Þjóðviljinn - 31.05.1973, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 31.05.1973, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 31. mal 1973 af erlendum vettvangi Watergate-yfirheyrslurnar að hefjast fyrir rannsóknarnefnd. Er Richard Nixon forseti Bandaríkj anna ? 1 tilefni af komu Nixons til Is- lands er full ástæða til að spyrja sem svo: þaft i raun og veru rétt kjörinn forseti Bandarikj- anna sem er að koma hingaö? Og menn skulu ekki halda aö þetta sé einhvcr hótfyndni sem Þjóðviija- menn eða þeirra nótar hafa búið til. Kftir þvi sem lengra llður á Watergatcmál og fleiri skugga- hliðar koma fram á starfscmi þeirra manna sem unnu að end- urkjöri Nixons i fyrra, þeim mun fleiri verða til að spyrja hvort Nixon ætti I raun ekki að segja af sér. Kða eins og rólynt bandariskt -fréttavikurit, Newsweek, segir, þann 28. mai: „Leit forsetinn cnn svo á að kosningarnar 1972 væru honum rétt umboð?” (genuine mandate). Blaðalesendur hafa mjög haft hugann við sjálft innbrotið i Watergate-húsið, simahleranir i þessum aðalbækistöðvum Demó- krataflokksins og þar fram eftir götunum. Sjálfur fáránleiki þess innbrots hefur, eins og brezka blaðið Sunday Times benti á fyrir skemmstu, dregið hug manna frá þvi, hve hér er um stórt mál, margþætt og langþróað, að ræða. Watergatehneykslið var ekki ein- stakt afbrot nokkurra ofurkapp- samra stuðningsmanna Nixons, heldur hlekkur i langri keðju. Óttinn við ósigur Mörg þau skuggalegu verk sem koma fram i dagsljósið við athug- un Watergatehneykslis höfðu þegar af stað farið árið 1971, jafn- vel fyrr. Menn verða að hafa það i huga, að þá leið að þvi, að út- nefndir yrðu frambjóðendur til forsetakjörs, og skoðanakannanir sýndu, að Richard Nixon stóð mjög höllum fæti. Hann naut meðal aimennings sýnu minna fylgis en helztu oddvitar demó- krata, Edmund Muskie, Hubert Humphrey og Edward Kennedy. McGovern var þá ekki enn i sviðsljósi, og vinir Nixons, Ehr- lichman, Haldeman og fleiri, hjuggu eftir þvi, að Nixon virtist þó hafa meira fylgi en hann. Þvi var það fyrsta ætlunarverk þess- ara manna, sem sumir hverjir höfðu brallað ýmislegt ljósfælið með Nixon i Kaliforniu áður fyrr, að sjá svo til, að einmitt McGovern færi i framboð gegn Nixon. Kosningabarátta eyðilögð Til þess þurfti fyrst að eyði- leggja kosningabaráttu þessara manna. Ehrlichm'an hafði enn fyrr leigt spióninn Ulaszewicz til að safna öllu þvi efni sem Edward Kennedy mætti til bölvunar verða isambandi viðslys það;sem hann ’ lenti i með ungri stúlku á eynni Chappaquiddick. En Kennedy dró sig fremur fijótt sjálfur út úr átökum um framboð af hálfu Demókrata. Þá var röðin komin að hinum.Gordon Liddy, einn af þeim sem brutust inn i Water- gate, var sendur til Las Vegas og brauzt þar inn hjá útgefenda ein- um, en þar héldu menn geymdar upplýsingar sem kæmu sér illa fyrir Edmund Muskie. Siöan ein- beittu þessir sömu náungar sér að þvi að eyðileggja kosningabar- áttu Muskies fyrir hinar mikil- vægu prófkosningar i New Hampshire. Þar voru t.d. blökku- menn sendir heim til hvitra milli- stéttarmanna segjandi sem svo, að þeir væru fulltrúar „Harlem- nefndar með Muskie ”, Falsbréf- um var dreift i nafni verklýðsfor- ingja eins m.a. þess efnis, að Muskie hefði kallað afkomendur Frakka sem eru allmargir i rik- inu „canucks” sem er talið heldur vont uppnefni. Ruglandi sim- hringingar, fölsuð boðsbréf og margt fleira i þeim dúr gerðu það að verkum, að kosningavél Musk- ies hrundi gjörsamlega saman. Svo fór að lokum að Muskie grét af reiði fyrir framan sjónvarps- vélar, og það má ekki i Banda- rikjunum. Muskie var búinn að vera. Hann gat ekki „keep smil- ing” — haldið áfram að brosa, eins og Nixon kann og er lifsnauð- syn i þvi stóra sjónvarpslandi. Mörg fleiri dæmi mætti nefna i þessum dúr. Það voru t.d. nánir samstarfsmenn Nixons i Hvita húsinu sem létu vikublaðið Time hafa efni sem laut i senn að hómó- sexúalisma (stundum kallað kyn- villa) og frjálslyndum öldungar- deildarþingmanni, Tydings. Svo fór að Tydings tapaði þingsæti sinu. Eagleton og fleiri Þegar svo McGovern hafði hlotið útnefningu, þá var það eðli- legtáframhald á þvi sem á undan var komið, að reyna að eyðileggja kosningabaráttu hans. Það var hægri hönd Nixons, Ehrlichman, sem hafði orðið sér úti um heim- ildir um að Thomas Eagleton, sem McGovern hafði fengið með sér sem varaforsetaefni, hefði gengið til sálfræðings vegna streitu. Og það var hann sem kom efni þessu á framfæri við blöð ein- mitt þegar það kom Demókrötum verst. Mikil aðferð var að borga ungum hómósexúalistum kaup fyrir að sækja kosningafundi McGoverns og hafa þar sem hæst um stuðning sinn við hann. Þetta vareittaf mörgum afbrigðum við aðferðirnar i New Hampshire — að hræða „venjulegt” fólk frá stuðningi við andstæðinginn með þvi að tengja við hann sem mest af „hættulegu” fólki (blökku- mönnum, hommum, kommum o.s.frv.) Það hefur lika komið mætavel fram, að handlangarar Nixons höfðu firna góða aðstöðu til alls þessa. Þeir óðu i peningum. Þeg- ar i fyrra hafði Nefnd til endur- kjörs Nixons undir höndum 1,7 miljónir dollara i reiðufé, sem hvergi hafði verið gerð grein fyr- ir, og voru þá hvergi nærri öll kurl komin til grafar. Og það hefur nú vitnazt, að þessir sömu aðilar hafa notað 900 þúsund dollara (um 80 miljónir króna) til þess eins að reyna að þagga niður Watergatemálið — m.ö.o. i mútur til meðsekra og embættismanna. Lögleysa Sjálft Watergatehneykslið er þvi aðeins angi af langri og harð- vitugri viðleitni Nixonsliðsins til að forðast þann kosningaósigur sem virtist blasa við árið 1971. Vissulega varð ýmislegt annað til að bæta stöðu Nixons en þessar aðferðir — t.d. leyniheimsóknir Kissingers og opinberar heim- sóknir Nixons sjálfs til Peking og Moskvu. En engu að siður er það ljóst, að mikill hluti af þvi starfi sem miðaði að þvi að endurkjósa Richard Nixon i forsetaembætti byggði á þvi að hunza og fótum troða lög og rétt, að maður nú ekki tali um siðgæðið. Og þvi spyrja menn i Newsweek sem annarsstaðar: Er umboð Nixons raun verulegt? Newsweek hnykkir á með þvi að segja, að „undir stjórn Nixons hafa Banda- rikin reynt hægfara valdspillingu sem leiddi til þess að brotin voru lög og siðgæði og endaði i hrein- um og beinum lögreglurikisað- ferðum”. Washingtonblaðið Evening Star óttast, að menn muni síðar lita á Watergatemálið, málaferlin gegn Daniel Ellsberg og fleira i þeim dúr sem „áfanga á leið til einræðis”. áb tók saman. Fundur Alþýöubandalagsins í Vesturlandskjördæmi Enga samninga viö Breta Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins i Vesturlandskjördæmi hélt fund 26. mai sl. Þar voru samþykktar tvær áskoranir, önn- ur til utanrikisráðherra, en hin til forsætisráðherra. Fara þær hér á eftir. Hr. forsætisráðherra Ólafur Jó- hannesson, Forsætisráðuneytinu, Reykjavik. Fundur kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins i Vesturlandskjör- dæmi haldinn hinn 26. mai 1973 sendir rikisstjórn Islands eftir- farandi áskorun: Engir samningar gerðir við Breta, hvort heldur flotinn verður innan eða utan islenzkrar fisk- veiðilandhelgi. Forsendur þessarar áskorunar eru eftirfarandi: Að með brottför brezkra veiði- skipa úr islenzkri landhelgi þ. 17. mai s.l. eru viðurkennd yfirráð Islendinga innan 50 milna fisk- veiðilögsögu. Að koma brezka flotans inn i is- lenzka fiskveiðilögsögu ónýtir öll fyrri samningstiiboð til handa Bretum. Að árásin á fullveldi Islands kemur i veg fyrir allar frekari samningaviðræöur við Breta. Að samningar við Breta eftir hina freklegu árás væru móðgun við þær þjóðir, sem virt hafa landhelgi okkar, og þær þjóðir, sem leitað hafa samkomulags með friðsemd. Hr. utanrikisráðherra Einar gústsson, Utanrikisráðuneytinu, Reykjavik. Fundur kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins i Vesturlandskjör- dæmi haldinn hinn 26. mai 1973 sendir rikisstjórn Islands eftir- farandi áskorun: Að þegar í stað verði staðið við ákvæði málefnasamnings rikis- stjórnarinnar um brottför hers Atlanzhafsbandalagsins frá Is- landi. Rikisstjórnin er minnt á, að nær tvö ár eru liðin frá gerðmálefna- samningsins og þvi ljóst, að her- stöðvamálinu hefur verið ýtt til hliðar. Slikt er illt, þar sem rikis- stjórnin hefur sýnt verulegan vilja til að standa við önnur á- kvæði samningsins. I nýkjörinni stjórn kjördæmis- ráðs Alþýðubandalagsins i Vest- urlandskjördæmi eiga sæti: Formaður Halldór Brynjúlfsson Borgarnesi, varaform. Gunnlaugur Bragason Akranesi, ritari Jenni R. ólason Borgar- nesi, gjaldkeri ólafur Guðmundsson Grundarfirði, meðstj. Guðmundur M. Jónsson Akranesi. Varamenn: Skúli Alexandersson Hellissandi, Sigrún Gunnlaugsdóttir Akra- nesi. Endurskoðendur: Hermann Hjartarson Ólafsvik, Haraldur Guðmundsson Ólafsvik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.