Þjóðviljinn - 29.04.1973, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 29.04.1973, Qupperneq 9
Kaupið, krakkar, kaupið kaupið! t augum barnsins renna þessir tveir heimar saman i ruglings- lega mynd og mörk veruleika og imyndunar hverfa. Sjaldnast er nokkur viðstaddur til að útskýra og i sjónvarpinu eru aldrei skýringar á efninu né umræður um það. Greinilegust verða áhrifin i fátækrahverfunum, þar sem sjónvarpstækið er mikilvægasta húsgagnið, það er hin trygga barnfóstra. Gatan er hættuleg, lifið ömurlegt, mamma er úti að vinna, pabbi kannski alls ekki til. En sjónvarpið er á sinum stað. Þeim, sem stjórna neyzlu- iðnaðinum er ljóst, hve barnið er mikilvægt. Það er viðskiptavinur morgundagsins, — og kannski þegar dagsins i dag. Og aug- lýsingaflóðinu er steypt yfir blessaða sakleysingjana. Börnin verða fljótlega imyndunar- kaupendur að pillum, sælgæti, gosdrykkjum, kornflögum, grammófónplötum, fatnaði, leik- föngum.... Það liða aðeins 2,8 minútur milli auglýsinga innskotanna i barnadagskránum — fullorðnir hafa tvöfalt lengri tima til að jafna sig.Iðnjöfrarnirvita, að það sem skiptir máli er að halda börnunum föngnum við tækin' (enda foreldrarnir oft bara þakk- látir) og þessvegna verða kvik- myndirnar milli auglýsingainn- skotanna æ villtari og hrotta- legri: spenningur, spenningur.,.og dálftið tauga- æsandi glæpir og illur, bráður dauðdagi. A laugardögum er send út barnadagskrá allan daginn og er ætluðaldurshópunum 2-12ára. Til frekari aldursskiptingar er ekki kostað, þvi fyrir iðnjöfrunum eru öll börn einn og sami markaður. í bók sinni „The Economics of Child Television” hefur félags- fræðingurinn Alan Pearce reiknað út, að fyrir barna- auglýsingarnar fá þrir stærstu sjónvarpshringarnir 56 miljónir dollara i tekjur árlega. Pearce lætur sér reyndar ekki nægja að ráðast gegn auglýsingunum sem slikum. Hann ræðst lika harka- lega á innihald þeirra. Pilluglasið Dauðinn er borinn fram með sælgæti. Og sá sem er einmana, veikur eða sorgbitinn kemst að þvi, að allt batnar af lukkupillum. Það hefur komið fyrir, að ein- mana börn hafa i neyð troðið i sig svo miklu af þessum vitamin- og hressingarpillum, að þau hafa misst meðvitund. Vitað er um amk. tvö börn, sem fundust látin eftir slika ofneyzlu. Þar við bætast óheiðarlegu auglýsingarnar um sykraðar kornflögur — með litlu næringar- gildi — aukabita og bita i rúmið á kvöldin. Börnunum eru innrættar rangar matarvenjur frá upphafi. Leikfangaframleiðendur freista að sinu leyti mest með dýrum, vélrænum leikföngum, sem allir „verða” að eignast. Af- leiðingin verður oft leiðinda- spenna milli barna sem „verða” og foreldra sem getaekki: Teymið viö Harvard Business School sýnir i rannsókn sinni fram á, að barnasjónvarpið geri börnin tortryggin og óskamm- feilin. Auglýsingarnar lofa, en efna ekki. Ekkert i sjónvarpinu passar við það sem börnin upplifa i umhverfi sinu. Einu ljósu punktarnir Þrátt fyrir allt eru til örfáar góðar barnadagskrár. Þám. er þátturinn „Young Reporters” (Ungir fréttamenn) I Boston, þar sem börn segja börnum frá sinum eigin, einföldu störfum og leikj- um. Barnafréttaþáttur NBC á laugardögum er einnig óvið- jafnanlegur, en mjög stuttur. Fjallað er um sérstakt málefni frá ýmsum hliðum i hverjum þætti, og hafa verið tekin fyrir ýmis mikilvæg mál eins og offjölgunin, hættan á eyðingu dýrastofna, umhverfisvernd, hreinlætismál, hvernig börn leika sér i ólikum löndum og hvað leikir þeirra geta sýnt eða táknað. Sunnudagur 29. april 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Og svo er það „Zoom”, dagskrá með einkunnarorðunum: „Ger- um eitthvað gegn sjónvarps-að- gerðarleysinu”. Þetta er dagskrá fyrir börn eftir börn. Börnin senda inn tillögur og hugmyndir, sem siðan eru framkvæmdar i upptökusal sjónvarpsstöðvarinn- ar — og laða fram nýjar hug- myndir. Þvi miður nær þessi dagskrá fyrst og fremst til barna, sem þegar standa öðrum betur að vigi, en ekki til þeirra, sem mest þyrftu á að halda. Þar meö eru ljósu punktarnir upp taldir. Yfirgnæfandi magn barnaefnis sjónvarpsstöðvanna er áberandi lélegt. Það hefur ekki dugað til i þessu efni, að stjórnin hefur skipað nefndir, sem gefið hafa sérfræði- legar skýrslur og greinargerðir. Ekkert hefur breytzt við það. Ekki virðist það heldur hafa nein áhrif, að barnalæknar og sál- fræðingar hafa látið opinberlega i ljós miklar áhyggjur. Heimur barnsins i Bandarikjunum virðist ætla að úrkynjast i heim ofbeldis, óraunverulegrar hamingju og sinnuleysis. Börnin eru fólk framtiðarinnar. Það er ráðamönnum neyzlu- iðnaðarins sannarlega ljóst og það er þessi iðnaður, sem borgar, — og ákveður. Það eru iðnjöfrarnir, sem ráða barna- dagskránum. Barátta mæðranna. Mitt i vonleysinu hefur lifnað einn vonarneisti og það gerðist i Boston fyrir fjórum árum. Þar kallaði ung og áhyggjufull móöir aðrar mæður saman til umræðna um börn og sjónvarp. Það kom fljótt i ljós, að hún var ekki sú eina sem hafði hug á að gera eitt- hvað i máiinu, og nú hefur þessi litli umræðuhópur þróazt i lands- samtök með um miljón félögum, sem kallast „Action for Child TV”, skammstafað ACT. Samtökunum hefur tekizt að ýta við rikisstjórninni, iðnaðinum og sjónvarpsstöðvum eða amk. að angra þessa aðila. Styrkur að- gerðanna hjá ACT eru félagarnir, þvi þeir eru einnig neytendur, — og ennfremur kjósendur. ACT hefur tekizt aö fá fjölda þekktra sérfræðinga til samstarfs. Nýlega var td. haldin ráðstefna við Yale-háskólann undir kjörorðinu: „Bjargið heiminum fyrir barnið — og barninu fyrir heiminn.” I ályktunum ráðstefnunnar var ma. krafizt sérstakrar löggjafar um barnasjónvarpsefni, eftirlits með auglýsingum iðnaðarins, rikisgreiddrar aðstoðar við sjón- varpssjúk börn og unglinga og rikisstyrks við góðar barna- dagskrár og þætti. Þá hefur ACT hótað að hætta að borga afnotagjald til FCC (Federal Communications Commission) og amk. sú hótun hefur haft bein áhrif. FCC hefur á þessu ári i fyrsta sinn innréttað sérstaka deild fyrir barnasjón- varpsefni. Auk þess gekkst FCC fyrir skoðanakönríun meðal foreldra um óskir þeirra varðandi sjónvarpsefni fyrir börn. Starfs- menn nýju barnadeildarinnar hófu störf sin með niðurstöður þeirrar könnunar að leiðarljósi. Þar er ma. ákveðið að útrýma úr barnaþáttum öllum auglýsingum um pillur og lyf. Einnig að banna svokallað Hostess- advertisement, en það eru aug- lýsingaþættir með ýmsum vin- sælum leikurum og poppstjörn- um. Þar sem börnin þekkja oft og dást að þeim sem fram koma i þáttunum, fá þau traust á vörun- um, sem auglýstar eru og sækjast eftir þeim. Enn er þetta rétt eins og dropi i hafið. En þessar aðgerðir eru þó viss byrjun; og þótt við hér á tslandi höfum hvorki jafn marga né langa barnaþætti i sjónvarpinu og þeir vestra er sannarlega ástæða til að gefa þessu ástandi gaum. Það er td. þegar áberandi hér, að þótt auglýsingunum sé ekki stungið inn i þættina sem innskotum, er þeim mjög ákveðið beint til barna og unglinga. Eða hver skyldi það vera á heimilinu, sem hefur það mikinn áhuga á auglýsingaefninu, að hann kann allar auglýsingarnar utanað...? (Endursagt— vh) IiP 111 ^i | ^ ppir ::;í ’ - ■ nX )%"' ?l '*.ft ’ * jtlftl Brezkir togaramenn kasta óþverra að Islenzkum varðskipsmönnum. í/r brezku lesendabréfi: Breskum fisk- iðnaði fórnað á altari EBE I brezkum blöðum er jafnan mikið skrifað um landhelgismálið. Blaðinu hafa borizt nokkrar úr- klippur úr brezku blöðunum, en þar kennir margra grasa,og þó að sumar fréttagreinarnar séu frá fyrri tima telur blaðið rétt að skýra frá nokkrum þeim markverðustu. Aflinn hefur minnkað 1 „The Economist” 24. marz er sáran kvartað undan þeim skrá- veifum sem landhelgisgæzlan veitir brezku veiðiþjófunum. Sagt er að brezka togaraútgerðin hafi tapað mörgum þúsundum punda með skemmdum á veiðarfærum, auk þess sem vinna sjómannanna væri sifellt hættulegri og aflinn færi verulega minnkandi. Þá er fjallaö um þá afstöðu yfirstjórn- ar Efnahagsbandalagsins aö fresta ákvörðun um tollafriðindi handa tslendingum vegna fisk- veiðideilunnar. Tilkynning yfir- stjórnarinnar hafi ekki komið neinum á óvart, en „gæti haft áhrif í Reykjavik og styrkt þá aðila samsteypustjórnarinnar sem vilja fremur gera skynsam- lega samninga en styðja herra Lúðvik Jósepsson, kommúniska sjávarútvegsráðherrann, i bar- dagaákafa hans”. Hvaðan ætli þetta sé fengið? En þó að stefna hins kommún- iska sjávarútvegsráðherra valdi Bretum nokkru hugarangri telja þeir að senn muni ský draga frá sólu: „Núverandi aðstaða Islenzku rikisstjórnarinnar er ekki góö. Ilún hefur tapað, þvi menn hafa hlaupizt undan merkjum, hinum litla meirihluta sinum I þinginu', henni hefur mistekizt að ráða við verðbólguna, sem er jafnvel meiri en i öðrum vestrænum rikj- um, hún hefur neyðzt til þess aö draga úr yfirlýsingum um aö Bandarikjamenn eigi að yfirgefa NATO-stöðina i Keflavik,. . .” Og menn geta velt þvi fyrir sér hvað- an dáikahöfundur „The Econom- ist” hefur heimildir sinar. Þessi Jósepsson! Enn nefna Bretar sjávarút- vegsráðherrann Jósepsson og i þetta sinn er sagt að hann noti landhelgismálið til þess að draga athygli landsmanna frá öðrum vandamálum á tslandi! Þeir ættu að skammast sín! En við annan tón kveður i les- endabréfi A.L. Coleman, húsmóö- ur, sem skrifar i Fishing News 16. marz sl.: „Sem húsmóðir og reglulegur lesandi Fishing News er ég dolfallin yfir sifelldum blygðunarlausum aðförum Fé- lags brezkra togaraeigenda og svokallaðrar samstarfsnefndar brezku útgerðarinnar gagnvart lslendingum, fáum og varnar- lausum. Það var vegna tilveru sinnar að tslendingar færðu fisk- veiðimörkin út i septembermán- uði sl. Fiskmagnið fer siminnk andi i hafinu við Island vegna miskunnarlausrar ofveiði (vis- indalegar djúpsjávar-aðferðir) háþróaðra verksmiðjuskipa og frystiskipa erlendra þjóða”. Og bréfritari hefur eitt og ann að að athuga við aðild Breta að EBE: „Hins vegar hafa okkar sjó- menn, sem stunda fiskveiðar við landið, tapað tveimur þriðju af Frh. á bls. 15 Enn netna tsretar sjavarui- rrn. a i segir íslenzku stjórnina að T / \ jr I P > I J____ _

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.