Þjóðviljinn - 09.05.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.05.1973, Blaðsíða 5
Mi&vikudagur 9. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Flótti inn í eftir- líkingu hins liðna Leiktjöld efta hvað? Nýtt „gamalt” hús á Liineborgarheiði. Menn gerast æ þreytt- ari á þéttbýlum iönaðar- borgum — ekki sízt þeir sem búa í grónum og þéttbýlum og þrælmeng- uðum iðnaðarlöndum einsog Þýzkalandi. Efn- aðri millistéttir og þeir sem eru þaðan af ríkari, reyna því að forða sér út í úthverfi og sveitir. A siðustu árum hafa t.d. um 40 þúsund manns flutzt frá Hamborg umfram þá sem þar hafa setzt að — en ibúatala sveitaheraða þar i grennd hef- ur aukizt um 20%. Og nú þykir mönnum ekki lengur neitt i það varið að koma sér upp ný- tizkulegu einbýlishúsi eða sumarbústað uppi i sveit. Menn vilja sem minnst af nú- timanum vita á flótta sinum undan afleiðingum tæknibylt- ingarinnar. Eftirspurn eftir gömlum iveruhúsum bænda hefur stóraukizt, og má heita að öll slik hús sé búiö að selja sem unnt er og ennfremur flikka upp á þau sem voru komin úr notkun. Verð á slik- um húsum hefur á tiltölulega skömmum tima rokið úr 20 þús. mörkum upp i a.m.k. 150 þúsund. — eða um hálfa fimmtu miljón króna fs- lenzkra. En þegar svo er komið að ekki eru til lengur gömul hús, þá risa upp hugvitsmenn, sem áður höfðu búið til tilbúin ný- tizkuleg hús og finna upp að- ferð til að „smiða gömul hús úr nútimabyggingarefnum”. Risa nú á Liineborgarheiði heil gervisveitaþorp fyrir hina lifsþreyttu borgara, einna helzt lik nákvæmlega útfærð um Ieiktjöldum fyrir róman- tiska kvikmynd. Fyrsta „paritið” af þessum húsum kostaði frá 118 þúsund mörk um. _ Meðan þessu fer fram flytja svo bændur unnvörpum inn i nýtizkulega steinkassa. Gömul hús úr nýju efni: verið að þekja stráþak f gerviþorpi á Liineborgarheiði. Volvo tekur við sölu á DAF bílum Volvo mun I haust taka við sölu á DAF bilum á Norðurlöndum, og er ástæðan sú að Volvo hefur nú keypt þriðjunginn I DAF fólks bílaverksmiðjunum f Hollandi. DAF framleiddi árið 1972 92 þúsund fólksbila, en árið 1980 er gert ráð fyrir að framleiðslan verði um 200 þúsund bilar á ári. Það verður fyrirtækið Veltir hf. sem tekur við DAF umboðinu af fyrirtækinu Drangar hf. sem er dótturfyrirtæki O. Johnson & Kaaber. Veltir hf.mun siðar taka við þjónustunni. Væntanlegri heilsugæzlu- stöð gefin sjónprófun- artæki — fró fréttaritara í Hornafirði Þorsteini Þorsteinssyni Höfn 24. april. 1 dag boðaöi stjórn Lionsklúbbs Hornafjarðar til fundar að Hótel Höfn. Tilefnið var, aö afhenda sjónprófunartæki sem Lionshreyfingin hefur keypt fyrir ágóða af fjársöfnun sem fór fram fyrir nokkru, með söiu á rauðu fjöðrinni. Formaður Lionsklúbbs Horna- fjarðar, ÞórhallurDan Kristjáns- son, afhenti formanni byggingar- nefndar væntanlegrar heilsu- gæzlustöðvar hér á staðnum Her- manni Hanssyni, tækin. A munaðarleysingjahæli fyrir ástandsbörn I Suður-VIetnam. Við þessum börnum vill enginn gangast. Enginn vill af þeim vita: Dapurleg framtið ástands- barnanna í Suður-Víetnam Þórhallur gat þett aö Lions- hreyfingin á Islandi hefði keypt 5 slik tæki fyrir andvirði áður- nefndrar söfnunar sem afhent verða til nota á ýmsum þéttbýlis- stöðum út um landsbyggöina og voru þessi tæki ein af þeim. Þá af- henti formaður, héraðslækninum, Kjartani Arnasyni súrefnistæki, sem gjöf frá Lionsklúbbi Horna- fjaröar. A fundinum var mættur Óli Björn Hannesson augnlæknir en hann er staddur hér á augnlækn- ingarferöalagi á vegum heil- brigöisstjórnarinnar. Otskýrði hann fyrir viðstöddum notagildi tækjanna og svaraöi fyrirspurn- um um sjónverndarmál. Bandarískir hermenn hafa skiliö eftir sig a.m.k. 30—50 þúsund ástandsböm i Suöur-Víetnam. Hlutskipti þessara bama er yfirleitt hið hörmulegasta. Þau eru allsstaöar óvelkomin. Þegar Frakkar hurfu á brott frá Vfetnam gengu þeir svo frá að börn hermanna þeirra gátu feng- ið rikisborgararétt. Mörg þeirra voru siðan alin upp i Frakklandi. En Bandarikjamenn, sem kalla börnin „Amrasíumenn” eða „Afróasiumenn” eftir þvi hvort feðurnir eru hvitir eða þeldökkir, vilja helzt sem fæst vita um sin Vietnambörn. Allskonar fyrirsláttur er hafður i svörum. Bandariskir embættis menn segja sem svo, aö bezt sé að börnin séu hjá mæðrum sinum i vietnömskum fjölskyldum. Emb- ættismenn Saigonstjórnarinnar segja, að stefna þeirra sé að kyn- blendingarnir njóti sömu að- hlynningar og aörir munaðar- leysingjar. Sannleikurinn er allur annar. Aðbúöin i þeim hælum þar sem a.m.k. 2000 ástandsbörnum hefur verið komið fyrir, er sögö fyrir neðan allar hellur. Andúðin i garð Bandarikjamanna er svo mikil, að mjög er algengt að á- standsbörn séu borin út nýfædd — mæður þeirra óttast fyrirlitningu ættingja og vina svo mikiö, að þær áræða ekki að lifa i anda þeirrar vietnömsku heföar að börn séu „gjöf himinsins”. Mikill fjöldi barna flækist um og lifir á betli og þjófnaöi, mörg alast upp hjá mæðrum sem hafa ofan af fyrir sér með vændi. Saigonstjórnin hefur sett lög gegn ættleiðingu útiendinga, sem gerir einnig þeim fáu hermönnum lifið leitt sem vilja hafa börn sin meö sér heim. Fást þó undanþág- ur frá þeirri reglu. Hjálparstofn- anir hafa og haft hugann við ýmislegt annað en neyð barnanna — kaþólskar stofnanir vilja að- eins aðstoða við að koma börnum i kaþólskt fóstur og Búddistar haga sér á svipaðan hátt. — Bandarikjamenn vilja ekki barn nema það eigi hvitan föður — osfrv. Rússar efla vígbúnað PEKING 4/5 — Heimildir i Peking herma að Sovétmann hafi aukið vigbúnað sinn á landamær- um Kina og Sovétrikjanna. Hafa þeir frá áramótum fjölgað i her- sveitum sinum á þessum slóðum um 50 þúsund manns. Að auki eru þeir sagðir hafa komið upp 58 eld- flaugaskotpöllum til viðbótar þeim sem fyrir voru.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.