Þjóðviljinn - 04.01.1973, Side 16

Þjóðviljinn - 04.01.1973, Side 16
Fimmtudagur 4. janúar 1973 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara’ Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Lyfjaþjónusta apótekanna vikuna 23.—29. des. er i Ingólfsapóteki og i Laugar- nesapóteki. Nætur- og helgi- dagavarzla er i Ingólfs- apóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur og helgidaga- vakt a heilsuvernarstöftinni. Simi 21230. Hernaðarátök magnast í Vietnam -um leið eru viðræður undirbúnar SAIGON PARÍS WASHINGTON 3/1 125 banda- riskar flugvélar gerðu i dag harðar loftárásir á suðurhluta Norður-Vietnams og bardagar á landi mögnuðust i Suður-Vietnam. Samt munu hálfopin- berar viðræður styrjaldaraðila hefjast aftur i Paris á morgun, enda þótt þeir Kissinger og Le Duc Tho hefji ekki viðræður aftur fyrr en á mánudag. Bandariska þingið kom saman i dag og er þar sterkur vilji fyrir þvi að þvinga Nixon forseta til að hætta striðsrekstri með þvi að loka fyrir fjár- veitingar. Striðiö Um það bil 125 bandariskar flugvélar hófu aftur loftárásir á Norður-Vietnam eftir nýárshléð, þar á meðal 40 flugvélar af gerðinni B-52. Köstuðu þær hundruðum lesta af sprengjum á svæði sunnan 20sta breiddar- baugs. Þjóðfrelsisherirnir hertu sókn sina i Suður-Vietnam og beinist hún bersýnilega einkum að þvi að loka samgönguleiðum til Saigons. 13 farast í aurskriðum RÖM 3/1 Illviðri með mikilli úr- komu hefur geisað um ttaliu sunnanverða s.l. þrjá sólarhringa og hafa a.m.k. 13 manns farizt. Ar hafa flætt yfir bakka sina, tiu brýr hefur tekið af, raflagnir hafa slitnað og vegir eyðilagzt. Flestir þeirra sem fórust urðu fyrir aurskriðum úr fjallshliðum. Gerðu sveitir úr þeim um 80 árásir á s.l. sólarhring og eyði- lögðu m.a. tvær brýr á vegum til Saigon. París og Moskva. Fulltrúar i friðarviðræðum i Paris komu sér saman um að hefja þegar á morgun, fimmtu- dag, hálfopinberar viðræður sinar um vopnahlé, fjórum dög- um áður en þeir hittast Le Duc Tho og Kissinger. Tho kom til Peking i dag á leið til Parisar og ræddi m.a. við Sjú En-læ, for- sætisráðherra Kina. Haft er eftir austurevrópskum diplómötum i London, að loftárásirnar hafi ekki breytt afstöðu Norður-Vietnama, og muni þeir halda fast við drög þau að vopnahléssamningi sem gerð voru i október. Bandariskir og vietnamskir sérfræðingar komu saman á annan fund sinn i Paris i dag til að ræða tæknileg atriði i sambandi við framkvæmd vopna- hlés. F'undur sérfræðinganna stóð llue-gatan i miðborg Hanoi er að mestu I rústum. Stúdentar og lögregla slást KAIRO 3/1 Lögregla með stálhjálmá beitti táragasi og kylf- um gegn 3.000 stúdentum sem fóru i mótmælagöngu gegn stjórnvöldum i nágrenni háskólans i Kairó i dag. Atökin,sem eru hin fyrstu milli stúdenta og lögreglu siðan i janúar i fyrra, brutust ut er stúdentar hópuðust saman til að mótmæla handtökum félaga sinna. Yfirvöld játa, að 45 stúdentar hafi verið handteknir fyrir að dreifa flugritum, fjand- samlegum rikinu,á dögunum, en stúdentar segja að 100 þeirra hafi verið handteknir. Tveir brezkir blaðamenn og bandariskur ljósmyndari voru handteknir i sambandi við at- burði þessa, en var þeim sleppt eftir nokkra stund. i fjórar stundir i gær, en sjö stundir i dag. ttalska blaðið Giornale d’Italia heldur þvi fram i dag, að Leonid Brézjnéf formaður Sovézka kommúnistaflokksins, hafi haft milligöngu um að viðræður þeirra Kissingers og Le Duc Tho hæfust aftur. Brézjnéf hafði áður gefið til kynna i opinberri ræðu, að fram- tið sovézk-bandariskra sam- skipta væri háð friðargerð i Vietnam. Blaðið getur ekki um heimildir fyrir frétt þessari. Mælt gegn bjartsýni. Nixon og Kissinger héldu i dag áfram einkaviðræðum sin á milli um næsta áfanga viðræðnanna i Paris. Ekkert er ljóst um þær við- ræður i smáatriðum en stjórnar- íulltrúar leggja áherzlu á að kveða niður orðróm um að búast megi við skjótum árangri á Parisarfundunum. Þá setja bandariskir stjórnarfulltrúar all- mikla orku i að neita þvi, að mót- mælaaldan gegn loftárásunum um viðan heim hafi ráðið nokkru um það, að gert var hlé á þeim um óákveðinn tima um nýárið. Andstaöa á þingi. Bandarikjaþing kom saman i dag og er Ijóst að þar hefur and- Mansholt um þróun EBE: Lífskjaramunur hefur aukizt innan EBE LONDON 3/1 Meðan blásið var i lúðra um áramót viða um Evrópu i tilefni þess að Bret- iand, irland og Danmörk urðu fullgildir aðilar Efnahags- bandalagsins, minnti einn helzti talsmaður EBE, Ilollendingurinn Sicco Mansholt, á það, að EBE hefði ekki þróazt eins og vonir al- mennings stóðu til, og að ekki hcfði verið um neinar veru- legar lifskjarabætur að ræða hjá almenningi i upphaflegu aðildarrikjunum sex. Sicco Mansholt er fráfarandi formaður stjórnar- nefndar EBE. Hann sagði á hátiðafundi i London i gær, að einstakir hópar hefðu grætt á þróuninni innan EBE, en þróunin hefði Mansholt. einnig leitt til aukinnar félags- legrar spennu og að mismunur á lifskjörum fólks á einstökum svæðum innan bandalagsins hefði fremur aukizt en hitt. Mansholt sagði siðar i sjón- varpsviðtali, að ef Wilson, for- maður Verkamannaflokksins, reyndi að rjúfa samninginn um aðild Bretlands er hann kæmist i forsætisráðherrastól, þá mundi hann dreginn fyrir sérstakan EBE-dómstól. 1 Englandi, og reyndar viðar i EBE-löndum, er haldið með frumsýningum, listsýningum og fótbolta upp á samning þennan, sem svo bágt er úr að vikja, sem Mansholt útlistaði. I dag bárust svo þær fréttir frá aðalstöðvum EBE i Briissel, að þar teldu menn það aðeins fræðilegan mögu- leika að Wilson yrði dreginn fyrir EBE-dómstól, en að i raun væri slik aðferð harla ólikleg. staðan gegn Vietnamstriðinu ekki fyrr verið meiri. Mansfield, tals- maður Demókrata i öldunga- deildinni, sagði i ávarpi til sinna manna i dag, að þingið yrði að beita sér fyrir þvi að hernaði Bandarikjamanna i Vietnam yrði hætt með öllu. „Tiiraunir til að komast út úr þessu tilgangslausa striði án þess að „missa andlitið” alveg, hafa aðeins leitt til meiri eyðileggingar og spillt áliti þessarar þjóðar” Tveir þriðju hlutar þingmanna Demókrata i fulltrúadeild Banda- rikjaþings, gerðu Nixon forseta það ljóst i gær, að ef hann ekki innan skamms bindur endi á striðsrekstur Bandarikjanna i Vietnam, þá muni þeir beita sér fyrir stöðvun fjárveitinga til hernaðar þar, bæði á landi og i lofti. Hét formaður þingflokks Demókrata i fulltrúadeild, Carl Albert, þvi á fundi með ættingjum bandariskra striðsfanga i Vietnam, að ef forsetinn ekki stöðvaði striðið mundi þingið gera það. Um leið hefur Fulbright, for- maður utanrikismálanefndar öldungardeildarinnar, tilkynnt, að nefndin muni taka málið upp ef ■Nixon komi ekki með lausn fyrir 20. janúar þegar hann tekur aftur formlega við forsetaem- bætti. Ljóst er að stuðningur við þá kröfu, að þingið taki ráðin af forsetanum i Vietnam, hefur aldrei verið meiri en nú. Oldungadeildin hefur oftar en einu sinni samþykkt að fella niður fjárveitingar til Vietnam- striðsins, en málið hefur alltaf Frh. á bls. 15 Sænska kirkjan bið- ur fyrir Yíetnömum MALMÖ 3/1 Bæn fyrir friði í Vietnam verður frá og með þrettánda degi jóla lesin upp i öllum kirkjum Svíþjóðar þar til vopnahlé í Vietnam er orðið að veru- leika. Bænin hljóðar á þessa leið: „Ö, Guð, þú sem hefur sent kærleik þinn inn i heiminn til baráttu gegn illsku og kúgun, lit þú i náð til hrjáðrar þjóðar Vietnams. Gefðu þeim, sem hafa vald yfir framtið hennar, hugrekki (? — þetta orð brenglað i fréttaskeyti) til að Fyrsta flugrán ársins BALTIMORE 3/1 Vopnaður maður sem snemma i morgun rændi flugvél á flugvelli fyrir utan Baltimore, gafst tveim timum siðar upp fyrir lögreglu- manni frá bandarisku öryggislög- reglunni. Þetta fyrsta flugrán ársins var framið rétt eftir að 37 farþegar, nýkomnir frá Washington, höfðu farið út úr flugvélinni, sem er af japanskri gerð. Ræninginn hafði tvær flugfreyjur i gislingu og ætlaði að láta fljúga vélinni til Toronto i Kanada, en fyrrnefndur lögreglumaður fékk hann til að hætta við það áform. binda endi á grimmd striðsins...Gef þjóð Vietnams þann frið sem tengdur er réttlæti og frelsi sem felur i sér þróun. Og kenn oss öllum að finna, i hlýðni við vilja þinn og minnugir þjáninga sonar þins, réttar leiðir til hjálpar og til að stuðla að sátt- um meðal þjóða.” Það var formaður sænska ekúmeniska ráðsins, Olof Sundby erkibiskup, sem i dag skýrði frá bænagerð þessari. Okkur vantar fólk'til að bera út blaðið Hringbraut Skjól Hjarðarhaga Miðbæ Hverfisgötu Skúlagötu Höfðahverfi Háteigshverfi Sólheima Nökkvavog Voga 2 Sogamýri UOBVIUINN simi 17500.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.