Þjóðviljinn - 08.12.1972, Side 16

Þjóðviljinn - 08.12.1972, Side 16
'JÚÐVIUINN Föstudagur S. dcscmber l«)72 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Kvöld- helgar- og nætur- varzla apóteka 2.-8. desem- ber er i Lyfjabúðinni Iðunni og Garðsapóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Síðasta tunglferð aldarinnar KOMNIR AF STAÐ á föstudag, þegar stefnan var rétt og öll tæki störfuðu rétt. Á föstu- dagskvöld vöknuðu þeir hressir og tóku til við visindalegar athuganir. Förunautar geimfaranna eru fimm litlar mýs, sem auðvitað eru tilraunadýr visindamanna. Komið hefur verið fyrir elektrón- um i höfðum þeirra til að kanna megi hvaða áhrii' dvöl i geimnum hefur á þessar lifverur. Lausn tunglgatunnar Apollo 17, á að lenda á sléttlendi á tunglinu við rætur fjalls sem er rúmlega 2000 metra hátt. Á þess- um slóðum, Taurus-Littrow- svæðinu, gera visindamenn sér vonir um að finna lausn gátunnar um upphaf og sögu hins trygga fylgihnattar jarðarinnar. Geimfarið kemur til tunglsins á mánudag. Saigonstjórn hindrar enn friðarsamninga l’ARÍS 7/12 — Kröfur Suður- Victnamstjórnar komu i dag cnn cinu sinni i vcg fyrir að endanlcgt samkomulag um frið i Indókina yrði undirritað i Paris. Bunker. lund fimmludag. með Thieu á Vítur á NFDÝIIÖFÐA/WASIIINGTON 7/12 — Margir tclja að það sc siðasta fcrð manna til tunglsins á þcssari öld sem hófst á föstudags- morgun, cr bandariska geimfarið Apollo 17. lagði al' stað i Tunglferð mcð 3 mcnn innanhorðs. Klukkan hálf niu i morgun að islenzkum tima lagði geimfarið af stað, en brottför hafði þá tvisvar sinnum verið frestað á siðustu stundu vegna tæknigalla. Allt tókst þó vel aö lokum, geimfarið komst af stað, en þetta var i fyrsta sinn i 11 mönnuðum geimferðum Apollo- áætlunarinnar, sem fresta varð flugtaki vegna tæknigalla. Geimi'ararnir þrir, Eugene Cernan, Jack Smith og Ronald Evans, voru við beztu heilsu fyrsta dag ferðarinnar og þutu áfram með 38000 km. hraða á klukkustund. Hraðinn var nokkru meiri en upphaflega var áætlað, þar sem geimfararnir ætla að vinria upp töfina við flugtakið, en hún var tvær stundir og fjörutiu minútur. Hetta tókst með þvi að láta þriðja þrep burðareld- flaugarinnar starfa 6 sekúndum lengur en gert hafði verið ráð fyrir. Mýs og mcnn. Bilunin, sem tafði brottförina, var sú að ekki tókst að halda eðli- legum þrýstingi i súrefnis- geymum geimfarsins. Þegar komið var af stað, reyndist þrýstingurinn i lagi, sem og annar útbúnaður geimfarsins. Geimfararnir höfðu setið fimm klukkustundir bundnir i sæti sin i geimfarinu, þegar flugtakið loks- ins hói'st. Heir fengu þvi kær- kominn svelnlima um miðjan dag Tungllerö Apollo 17. er siðasti þátturinn i Apollóáælluninni svo- kölluöu. l>cssi áætlun helur kostað bandariska skattborgara hvorki meira né minna en 2.r> miljarða dollara, eða um 2200 miljarða isl. króna. l>essi I járaustur hófsl með yfir- lýsingu Kennedys heitins forseta árið 1001. þar sem hann lýsti yfir þvi að Bandarikjamenn gælu ekki þolaö að Sovétmenn sigruðu i kapphlaupinu til tunglsins. Fulltrúar Norður-Vietnams og Bandarikjanna staðfestu báðir þessa frétt á blaðamannafundi að ioknum samningafundi á föstu- dagskvöid. Frönsku morgunblöðin töldu á limmtudag að samkomulagið yrði undirritað þá siðar um daginn, en ljóst var siðdegis að ekkert yrði úr þvi. A limmtudag hétdu þeir Le Duo Tho og Kissinger nýjan fund, en þeir hiilðu rætl saman i 5 klukku- stundir á miðvikudag. A meðan þessu fer Iram eru Bandarikjamenn að reyna að koma vitinu fyrir Van Thieu, forsela i Saigon, og átti banda- riski ambassadorinn þar. l>etta er sjöunda ferð banda- riskra geimfara lil tunglsins, en geimfarið verður sjötta mannaða geimfarið sem þar lendir, ef allt gengur að óskum. Appolló 13. fór i kringum tunglið, en tókst ekki að lcnda þar vegna bilunar. Ekki er talið liklegt að þessum dýru ferðalögum verði haldiö áfrairi. og þess vegna er rætt um að þetta verði siðasta tunglferð aldarinnar. Vítur á verzlun USA við Ródesíu NEW YORK 7.2. Allsher jarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti i dag, með 93 atkva'ðum gegn átta, ályktun um algjör slit á öllum samskiptum við Ródesiu. Jafnframt er lagt til með ályktunni að refsiaðgerðum verði beitt gegn stjórnum Suður-Afriku og Portúgals vegna þess að þau riki hafa stöðugt samskipti við hina ólöglegu stjórn i Ródesiu. I samþykkt allsherjar- þingsins er visað til 41. greinar i stofnskrá S.l>. sem veitir öryggisráðinu fullt umboð til að slita samskiptum við eitt- hvert riki, ef það er talið nauð- synlegt. Jafnframt eru öll riki hvött til að beita refsiaðgerð- um gegn rikjum sem á ein- hvern hátl hafa viðurkennt hina ólöglegu stjórn i Rpdesiu. l>á er i ályktuninnisérstak- lega fordæmdur innflutningur Bandarikjanna á krómi og nikkeli frá Ródesiu. 23 riki greiddu ekki atkvæði um ályktunina, en á móti voru Bandarikin, Bretland, Frakk- land, Portúgal, Suður-Afrika, Holland og Luxemburg. $ 25 miljarðar til geimferða Loks tapa vinnuveitendur máli fyrir Félagsdómi Ákvæðisvinnutaxtar raf- virkja hvarvetna í notknn Á dögunum gerðust þau einstæðu tiðindi að verkalýðsfélag var sýknað af Félagsdómi af kröfu vinnuveitenda um skaðabætur og sektir. Á undanförnum árum hafa dómar yfirleitt fallið vinnuveitendum i hag fyrir Félagsdómi Vinnuveitendasamband Islands fór i mál við Félag íslenzkra rafvirkja i haust til þess að fá fundarsamþykkt um notkun ákvæðisvinnutaxta ógilda, — jafnframt þvi, að rafvirkjar yrðu dæmdir i skaðabætur og sektir. Sýknaði Félagsdómur rafvirkja af þessari kröfu vinnuveitenda á þeim forsendum, að kjara- samningar milli aðila hefðu raun- verulega aldrei komizt á. Skrifað var undir kjara- samningana 18. júli i sumar eftir rúmlega mánaðarverkfall án þess að samkomulag hefði náðst um á k v æ ð i s v i n n u t a x t a . Rafvirkjar gerðu hins vegar fundarsamþykkt daginn eftir um notkun ákvæðisvinnutaxta i sam- ræmi við yfirlýsingu samninga- nefndar rafvirkja. Mótmæltu raf- verktakar þegar fundarsam- þykktinni. A þeim forsendum töpuðu þeir málinu fyrir Félagsdómi. Allt til þessa dags hafa ákvæðisvinnutaxtarnir verið i notkun á félagssvæði rafvirkja og rafverktaka frá 18. júli i sumar. Hafa þeir verið úrskurðaðirlög- mætir af Félagsdómi og koma til með að vinna sér rétt sem hefð i samskiptum deiluaðila. Um næstu helgi halda raf- virkjar félagsfund um stöðu kjarasamninganna. Þeir mega nokkuð vel una sinum hlut i þessu máli. Búa þeir nefnilega við opna samninga og eru ekki bundnir af ákveðnu samningstimabili eins og önnur verkalýðsfélög. Er það ávinningur i verðbólguþjóðfélagi. Hluti af kjarasamningi raf- virkja og rafverktaka er beint úr rammasamningi siðastliðið haust og voru raunar aldrei ásteytingssteinn i samningsgerð. Þá náðist samkomulag um ýmsar sérkröfur rafvirkja. Verjandi rafvirkja fyrir Félagsdómi var Þorsteinn Geirsson hrl. og sækjandi fyrir hönd vinnuveitenda var Hafsteinn Baldvinsson hrl. g.m. Hætta veiðum fyrir Vestfjörðum 18. des. Brezkir togarar hætta veiðum 18. þessa mánaðar út af Vest- fjörðum og Norðurlandi vestra og munu þá safnast saman á miðum út af Austurlandi, sagði Hafsteinn Hafsteinsson, blaða- fulltrúi Landhelgisgæzlunnar i gær. Erfitt er að spá um aflahorfur hjá brezkum togurum, hvort afli þeirra minnki við þessa tilhögun. Þá virðist brezkum togaraeigendum ekki lengur henta að hafa togarana dreifða að veiðum innan 50 milna land- helginnar. Eru þeir farnir að óttast töku togara að ólöglegum veiðum innan landhelginnar. Það er heldur ekki vænlegt að stunda veiðar i hnapp undir her- skipavernd. Utsvarsgjaldendur á landinu öllu þetta árið eru 77.235 og greiða þeir 2,5 miljarð i útsvar, sem svarar til um það bil 32 þúsund króna meðalútsvars. Útsvör ársins á undan urðu hins vegarsamtals 2,7 miljarðar. Hins vegar varð heildarupphæð álagðra gjalda 3,8 miljarðar i ár, en 3,4 miljarðar árið 1971 árið 1971. Fyrirlestrar um bókasafnsmiðstöðvar i samvinnu við BikaVarðafélag islands gengst Norræna húsið nú fvrir dagskrá um þjónustumið- stöðvar fyrir bókasöfn á Norður- löndum og mun Jan Gumpert, forstjöri Bibliotekstjanst i Lundi, flytja tvo fyrirlestra um hlutverk slikra miðstöðva og norræna samvinnu á þessu sviði. Fyrri fyrirlesturinn fer fram i Norræna liúsinu n.k. sunnudag kl. 10.30 og sá sfðari mánudaginn 11. desember kl. 20.30. Jan Gumpert er 50 ára gamall, hagfræðingur að mennt. Ilann var forstjóri sænsks útgáfu- fvrirtækis i mörg ár, og sá hann meðal annars um útgáfu Bonniers lexikon og Norstedts uppslagsbok. Starfssviðið Starfssviði bókasafns- miðstöðva má skipta i.tvo aðal- þætti: Annars vegar er ýmiss konar útvegun bókasafns- búnaðar, allt frá húsgögnum til merkimiða, og hins vegar er svo ýmis bókfræðileg þjónusta. Fyrri þáttinn geta öll bókasöfn, hverrar tegundar sem þau eru, hagnýtt sér, en bókfræðilega þjónustan yrði hins vegar vafalaust allþung i vöfum og of umfangsmikil, ef hún á að vera þannig, að öll söfn getið notfært sér hana. Sú hefur lika orðið raunin, að það eru al- menningsbókasöfnin, þeirra á meðal skólabókasöfnin, sem hægt er veita mesta og hagkvæmasta bókfræðilega þjónustuna, og þannig starfa bókasafnsmið- stöðvar mest I þágu almennings- bókasafna.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.