ennþá Hann tók frakkann. vissi ekki vel hvað gera skyldi. Loks braut hann hann saman og lagði hann á handlegginn. Hún opnaði eldhús- dyrnar. Þakka þér fyrir indælt kvöld. sagði hún hárri röddu. — Ég vona að þú blotnir ekki mikið á heimleiðinni. — Hann elti hana fram ganginn að útidyrunum og hún togaði hann fram á dyrapallinn. — Jæja, sagði hún. — Góða nótt, Simon. t þögninni sem á eftir fylgdi fannst honum hann vera al- vcg eins og kvikindi. En svo hvæsti hún að honum: — Segðu eitthvað i hamingju bænum! - Góða nótt. Jean, sagði hann vandræðalega. — Þakk fyrir kaff- ið. Hún opnaði hlffðardyrnar, hélt hurðinni uppi stundarkorn, lokaði siðanaftur. Einbeitt hönd hennar togaði hann aftur inn i birtuna og glerið i innri hurðinni glamraði ögn i rammanum. Siðan ýtti hún honum inn i rökkvaða stofu þar sem pipureykur húsbóndans lá enn i loftinu. - Biddu, andaði hún og hvarl' um leið. Hann stóð hreylingarlaus i sömu sporum. Hann heyrði rösk- legt fótatak hennar, siðan óminn af rödd móðurinnar. Er Simon l'arinn, góða min? — Já mamma. Jæja, llýttu þér þá i rúmið. - Já, ér er að þvi. - Góða nótt. vina min. - Góða nótt, mamma. Það heyrðist smellur i rofa og ljósið i ganginum slokknaði, rökkrið i stolunni varð að myrkri og engin týra sást nema deyjandi glóðin i arninum. Hann lagði frakkann á stól við dyrnar og læddist að sætinu. Smám saman vöndust augu hans myrkrinu. Hann sá móta fyrir armstólum og sóla. Honum datt i hug að setjast. En þá mundi hann eftir hugsan- legu marri i gormum, þvi að dauðahljóð var i húsinu, þar til vatnshljóðin komu. Skolað var niður úr salerni. Vatn rann i vatnskassann. Skrúfað var frá krana. Það hvein i aðallögninni á loftinu fyrir oían. Og þegar aftur varð þögn, var hún alger. Hann stóð hreyfingarlaus, fann enn fyr- ir hjartsla'tti sjálls sin, heyrði sinn eigin andardrátt. ()g hann var hræddur. Hann var hra'ddur við foreldra hennar sem lágu i nokkra metra ljarlægð og biðu eftir svel'ninum. Hann var hræddur við uppljóstrun og við hið skelfilega uppistand sem yrði er l'aðir hans kæmist að öllu sam- an. En hræddastur var hann við stúlkuna sem hafði horl'ið inn i dimma kyrrð hússins. Hún var framandi freistari sem hann hafði aðeins kynnzt i ástardraum- um unglingsins.Hvorki ást móður né lelagsskapur systur var undir- búningur undir armlög hennar. Hvorki skólalræðsla né tviræðir brandarar gerðu leyndardóminn minni. Og meðan hann beið fór kjarkur hans dvinandi Þetta dimma herbergi um há nótt gaf fyrirheit um meira en hann hafði nokkurn tima komizt i kynni við. Þetta var annað og meira en kossar i garðinum að balli loknu, meira en lalm og káf i baksætinu á lánuðum bil sem var hámark reynslu hans. Hann hafði að visu gert sér vonir um eitthvað þvilikt i leyndum draumum, jafn- vel gert klaufalegar tilraunir til að skipuleggja eitthvað i áttina, en þegar stundin var runnin upp og hann horföist i augu við sitt eigið sakleysi, var reynsluleysið eins og varnarveggur og vanget- an kviðvænleg. Ilann var næstum búinn að ákveða að þrifa frakkann sinn og stinga af, þegar hurðin þokaðist hvislandi yfir^gólfteppið. Hann tók viðbragð. Hún var þarna komin eins og skuggavera i myrkrinu, hallaði sér að hurðinni til að loka henni hljóðlaust. Þá kom hún til hans á berum, hljóð- lausum fótum. Hún sagði ekkert. Hún kom beint i fangið á honum, hlý og mjúk og ilmandi, og hik- andi hendur hans fundu að hún var nakin undir þunnum nátt- kjólnum. Föstudagur 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl. 8.45: Einar Logi Einarsson endar lestur sögu sinnar ..Ævintýri á hafsbotni” (3). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög á milli liða. Spjallað við bændur kl. 10.05. Tilunihugsunar kl. 10.25: Þáttur um áfengismál. Morgunpopp kl. 10.40: Faces leika og syngja Fréttir kl. 11.00 Tónlistar- sagan: Endurtekinn þáttur Atla Heimis Sveinssonar. Kornel Zempleny og Ungverska rikishljóm- sveitin leika Tilbrigði um barnalag op. 25 eftir Dohnány; Cyörgy Zehel stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurlregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.15 Við sjóinullalldór Gisla- son elnaverkl'ræðingur stjórnar umræðúm um íramtiðarhorfur i liskiðnaði (endurt.) 14.30 Siðdegissagan: ..Göiiiul kynni” eftir Ingunni Jóns- dóttur, Jónas R. Jónsson á Mclum les (12). 15.00 Miðdegistónleikar.Liane Jespers syngur lög eftir Debussy. Nicolai Gedda Respighi, Pratella, Casella og Carnevali. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Til- kynningar. 16.25 Popphornið. Örn Petersen kynnir. 17.10 Lestur úr nýjum barna- bókum. 17.40 Tónlistartimi barnanna. Þuriður Pálsdóttir ser um timann 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöidsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill. 19.35 Þingsjá. Ingólfur Kristjánsson sér um þáttinn 20.00 Sinfóniskir tónleikar. Frá tónlistarhátið i Helsinki i september s.l. Flytjendur: Claudio Arrau pianóleikari og Sinfóniuhljómsveit finnska útvarspsins; Okko Kamu stj. a. Sinfónia 'eftir Aulis Sallinen. b. Pianó- konsert nr. 5 i Es-dúr op. 73 cftir Beethoven. c. Sinfónia nr. 5 i Es-dúr op. 82 el'tir Sibelius. 21.30 Launsagnir miðalda. Einar Pálsson flytur annað erindi sitt. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurlregnir. útvarps- sagan: „Strandið" eftir llannes Sigfússon. Erlingur E. Halldórsson les (4) 22.45 l.étt tónlist frá norska útvarpinu, 23.40 Fréttir i stuttu máli. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar, 20.30 Langreyður.Nórsk kvik- mynd, gerð al' Thor Heyer- dal yngri, um hvalveiðar við Grænland, ofveiði á hvala- stolninum. hvalarannsóknir og mengun i úthöfnum. Þýð- andi Jóhanna Jóhanns- dóltir. (Nordvision — Norska sjónvarpið) 21.00 Fóstbræður. Brezkur sakamála- og grinmynda- flokkur. Þýðandi Vilborg Sigurðardóttir. 21.50 Sjónaukiiin.Umræðu- og fréttaskýringaþáttur um innlend og erlend málel'ni. 22.50 Dagskrárlok r KONAN SEM LÁ ÚTI - frásöguþœttir eftir Guðmund Böðvarsson, skáld á Kirkjubóli. Sá þáttur, sem bókin dreg- ur nafn sitt af, er frásögn af slysför Kristínar Kjartansdóttur, sem á áttug- asta ári sínu lá í fimm dœgur stór- slösuð á bersvœði, í rysjóttu veðri á þorranum 1949. Þar segir frá ótrúlegu viðnámsþreki og því jafnvœgi hug- ans, sem ekkert fœr raskað. HÖRPUÚTGÁFAN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.