Þjóðviljinn - 19.05.1973, Page 5
Laugardagur 19. mal 1973 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 5
„Þreytist aldrei á
íslenzku landslagi
Helgi Bergmann opnar
á sunnudaginn enn eina
málverkasýningu sína
og i þetta sinn að Hall-
veigarstöðum (á horni
Garðastrætis og Tún-
götu). Þetta er 13.einka-
sýning Helga hér i
Reykjavík,en hann hefur
einnig haldið f jölmargar
sýningar úti í sveitum.
Þá hef ur hann tekið þátt
i samsýningum.
Sýningin er mynduð af
verkum Helga frá síð-
ustu tveimur árum. Á
henni eru 50 myndir og
eru allar falar.
Helgi M.S. Bergmann er
fæddur i ólafsvik 15. nóvem-
ber 1908. Hann fluttist til
Reykjavikur árið 1925 og lærði
þar málaraiðn. Auk þess lagði
hann stund á listmálun.
Fyrstu sýningu sina hélt hann
i sal K.F.U.M. i Reykjavik, þá
aðeins 19 ára gamall. Sýndi
hann þá um 40 oliumálverk og
hlaut sýningin mikið lof.
Mörgum þótti það nokkuð
djarft af Helga að ráðast i sýn-
ingu svo ungur að árum og þar
að auki ómenntaður. Helgi lét
það ekki á sig fá og eftir að
hann hafði fengið birta af sér
mynd i dagblöðunum var hann
umsvifalaust tekinn i hóp
listamanna.
Arið 1937 sigldi Helgi til
Danmerkur og lærði þar list-
málun og skreytingar. Var
hann þar við nám i 4 ár og naut
til þess nokkurs styrks, bæði
að heiman og i Danmörku. I
þessari Danmerkurdvöl tók
Helgi þátt i nokkrum samsýn-
ingum.
Þótt Helgi hafi löngum verið
iðinn við málverkin hefur
hann þó gefið sér tima til að
leggja litina frá sér og taka
sér penna i hönd. Hann skrif-
aði þá háð um Viðreisnar-
stjórnina og kom sú bók út ár-
ið 1960. Hún var að vonum
mjög umdeild og þótti mörg-
um að Helga færi betur að
■ halda sér við pensilinn og
leggja ritstörf niður hið bráð-
asta.
— Helgi Bergmann er
óþreytandi i að mála lands-
lagsmyndir og er hann þvi
ferðagarpur hinn mesti.
Myndir hans á þessari sýningu
eru viðsvegar að á landinu og
allar málaðar á siðustu tveim-
ur árum. Helgi bregður sjald-
an á leik með penslana sina, er
frekar jarðbundinn og litt hrif-
inn af abstrakt myndum. Þó
er hann þeim ekki fráhverfur
og nokkrar abstrakt myndir
hans fengu að fljóta með á
þessa sýningu. Eins og áður
segir sýnir Helgi þarna 50
máiverk og eru-þau á verðinu
frá 12.000 — 38.000 krónur.
Dýrustu myndina kallar
Helgi „Hamraborgina” og er
hún tileinkuð þrem listamönn-
um, þeim Davið Stefánssyni,
Sigvalda Kaldalóns og Einari
Kristjánssyni.
Mynd nr. 50 er ekki til sölu
fyrir neitt fast verð. Helgi bið-
ur menn að bjóða riflega i
þesa mynd sem er frá Vest-
mannaeyjum. Söluverð mynd-
arinnar hyggst hann láta
renna óskert i Vestmanna-
eyjasjóð og hefur hann beðið
séra Þorstein Jónsson, fyrr-
verandi sóknarprest i Vest-
mannaeyjum, að koma fénu til
einhverrar fátækrar ekkju úr
Vestmannaeyjum sem hefur
fyrir börnum að sjá.
Sýning Helga Bergmanns er
opin á mánudögum og þriðju-
dögum frá klukkan 18—22 en
aðra daga vikunnar frá klukk-
an 14—22. Sýningin hefst
sunnudaginn 20. mai, (ein-
göngu fyrir boðsgesti) og
stendur til mánaðamóta.
Frú Agnete Helmstedt, náms-
stjóri fóstruskólanna i Dan-
mörku, dvelst hér á landi um
þessar mundir i boði Sjóðs Selmu
og Kay Langvads við Háskóla Is-
lands til eflingar menningar-
tengslum íslands og Danmerkur.
Hún flytur tvo fyrirlestra fyrir
almenning i Norræna húsinu
mánudag 21. mai kl. 20,30og mið-
vikudag 23. mai kl. 17,30. Fyrri
fyrirlesturinn nefnist: „Sam-
fundets generelle ansvar for smS-
börnene”,en hinn siðari: „Skole-
start, börnehaveklasser og
begynderundervisning i Dan-
mark”,
Sjóður Langvadshjónanna hef-
ur þegar unnið mikið og gott starf
til eflingar menningartengslum
tslands og Danmerkur, en sjóður-
inn var stofnaður árið 1964.
Póstmenn
styðja
landhelgis-
baráttuna
Aðalfundur Póstmannafélags
tslands, haldinn 26. april 1973,
lýsir fullum stuðningi við útfærslu
landhelginnar og þá alvarlegu
baráttu, sem þjóðin stendur nú i.
Fundurinn hvetur stjórnvöld til
harðari aðgerða gagnvart lög-
brjótum og þeim ofbeldisverkum
sem álitnar vinaþjóðir tslands
hafa i frammi.
Okkur vantar
fólk til að
bera út blaðið
Blaðberar óskast í eftir-
talin hverfi:
Skjól
Hringbraut
Hverfisgötu
Laugaveg 2
Námsstjóri
dönsku
fóstru-
skólanna
flytur erindi
Dómari i Pentagon-málinu
Málsaðstæður móðg-
un við réttlætiskennd
Upp komst að Watergate-hneykslið var nátengt
svonefndu Pentagon-máli. Þeir sem höfðu brotizt
inn i aðalbækistöðvar Demókrata i Watergate höfðu
einnig með aðstoð Alrikislögreglunnar brotizt inn
hjá sálfræðingi Daniels Ellsberg, sem hefur verið
fyrir rétti fyrir að hafa komið Pentagonleyniskjöl-
um um Vietnam á framfæri við bandariska fjöl-
miðla.
dollara i skaðábætur og til að
bera málskostnað sem þeir hafa
lagt út. Málaferlin hafa þegar
kostað þá 900 þúsund dollara.
Þegar það var tilkynnt i réttar-
sal að málið yrði látið niður falla
skýrði meirihluti kviðdómara frá
þvi, að þeir héfðu lýst Ellsberg og
Russo sýkna saka ef til þeirra
kasta hefði komið.
Daniel Ellsberg og kona hans ásamt Anthony Russo; þau hafa fengið
góðar fréttir.
Þegar ljóst var að svo hæpnar
aðferðir höfðu verið notaðar við
rannsókn máls Ellsbergs og fé-
laga hans Russos, sáu dómsyfir-
völd sér þann kost vænstan að
láta málið niður falla. Dómarinn,
Byrne, sagði við það tækifæri, að
hann hefði gjarna viljað að málið
hefði sinn gang, en „hegðun
stjórnvalda i málinu útilokar
heiðarlega meðferð þess i kvið-
dómi. Allar málsaðstæður eru
bein móðgun við réttlætiskennd”.
Nú ætla þeir Ellsberg og Russo
að höfða mál á hendur embættis-
mönnum Nixonstjórnarinnar, og
krefjast þeir tveggja miljóna
Fyrstu 5 leikirnir
í útvarpsskákinni
Otvarpsskák milli tsiands og Gunnarsson og Terje Vibe sem
Noregs hófst í útvarpinu i gær- tefla. Vibe hefur hvltt, en Gunnar
kveldi. Það eru þeir Gunnar svart og hér koma fyrstu 5 leik
1. e2-e4 c7-c5
2. Rgl-f3 d7-d6
3. d2-d4 c5xd4
4. Rf3xd4 Rg8-f6
5. Rbl-c3 a7-a6
Þess má svo að lokum geta að
leikirnir verða birtir I fréttum út-
varpsins kl. 19 á hverjum degi þar
til skákinni er lokið. —S.dór