Þjóðviljinn - 31.05.1973, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 31.05.1973, Qupperneq 13
Fimmtudagur 31. mai 1973 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Hann vissi ekki hvort Lissa sæi hann, en hann veifaði róandi i átt til hennar. Eins og api klifraði hann upp að glugganum og reyndi hvern einasta þakstein með hönd- unum áður en hann lagði þungann á hann. Glugginn var opinn, en það var net fyrir honum. Innanúr herberginu barst dauft ljós, það var náttlampi, en Andy gat ekki greint annað en óljósar útlinur húsgagnanna. Hann tók upp skærin og klippti netið úr ramm- anum. Eftir andartak stóð hann inni i herberginu, sannkölluð taugahrúga af eftirvæntingu. Nú sá hann greinilega,og hann stundi af feginleik. 1 fjarlægasta horninu, hinum megin við hjóna- rúmið, stóð vagga. t henni lá sof- andi barn — Drew, hvislaði hann. — Drew. Hannlæddistá tánum að vöggunni og rétti ósjálfrátt hand- leggina eftir syni sinum. Hann stanzaði og starði. Barnið sem hreyfði sig órólega i svefnin- um og sneri andlitinu i átt til hans. . . það var ekki Drew. Það var litla stúlkan sem hann hafði séð við fyrri heimsóknina i Spin- drift-krána. Sonur hans sást hvergi. Hann stóð þarna eins og lamað- ur. Vonbrigðin ætluðu að yfirbuga hann. Hafði honum skjátlazt svona hrapallega? Eða — það sem verra var — var allt um sein- an? — Það getur ekki verið, tautaði — Það versta við hóphjóna- bandið okkar er það, að nú hangir þrisvar sinnum meira af sokkum og nærbuxum til þerris i bað- herberginu. hann. — Það er engin sanngirni i þvi. Hann heyrði uml. Sem snöggv- ast hélt hann að hugmyndaflug hans sjálfs væri að gera honum glennu. Þá heyröi hann hljóðið aftur. Andy einblindi á litlu stúlk- una i vöggunni, en hún svaf vært. 49 Hann fékk ákafan hjartslátt. Annað barn, rétt hjá. Dyrnar að fataskápnum voru i hálfa gátt. Andy reif þær upp. A gólfinu var vindsæng — og á henni litil vera. Náttlampaskinið féll á glóbjarta hárið, lokkana sem Lissa hafði ekki getað fengið af sér að klippa af. Andy kraup hjá syni sinum. Drew lá á maganum með hnén undir sér og bakhlutannn upp i loftið. Hann var óhreinn i framan og i sömu náttfötunum og hann ! hafði verið i, þegar honum var rænt. En hann var á lifi og óskaddaður. Varir hans hreyfðust eins og hann væri að totta ósýni- lega geirvörtu. Andy gat með naumindum stillt sig. Varlega tók hann upp litla kroppinn, lyfti syni sinum ofur- hægt til að vekja hann ekki. Þeg- ar hann lagði drenginn loks að brjósti sér, gat hann varla stillt sig um að þrýsta honum fast að sér, svo sæll var hann. Hann klifraði út um gluggann og varlega niður flisaþakið. Drew þrýsti sér að honum i köldu næturloftinu, en hann vaknaði ekki. Við þakbrúnina stanzaði Andy. Með erfiðismunum hafði honum tekizt að lyfta sér upp með báðum höndum, en hann kæmist aldrei örugglega niður á sama hátt. Með Drew i fanginu haföi hann varla aðra höndina lausa. Or svefnherberginu kvað við hátt væl. Litla stúlkan var vöknuð og vildi fá að drekka. Eftir andar- tak færi Rene Pyle upp á loftið. Og i næstu andrá myndi hún. . . Hann mátti engan tima missa. Með Drew i fanginu stökk hann niður. í myrkrinu gat hann ekki áætlað fjarlægðir, og Drew kom honum til að missa jafnvægið. Hann kom þunglega niður á ver- andargólfið og fann hvernig ann- að hnéð sveik hann. Gömlu rugby- meiðslin höfðu aldrei verið hon- um til trafala. Að vissu leyti höfðu þau komið honum að gagni, þvi að þeirra vegna hafði hann komizt hjá herþjónustu og ekki hlotið frama i lögreglunni — ef til vill var öll velgengni hans þessum meiðslum að þakka. En þau höföu valið þennan tima til að taka sig upp. Hann valt fram yfir sig, en lenti þó ekki ofan á barninu. Fóturinn gat ekki borið þunga hans. Hann skreið aö verandarbrúninni. Lissa var þar. Meira að segja I myrkrinu voru augu hennar geysistór af ofvæninu. — Andy! Þú ert meö hann. Er hann ómeiddur? — í finu lagi. Drew fór að gráta. Andy rétti Lissu hann. — Taktu hann og komdu þér burt héðan. Hlauptu! — Hvað um þig? — Ég get það ekki, ég hef eyði- lagt á mér löppina. — Þá verð ég kyrr. — Enga vitleysu, i guös bæn- um, stundi hann. — Þú verður að koma þér burt, Lissa. Það er eina tækifærið okkar. Þau verða kom- in á slóð okkar eftir eina minútu. Ljósið i svefnherberginu var kveikt. Þau heyrðu Rene kalla: — Jói! Hub! Komið hingað upp undir eins! — Ég ætla að tefja fyrir þeim, sagði Andy i ofboði. — Mér tekst það áreiðanlega. Þeir eru að hugsa um Drew, ekki mig. Lissa trúði á lygi hans. — Ég kem til baka með hjálp. Hún þrýsti Drew að brjósti sér og hljóp út i myrkrið. Andy heyrði grátinn i litla drengnum, löngu eftir að myrkrið hafði gleypt þau. önnur hljóð kölluðu á athygli hans. Þau hrópuðu hástöfum uppi i svefnherberginu, kenndu hvert ööru um. Hub hallaði sér út um gluggann meö sama tryllingslega reiðisvipinn og hann hafði séð á honum kvöldið sem hann mis- þyrmdi Crystal Tower. Hann hvæsti. — Viö hefðum heyrt i bil. FIMMTUDAGUR 31. mai 8.00 Fréttir um komu Nixons og Pompidous og frá mót- mælaaðgerðum af þvi tilefni. Væntanlega veröur öðru skotið inni ef fréttnæmt þykir. Lengd fréttatimans er ó- ákveðin, en hann verður blandinn auglýsingum og veðurfregnum. FÖSTUDAGUR 1. juni 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Karlar i krapinu.Itustar I rekstri.Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.25 lleimsókn Nixons og Pompidous. Fréttaþáttur um komu Bandarikjafor- seta og Frakklandsforseta til Islands og fundarhöld þeirra i Myndlistarhúsinu 22.15 Frá Skiðamóti isiands, Siðari hluti. Svipmyndir frá keppni á skiðalandsmótinu 1973, sem haldið var á Siglu- firði um bænadagana. Kvikmyndun Þórarinn Guðnason. Umsjón ömar Ragnarsson. 23.00 Dagskráriok. FIMMTUDAGUR 31.mai Uppstigningardagur 8.00 Morgunandakt Séra Sigurður Pálsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir • 8.15 Létt morgunlög Amerisk- ar hljómsveitir leika létt lög. 9.00 Fréttir. útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar a. Sinfónia nr. 40 i g-moll (K550) eftir Mozarta. Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur, Colin Davis stj. b. Lög eftir Sibelius. Tom Krause syngur. Pentti Koskimes leikur á pianó. c. Dúett konsertinó fyrir klari- nettu og fagott með strengjasveit og hörpu eftir Richard Strauss. Oskar Michallik, Jörgen Buttke- witz og útvarpshljómsveitin i Berlin leika, Heinz Rögner stj. d. ,,Lofið Guð i himna- riki”, kantata nr. 11 eftir Bach. Kathleen Ferrier, Ena Mitchell, William Her- bert, William Parsons og Kantötukórinn syngja ásamt hljómsveit undir stjórn Reginald Jacques. Kynnir: Guðmundur Gils- son. 11.00 Messa i Neskirkju Prest- ur: Séra Frank M. Halldórsson. Organleikari: Jón Isleifsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tiikynningar. 13.00 A frivaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Siðdegissagan: „Páfinn situr enn i Róm” eftir Jón Óskar Höfundur les (4). 15.00 Miðdegistónleikar a. Egmont-forleikur eftir Beethoven. Concertgebouw- hljómsveitin i Amsterdam leikur. Eugen Jochum stj. b. Sinfónia nr. 98 i B-dúr eftir Haydn. Hljómsveitin Phil- harmonia leikur, Otto Klemperer stj. c. Fiðlukon- sert i D-dúr op. 77 eftir Brahms. Zino Francescatti leikur með Filharmóniu- sveitinni i New York. Leon- ard Bernstein stj. 16.15 Veðurfregnir Kór Menntaskóians i Hamrahlíð syngur andleg lög. Þorgerð- ur Ingólfsdóttir stjórnar. 16.25 Popphornið 17.10 Barnatimi: Agústa Björnsdóttir stjórnar Vorið erkomið: Séra Árni Pálsson sóknarprestur flytur hug- leiðingu um vorið og sumar- ið/ Hjalti Aðalsteinn Július- son, Margrét Flóvenz og Kristin tvarsdóttir, öll úr 1. bekk Þinghólsskóla, lesa sögur og ljóð, — og einnig les Hjálmar Arnason sögu/ Fjórar systur frá Breiða- nesi i Gnúpverjahreppi syngja nokkur lög/ Lesið bréf til barnatimans. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Ilaglegt mál Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.35 Landslag og leiöir Berg- sveinn Skúlason flytur fyrra erindi sitt um Múlasveit. 20.00 Gestur i útvarpssal Ein- ar Grétar Sveinbjörnsson leikur með Sinfóniuhljóm- sveit tslands Fiðlukonsert i G-dúr (K216) eftir Mozart, og er jafnframt stjórnandi. 20.25 Leikrit: „Dregur að þvi, er verða vill” eftir Hugrúnu Samið út frá Rutarbók. Leikstjóri: ÆvarR. Kvaran Persónur og leikendur: Naomi: Þóra Borg. Rut: Helga Bachmann. Orpa: Sigriður Þorvaldsdóttir. Bóas: Rúrik Haraldsson. Ráðsmaður: Guðjón Ingi Sigurðsson. Þulur: Ævar R. Kvaran. 21.00 Frá samsöng Karlakórs- ins „Fóstbræðra” i Austur- bæjarbióii þessum mánuði. Söngstjóri: Garðar Cortes. Undirleikari: Krystina Cortes. Flutt er Sálumessa i d-moll eftir Luigi Cherubini. 21.45 A jörð ertu kominnLjóð eftir Birgi Sigurðsson. Höfundurinn og Margrét Helga Jóhannsdóttir leik- kona lesa. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir „Gamla konan”, smásaga eftir Ber- tolt Brecht Bjarni Bene- diktsson frá Hofteigi is- lenzkaði. Erlingur E. Halldórsson les. 22.35 Danslög 23.55 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. Föstudagur 1. júni. 7.00 Morgunútvarp, Veður- fregnir kl. 7.00 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.) 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45 Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Helga Hjörvar byrjar að lesa söguna „Það er fill undir rúminu minu” eftir Jörn Birkeholm i þýðingu Clfs Hjörvar. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunpopp kl. 10.25: Hljómsveitin Blodwyn Pig syngur og leikur og Cat Stevens syngur. Fréttir kl. 11.00 Morguntónieikar: ttalski kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 2 i D-dúr eftir Borodin./ Sinfóniuhljómsveit tón- listarskólans i Róm leikur Sinfóniu nr. 4 i Es-dúr op. 48 eftir Galzúnoff. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tiikynningar. Tónleikar. 13.30 Með sínu lagi. Svavar Gests kynnir lög af hljóm- plötum. 14.30 Siðdegissagan: „Páfinn situr enn i Róm” eftir Jón Óskar. Höfundur les (5). 15.00 Miðdegistónleikar: Maria Callas, Giuseppe di Stefano og hljómsveit Scala- óperunnar i Mflanó flytja atriði úr óperunni „La Bohéme” eftir Puccini. Antonio Votto stj. Fil- harmóniusveitin I Los Angeles leikur „Feste Roman” eftir Respighi; Zubin Metha . stj. 15.45 Lcsin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tilkynningar. 16.20 Popphornið. 17.10 Tónleikar. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill. 20.00 Tónleikar.a. Svita nr. 4 i D-dúr eftir Bach. Hátiðar- hljómsveitin i Bath leikur; Yehudi Menuhin stj. b. Hornkonsert nr. 2 i Es-dúr (K 417) eftir Mozart. Hljóm- sveitin Philharmonia i Lundúnum leikur. Ein- leikari: Alan Civil. Stjórn- andi: Otto Klemperer. c. Sinfónia nr. 9 i C-dúr eftir Schubert Rikishljómsveitin I Dresden leikur; Wolfgang Sawallisch stjórnar. 21.30 Útvarpssagan: „Músin, sem læðist” eftir Guðberg Bergsson.Nina Björk Arna- dóttir les (12). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Þættir úr sögu Bandaríkjanna.Jón R. Hjálmarsson skólastjóri flytur erindi: Andlegt lif og ófriðablikur. 22.35 Létt músik á síðkvöldi, Ferrante og Teicher leika vinsæl lög, Jordamairs syngja og bandariskir lista- menn flytja atriði úr söng- leiknum „Fiorello” eftir Jerry Bock og Sheldon Harnick. 23.30 Fréttir i stuttu máli.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.