Þjóðviljinn - 09.05.1973, Side 15
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Skemmtun
Framhald af 3. siðu.
Skúlason og Randver Þorláksson
flytja þátt úr Sjálfstæðu fólki,
Nina Sveinsdóttir fer með
gamanvisur, sýndur verður
ballett og kómiskur kvartett,
LR-kvartettinn, sem skipaður er
þeim Gisla Halldórssyni, Jóni
Sigurbjörnssyni, Guðmundi Páls-
syni og Borgari Garðarssyni i for-
föllum Þorsteins Gunnarssonar
syngur og Sinfóniuhljómsveitin
flytur lagasyrpu eftir Oddgeir
Kristjánsson i útsetningu
Magnúsar Ingimarssonar og mun
þetta vera i fyrsta skipti sem
syrpa þessi er flutt hér i höfuð-
staðnum. Stjórnandi Sinfóniu-
hljómsveitarinnar er Páll P.
Pálsson.
Milli atriða koma fram sjón-
varpsstjörnurnar Gisli RUnar og
JUlius og skemmta fólki.—úþ
Aðaídeilan
Framhald af bls. 3.
kom fram ma., að Norðmenn
fengu löggjöfina um 9 ára skyldu-
námið 1969 og lögin tóku gildi
1971, en tilraunastarf með slika
skóla hafði farið fram frá 1960.
Eins og hér urðu i Noregi tölu-
veröar deilur um grunnskólalögin
og framkvæmd þeirra og standa
reyndar enn og sagði dr. Dokka,
að meðan norska stórþingið
fjallaði um grunnskólafrum-
varpið hefði rignt yfir það álits-
gerðum úr öllum áttum og borizt
hefðu um 4000 mótmæli.mest frá
kennurum. Voru þessir kennarar
einkum á móti lengingu skyldu-
námsins og báru við námsleiða
unglinga og agavandamálum i
skólastarfinu, en margir álitu, að
vera ætti frjálst val um 8 eða 9
ára nám.
Þingið samþykkti hins vegar
einróma 9 ára skólaskyldu, en að
hægt yrði i algerum undan-
tekningatilfellum að hætta námi
eftir 8 ára skólagöngu þegar um
væri að ræða unglinga, sem ættu
við svo mikinn vanda að striða, að
útilokað væri fyrir þá að vera i
skóla. t þessu sambandi bentu þó
ýmsir á, sagði dr. Dokka, að það
leysti ekki i sjálfu sér nein vanda-
mál að sleppa þessum unglingum
úr skóla meðan þjóðfélagið hefði
enga aðra staði né ráð til að
hjálpa þeim.
Hann sagði, að meginsjónar-
miðiö með breytingu grunnskól-
ans væri að jafna aöstöðu nem-
enda varðandi undirstöðumennt-
un, hvar sem væri i landinu, og
yrði ekki úr þessu horfið frá 9 ára
skólaskyldunni. Hins vegar væri
nú rætt, að hugtakið skóli ætti að
öðlast viötækari merkingu og
tengjast ef til vill meira atvinnu-
vegum landsins.
t nýju námsskránni fyrir 9 ára
skyldunámið er gert ráð fyrir
talsverðu valfrelsi skóla og
bekkjakennara og eru ekki gerð-.
ar neinar lágmarkskröfur i ein-
stökum greinum, eins og i fyrri
námsskrám. Jafnframt er gert
ráð fyrir, að einkunnir og próf
minnki að mun. Verða gefnar
einkunnir aðeins i nokkrum
grundvallarfögum þrjú siðustu ár
grunnskólastigsins. Nýja nám-
skráin hefur verið notuð frá 1971 á
barnaskólastiginu og frá 1973 á
unglingastiginu, þannig að þeir
fyrstu,sem lært hafa samkvæmt
henni, útskrifast úr grunnskólan-
um 1975.
Einn aðalvandinn, sem kennar-
ar og skólastjórarnir standa
frammi fyrir nú,er að ákveða
hvernig skipta skal i bekki eða
hópa, hvort raða skal eftir náms-
getu eða án tillits til hennar og
reyna að halda bekkjunum sam-
an til loka grunnskólans. Á til-
raunatimabilinu hefur mátt velja
um mismunandi hraða eftir getu i
aðalfögum, en nú er gerl ráð
fyrir, að unglingaskólarnir ráði
sjálfir, hvort þeir raða i bekki eft-
ir námsgetu i aöalgreinum eða
haldi saman bekkjum án tillits til
getu, sem er aðalstefnan. Þess
skal getið, að miðað er við 30
nemenda hámarksfjölda i norska
skólanum.
Samfara öðrum breytingum
skólakerfisins hljóta að fylgja
breytingar i menntun kennara og
er nú unnið að nýrri löggjöf um
kennaramenntun i Noregi. Hefur
stórþingið til meðferðar laga-
frumvarp um menntunarkröfur
til mismunandi kennararéttinda
og stofnanirnar, sem veita kenn-
aramenntun.
1 stórum dráttum er þar lagt til,
að almennu kennaraskólarnir
verði gerðir að uppeldisháskólum
og annist þá einnig fóstrumennt-
un og menntun fagkennara, svo-
sem handavinnukennara, iþrótta-
kennara o.s.frv. Er þá gert ráð
fyrir 3ja ára kennaranámi að
loknu stúdentsprófi eða jafngildi
þess i stað 2ja ára nú, en að nám-
inu loknu má ef vill bæta við sig
mismunandi viöbótarnámi. Með
4ra ára námi fá menn aðjúnkts-
réttindi og meö 6 ára námi
lektorsréttindi og er menntunin
ekki bundin við kennslu á ákveðn-
um skólastigum, sagði dr. Dokka
þótt framkvæmdin sé nú svo i
reynt, likt og hér, að kennarar
kenna á barnastigi, aðjúnktar á
unglingastigi og lektorar við
framhaldsskólana.
Dr. Dokka flytur fyrri fyrirlest-
ur sinn, sem hann nefnir „Den
norske grunnskolen — idé og
virkelighet” , i Norræna húsinu
annað kvöld, 10. mai kl. 20,30, en
þann siðari, „Lærerutdannelsen i
Norge”,á sama stað laugardag-
inn 12. mai kl. 17.00 — vh
Iðnrekendur
Framhald af bls. 2.
unni. Það er algert skilyrði þess
að islenzkur iðnaður geti staðizj;
erlenda samkeppni, að hann fái
að starfa við sömu aðstæður og
erlendir keppinautar.
Tryggja verður að islenzkir
framleiðendur njóti jafnréttis i
skattlagningu við erlenda keppi-
nauta sina. Nauðsynlegt er, að
þegar verði hætt mismunun inn-
lendra atvinnugreina eins og til
dæmis kemur fram i greiðslu
launaskatts. Þá er nauðsynlegt að
taka til alvarlegrar ihugunar
hvort hér skuli tekinn upp virðis-
aukaskattur i stað söluskatts sem
i öðrum V-Evrópulöndum.
Fella þarf niður, nú þegar, tolla
og söluskatt af fjárfestingarvör-
um og tolla á efnivörum til iðnað-
ar.
Verðlag á iðnaðarvörum verði
gefið frjálst nú þegar. Isienzkur
iðnaður hefur jafnan haldið niðri
verðlagi i landinu. Langvarandi
takmarkanir á eðlilegri verð-
lagningu innlendrar framleiðslu
geta hindrað uppbyggingu is-
lenzkra iðnfyrirtækja þannig að
þau muni ekki standast sam-
keppni á tollfrjálsum markaði
sem mun m.a. valda auknum inn-
flutningi og stórhækkuðu verðlagi
hér á landi og þar með lakari lifs-
kjörum i framtiðinni.
Ný stjórn
A nýafstöðnu ársþingi iðnrek-
enda var lýst stjórnarkjöri i
Félagi islenzkra iðnrekenda, fyr-
ir næsta ár. Stjórnina skipa nú
Gunnar J. Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri i Frigg, sem er for-
maður. Fyrsti varaformaður er
Davið Sch. Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri i Smjörliki hf„ og
annar varaformaður Kristinn
Guðjónsson, framkvæmdastjóri i
Stálumbúðum. Gjaldkeri er Björn
Þorláksson, framkvæmdastjóri i
Sanitas, og ritari Haukur
Eggertsson, framkvæmdastjóri
Plastprents.
Úr stjórn áttu að ganga Kristinn
Guðjónsson og Haukur Eggerts-
son, en voru báðir endurkjörnir.
Þá er formaður kosinn árlega.
Varamenn i stjórn voru endur-
kjörnir þeir Björn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri i Sportver, og
Pétur Pétursson, framkvæmda-
stjóri i Hydrol. Stjórnin hefur
þegar haldið sinn fyrsta fund, þar
sem fyrrnefnd verkaskipting var
ákveðin.
(Fréttatilkynning)
Prag
Framhald af bls 8.
harðast; þannig fékk Milan Hiibl
fyrrverandi miðstjórnarmaður
og forstöðumaður flokksskólans
6 1/2 ár og annar miðstj.maöui
sömu refsingu, stjórnmálafræð-
ingurinn Sabata. Milan Silhan
áður framkvæmdastjóri Sósíal-
istaflokks Tékkóslóvakiu hlaut 5
ára fangelsi, Tesarova sem kennt
hafði marxisk fræði við
háskólann i Brno 4 ár.
Þröngur valda-
grundvöllur
Ýmsir telja að Sovétmenn hafi
áhyggjur af þvi, hvað valda-
grundvöllurinn er þröngur undir
Husak og félögum sem nú fara
með æðsta vald i landinu. Telja
þeir að óþægindi gætu stafað af of
mikilli kreddufestu i Prag fyrir
viðræður sinar við vesturveldin
um það að draga úr spennu milli
austurs og vesturs. Kann að vera
að ýmis teikn um mildari stefnu
gagnvart menntamönnum og
„hægri mönnum” sem stundum
hefur orðiö vart siðasta árið hafi
tengsl við þetta sjónarmið Sovét-
manna. En einnig kunna ástæð-
urnar að liggja hjá ákveönum
tékkneskum valdamönnum sjálf-
um. 1 þessu sambandi er vitnað til
miþstjórnarfundar flokksins sl.
haust þar sem Indra, einn af
umboðsmönnum Kremlar, hélt
varfærna sáttaræðu. Husak
sjálfur er jafnvel taíinn vil’ja
ganga enn lengra til sátta við
menntamenn, en i forustu flokks-
ins eru lika harðlinumenn sem
tala af fyrirlitningu um slikar til-
slakanir.
Kadarismi eða
nýtt „vor"?
Lifið heldur áfram i Tékkó-
slóvakiu. En hvernig? — Um það
verður ekki reynt að spá hér.
Sumir telja að Husak og félagar
fái smám saman valdagrundvöll i
landinu, og kunni þá Husak að
auðnast að verða eins konar
Kadar, þ.e. hann veröi foringi
fyrir hófsamari þjóðernisstefnu
sem bæti lifskjörin og leyfi visst
frelsi sem ekki nær til almennrar
lýðræðisþátttöku, svipað og orðið
hefur i Ungverjalandi. Hægt og
hægt fyllist kommúnista-
flokkurinn af nýju fólki sem er
annara um eiginn hag á liðandi
stund en miklar hugsjónir, og þaö
gæti kannski skapað hinn þráða
grundvöll. A sl. ári gengu 50
þúsund manns i flokkinn og fjórir
fimmtu hlutar þess fjölda voru
innan við 35 ára aldur.
En það er lika vinstri andstaða i
landinu sem verður rakin beint
aftur til „vorsins” 1968 þótt það
fari ekki hátt hvort hún er skipu-
lögð og þá hvernig. En ýmsir
stjórnmálaforingjar frá 1968 sem
nú eru erlendis hafa beitt sér fyrir
sósíaliskum samtökum útlaga
Tékka og Slóvaka, og enginn vafi
er á þvi að þeir hafa tengsl við
fólk heimafyrir. Segja þeir að
Tékkóslóvakia sé eina landiö i
Austur-Evrópu þar sem starfi
pólitisk og sósialísk stjórnarand-
staða sem hreyfing. Stjórnarand-
staða þessi berjist ekki gen þjóð-
félagskerfi sósíalísmans heldur
gegn núverandi drottnunar-
formum. Hún sætti sig ekki við
lögreglurikið, miðstýringu þess
og skriffræði, enda eigi það sára-
litið sameiginlegt með sósialism-
anum. hj-
Lítið
Framhald af bls. 4.
þeirhafa tapað þessu mali að öllu
á alþjóðavettvangi og vilja þvi ná
samningum ofbeldinu hagkvæm-
ari. Og eitthvað hefur rofaö til um
skilning á þvi, að þeir séu með at-
ferli sinu að bæta fleiri dökkum
blettum á blettótta sögu sina. -i-
En megi hamingjan gefa, að bæði
Færeyingar og við höfnum öllum
kúgunarsamningum. — Við of-
beldismenn á ekki að semja.
En spyrja má:
Er ránskapur og ofbeldi Breta
og Þjóðverja i samræmi við lög
og reglur Nato og Sameinuðu
þjóðanna? Hafa stórveldin rétt til
að beita smáþjóöir Nato ofbeldi?
Nato-höfðingjar hafa heiðrað
okkur með heimsóknum og inn-
fjálgum ræðum um mikilvægi
herstöðva hér, i þágu heimsfrið-
ar, mátti skilja. En minnist nokk-
ur þess, að þessir sömu höfðingj-
ar hafi minnzt einu orði á að
vernda okkur gegn ofbeldi Breta
og Þjóðverja? Svo mun vist ekki
vera. Nato heimtar hér herstöð.
En Nato-þjóðir mega beita okkur
ofbeldi. Þá vitum við það.
Og hvar og hver er vernd
Bandarikjanna?
Með visvitandi blekkingum var
þjóðin færð inn i Nato. Þar höfum
við aldrei átt heima. Og þaðan
ber okkur að hverfa hið fyrsta. Og
bandarisku herstöðina ber að
þurrka Ut.
I dag er opið bréf til forsætis-
ráðherra, og mjög skarpar at-
hugasemdir i sambandi við land-
helgisgæziuna. Séu þær réttar, er
þörf skjótra leiðréttinga.
Klippa ber aftanúr hverjum
togara, sem unnt er, og færa til
hafnar, ef hægt er, án þess að
leggja varðskipsmenn i lifshættu.
Sektir ber að margfalda. — Og
hefur Nato og Sameinuðu þjóðun-
um veriðsend, hverri þjóð,undan-
dráttarlaus skýrsla yfir ofbeldis-
aðgerðir Breta og Þjóðverja?
„Þið semjið ekki, hvorki við
Surt né Bretann. Þið munuð sigra
þá báða. Landið er ykkar, miðin
eru ykkar.” Sagði Erlendur Pat-
ursson i hinu snjalla ávarpi sinu
1. mai. Þessi orð eiga að vera i
hug og vilja hvers tslendings.
Þvi meiri óbilgirni sem Bret-
inn sýnir, því meir herðist vilji
okkar og andstaða.
Bretinn sendir og verndar
hundruð sjómanna til að stunda
ránveiðar og þjófnað i islenzkri
landhelgi. Það er ódýrara en að
hlita vipskiptareglum og kaupa
fiskinn. En vafalaust er fjöldi
fólks i Bretlandi, sem er EKKI
ánægt með að hafa stolinn fisk á
borðum, og telur þaö illa hæfa
sóma þjóðarinnar.
En hversu lengi sem litilþægir
togaraeigendur og brezk rikis-
stjórn kann að halda áfram að
dýrka ofbeldið, lög undirheima-
lýös, þá munum við ekki vikja um
hársbreidd, heldur standa á rétt-
inum, og hvorki kyssa hönd né
vönd hinnar brezku hátignar.
UtanRokka
Hefur lánað
Framhald af bls. 7.
bréfaeign i árslok 1972 nam 537,8
miljónum króna.
A fundi stjórnar Iðnþróunar-
sjóðs var dr. Jóhannes Nordal
endurkjörinn form. til eins árs.
Aðrir, sem sæti eiga i stjórn
sjóðsins, eru: Frá Danmörku
H.Aaberg, forstjóri, frá Finnlandi
J. Lassila, seðlabankastjóri, frá
Noregi O.Chr. MUller, ráðu-
neytisstjóri, og frá Sviþjóð E.
Pettersson, skrifstofustjóri.
Þá hefur Bragi Hannesson,
bankastjóri, verið skipaður for-
maður framkvæmdastjórnar til
þriggja ára, en auk hans eiga nú
sæti i framkvæmdastjórninni
bankastjórarnir Helgi Bergs,
Jónas Ilafnar, Pétur Sæmundsen,
Stefán Hilmarsson, og fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs,
Þorvarður Alfonsson.
Hafnargarður
Framhald af bls. 16.
að byrja finhreinsunina á hafnar-
svæðinu vestast i bænum og nýta
til þess þann vélakost sem til er á
staðnum, en til að full nýting fáist
vantar fleiri tæki og þarf að bæta
við tveim ámokstursvélum.
Páll sagðist ekki reikna með, að
það sem unnið hefði verið að
hreinsun væri fyrir gig, þvi þótt
einhver aska félli yfir, væri mesta
magnið þá frá. Eins sagði hann,
að jarðfr?eðingar spáðu þvi, að
litið mundi falla yfir bæinn Ur
þessu og teldu þeir gosvirknina
komna niður i 1-2% af þvi sem var
i byrjun gossins.
Gjallinu er ekið vestur i hraun,
fyrst i vegi og siðan fyllt upp i
hraunið, en þar vestan við bæinn
hafði verið skipulagt framtiðar-
ibúöasvæði i áætlun sem náði til
ársins 2000. Þar var gert ráð
fyrir fjölbýlishúsum, en skipulag-
ið hefur nú verið i endurskoðun og
sagðist Páll búast við, aö þar yrðu
byggð einbýlishús i stað þeirra,
sem horfin eru og til að mæta
eðlilegri fjölgun. —vh
Úrslit
Framhald af bls. 11.
2. Úlfar úlfarsson 2:36,0
3. Orri Snorrason 2:52.0
Stúlkur min
1. Katrin Sveinsdóttir 2:38.0
2. Björk Harðardóttir 3:10.0
Keppcndur fæddir 1964 og siðar.
Ilrengir min
1. StyrmirSnorrason 3:15.0
Stúlkur min
1. Halldóra Guðjónsdóttir 3:20.0
2. Anna K. ólafsdóttir 3:45.0
Skólaslit
Framhald af bls. 10.
Við skólaslitin lék Gunnar
Egilson á klarinett við pianó
undirleik Halldórs Haraldssopar.
Setti það sérstakan svip á hátiða-
höldin, svo og söngur nemenda-
kórs Samvinnuskólans. Kórinn
söng undir stjórn Guðjóns Páls-
sonar, söngstjóra frá Borgarnesi.
Aður en heim var haldið, þágu
viðstaddir veitingar.
r
Oskar
Framhald af bls. 11.
Valtýsson frá Héraðssambandi
Suður-Þingeyinga, sem varð
þriðji með 5 vinninga.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir
fagra glimu, sem byggist á
glimuhæfni að mati þriggja
manna dómnefndar. Sigurvegari
þar var einnig óskar Valdi-
marsson Ungmennafél. Vikverja
með 164 stig, en næstir og jafnir
urðu Haukur Valtýsson HSÞ og
Guðmundur Einarsson frá Ung-
mennafélaginu Vikverja með 158
stig.
98 skipshafnir
Framhald af bls. 16.
fiskveiðilandhelgi um allan heim.
50 milur fyrir Islendinga”.
Skeytið sendu skipshafnir á
þessum skipum: Hringur GK,
Gisli lóös GK, Alftanes GK, Þór-
katla II. GK, Þórir GK, Harpa
GK, Mar GK, Grindvikingur GK,
Vöröur ÞH, Sigurbjörg GK,
Vörðunes GK, Askell ÞH, Agúst
Guðmundsson GK, Hrafn Svein-
bjarnarson III. GK, Guðmundur
Þórðarson RE, Sæþór KE,
Jóhannes Gunnar GK, Visir KE,
Oddgeir ÞH, Þorbjörn II. GK,
Sandafell GK, Þorbjörn GK,
Jósep Geir Ar„ Garðar RE,
Freyr., KE, Þorsteinn Gislason
KE, Jón Oddur GK, Þorlákur
helgi AR, Sandgerðingur GK,
Hamravik KE, Vonin GK, Hólm
steinn GK, Flosi IS, Ólafur II.
KE Bliki ÞH, Árnesingur AR
Þórkatla GK, Sigfús Bergmann
GK, Hraunsvik GK, Gissur AR,
Vonin KE, Sturlaugur AR, Vatns-
nes GK, Farsæll GK, Knarrarnes
GK, Sæljómi GK, Hegri KE,
Sigmundur Sveinsson RE, Vigfús
Þórðarson AR, Ólafur Magnússon
KE, Faxi GK, Haraldur AK,
Arney KE, Hafborg GK, Glaður
KE, Æskan SI, Bára GK, Bergþór
GK, Asgeir Magnússon GK, Ólaf-
ur Sólimann KE, Óli Tóftum KE,
Hópsnes GK.
Skeyti til dómsmálaráðherra:
„Mótmælum hvers konar
undanslætti og margendur-
teknum samningaviöræðum við
Breta og Vestur Þjóðverja um 50
sjómilna landhelgina.
Viö krefjumst aðgerða”.
Svona hljóðar skcyti, sent ólafi
Jóhannessyni var sent i fyrradag
og undirritað var af áhöfnum 36
háta, sem gerðir cru út frá
Breiðafirði.
F
Kvenfélag óháða
safnaðarins
Fundur n.k. fimmtudagskvöld
10. mai kl. 8.30. i Kirkjubæ.
Kaffiveitingar. Fjölmennið.
Börn og bækur.
M.F.l.K. gengst fyrir um-
ræðu- og kynningarfundi um
börn og bækur, i Lindarbæ
(niðri) miðvikudaginn 9. mai,
kl. 20.30.
Ilagskrá:
Erindi: Baldur Ragnarsson,
kennari: Börn, bækur og-
veruleiki. Olga Guðrún Árna-
dóttir og Vilborg Dagbjarts-
dóttir lesa úr eigin verkum.
Erindi: Simon Jóh. Agústs-
son, prófessor: Hugleiðing um
barna- og unglingabækur og
hlutverk þeirra.
Friða A. Sigurðardóttir flytur.
X'ilborg Dagbjartsdóttir les úr
verkum Stefáns Jónssonar.
Frjálsar umræður.
Bókahappdrætti.
Félagskonur eru hvattar til að
mæta og taka meö sér gesti.
Stjórnin
Kvenfélag Háteigs-
sóknar
minnir á fundinn i Sjómanna
skólanum i kvöld, miðviku-
dagskvöld.
Góð skemmtiatriði.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin