Þjóðviljinn - 04.01.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 4. janúar 1973;þjöÐVILJINN — SÍÐA 3 Bensín- lítrinn kostar 19 krónur A nýársdag hækkaði bensin- litrinn úr 16 kr. i 19 kr. Vegagjald hækkar um 2 kt\ i bensinverðinu.- Þá stafar hækkunin ennfremur af gengisbreytingu og hækkun söluskatts og fleiru smávegis. Söluskattshækkunin nemur þannig 20 aurum i þessu til- viki. Þegar bensinlitrinn kostaði 16 kr. nam vegagjaldið 7,87 kr. af bensinverðinu. Nú nemur vegagjaldið 9,87 kr. af verði bensinlitrans. Nokkrum erfiðleikum olli það haustið 1968, þegar bensinlitrinn fór yfir 10 kr. Er þá átt við stillingu á bensin- dælum. Sýndi verðmælirinn þá kr. 1,10 i stað kr. 11,00 eins og bensinlitrinn átti þá að kosta. Þessir erfiðleikar koma ekki nú að sök meðan verð stendur á tug króna. Þá hækkaöi olia til húsa- hitunar úr 3,96 kr. i 4,70 kr. litrann. Sama hækkun verður á oliu til húsahitunar. Eftirspurn eftir plássum á loðnubáta Mannekla á línubátum Helmingi fleiri bátar verða á loðnu núna í vetur en í fyrra, sagði Kristján Ragnarsson formaður LIU i gær. Verða 65 til 70 bátar með nót og um 30 bátar með flotvörpu. Eru þetta aöallega stærri bátarnir í síldarflotanum. Ennfrem- ur um 100 tonna bátar úr Vestmannaeyjum. Þá hef- ur togarinn Júpíter frá Reykjavík sótt um loðnu- leyfi. Um eitt þúsund til ellefu hundr- uð manns þarf til að manna loðnubátana. Ekki vantar menn á þá og linnir ekki heimsóknum og simhringingum hér á skrifstof- unni að spyrja um pláss á loðnu- báta. Hins vegar hef ég á blöðum hjá mér allt að eitt hundrað pláss á vertiðarbáta suðvestanlands. Er einna helzt óskað eftir stýrimönn- um á bátana. Þetta er einkum pláss á linu- og netabáta i verstöðvum á Reykjanesi. Þá bregður einnig fyrir óskum um menn á báta i verstöðvum á Snæ- fellsnesi. Þá vantar lika sjómenn á báta i A vetrarvertfð. Eyjum, Þorlákshöfn og Höfn i Hornafirði, þó að beiðnir um sjó- menn á þessa báta liggi ekki fyrir hjá mér i eins rikum mæli og i verstöövarnar á Reykjanesi. Hverskonar pláss eru laus á LÍNAN FÓR FYRST, MASTRIÐ Á EFTIR Gizka þeir á hjá Landsvirkjun Forráðamenn Lands- virkjunar hafa orðið fyr- ir mjög harðri gagnrýni vegna bilunar þeirrar er varð á Búrfellslínunni rétt fyrir jólin. Beinist gagnrýni manna að möstrunum og er sagt að • þau hafi í upphafi verið of veik fyrir isl. veðr- áttu. Fyrir tveim árum bilaði mastur í línunni og fór þá fram rannsókn á möstrunum. Hver varð niðurstaða þeirrar rann- sóknar og hvers vegna brotnaði mastrið nú? Að þessu spurðum viðEírík Briem forstjóra Lands- virkjunar. — Við höldum, að þegar bilunin varð hjá Hvitá nú fyrir jólin, hafi linan farið fyrst i sundur og við þann hnykk sem þá kom hafi mastrið farið. Þetta er að visu ágizkun þvi að rannsókn á þessu er enn ekki lokið, sagði Eirikur. — En hver var niðurstaða rannsóknarinnar á möstrun- um eftir óhappið fyrir tveimur árum? — Endanleg niðurstaða fékkst nú eiginlega aldrei. Við fórum i svissneskt fyrirtæki til að fá möstrin rannsökuð, sjálfir vorum við að rannsaka þetta og að sjálfsögðu Harza, fyrirtækið sem lagði linuna. Menn voru ekki á einu máli um orsökina og ef til vill voru orsakir fleiri en ein. En ský- laus niðurstaða fékkst aldrei. Þó var ráðizt i að styrkja ein 20 möstur og þetta sem fór núna var eitt af þeim. — Það hefur þá sem sagt komið útúr þessari könnun að ástæða væri til að styrkja möstrin? — Já, við vorum sammála um að styrkja þyrfti 20 möst- ur. Þar með var þó ekki sagt, að þau stæðust ekki kröfurnar sem voru gerðar til þeirra. — Hvernig voru þessi möst- ur styrkt? ' — Það voru sett i þau fleiri þverjárn. — Er það rétt að bráða- birgðamastrið, sem reist var þegar fyrra mastrið fór, standi enn þá? — Já, og ástæðan er sú að við teljum það bara jafn sterkt og hin möstrin. Og við ákváð- um að skipta ekki yfir aftur fyrr en nýja linan verður tekin i notkun. — Hvað kostaði þessi styrk- ing? — Ég man það nú ekki ná- kvæmlega. Það er nú svo með þessar linur, að fyrstu árin þarf að yfirfara þær æ ofan i æ. Og það þykir normal kostnaður við svona linur. — Einn af þeim sem hefur gagnrýnt ykkur hjá Lands- virkjun segir að svo veik séu möstrin að það gætu hæglega falliö 100 möstur i einu, hvað segir þú um það Erikur? Frh. á bls. 15 þessum bátum og i sumum tilfellum beðið um nær alla áhöfnina. Þannig vantar háseta, netamenn, beitingamenn, vélstjóra og einkum stýrimenn. A skrifstofu Llú liggja 24 beiðnir núna frá einstökum útgerðar- mönnum. Öska þá margir þeirra eftir minni og stærri hluta úr áhöfn á bátana. Hvað starfa margir sjómenn á vertiöarbátum? Að meðaltali 4400. Eru þá undanskildir sjómenn á opnum vélbátum og togurum. Er þetta miðaö við vertiðarbáta bæði und- ir og yfir 100 tonnum að stærð. A hávertiðinni i marz eru taldir um 5100 sjómenn á bátunum. Hefur ætið orðið erfiðara að manna þessa báta að undanförnu, — einkum siðan byggingarvinna náði saman árið um kring. Er orðið erfiðara að manna bátana einkum á netavertið. Þá tel ég, að atvinnuleysis- styrkur hafi dregið úr hreyfanleik vinnuaflsins milli einstakra staða. Þannig sækir fólk siður vertið suður á land að austan og norðan eins og áður. Þegar ásókn harðnar hjá vertiöarbátum i marzmánuði og fram i april, er hægt að gera ráö fyrir að dragi úr ásókn loðnubáta við loðnuveiðar, þeir fari jafnvel yfir á þorsknetaveiðar eins og þeir gerðu i fyrra. Sækja Færeyingar hingað á vertið i vetur? Um 100 Færeyingar hafa ætið komið hingað á vetrarvertið. Er það nánast gamall vani hjá þess- um færeysku vinum okkar. Það er ekki vegna atvinnuleysis i Færeyjum á vetrum. Hvernig lizt þér á vertiðina á Vestfjörðum? Vestfirðingar standa miklu bet- ur að þvi að manna báta sina. Þar rikir meira samræmi i atvinnulifi fjórðungsins. Einna erfiðast eiga Súgfirðingar við að manna báta sina, — þá vantar lika fólk i frystihúsið. Hér fyrir sunnan þurfum við verulega aukningu á mannafla á vertiðinni, — einkum þegar netavertiðin byrjar. Þarf þá að haga framkvæmdum þann- ig að losni um fólk fyrir þennan tima. Meira samræmi er á þess- um hlutum á Vestfjörðum. Annars hafa linuveiðar gengið vel fyrir vestan i haust. Hægt er að tala um aflahrotu á Halanum um miðjan desember. Hvað er þér efst i huga fyrir komandi vertiö? Mestar áhyggjur hef ég af minnkandi þorskafla. Eru þessar spár fiskifræðinga réttar um minnkandi þorskafla? Vex hlutdeild okkar i þvi, sem veitt er á heimamiðum? Þetta eru tvær veigamiklar spurningar, sagði Kristján. — g.m. Akranes Fyrsta félagsvistin á árinu verður i félagsheimilinu Reyn fimmtudaginn 4. janúar kl. 20.30. Sjálfstætt fólk dregur mest að Agæt aðsókn hefur verið hjá Þjóðleikhúsinu það sem af er þessu leikári. Sýningar urðu alls 75 til áramóta og hafa sjaldan verið fleiri sýningar i Þjóöleikhúsinu á fyrstu fjór- um mánuöum leikársins. Rösklega 30.000 leikhúsgestir komu i leikhúsið á þessu tima- bili og er það svipaður áhorf- endafjöldi og var á s.l. leikári. Flestar sýningar hafa verið á þessúm tima á Sjálfstæöu fólki, eða alls 28 og að jafnaði hefur verið húsfylli á sýning- um. Þá hafa verið 14 sýningar á Lysiströtu og aðsókn á þær sýningar einnig ágæt. Skömmu fyrir jól hófust sýningar á vegum Þjóðleik- hússins á litla sviðinu i Lindarbæ. Unnur Guðjóns- dóttir ballettmeistari stjórn- aði þar sýningu með nokkrum ballettdönsurum og tveimur leikurum. 1 þessum mánuöi hefjast sýningar á nýju verk- efni i Lindarbæ og verður sú leiksýning ætluð börnum. Stjórnandi er Kristin M. Guð- bjartsdóttir. Fyrirhugaðar eru fleiri sýningar i Lindarbæ á vegum Þjóðleikhússins á þessu leikári. Þessi mynd er úr leikritinu Lýsiströtu hjá Þjóöleikhúsinu, en sú sýning hefur hlotið mjög góða dóma. Happdrætti Þjóðviljans Það var dregið í Happ- drætti Þjóðviljans á Þor- láksmessu. Vinnings- númerin eru enn innsigluði hjá borgarfógeta, þar sem enn hafa ekki borizt fullnaðarskil. Við beinum þeim ein- dregnu tilmælum til allra, sem enn liggja með óupp- gerða miða, að Ijúka skil- um strax. Ætlunin er að birta vinningsnúmer um næstu helgi. Tekið er við skilum á afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustig 19, og á skrifstofu Alþýðubanda- lagsins að Grettisgötu 3.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.