Þjóðviljinn - 01.03.1973, Side 5

Þjóðviljinn - 01.03.1973, Side 5
Fimmtudagur 1. marz. 1973. þJóÐVILJINN — SÍÐA 5 SÚPERSTAR — Jesús Guö Dýr- lingur JEftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber. Leikféiag Reykjavikur sýnir i Austurbæjarbiói. Leikstjóri: Pétur Einarsson. Leikmyndir og búningar: Stein- þór Sigurösson islenzk þýöing: Niels Óskarsson. Hljómsveit: Náttúra. Rokkóperan um súper- stjörnuna Jesú Krist hefur hljómað i eyrum manna i rúm tvö ár, og kannski ekki laust við, aö einstaka maöur væri farinn aö þreytast. Eða var popptónlist verksins ekki i eðli sinu dægur- fluga sem hlaut að vekja leiöa er fram liðu stundir? Þeirri spurningu svara menn eflaust misjafnlega eftir smekk — aö minum dómi stendur tónlistin enn fyllilega fyrir sinu, er nógu margslungin og uppáfinningasöm til þess að halda gildi sinu óskertu af timans tönn, að minnsta kosti ennþá. En það var ærið forvitniefni að sjá hvernig þetta verk, svo þaul- kunnugt hlustum manns, tæki sig út fyrir augað á sviði. Eftir sýninguna verð ég að segja, yfir- Þessi mynd er tekin að lokinni frumsýningu á Súperstar I fyrrakvöld. Þar má sjá nokkra leikendur og leiktjaldamálara aö ógleymdum höf- iundunum báöum. JÚDAS SÚPERSTAR leitt vel. Þó er það svo að svið- setningin vekur til umhugsunar um inntak og merkingu, gerir meiri kröfu til þess að eitthvað sé verið að fara en hljómútgáfan gerir. Og hvert er svo verið að fara? Er einhver ný túlkun á þessari gamalkunnu frásögn leidd i ljós? Birtist okkur nýr skilningur á persónum þessarar sögu? Einkum og sérilagi — hvað Sá Bormann éta eitur PARÍS —Franskur nazisti kveðst hafa verið vitni að þvi er stað- gengill Hitlers, Martin Bormann, framdi sjálfsmorð i aprillok 1945. Hafi hann étið arsenik ásamt lækni einum úr SS-sveitum. Sjálfur barðist Frakki þessi i SS- sveitinni Charlemagne, sem skipuð var frönskum nazistum. Fyrir skömmu fannst i Berlin hauskúpa, sem tannlæknir Bor- manns telur, að gæti verið af honum. Vill frelsa karlpening einnig Betty Friedan, sem blöð hafa kallað Æðstakvenprest Rauð- sokkahreyfingarinnar, hefur ákveðið að nú sé timi til þess. kominn að frelsa karlmenn undan oki þeirra engu siður en konur Fyrir skömmu hélt hún ræðu á fundi i Washington og hvatti þar systur sinar i hreyfingunni til að sjá til þess, að ekki verði lengur litið á karla eingöngu sem „kyn- ferðisverur og fyrirvinnur, heldur sem mannlegar verur og bræður okkar”. hafa höfundar að segja okkur um Jesú Krist? Það reynist vera harla litið. Hann birtist sem furðu óskilgreind og daufleg persóna, veiklundað ungmenni sem boðar frið og ást og hrekst til og frá af utanaðkomandi öflum, en sýnir ekki tilþrif nema einstaka sinnum I einskonar óþekktarköstum — og þá er Maria Magdalena óðara komin til að róa hann. Þetta kem- ur heim og saman við þá einu hugmynd sem manni virðist i fljótu bragði liggja að baki verkinu — að túlka Jesú sem eins- konar fulltrúa hinnar nýlega risnu ungmennahreyfingar sem stundum er kennd við hippadóm eða neðanjarðarstarfsemi. Sam- kvæmt þessum skilningi verður baráttan milli Krists annars vegar og prestanna, Heródesar og Pilatusar hins vegar að endur- speglun baráttu æsku og elli á vesturlöndum nútimans. Þeir eru fulltrúar efnishygg jum ið- stéttanna sem skilja ekki að hans riki er ekki af þeirra heimi. Þessar andstæður birtast bezt i fundi Krists og Heródesar, sem syngur auðvitað i gömlum og úr- eltum stil og biður Jesú að gera kraftaverk sem falla að hans gildismati, breyta vatni i vin og ganga yfir einkasundlaug hans, en bregzt hinn reiðasti við þegar Jesús daufheyrist við bænum hans. Hlutverk Krists er því harla dauflegt og liklega enginn sérlega öfundsverður af þvi. Guðmundur Benediktsson var þó kannsi óþarflega hlédrægur, og ekki laust við að hann skorti nokkuð á öryggi. En hann var Kristslegur i framan og söng ágætlega.Einkum var grasgarösatriði hans þónokkuð sannfærandi. Júdas Isakariot, hinn gamal- kunni þorpari, er hins vegar óefað stórstjarna þessara sýningar. Bæði er hlutverk hans mun margslungnara og ekki siður hitt að Pálmi Gunnarsson skilaði þvi af sjaldgæfum glæsibrag. Hann hefur þann illskigreinanlega eiginleika sem kallast nærvera á sviði, og auk þess prýðilega rödd sem hann beitir af öguðum krafti. Hann er tvimælalaust stjarna kvöldsins og henging hans hápunktur sýningarinnar, reyndar mun áhrifameiri en fremur dauðyflisleg krossfesting. Shady Owens er Maria Magdalena. Einhvern veginn skortir Shady algerlega það fas og útlit sem þarf til að gefa þessari hjartagóðu gleðikonu svip og lif, en hún syngur prýðilega. Hins vegar þyrfti ungfrúin að vanda betur framburð sinn, sem er til allmikilla lýta á annars gull- fallegum söng. Jónas R. Jónsson sýndi veruleg tilþrif i hlutverki Pilatusar. Framkoma hans og hreyfingar voru með sérstökum ágætum. Hið sama má segja um Harald G. Haralds I hlutverki Heródesar. Atriði þessara tveggja, ásamt atriðum Júdasar, voru þeir staðir i sýningunni sem raunverulegur lifsandi kviknaði með. Um svip sýningarinnar i heild er það að segja aö helzt skortir á að fjöldaatriði séu nægilega vel útfærð. Meiri fjölbreytni og hug- kvæmni hefði þurft að koma til, og miklu meiri þjálfun og ögun i hreyfingum. Fyrir bragðiö verður sýningin ekki sá gleði- leikur fyrir augað sem manni finnst hún ætti að vera. En góð sviðsmynd og vel útfærö ljósanot- kun vega hér allmjög upp á móti Þá er að geta tónflutnings, en með honum stendur og fellur sýning sem þessi. Ekki gat ég annað heyrt en hann væri i heild sinni ágætur og stæðist fyllilega samanburð við erlendar plötu- upptökur. Hin margvlslegu hijómkerfi virtust a.m.k. leik- mannseyrum skila hlutverki sinu frábærilega vel, þannig að ævin- lega var gott jafnvægi milli ein- söngvara, kórs, popphljóm- sveitar, og sinfóniusveitar. Sér- staklega ber að þakka fyrir ágæta textameðferð, sem fremur er sjaldgæf hér um slóðir. Heita mátti að mestallur textinn kæmist skiljanlega til skila, og hvergi drukknaði hann i hávaða. Textinn sjálfur, þýðing Nielsar Óskarssonar, virðist hönduglega gerður, yfirleitt vel orðaður og umfram allt skiljanlegur. Hinar fjölmörgu skökku áherzlur stungu að visu ofurlitið I eyru, en sjálfsagt ógerningur að komast hjá þeim með tónlist af þessu tagi. Það sem athygli vekur við þessa sýningu er annars vegar hversu vönduð hún er tæknilega, og má þakka Pétri Einarssyni fyrir rösklega verkstjórn, en hins vegar að sjá fjölmörg ný andlit á sviði, sem óneitanlega er nokkur upplyfting hér i einhæfninni, og þá einkum Pálma Gunnarsson og Jónas R. Jónsson, sem báðir gætu sómt sér prýðilega sem atvinnu- menn i greininni. Övenjulegur fögnuður leikhús- gesta á frumsýningu gefur vis- bendingu um mikla aðsókn, og væri það vissulega verðsluldað. Sverrir Hólmarsson Hornfirðingar spyrja: Hvenœr verður sýning á Brekkukots- annál endurtekin? D Þannig spyrjum við i dreif- býlinu. Það urðu okkur Horn- firðingum sár vonbirgði, þegar sýna átti fyrrihluta Brekkukotsannáls, þá brást sjónvarpið. Það bilaði semsé sendirinn á Háfelli og veður hamlaði viögerð. Ekki veit ég með vissu hversu margir misstu af um- ræddrisýningu, en nær er mér að halda að fyrir utan Skafta- fellssýslur þá hafi Austurland einnig verið sjónvarpslaust einmitt um þessar mundir. Við vonum þvi fastlega að myndin verði endursýnd. Mér er sagt að kvikmyndin Sólsetursljóð hafi verið endur- sýnd og það snarlega, vegna bilunar sem varð suðvestan- ma lands nú fyrir skemmstu. Slikum endursýningum hef ég raunar stundum orðið vitni að, þegar þannig hefur staðið á, og ekkert nema gott um það að segja, en ef fólki er mismunað eftir þvi hvar það býr á landinu, þá fer. nú málið að verða alvarlegra. Þorsteinn Þorsteinsson. Góöar bækur í HÚSI MÁLARANS GRENSÁSVEG111

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.