Þjóðviljinn - 01.03.1973, Side 16

Þjóðviljinn - 01.03.1973, Side 16
IÚDVIUINN Fimmtudagur 1. marz. 1973. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Lækna- félags Reykjavikur, simi 18888. Nætur- kvöld og helgarþjón- usta lyfjabúöanna i Reykjavlk vikuna 23. febrúar til 1. marz verður I Garðsapóteki og Lyfjabúðinni Iöunni. Slysavarðstofa Borgarspital- ans er opin allan sólarhring- inn. Kvöld-, nætur og helgidaga- vakt á heilsuverndarstöðinni. Slmi 21230. / 1 Sovétmenn Bemarsam- bandið um höfundarrétt MOSKV U 28/2 — Ékaterfna Fúrtséva, menningarmála- ráöherra Sovétrikjanna, staöfesti það í dag, aö Sovétríkin ætluðu að fallast á samkomulagiö um höf- undarétt fyrir andlega iðju. Þetta er hiö svonefnda Bernar-samkomulag sem 64 lönd hafa þegar viður- kennt, en samkvæmt þvf eru hugverk á sviði bók- Kreppa í Víetnam- málum? 28/2 — Nokkur kreppa virðist hafa verið siðustu dægur varðandi friðarhorfur og alþjóöa samkomulag um Vietnam. N-VIetnamar við friöargæzlu og eftirlit i Suöur- Vietnam hafa oröið fyrir áreitni, og hefur stjórn Norður-Vietnams þvi tilkynnt að ekki yröu afhentir fleiri bandariskir striðsfangar fyrr en Bandarikjastjórn hefði tryggt öryggi N-Vfetnama 1 Suður-VIetnam og það, að skilmálar vopnahléssam- ningsins væru þar aö fullu haldnir. A móti hafa Bandarikja- menn hótað þvi að hætta heimflutningi hermanna sinna frá Vietnam, en þar eru nú um 12 þúsund menn. Bæöi afhending fanganna og heim- kvaðning bandariskra her- manna á að vera lokiö 28. marz. Bandariskir og norður- vietnamskir fulltrúar munu nú koma saman og ræða vandamál þessi, og hefur Trinh, utanrikisráöherra Hanoi-stjórnarinnar, staðfest þann vilja Norður-VIetnama að við vopnahléssamninginn sé staðið að fullu og öllu. Alþjóðaeftirlitsnefndin hefur hætt eftirlitsflugi I þyrl- um yfir Suður-Vietnam vegna þess að þráfaldlega hefur verið skotið að þyrlum henn- ar. Heldur stirð sambúð var milli aðila i Paris i dag, en sérfræðinganefndir unnu ótruflað að sinum störfum. mennta, vísinda og mynd- listar vemduð í 25 ár. Samkomulagið tekur gildi hvað Sovétrikin snertir eftir 3 mánuöi. Af Evrópu-rikjum er aðeins Albanla utan þessa samkomu- lags, en af öðrum stórum rikjum má nefna Kina og Indónesíu. Fúrtséva sagði á blaðamanna- fundi I dag, að ekki væri enn hægt aö segja, hvernig samkomulagið snerti höfunda eins og Solsénitsin, sem nú fær rit sin gefin út á Vesturlöndum þrátt fyrir útgáfu- bann heima fyir. Hún kvað einnig á dagskrá að athuga það, að hve miklu leyti væri rétt að selja vest- ræn blöð á frjálsum markaði I Sovétrikjunum. Aðild Sovétrikjanna að Bernar- samkomulaginu tryggir mörgum vestrænum höfundi sem mikið hefur veriö gefið út eftir þar eystra, miklar tekjur af þeirri sölu, en hingað til hafa Sovét- menn ekki haft reglu á sllkum greiðslum. A hinn bóginn kann aðildin að hafa áhrif á það, að Sovétstjórnin geti betur en áður temprað útgáfu á bókum „óæski- legra” höfunda utanlands. Kjöbenhavns Handelbank i Kaupmannahöfn hefur beðið Landsbankann aö koma áleiðis framlagi til aðstoðar vegna jarð- elda i Heimaey, 10.000 kr. danskar. Bankaráð Lands- bankans hefur afhent bæjarstjórn Vestmannaeyja þessa gjöf til ráð- stöfunar samkvæmt ósk gefanda. Indíánar rísa upp Halda 10 manns í gíslingu í Wounded Knee til að leggja áherzlu á kröfur sinar SUÐUR-DAKOTA 28/2 — Um 200 manna hópur Indíána tók þorpið Wounded Knee (Særða hnéð) á sitt vald í dag og tóku 10 manns fasta og halda þeim i gíslingu. Um 90 manna flokkur lög- regluþjóna — sumir þeirra úr a 1 r i k i s 1 ö g r e g 1 u n n i — umkringja þorpið, en það er 5 kllómetra frá Pine Ridge þar sem er „ frátekið svæði” (reservat) fyrir indlána af Oglala-Sioux-ættbálkinum. Margir þeir, sem fyrir aðgerðunum I Wounded Knee standa, fylgja amerisku indiánahreyfingunni að málum — AIM. Einn af leið- togum hreyfingarinnar skýrði frá þvi i dag að hópurinn væri vopnaður byssum. ,,Við erum reiöubúnir til að berjast til siðasta manns ef yfirvöldin hunza kvartanir okkar”. GIsl- arnir dveljast nú I góöu yfir- læti I kaþólskri kirkju I þorpinu. Þorpið Wounded Knee þar sem aðeins búa um þúsund manns er þekkt úr baráttusögu Indlana. Þarna voru mörg hundruð af for- feðrum þeirra sem nú hafa uppi réttindakröfur strá- drepnir af bandariskum her- mönnum i einni slöustu „orustunni” sem tryggðu þeim hvltu land og llfsrými á kostnað frumbyggja Amerlku. AIM-hreyfingin hefur að undanförnu staðið fyrir mörgum mótmælaaðgerðum af hálfu Indíána vegna rétt- indaleysis þeirra og slæmrar aðbúðar. Hefur nokkuð kast- azt I kekki milli hreyfingar- innar og þeirra opinberu forystumanna sem Indíánar hafa. Jack Lynch. Spurningin er hvort hann verður forsætisráðherra öllu lengur en til föstudags, þegar úrslit i þingkosningunum verða endanlega kunn. KOSNINGAR Á ÍRLANDI um 144 þingsœti DYFLINNI 28/2 — Þátttaka virtist ætla að verða mikil I írsku þingkosningunum i dag. A kjör- skrá eru um 1,9 miljón manna sem rétt eiga að kjósa milli 329 frambjóðenda til 144ra sæta i neðri deild þingsins — eða Dail á Irsku. Fianna Failhefur verið stærsti flokkurinn á þingi með 69 þing- menn, þeirra á meðai er Jack Lynch sem verið hefur forsætis- ráðh. siðan 1966. Fianna Fail er hinn gamli flokkur de Valera, og hefur flokkurinn verið við stjórn- völin siðustu 40 árin að undan- teknum 6 árum, þegar Fine Gael- flokkurinn hefur farið með stjórn i samvinnu við Verkamanna- flokkinn. Sá er elztur flokka i Irlandi, stofnaður 1912 af James Connolly og Jim Larkin. Við siðustu kosningar fékk hann 17% atkvæða en aðeins 18 þingmenn kjörna. Sinn Fein.sem mjög er tengdur hinum opinbera armi Irska lýö- veldishersins IRA, hefur menn i framboði, og mundu þeir nú i fyrsta sinn taka sæti i þinginu ef kjörnir verða. V erkalýðshrey fing og vinstri stefna Það er í kvöld klukkan hálfníu sem Þröstur ólafs- son hagfræðingur reifar málefnið „Verkalýðshreyf- ingin og vinstri stefna í efnahagsmálum" á umræðufundi hjá Alþýðu- bandalaginu að Grettisgötu 3. Þröstur varðist allra frétta um það i gær, hvernig hann mundi taka þessi mál til umræðu og hvað hann mundi um þau segja, svo að við vildum ráðleggja hverjum þeim sem áhuga hefur á þeim að sækja fundinn og hlýða á — og taka síðan þátt I umræð- unum. Þröstur Ólafsson hefur um Frh. á bls. 15 Þröstur ólafsson „Lýðræði áfram tryggt í S-Kóreu undir bandariskri vernd — eða hvað vilja menn kalla þetta stjórnarfar? SEÚL 28/2 — Flokki Parks forseta, Lýöræðisflokknum, tókst ekki að vinna meirihluta I þing- kosningunum sem fram fóru á þriðjudaginn I Suður-Kóreu. Likur benda til að hann fái ekki nema 73 þingmenn af alls 146, en það gerir ekki svo mikið til, þvi samkvæmt nýsettri stjórnarskrá getur forsetinn tilnefnt allt að 73 þingmenn til viðbótar samkvæmt eigin geðþótta. Alþýðulýðræðisflokkurinn Eiturgas í miðborginni AUCKALND á Nýja Sjálandi 28/2 — Ósýnilegt en banvænt gas dreifðist út um miðbik Auckiand- borgar I dag og olli þar mikilli skelfingu. Um 6 þúsund manns yfirgáfu heimili sin, en 350 manns hafa þegar fengið læknismeðferð á sjúkrahúsi. A mánudaginn var skipað upp i Auckland 250 tunnum af eitraðri lofttegund sem á að fara til bómullarvinnslu I Astraliu. Höfðu tunnurnar orðið fyrir hnjaski á kýprisku skipi sem hafði flutt þær frá Mexíkó. Reynt er að gera gasið óvirkt. Drukknir dátar drepa dreng? BELFAST 28/2 — Brezkur her- maður sem fylgdi kaþólsku barni i skólann i Belfast i dag var drepinn af leyniskyttu, og er hann 154. brezki hermaðurinn sem fellur við litinn orðstir i Norður- Irlandi I törn siöustu 3ja ára. Fyrr i mánuöinum var annar brezkur hermaður skotinn við sams konar störf. Kaþólski Stjórnmálamaðurinn Paddy O’Hanlan sem fylgir Sósialdemókrataflokknum að málum hélt því fram i dag, að drukknir brezkir hermenn hefðu drepið 13 ára gamlan skóladreng,' Kevin Heatley að nafni, sem dó i Newry i morgun. Lögregluyfir- völd höfðu haldið þvi fram áður, að liklega hefði drengurinn sjáifur verið leyniskytta. virðist hafa fengið 51 þingmann, óháðir 19 þingmenn og Einingar- flokkurinn einn, en óljóst er enn um 4 þingsæti Allmikið hefur verið um kosningaryskingar og kosninga- kærur. Kosningarnar eru siðasta stigið I umbreytingum, sem verið hafa i gangi siðan I október, er Park setti herlög, leysti upp þingið og herti á alræði slnu. Virðist hann vera aö tryggja sjálfan sig I sessi til langs tlma, en hann hefur gegnt forsetaem- bætti siðan 1961, fyrst sem yfir- maður herforingjakliku, en slðan sem „borgaralegur” forseti. Eins og kunnugt er, hrósa Bandarikjamenn sér af þvi að hafa verið með herlið I Suður- Kóreu siðan I lok heims- styrjaldarinnar til að tryggja þar „lýðræðislega þróun”. Eitt ár í jarðnesku geimskipi •59 99, I kvöld kl. 8.30 verða sýndar i MlR-salnum nokkrar sovézkar fræðslumyndir. Eru þær með islenzku tali. Ein myndanna fjallar um merkilega tilraun sem gerð var i Sovétrikjunum. Þrir vlsinda- menn voru látnir dvelja saman I lokuðu lifkerfi I einskonar „geim- skipi á jörðu niðri” i heilt ár. Kom þar margt merkilegt I ljós i sam- bandi við lífsmöguleika og sam- búðarvandamál manna, sem i framtiðinni munu verða lang- timum saman að störfum úti i geimnum. Svo mikið er vlst, að eftir svo langan tima eru menn orðnir það leiðir hver á öðrum að þeir geta ekki einu sinni teflt saman. önnur mynd veröur um náttúruverndamál i Sovétrlkjun- um og hin þriðja er um iþrótta- hátið þjóöa landsins, Spartakiöðuna. (frá MIR) PARÍS 28/2 — Flugumferðar- stjórar i Frakklandi hafa verið i verkfalli I 9 daga og hefur það valdið miklum truflunum i flugi i Frakklandi. I dag hófu flugmenn á áætlunarleiðum franska flug- félagsins Air France 48 stunda verkfall i samúðarskyni.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.