Þjóðviljinn - 09.05.1973, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 09.05.1973, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 9. mai 1973 Fimm ár eru nú liðin síðan ,/Vorið" gekk yfir Tékkóslóvakíu. Þá náðu þau öfl undirtökunum í kommúnistaflokki landsins sem voru staðráðin í því að skapa „sósíalisma með mannlegu yfirbragði" eins og það hefur verið orðað. i því fólst að tekin skyldu upp lýðræðisleg vinnu- brögð/ stefnt að þátttöku almennings í þjóðlífinu, jafnframt því sem hin sósíalíska undirstaða efna- hagsiífs skyldi treyst. betta gekk ágætlega, og er hægt að segja að vakning og hrifning hafi gripið um sig meðai þjóðarinnar. bað var eins og menn vöknuðu af dvala og minnt- ust nú þess, að það voru innlendir sósialistar studdir afli verkalýðs- stéttarinnar sem höfðu á friðsam- legan hátt náð rikisvaldinu af borgarastéttinni 20árum fyrr. Nú skyldi þetta rikisvald notað til þess að fólkið sjálft fengi þau lyð- ræðislegu áhrif sem þaö hafði svo lengi skort. Sótt skyldi fram til þeirra þjóðfélagshátta mann- gildisstefnu sem ekki átti sér neina beina fyrirmynd utan landamæra Tékkóslóvakiu. betta athæfi mætti nefna orðum Maós formanns: að láta hundrað blóm blómstra; en það mætti lika minnast kjöroröa á borð við það sem sett var á oddinn hér hjá verkalýðssamtökunum 1. mai: manninn i öndvegi! 1 efnahagsmálum bar brýna nauösyn til endurskipulagningar, þvi að miöstýring og skriffræði var alvarlega fariö að standa fyrir þrifum i framleiðslunni. bótti augljóst að meiri bein verkalýðsvöld mundu veröa þar mikill aflgjafi. A menningarsviðinu var mjög liflegt um að litast. Rithöfundar voru i fararbroddi þeirra sem unnu að lýðræðislegum breytingum og opnun þess sem áður hafði verið lokað. En allt stóð þetta undir merki sósíal- ismans. Innrás gegn sósíalisma betta átti aö vera til upprifj- unar á þvi, hvað „vorið” i Prag og annars staðar i Tékkóslóvakiu fyrir 5 árum var og hvaö það þýddi. óþarfi er að fara mörgum orðum um eftirleikinn, svo kunnur er hann. Valdhöfunum i Sovétrikjunum stóð ógn af frjáls- ræðisþróuninni i Tékkóslóvakiu, og það þvi fremur sem þeim var Ijóst að frelsi og lýðræði verður ekki frá innsta kjarna sósíal- ismans skilið. Hér var að þeirra mati á ferð þjóðfélagsþróun sem gat borizt með smitkenndum hætti land úr landi innan hern- aðarbandalags Sovétrikjanna og gerbreytt valdaaðstæðum þar. bað fannst þeim hættulegt sem trúa sannleik vopna en fyrirlita manninn og möguleika hans. bess vegna sáu Kremlarmenn sér þann kost vænstan að gera innrás i Tékkóslóvakiu i áliðnum ágúst 1968 til að stemma stigu við hinni „hættulegu” þróun. Afleiðingarnar eru alþekktar: Innrásarherinn fann enga skipu- lagða andstöðu við sósíalismann, heldur einhuga þjóð um þær þjóð- félagsbreytingar sem verið var að gera i anda sósíalismans. Smám saman tókst umboðs- mönnum hins erlenda valds að ryðja fyrri leiðtogum úr vegi og setja i staðinn sér þóknanlegri menn sem ekki stefndu að lýðræðislegri þátttöku almenn- ings i þjóðmálum. Stungið var upp i fjölmiöla og listamönnum gert skiljanlegt að þeir skyldu nú starfa „samkvæmt linu”. Lýðræðisþróun á vinnustöðum var stöðvuö, verkamannaráð leyst upp. reisa mikið Intercontinental— hótel, og sænskt fyrirtæki er að byggja eitt stærsta vöruhús Evrópu. Lögð er áherzla á ferðamanna- straum; i fyrra sneru sér við i Tékkóslóvakiu 11 og hálf miljón útlendingar- Nokkuð hefur áunnizt i efna- hagsmálum. Arið 1971 varð viöskiptajöfnuðurinn við útlönd loksins jákvæöur aftur. 1972 jókst iönaöarframleiðslan um 6,3%. A þvi ári tókst að lækka fram- leiðslukostnað um hálft prósent, og jukust tekjur manna að meðal- tali um 5,6%. Vinnuaflsskortur er mjög tilfinnanlegur. Fólk er ráöið i vinnu áður en þaö hefur að fullu lokiö skólanámi. Farið er að flytja inn útlendan vinnukraft, og vinna nú 18 þúsund Pólverjar i Tékkóslóvakiu, en þeir eiga að verða fleiri. Láta ekki bugast Hvernig er svo umhorfs i menningarmálum? Athugendum kemur saman um það, aö vald- hafar rekist nú sem fyrr á órofa samstöðu hjá menntamönnum og listskapendum. Allar tilraunir til að skapa sundrung hjá þeim hafi mistekizt. Meira að segja sé sam- staðan svo sterk, að þeir rit- höfundar og blaöamenn sem greiðari aðgang eiga til aö fá birt efni eftir sig hjálpi þeim félögum sinum sem eru i verri aðstöðu. Birti þeir fyrrnefndu texta eftir þá siðarnefndu undir sinum nöfnum. Vitneskjan um þessa málavexti hefur farið geysilega i taugarnar á yfirvöldum. Við miklar nauðir voru ný rit- höfundasamtök stofnuð meö einum 90 mönnum, aðallega starfsmönnum á bókmennta- sviðinu, en i rithöfundasamtökun- um gömlu voru á sinum tima 500 manns. bau voru leyst upp með valdi. Samt tókst ekki betur til en svo, að menn úr nýju samtök- unum skrifuðu undir áskorun til Svoboda forseta sl. haust um að pólitiskum föngum væri sleppt úr haldi (áætluð tala þeirra 5.200), en að áskoruninni stóðu fremstu menn meðal rithöfunda „vorið” góða, menn eins og Vaclav Havel og Ludvik Vaculik (höfundur 2 þúsund. orða ávarpsins frá sumrinu 1968). Menntamenn eru þvi almennt óbugaðir með öllu, þótt á þeim liggi þungt farg. begar blaða- mannrumJiri Lederer var sleppt úr fangelsi i desember sl. lét hann það verða sitt fyrsta verk að útbúa dómkröfu til að fá aftur þau skjöl sem lögreglan tók i sina vörzlu við handtöku. Meira en eitt þúsund blaða- menn misstu stöður sinar. T.d. i u tanrik ismá la deild flokks- ■blaðsins, Rude Pravo, eru aðeins tveir eftir af 16. Fengnir hafa verið ungir og óreyndir menn i staðinn á blöðin. Svipaða sögu er að segja af öðrum sviðum menningarlifs, t.d. úr leikhúsum. Af 48 leikhús- stjórum i Bæheimi og á Mæri hefur 41 gengið úr starfi. Helm- ingur leikara er nú atvinnulaus. Almennt séð er hægt að fullyröa, að i 4 ár hafi ekkert bókmenntaverk sem verulegur veigur er i séð dagsins ljós i landinu. Margir lærdómsmenn hafa misst embætti sin, og ganga hinar furðulegustu sögur af hálærðum prófessorum sem nú eru nætur- verðir, kyndarar og fleira slikt. Forustuhlutverk og fangelsanir Kommúnistaflokkurinn i Tékkóslóvakiu hefur glatað þvi trausti meðal almennings sem staðiö gæti undir nokkru eðlilegu forustuhlutverki. En einmitt þessi fáránlega ásökun um glötun forustuhlutverksins var ein helzta tylliástæöan fyrir innrásinni á sinum tima. bá stóð alþýða manna að baki flokknum og studdi endurbótastefnu hans, en nú eru þessi tengsl rofin. Hálf miljón manna hefur verið rekin úr flokknum fyrir óæskilegar skoðanir á eðli sósíalismans, og það eru ekki aðeins nokkrir menntamenn sem hafa hrökklazt úr fyrra starfi heldur hafa hundruð þúsunda manna oröiö fyrir atvinnuofsóknum. Sumarið 1972 voru 47 karlar og konur dæmd til samtals 118 ára fangelsisvistar fyrir stjórnmála- skoðanir sinar. Aður höfðu hundruð manna veriö dæmd fyrir sömu sakir eftir innrásina. Onnur málaferli af svipuðum toga eru talin i undirbúningi. Málaferlin fengu hinar verstu undirtektir meðal sósíalista erlendis, m.a. voru þau fordæmd hér i bjóöviljanum. Hinir dæmdu voru úr flestum hópum þjóðfélagsins, en áberandi kommúnistar voru dæmdir hvað Framhald á bls. 15. Krá hinni öldnu miðborg Prag. Er vetur eða vor í Prag? Neyzluþjóðfélag i sárabætur En hvernig er ástatt i Tékkó- slóvakiu nú, vorið 1973? Sjónar- vottar segja að æ meira beri á lifsþægindagræðgi meðal almennings i vestrænum stil. baö er eins konar lifsflótti og neyðar- úrræði fólks sem hefur fyllzt beiskju yfir þvi að fá ekki að beita sér að verðugri verkefnum. Yfir- völdin gera allt til að ýta undir þessa þróun. Lagt er upp úr eins fjölbreyttu vöruúrvali og efni standa til og fengna'r vestrænar vörur til tilbreytingar. Bilum fjölgaði um helming frá 1966 til 1970, og tala þeirra á að tvö- faldast aftur til 1975. I Prag, þeirri fögru borg borga, hefur mikið verið unnið að viðgerðum á gömlum bygg- ingum. bjóðminjasafnið skartar aftur i fyrri glæsileik, en það skaddaöist i innrásinni um árið. Verið er að byggja neðanjaröar- braut með sovézkri hjálp, og eru Rússum ekki alltaf vandaðar kveðjurnar þegar þeir sjást á förnum vegi. A bakka Moldár eru Bandarikjamenn að ljúka við að i júli 1968 sátu leiðtogar Tekkóslóvakiu og Sovétríkjanna i heila viku á lokuðum fundum i smábænum Cierna. Frá vinstri: Kossigin forsætis- ráðherra úr Moskvu, Cernik forsætisráðherra úr Prag og Dubeck, hinn vinsæli formaður kommúnistaflokksins i Tékkóslóvakiu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.