Þjóðviljinn - 19.05.1973, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 19.05.1973, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN I-augardagur 19. mal 1973 Franska byltingin I-II eftir Albert Mathiez, íslenzkuö af Lofti Gutt- ormssyni. Mál og menning — Reykjavik 1972-1973. Liklega hafa Islendingar aldrei átt eins mikið af bókum og á mið- öldum i hlutfalli við bókaeign ná- grannaþjóðanna og þekking þeirra á sagnfræði þeirra tima var slik, að þeirra hlutur varð mestur i ritaðri miðaldasögu Norðurlanda ; Margvislegar ástæður ollu þvi að islenzkt sam- félag staðnaði og þar með lifræn þátttaka i samtima Evrópuþjóð- anna. Hér voru sett saman rit- verk i miðaldastil fram á 19. öld varðandi sögufræði. Þegar Evrópuþjóðir tóku að endurskoða sögu sina, þá skrifuðu islenzkir þætti og frásagnir á keimlikan hátt og af sömu forsendum og gerðist á 13. og 14. öld úti hér. Fyrstu bækur, sem prentaðar voru hér á landi varðandi verald- arsögu og nýrri sögu voru Gott- fried Sehultzens: ný - yfirskoðuð heimskringla ... úr þýzku máli út- lögð á islenzku af séra Gunnlaugi Snorrasyni.... Hrappsey 1779 og „Chronologiae tentamen eður Tima-Tals Registurs Agrip Fraa Upphafe allra Skapaðra Hluta til vorra Daga....” eftir Halldór Jakobsson, prentað i Hrappsey, 1781. Þetta kver var ,,úr ýmsum Sagna-Meistara Skrifum, á hvörs dags Islenzku Samanlesið” eins og segir i titli og kom út átta árum fyrir frönsku stjórnarbyltinguna. Þá má lesa nokkuð um þá atburði i Minnisverðum Tiðindum, en rit um frönsku byltinguna hefur ekki komið út á islenzku fyrr en nú, höfundar byggja mjög á þeim i skrifum sinum. Þýðandi segir i formála að „sagnfræöi sé öðrum þræði endurtúlkun á fortíö i ljósi nútiðar” og á það vissulega við rit Mathiez ekki sizt varðandi rann- sóknir hans á efnahags- og sam- félagslifi, en mat I þeim efnum er stöðugt i deiglunni. Saga Mathiez er stjórnmálasaga reist á félags- fræðilegum rannsóknum. Hann lýsir i fyrstu kreppu gamla stjórnarfarsins, tætingslegu sam- félagi, þar sem miðaldaform stjórnarhátta og samfélagsskip- unar tafði og mismunaöi fram- sókn þeirra afla, sem áttu mestan þátt i efnahagslegri framvindu og aukinni fjármagnsmyndun. Auð- ug borgarastétt og efnaöri hluti bændastéttarinnar krafðist úr- bóta á samfélagsformi, sem kreppti að framkvæmdasemi og efnahagslegri útþenslu og heimt- aði afnám sérréttinda og skyn- samlegri stjórn efnahagsmála. Höfundur dregur upp mynd af frönskum landbúnaði, sem mjög stöðnuðum atvinnuvegi, en nýrri rannsóknir (t.d. Robert Forster: The Nobility of Toulouse in the Eighteenth Century. Baltimore 1960) benda til þess að með vax- andi fólksfjölgun hafi frönskum landbúnaði fleygt mjög fram einkum i nágrenni stærri borga á 18. öld og auk þess hafi vinræktin tekiö stakkaskiptum á siðari hluta aldarinnar. Þvi fór fjarri að borgarastéttin stæði ein að þess- um breytingum i landbúnaðinum, þar gætti ekki siður sveitaaðals- ins. Misræmi um kjör voru þess- vegna mikil úti á landsbyggöinni, framleiðslan var mest þar sem Borgarlýður Parísar leitar aðvopnum aöfaranótt 13. júll 1789, Siglaugur Brynleifsson: Franska byltingin sem er: Franska byltingin l-II eftir Albert Mathiez, islenzkuð af Lofti Guttormssyni. Mál og menning — Reykjavik 1972-73. Byltingarinnar er reyndar getið i þeim ritum sem Páll Melsted setti saman á öldinni sem leið og einnig hafa birzt þættir af bylt- ingunni i Mannkynssögu Máls og menningar, en það er allt og sumt. Rit Mathiez nær frá upphafi byltingarinnar og til 1794, hann ætlaði sér að rekja sögu bylting- arinnar allt til upphafs keisara- dæmisins, en úr þvi varð ekki. Rit þetta er nú eitt hinna sigildu rita um frönsku stjórnarbyltinguna, þótt margt hafi komið fram siðan brýtur Mathiez blað i rannsókn- um i þessum fræðum og siðari markaðsbúskapur var rekinn og kjör bænda sizt fjærst mörkuðum. Þáttur þeirra, sem sáu ibúum borganna fyrir korni var ekki lit- ill i atburðarásinni, þeir gátu oft ráðið verðlagi á aðalfæðu alls al- mennings i borgunum, en brauð- verðið mótaði oft afstöðuna til rikjandi stjórna á byltingaárun- um. Sumir höfundar álita að fall Robespierres hafi orsakazt af þvi, að efnaðir bændur i nágrenni Parisar hafi hamlað kornflutn- ingum til borgarinnar, sem leiddi af sér hækkað verð á brauði, en það varð til þess að „sans-culott- es,” sem þýðandi nefnir siðbux- ara, héldu að sér höndum þegar gert var út um örlög Robiespierr- es. Mathiez telur ýmsar ástæður svo sem kaupbindinguna og dýr- Arásin á Bastilluna 14. júli. tiðina, en dýrtiðin var mögnuð af fjandmönnum byltingarinnar. Lýsing höf. á Lúðvik XVI og drottningunni brýtur heldur betur þá hugmynd, sem rómantiskir skirffinnar reyndu að móta. Bak- tjaldamakk konungs við fjand- menn Frakklands og klaufalegar tilraunir hans til pólitiskrar und- irferli votta algjöra óhæfni hans, sem konungs og landstjórnar- manns. Hann var óliklegasti maöurinn til þess að móta eitt- hvað i áttina við þingbundna kon- ungsstjórn á Frakklandi. Hann hafði ekki lag á þvi að notfæra sér innri andstæður i flokki byltinga- manna, sem voru snemma hverj- um manni augljósar, ráðunautar hans voru pólitiskir ævintýra- menn og sérhagsmunaseggir, sem þáðu múturnar og klúðruðu málunum. Konungur gat vissu- lega sagt um þann söfnuð: Illt er að eiga þræl að einkavin. Oflin sem stóðu að byltingunni stefndu sitt I hvora áttina, efnaðir borgarar og bændur voru i and- stöðu við öreigahópa og smáborg- ara borganna og sveitaöreigana, landlitla og landlausa sveitaal- þýðu. Þætti bænda i byltingunni, bjargálna og öreiga eru gerð tak- mörkuð skil i riti Mathiez; þar hefur nokkuð verið unnið á siðari árum. íbúatala Frakklands um 1789 var kringum 25 miljónir og þar af bjuggu i Paris milli 524-660.000 (George Rudé). Meg- inhluti Frakka var sveitafólk, en það var sundrað og stéttarleg samstaða alþýðu i molum. „Ótt- inn mikli” brast á i mörgum hér- uðum landsins jafnframt bænda- uppreisnum, sem voru kveðnar niður með valdbeitingu og afsali aðalsins á forréttindum og léns- kvöðum. Margt hefur verið skrif- að um „óttann mikla” og ýmsar getgátur um uppruna hans. Frakkar mundu hryllingssögurn- ar sem gengu um bændaupp- reisnir fyrri alda, stórlega ýktar frásagnir. Borgarastéttin átti talsverðar jarðeignir i upphafi byltingarinnar og i þeim hópi voru háværustu raddirnar um að berja niður uppreisnir bænda miskunnarlaust, ótti borgarans um að missa eigur sinar hefur skapað sér Grýlu I uppreisnum bændanna og alizt á henni, magn- að hana með minningum um van- burða uppreisnir fyrri alda og ótt- ast það, að ef til vill myndi bylt- ingin vekja hinn mikla grúa Jóna, út um hinar dreifðu byggðir, sem var meginhluti frönsku þjóðar- innar. Með þvi hefði byltingin tekið þá stefnu, sem borgarastétt Frakklands æskti sizt. Höf. rekur gang byltingarinnar, valdabanáttu hagsmuna-hópa og hugsjónamanna, árásarstyrjaldir erlendra rikja og tengsl land- ráðamanna við þær. Höf. nær dramatiskri hæð i frásögninni af örlagadögum Frakklands, þegar öll höfuðrfki álfunnar stefndu herjum sinum gegn byltinga- stjórninni og hún sigraði fjand- mennina um leið og hún kvað nið- ur alla undanlátssemi innan- lands. Það var nóg af hálfvolgum og enn þá meira af landráðalýð, sem sigldu undir fölsku flaggi. Höfundur rekur alla þá sögu og getur hún verið þörf lesning nú hér á hjara heims, þegar erlendir aðilar þjarma að þessari þjóð, með stuðningi innlendra læðu- poka sem reyna á allan hátt að sundra þjóðinni i þeirri baráttu, sem hún á i. Klókir braskarar og pólitiskir spekúlantar vildu halda tengslunum við fornar vinaþjóðir Frakka, sem minnir á afstöðu sömu tegundar hér á landi, þessi misseri. Bókinni lýkur á falli Robe- spierres og flokksmanna hans, og er þar rakinn aðdragandi og ástæður fyrir uppreisninni gegn honum. Höfundi tókst að héfja Robespierre sem hinn óhvikula hugsjónamann og sýna Danton i sinni réttu mynd i atburðarás byltingarinnar. Lokaorð höf. um Robespierre og fylgismenn hans og lokaorð bókarinnar eru:— Varla getur eftirminnilegra dæmi um takmörk mannlegs vilja i glimu hans við tregðu hlutanna. Það er mikill fengur að þessari bók. Þýðandi hefur unnið verk sitt vandlega og af trúmennsku við frumtextann. Höf. segir i inn- gangsorðum, að bókin sé skrifuð fyrir upplýstan almenning og ætti þvi að vera vel þegin hér á landi. Siglaugur Brynleifsson Handlœkningadeild Fjórðungssjúkrahússins ú Akureyri vantar LÆKNARITARA til starfa nú þegar eða eigi siðar en 15. júni n.k. Starfið krefst góðrar vélritunarkunnáttu og stúdentspróf eða hliðstæðrar mennt- unar. Ráðningartimi minnst 1 ár. Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja starfsreynslu sem læknaritari. Upplýsingar um starfið gefnar i sima 12046 til kl. 16 virka daga.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.