Þjóðviljinn - 09.05.1973, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 9. mai 1973
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSiALISMA/
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Úlgáfufélag Þjóðviljans -
Framkværndastjóri: EiOur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgreiOsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverö kr. 300.00 A mánuOi.
LausasöluverO kr. 18.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
LANDHELGISGÆZLAN
Fátt hefur verið meira rætt að undan-
förnu manna á meðal en störf islenzku
landhelgisgæzlunnar. Ekki þarf að efast
um að almennur vilji er fyrir þvi að gengið
sé harðar að veiðiþjófunum en gert hefur
verið hingað til og ekkert til sparað af okk-
ar hálfu til að trufla hinar ólöglegu veiðar.
Það vakti á sinum tima mikla athygli,
þegar 18 islenzkir togaraskipstjórar sendu
frá sér bréf um starfsemi og stjórn land-
helgisgæzlunnar nú fyrir tæpum mánuði,
en i þvi bréfi kröfðust þeir virkari aðgerða
af hennar hálfu.
í bréfi togaraskipstjóranna sagði m.a.:
,,Okkur hefur skilizt á varðskipsmönn-
um, að þeir hafi takmarkað vald til að
beita sér gagnvart veiðiþjófunum. Teljum
við að það vald þyrfti að auka, þó fyrr
hefði verið, og hvetjum til róttækra að-
gerða.”
Siðan togaraskipstjórarnir sendu bréf
sitt hefur fréttamönnum frá blöðum og út-
varpi verið leyft að fara einn túr með
varðskipi og varð för þeirra til að vekja
aukna athygli á ýmsum vandamálum við
framkvæmd gæzlunnar.
Af hálfu Þjóðviljans fór Jónas Árnason
alþingismaður á miðin með varðskipinu
Óðni. Þegar Jónas kom úr þessari ferð
vakti hann athygli á þvi i viðtali við Þjóð-
viljann, að islenzku varðskipin væru alls
ekki nægilega vel búin til að framkvæma
togaratöku, meðal annars skorti heppi-
lega báta til að fara á milli skipa til slikra
aðgerða.
Enginn efast um dugnað og góðan vilja
áhafna varðskipanna til að gegna störfum
sinum, svo sem bezt verður á kosið.
Stefán Jónsson dagskrárfulltrúi, sem
sjálfur var fréttamaður á miðunum i fyrra
landhelgisstriðinu 1958, birti s.l. föstudag
bréf til forsætisráðherra hér i Þjóðviljan-
um, þar sem fram koma svo alvarlegar
ásakanir á stjórn islenzku landhelgisgæzl-
unnar, að þess verður fastlega að vænta,
að stjórn gæzlunnar uni ekki þegjandi
slikum ásökunum, heldur geri hreint fyrir
sinum dyrum. Þjóðviljinn vill gera þá
kröfu að sinni.
Hafi mistök átt sér stað á ekki að þegja
þau i hel og halda áfram á sömu braut,
heldur ber að gera nýtt átak til að kippa
hlutum i lag.
Eigi vanbúnaður varðskipanna sér hins
vegar að einhverju leyti eðlilegar skýring-
ar, þá þurfa þær skýringar að koma fram,
og þá jafnframt hvað fyrirhugað sé til úr-
bóta.
Allur feluleikur i þessum efnum myndar
jarðveg fyrir margvislegar gróusögur og
það sem verst er, — ýtir undir vantraust á
landhelgisgæzlunni. Hér þyrfti m.a. að
verða sú breyting á að þjóðin ætti þess
kost, að fá beinar daglegar fréttir af mið-
unum og atburðum þar, frá fréttamanni
eða fréttamönnum um borð i varðskipun-
um.
Vissulega hafa klippingar varðskipanna
náð að trufla veiðar landhelgisbrjótanna,
og skulu þær á engan hátt vanmetnar, en
þegar stundum er klippt á marga togara á
dag, en á milli liða jafnvel vikur án þess
að klippt sé, þá hlýtur sú spurning að
vakna, hvort ekki sé mögulegt að gera
þrjótunum mun meiri usla, einmitt með
þessari aðferð.
Við islendingar metum mannslifið
hærra en almennt gerist i hörðum heimi,
og er það vel, en minnumst þess, að hótan-
ir Breta um að senda herskip á íslandsmið
þurfa ekki að skelfa okkur. Fiskveiðar
verða ekki stundaðar með árangri af flota,
sem safnast i hnapp undir verndarvæng
herskips. Slikar sendingar geta þvi orðið
til þess eins, að valda Bretum stórkostleg-
um álitshnekki á alþjóðavettvangi og
magna upp stuðning við okkar málstað,
lika i Bretlandi, ekki sizt nú, þegar íslend-
ingar hafa i tilboðum teygt sig jafn langt
til samkomulags og raun ber vitni.
Meðan Bretar og Vestur-Þjóðverjar
fást ekki til að fallast á samningstilboð
okkar má ekki sýna ofbeldismönnunum
nokkra linkind. Klippunum ber að beita
alls staðar sem við verður komið, og varð-
skipin verður að búa svo sem bezt er völ á
til togaratöku án mannhættu.
Sölustofnun lagmetis:
Tæknileg og matvæla-
leg úttekt framundan
A fyrstu fjórum mánuö-
um þessa árs er búið að
selja eða semja um sölu á
lagmeti að verðmæti 140
miljónir íslenzkra króna/ en
heildarútflutningur á árinu
1972 var að upphæð rúmar
200 miljónir króna. Þetta
kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Sölustofnun
lagmetis.
Nú eru 26 verksmiðjur aðilar aö
SL, en nokkrar verksmiðjur flytja
út beint meðan aðlögunartimi
stofnunarinnar stendur yfir, og
kemur sá útflutningur til viðbótar
þeirri tölu sem nefnd er að fram-
an.
Tæknileg úttekt
Þróun lagmetisiðnaðarins er
einn veigamesti liöurinn i starfi
SL og hefur verið samið við
norskan verkfræðing að gera
tæknilega úttekt á verksmiðjum i
lagmetisiðnaði. Hann hefur þegar
skoðað átta verksmiðjur og mun
haida starfi sinu áfram i sumar.
Matvælaleg úttekt
Gerð verður matvælaleg úttekt
á lagmetisiðnaðinum. Samning-
ur hefur veriö gerður við þekkt
fyrirtæki i Danmörku, sem hefur
sérhæftsigsem ráögjafafyrirtæki
i matvælaframleiðslu, þ.e. gerð
uppskrifta, notkun krydds, sósu-
gerð svo og gerð vörunnar fyrir
hina einstöku markaði. Fyrirhug-
að er, aö fyrirtæki þetta athugi
fyrst vörur þær, sem framleiddar
eru hérlendis, og vinni að endur-
bótum á framleiðslu þeirra. I
öðru lagi er verkefni þess fyrir-
tækis aö þróa nýjar tegundir úr
hráefni okkar og taka jafnvel nýtt
hráefni inn i framleiðsluna. Þá
mun fyrirtæki þetta einnig veröa
ráögefandi um notkun og sam-
ræmingu umbúða svo og útlit vör-
unnar.
mundsson, efnaverkfræðingur,
varaformaður, Böðvar Svein-
bjarnarson, framkvæmdastjóri,
Heimir Hannesson, lögfræðingur,
Kristján Jónsson, framkvæmda-
stjóri, og Pétur Pétursson,
alþingismaður.
Framkvæmdastjóri Sölustofn-
unarlagmetis er dr. Orn Erlends-
son.
Guðrún Hallgrimsdóttir
LÍV og VR boða Danmerkurferðir:
Fram og til baka
Framleiði SóLÓ-cldavélar af mörgum stærðuni og gerö-
uin. —rinkum hagkvæmar fvrir sveitabæi, sumarbiistaði
og báta.
— Varahlutaþjónusta —
Viljum sérstaklega henda á nýja gerð rinhólfa eldavéla
fyrir smærri báta og litla sumarbiistaði.
ELDAVkI/AVERKSTÆÐI
JÓIIANNS FH. KHISTJANSSONAR II.F.
KLEPPSVEGI 62. — SÍMI33069.
Áætlun fram til
ársins 1980
Þriðji þátturinn i þróunar-
áformum lagmetisiðnaðarins er
heildarúttekt á iðngreininni, þ.e.
framleiðsluhliðinni, og áætlunar-
gerð um framleiðslu og sölu fram
til ársins 1980. Slik úttekt hefur
aldrei verið gerð hér utan þeirra
rannsókna, sem fyrirtækið
Stevenson & Kellogg gerði á
fimm niðursuðuverksmiðjum
árið 1969. Mun starf þetta verða
unnið af starfsliði skrifstofu S.L. i
samvinnu við sérfræðinga frá
Iðnþróunarstofnun S.Þ.
Stjórn Sölustofnunar lagmetis
skipa eftirfarandi menn: Guðrún
Hallgrimsdóttir, matvælafræð-
ingur, formaður, Hörður Vil-
hjálmsson, viðskiptafræðingur.
Jón Arnason. alþingismaður,
Ólafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjöri, og Tryggvi Jóns-
son, framkvæmdastjóri.
I varastjórn eru: Jóhann Guð-
fyrir 7.800 kr.
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur og Landssamband isl.
verzlunarmanna hafa ákveöiö 3
ódýrar sumarleyfisferöir til Dan-
merkur i sumar á vegum ferða-
skrifstofanna Útsýnar og Úrvals.
Pyrsta ferðin verður farin 26. júni
og flogiö til Kaupmannahafnar og
dvalið þar i átta daga. Onnur
ferðin fer einnig 26. júni
og flogið til baka 19. júlf. Þessi
ferð tekur alls 25 daga og gefur
fólki m.a. kost á hinum vinsælu
Tjæreborgarferðum út frá Kaup
mannahöfn. Þriðja ferðin verður
farin 11. júli og komið til baka 28.
júli. Þessi ferð tekur 17 daga og
verður flogið frá Keflavik til
Billund á Jótlandi, en þaðan hefst
daginn eftir ferð til Rinarlanda.
sem áætlað er að standi i sex
daga. Þaðan verður farið til
Kaupmannahafnar og heim
verður komið eins og áður segir
28. júli. Einnig i þessari ferð er
hægt aö skipuleggja aörar feröir
fyrir þá sem þess óska.
Fargjaldið fram og til
baka, þ.e. Reykjavik-Kaup-
mannahöfn-Reykjavik, er aðeins
7.800 kr. og verður flogið með
þotu Flugfélags Islands.
Þegar til Kaupmannahafnar
eða Billund kemur, getur hver og
einn hagað ferðum sinum eftir
vild.
Úrval og útsýn munu útvega
þeim er þess óska gistingu á
hótelum og er verðið fyrir ein-
stakling frá 800,- kr. á dag,
morgunverður innifalinn, og fyrir
hjón eða tvö saman i herbergi frá
1440,- kr. á dag með morgun-
verði.
Allar frekari upplýsingar veita
fyrrgreindar ferðaskrifstofur,
ásamt skrifstofu V.R. Hagamel 4,
simi 26850 og skrifstofa Lands-
sambands Isl. verzlunarmanna,
Laugavegi 178, simi 81660.
(FráVRogLlV)