Þjóðviljinn - 04.01.1973, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Kimmludagur 4. janúar 197:i FRÁ VÍETNAMFUNDINUM í HÁSKÓLABÍÓI Magnús Torfi Ólafsson, ráðherra: Engin þjóðkjörin stjórn tekur málstað Bandaríkj af orseta Góðir fundarmenn! Sprengjuregninu yfir Vietnam slotaði i nótt norðan 20. baugs norðurbreiddar. En tilefni þess- arar samkomu er jafn brýnt fyrir þvi. Uppstyttan i lofthernaði gegn þéttbýlasta skika jarðrikis, Rauðárdalnum uppaf Tonkinflóa, er háð vilja eins manns, Nixons Bandarikjaforseta, og sá maður hefur sýnt nógsamlega, að honum er til alls trúandi . Hvenær sem vera skal getur hann kallað allar ógnir tæknivæddrar hervélar yfir fólkið i Vietnam, þessa lang- hrjáðu þjóð, sem átt hefur i næst- um látlausu frelsisstriöi i þúsund ár, fyrst við nágranna sina Kin- verja, siðan nýlenduherra frá Evrópu og nú loks bandariska heimsveldissinna. Hernaðurinn gegn Vietnömum hófst þegar kalda striðiö var að skella á og hann heldur áfram, þótt þvi hafi slotað. Styrjöldin gegn Vietnam hefur ekkert raun- verulegt markmið lengur, annað en að fullnægja hégómaskap og metnaðargirnd nokkurra stjórn- málamanna og hershöfðingja i Washington. Loftárásirnar undanfarnar vikur hafa haft þann tilgang einan, að knýja fram málalok sem þeim geti orðið rétt- læting fyrir rangri stefnu sjálfra sin og fyrirrennara sinna ára- tugum saman. Fyrstu kynni manna af loft- hernaði i stórum stil voru árásir þýzka flughersins á brezkar borgir árið 1940. 011 ár heims- styrjaldarinnar siðari var varpað samtals 80.000 lestum af flugvéla- sprengjum á Bretland. Svipað sprengjumagn hefur dunið á Norður-Vietnam á viku hverri æ ofan i æ i viðleitni tveggja Bandarikjaforseta i röð til að kúga vietnömsku þjóðina til að láta að vilja hins ameriska stór- veldis. Ömennsk striðsvélin bryð- ur mannslif i framandi landi i þúsunda tali, i trausti þess, að bandariska þjóðin og aðrir sem l'jarri eru vettvangi láti sér fátt um finnast, af þvi þeir eru óhultir. En atburðirnir i Vietnam sið- ustu daga ættu að hafa opnað augu allra sjáandi manna fyrir, að i heimi dagsins i dag er alls enginn óhultur, hvorki i þétt- býlustu löndum né strjálbyggð- ustu afkimum, meðan valdhrok- Magnús Torfi Ölafsson. inn hefur taumlaus umráð yfir þeim drápstækjum, sem tæknin lætur i té. Verði Nixon að vilja sinum i Vietnam, er ómögulegt að segja , hvar næsti valdniðingur ber niður til að kúga þjóð, sem erfitt á með að bera hönd fyrir höfuð sér. Loftárásarhryðjan siðasta, sem framin var i þvi skyni einu að knýja fram breytingar á áður frá- gengnu samkomulagi um vopna- hlé og upphaf friðargerðar i Vietnam, virðist hafa borið þann árangur helztan, að hvergi i veröldinni treystir nokkur þjóð- kjörin stjórn sér lengur til að taka málstað Bandarikjaforseta. Sjálfur telur hann sig óhultan fyrir eigin kjósendum, úr þvi kjördagar eru skammt að baki, en ef nokkuð má af sögunni læra hefur stefnan, sem hann er fulltrúi fyrir, beðið endanlegt skipbrot. Eins og Búastriðið var i einu hámark og banabiti enskrar heimsveldisstefnu, hefur striðið i Vietnam greitt bandariskri heimsveldisstefnu rothögg. Heimsveldisstefna verður ekki rekin með árangri, nema þjóðin sem byggir drottnunarveldið fáist til að trúa á réttindi til yfirráða- rikis sins yfir öðrum þjóðum. I fyrsta skipti i sögu Bandarikj- anna hefur það nú gerzt, að andlegir leiðtogar þjóðarinnar hafa, næstum sem einn maður, fordæmt stefnu og framferði sinnar eigin rikisstjórnar. Mót- mælahreyfing, sem spannar biliö frá stjórnleysingjum til biskupa helztu kirkjudeilda, erdæmalaust fyrirbæri þar i landi. Fordæming okkar hér i dag á athæfi bandariskrar rikisstjórnar er þvi ekki aðeins vottur um stuðning við frelsisbaráttu Vietnama, heldur einnig baráttu þeirra afla i Bandarikjunum, sem hrýs hugur við hrottafenginni valdstefnu stjórnar sinnar. En lengst og rækilegast skulum við minnast þess, að enn einu sinni hefur ásannazt, að smáþjóð, sem vill tryggja framtið sina, verður að gæta þess umfram allt, að sjá sér sjálf forráð, binda ekki örlög sin óafturkallanlega geð- þótta nokkurs stórveldis. Jóhann S. Hannesson, menntaskólakennari: Ottast andlegt og siðferðilegt þjóðarsjálfsmorð Bandaríkjamanna Góðir fundarmenn. I hinum sögufræga inngangi að sjálfstæðisyfirlýsingu brezku ný- lendnanna i Norður-Ameriku telja þeir, sem að yfirlýsingunni stóðu, það skyldu sina að gera grein fyrir þeim orsökum, sem knúið hafi þá til sambandsslita við móðurlandið. bað sem leggur þeim þessa skyldu á herðar, segja þeir, er „sómasamlegt tillit til álits alls mannkyns”. Ég lit svo á, að við séum hér saman komin tií að tjá álit okkar á hernaðarað- gerðum Bandarikjanna i Vietnam á undanförnum árum — og, um- fram allt, undanförnum vikum — i þeirri trú, að saman fari álit okkar og álit alls mannkyns, og i þeirri von, hversu veik sem hún kann að vera, að forráðamenn Bandarikjanna muni enn vilja taka sómasamlegt tillit til álits alls mannkyns, þegar það álit er tjáð á þann einlæga og skorinorða hátt, sem ég vona að þessari sam komu takist að tjá sig á. Hverjum þeim, sem hér lætur til sin heyra, ber þvi að tjá sitt eigið álit einlæglega og skorinort, og ég vil án frekari tafar reyna að fullnægja þeirri skyldu. I fullri- vissu um að ég stend ekki einn, en jafnframt i fullri meðvitund um þá einstaklingsábyrgð, sem orð- um minum fylgir, fordæmi ég — og bið ykkur að fordæma með mér — hernaðarstefnu og hern- aðaraðgeröir Bandarikjanna i Vietnam og allt sem sú stefna og þær aðgerðir eru tákn og dæmi um, hvar og hvenær sem það sýn- irsig. Ég mótmæli —-og bið ykkur að mótmæla með mér — þeim vit- firrtu hugmyndum um lausn deilumála þjóða i milli, sem loft- árásirnar á Norður-Vietnam undanfarnar vikur bera vott um. Ég krefst þess — og bið ykkur að krefjast þess meö mér — að um- leitanir um friðarsamninga verði tafarlaust teknar upp að nýju og þeirra friðsamlegu lausna leitað, sem Bandarikin sakir auðs og afls hafa á valdi sinu að finna. Ef einhver spyr i hvaða rétti ég fordæmi, mótmæli og krefjist — og hvetji aðra til hins sama — þá hlýt ég að svara: engum þeim rétti, sem firri mig ábyrgð og skyldum. Ég tala hér i engum öðrum rétti en þeim, sem fylgir þörf hvers einstaklings til að láta til sin heyra — og, ef nokkur kost- ur er, til sin taka — þegar honum ofbýður, skyldubundnum rétti, sem við getum ekki fyrirgert, hversu oft sem við vanhelgum hann með litilmótlegu afskipta- leysi um ótal óþolandi hluti og hversu mjög sem handahóf og til- viljun kunna að ráða þvi, hvað okkur ofbýður, hvenær við getum ekki orða bundizt. Ég vil ekki að minnsti vafi leiki á þvi, hvað það er, sem mér of- býður umfram allt, hvers vegna ég get ekki orða bundizt. Ég tala hérsem einstaklingur. Og mér of- bjóða tilgangslaus manndráp og meiðingar, mér ofbýður léttúðug eyðilegging á heimilum og heim- kynnum saklauss fólks, mér of- bjóða þjáningar einstaklinganna — allra þeirra einstaklinga — sem eru fórnardýr styrjaldarinn- ar i Vietnam.'og ég fordæmi þann hugsunarhátt og mótmæli þeim athöfnum, sem þessum þjáning- um valda. Engar aðrar af þeim óteljandi hörmungum, sem styrjöldin hefir i för með sér, get ég lagt til jafns viö þetta. Engin önnur þeirra ótal sjónarmiða, sem hér eiga rétt á sér, get ég sett ofar þessu einfalda mannúðar- sjónarmiði, sem hvert manns- barn skilur. Ég hefi nú raunar sagt — eins einlæglega og skorinort og mér er unnt — það sem mér er mest i mun að leggja til þeirra mála, sem þessi samkoma hefir til með- ferðar. En af þvi að ég hefi beðið ykkur að taka undir orð min, að deila með mér ábyrgðinni, sem þeim fylgir, ber mér að gera ljós- ari grein en ég hefi enn gert fyrir þeim skyldum og skuldbinding- um, sem ég er að reyna að full- nægja með komu minni á þennan ræðupall i dag. Mér ber að lýsa þvi skýlaust yfir, að ég er ekki meðal þeirra, Jóhann S. Hannesson. sem fagna tilefni til að áfellast Bandarikin. Fordæming min á hernaðarstefnu og hernaðarað- gerðum Bandarikjanna i Vietnam er ekki sprottin af fyrirlitningu, andúð né hatri á Bandarikja- mönnum, heldur af virðingu, samúð og ást. Ég átti heimili mitt i Bandarikjunum i hátt á annan áratug, og þangað sótti ég stóran skerf þeirrar þekkingar, þeirrar reynslu, þeirra sjónarmiða og þeirra kennda, sem mér eru dýr- mætastar og hafa reynzt mér bezt, meðal annars sumt af þvi, sem liggur að baki þeirri fordæm- ingu og þeim mótmælum, sem ég hefi hér borið fram. Ég á Banda- rikjunum stóra þakkarskuld að gjalda, og ég er hér kominn með- al annars til að reyna að höggva svolitið skarð i þá skuld. Engum sem hér er staddur mun ókunnugt um það, að hvergi hefir það álit á styrjöldinni i Vietnam, sem við erum hér að reyna að sameinast um, verið tjáð einlæg- ar og skorinorðar en i Bandarikj- unum sjálfum. Meðal þeirra, sem þannig hafa látið til sin heyra — árum saman — eru fyrri sam- starfsmenn minir og minna, grannar okkar, vinir og félagar. Ég er þess ekki umkominn að gerast hér fulltrúi þeirra og mæla til ykkar fyrir þeirra munn, þótt þeir eigi erindi við okkur hér i dag: ég er, eins og þið, ósviðinn af þeim eldi, sem á þeim brennur. En ég get að minnsta kosti lýst hér yfir stuðningi minum við þá, trú minni á málstað þeirra, með þvi á eigin ábyrgð að gera þeirra orð að minum. Ég skulda þeim miklu meira en það. Ég ætla að lesa fyrir ykkur kafla úr blaðagrein og lesanda- bréfi, sem einkavinur minn — jafnaldri og starfsbróðir, en jafn- framt á sina visu lærifaðir — birti i dagblöðum i heimaborg sinni meðan stóð á forsetakosninga- baráttunni nú i haust. Hann drep- ur þar á margt sem hann telur fara aflaga i bandarisku þjóðlifi, en ég les það eitt, sem varðar styrjöldina i Vietnam og áhrif hennar — og þeirrar stjórnar- stefnu sem heldur henni við — á lif og liðan bandarisku þjóðarinn- ar. ,,Ég held”, segir vinur minn, ,,að við trúum enn á eitthvað, sem kalla mætti siðferðilega forystu, enda þótt miljón ræðumenn hafi mengaö þetta hugtak. Við trúum á hana, ekki vegna þess að slik forysta verði okkur endilega til skjótra hagsbóta, heldur vegna hins, að við vitum það — hvað sem allri vantrú á mannlegt eðli liður — að heilbrigði jafnt ein- staklings sem samfélags veltur á þvi, að hvaða marki viö erum hvött til að hlýða okkar betri manni en ekki hinum verri, að hvaða marki við getum treyst, vonað, gefið, fundið til með öðr- um, að hvaða marki við getum sagt sannleikann, jafnvel þegar undan honum sviður. Nixon er alvarlegur skaðvaldur vegna þess að hann og stjórn hans ýta undir og færa sér i nyt það versta, sem i okkur býr — þeir ala á hatri okkar og tortryggni, á hræðslunni um að einhver annar fái eitthvað fyrir ekkert, á rag- mennskunni við að taka áhættu- sama afstöðu, á óttanum við breytingar, á lönguninni i auð og völd og glansmuni, á hvötinni til að hugsa aðeins um okkur sjálf. Og það sem verst er af öllu, hann hjálpar okkur til að ljúga að okk- ur sjálfum, tii að láta eins og það sé siðferðilega réttlátt af okkar hálfu að sitja heima i velsæld og notalegheitum meðan flugmenn okkar leggja bæði Suður- og Norður-Vietnam i auðn úr loftinu, að láta eins og við séum einhvern veginn að verja málstað frelsisins með þvi að halda uppi einræðis- stjórn Thieus... öll þessi uppgerð kemur ekki aðeins i veg fyrir að við leysum vandamál okkar, heldur gerir hún okkur beizk og reið og óveglynd, vegna þess að við höfum — innst inni — óbeit á okkur sjálfum”. Og i lesandabréfi sinu segir vin- ur minn: „Við vitum að striðið i Vietnam er skammarlegt og tilgangslaust fargan, eða að allra minnsta kosti hræðilega flókið mál, og að það er ekki sérlega heiðarlegt eða hetju- legt eða mannsæmandi að láta sprengjurnar dynja og dynja yfir Norður-Vietnam þegar ekki hefir verið ráðizt á eina einustu borg eða þorp i Bandarikjunum. Við vitum að Thieu forseti hneppir pólitiska andstæðinga sina i fang- elsi og leyfir enga stjórnarand- stöðuflokka. Við vitum að Suður- Vietnamar hefðu fyrir löngu get- að ráðið við skæruliða Viet Cong, ef nokkurt traust eða nokkrar vonir hefðu verið bundnar við rikisstjórnir i suðurhluta lands- ins. Við vitum að Norður-Viet- namar tefldu ekki fram herafla i stórum stil fyrr en Bandarikin voru i álvöru orðin styrjaldar- aðili. Við vitum þetta vel. Og þegar Nixon forseti gerir úr þessu orðin tóm með þvi að tala um árásar- hernað, um að menn eigi að láta granna sina i friði, um sjálfs- ákvörðunarrétt Vietnambúa, þá er hann að tala eins konar vit- leysu, hann er að koma i veg fyrir Framhald á bls. 15.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.