Þjóðviljinn - 05.08.1973, Síða 5
Sunnudagur 5. ágúst 1973.ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
Flökun og pökkun stóð sem
hæst i frystihúsinu i Bakkagerði
er blm. bjóðviljans kom þar fyrir
skömmu og á gömlu bryggjunni
fyrirneðan voru trillubátarnir að
landa hver af öðrum.
Agæt vinna hefur verið i frysti-
húsinu i sumar, að þvi er Sigur-
steinn Jóhannsson verkstjóri þar
sagði i stuttu viðtali, og vinna þar
að staðaldri 28 manns, 10 karlar
og 18 konur. Hafa bátarnir aflað
mjög vel að undanförnu, aðallega
veitt þorsk og fengið hann út af
Glettingi.
Tiu trillur eru nú gerðar út frá
Borgarfirði og tveir 11 tonna
bátar. bykir trillukörlunum gott
ef þeir geta róið fram i október.
sagði Sigursteinn. en stærri
bátarnir tveir halda áfram á linu i
haust.
begar vinnan við fiskinn minrrk-
, Sigursteinn Jóhannsson ar tekur slátrunin við og er ekki
verkstjóri tekið á móti fiski á meðan. 1 fyrra
Frá Borgarfirði eystra
Mikil atvinna
og ný höfn í
undirbúningi
Krvstihúsið i Bakkagerði. KIIB þýðir Kaupfélag Héraðshúa.
*
var slátrað um 6 þúsund dilkum i
Bakkagerði og bjóst hann við, að
það yrði amk. ekki minna nú. Er
nýbúið að gera talsverðar endur-
bætur i frystihúsinu, ma. hefur
hreinlætisaðstaða verið bætt og
innréttuð ný kaffistofa starfsfólks
og er þar nú mjög vistlegt að sjá.
Höfnin hefur valdið Borg-
firðingum nokkrum erfiðleikum,
er bryggjan gömul orðin og
varnarveggur molnaður að ofan,
enda brimar yfir hann i roki.
Verst er þó, hve aðgrunnt er við
Bakkagerði og verður td. að fara
út á pramma til að afgreiða
strandferðaskipin, þar sem þau
geta ekki lagzt að bryggjunni.
betta ástand stendur nú loks
til bóta og eru byrjaðar hafnar-
framkvæmdir við Höfn, bæ útmeð
firðinum sunnanverðum. Hefur
þar i sumar verið keyrt grjót i
varnargarð, sem á að ná úr landi
úti svokallaðan Hafnarhólma.
beim áfanga mun lokið i sumar
og siðan væntanlega haldið áfram
næsta sumar.
Byggingaframkvæmdir hafa
verið nokkrar i Borgarfirði og
nýlega var vigt þar nýtt félags-
heimili.
—VH
llandaflið, cn ckki kranar. I.öndun á gömlu bryggjunni.
Undirbúningur að lang-
þráðri höfn í Borgarfirði
eystra er nú loks hafinn og
á að gera hana við bæinn
Höfn, þar sem mjög
aðgrunnt er við byggða-
kjarnann í Bakkagerði.
Talsverð vinna hefur
verið i frystihúsinu í
Borgarfirði í sumar og
bátar þaðan hafa aflað vel
að undanförnu.
Hann var failegur fiskurinn, sem þær voru að pakka, enda hráefnið ferskt, beint úr trillunum