Þjóðviljinn - 05.08.1973, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNlSunnudagur 5. ágúst 1973.
UÚBVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Ctgefandi: tltgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb>
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ftéttastjóri: Eysteinn Þorvalds$on
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 Hnur)
Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi
Lausasöluverö kr. 18.00
Prentun: Blaöaprent h.f.
EINFALT MÁL
Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir
þeirri staðreynd, að alls ekki er vist, að
hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna
komist á næsta ári að niðurstöðu um við-
áttu efnahagslögsögu. Hafréttarráð-
stefnan gæti staðið mörg ár. íslendingar
hafa i einni sérnefnd Sameinuðu þjóðanna
lagt fram tillögu um 200 milna auðlinda-
lögsögu og sá stuðningur, sem slik eða hlið-
stæð tillaga kann að fá á hafréttarráð-
stefnunni, er beinlinis undir þvi kominn
hversu íslendingum tekst að tryggja
fullnaðarsigur i landhelgismálinu. Sú
mikla hreyfing, sem náðst hefur i land-
helgismálum er fyrst og fremst að þakka
forustu Islendinga. Þeim mun ein-
dregnari, sem afstaða okkar er til 50
milnanna, þeim mun meiri likur eru á
okkur hagstæðum úrslitum hafréttarráð-
stefnunnar. Svo einfalt er þetta mál og
þessum staðreyndum gleyma íslendingar
ekki.VindbelgurinniiVisi getur engu breytt
um þessa meginstaðreynd.
SJÁLFSTÆÐIS-
VIÐLEITNISMÁRÍKJA
Smáriki Evrópu hafa á undanförnum
árum — einkum eftir heimsstyrjöldina
siðari — sætt sig — nauðug — viljug — við
að utanrikispólitiskar forsendur væru
ákveðnar af stærri og öflugri rikjum. Milli
stórveldanna Sovétrikjanna og Banda-
rikjanna urðu átök eftir striðið — kalda
striðið — sem setti svip sinn á alla afstöðu
smárikjanna. Vald þessara stórvelda og
áhrif yfirgnæfði jafnvel þjóðlega hags-
muni smárikjanna, sem hölluðu sér að
stórveldunum eftir svokallaðri skiptingu i
áhrifasvæði. Þegar smáriki sem sliku var
ógnað á einn eða annan hátt var litið á það
sem ógnun frá öðru stórveldinu:
samningar milli rikja yfir múra hins
kalda striðs voru litnir hornauga — stund-
um voru heilu sendinefndirnar önnum
kafnar við að eyðileggja verzlunar-
samninga eða menningarsamninga, sem
brutu i bága við formúlur stórveldanna..
Stórveldin hafa þannig haft bein áhrif á
alla afstöðu smárikjanna, ekki aðeins
utanrikispólitiskt, heldur einnig i innan-
landsmálum. Þannig hafa stórveldin með
Marshall „hjálp” og efnahagssamstarfi
alls konar freistað þess að gera smárikin
háð sér. Þessi stefna stórveldanna hafði
tilætluð áhrif: forsvarsmenn smárikjanna
urðu æ sljórri fyrir getu þjóðar sinnar til
að standa á eigin fótum. Sumir fylltust
beinni vantrú á þjóð sina og er viðreisnar-
stjórnin á íslandi ákaflega skýrt dæmi um
það.
En á siðustu árum er þetta að breytast
— smárikjunum i vil. Klúbbur hinna riku
getur ekki lengur vaðið að vild sinni i auð-
lindir smárikjanna. Þau eru i vaxandi
mæli að taka völdin i sinar hendur og þau
krefjast þess um leið að fá sjálf að nýta
auðlindirnar. Glöggt dæmi um þetta eru
fjölmörg riki i Suður-Ameriku og Afriku.
En við skulum lika lita okkur nær og gera
okkur grein fyrir þvi,að landhelgisbarátta
íslendinga er hliðstæð auðlinda- og þar
með sjálfstæðisbaráttu annarra smá-
rikja. Landhelgisbarátta okkar er i
fyrsta lagi efnahagsleg: — til þess að
tryggja möguleika okkar á að lifa
menningarlifi á íslandi. í öðru lagi er
landhelgismálið barátta upp á lif og dauða
fyrir komandi kynslóðir á íslandi og i
þriðja lagi eru Islendingar nú að heyja
baráttu, sem kemur öllum þjóðum
heimsins að notum: íslendingar eru að
varðveita matarforðabúr fyrir heiminn og
það fólksfjölgunarvandamál, sem er yfir-
vofandi á næsta árabili krefst þess, að
matarauðlindanna verði sérstaklega gætt.
Það er þvi ljóst, að sjálfstæð stefna
íslands i landhelgismálinu er liður i við-
leitni allra smárikja i heiminum i dag til
þess að losna úr viðjum stórveldahags-
muna, sem hafa mótað heimsmyndina að
eigin vild siðustu áratugi.
GÓÐA FERÐ
Sennilega er um helmingur landsmanna
á ferðalögum um þessa helgi. Þjóðviljinn
óskar þeim öllum góðrar ferðar og minnir
um leið á nauðsyn góðrar umgengni við
landið. Enginn islenzkur ferðalangur má
bregðast skyldum sinum i umgengninni
við landið og náttúru þess nú fremur en
endranær.
Rætt við samgöngumálaráðherra, Björn Jónsson
Hafnarframkvæmdirnar
miða að auknu
viðlegurými fiskibáta
Á miðvikudaginn gaf
Seðlabankinn út frétta-
tilkynningu þess efnis,að
Alþjóðabankinn hefði
ákveðið að veita íslend-
ingum um 600 miljóna
króna lán til hafnar-
framkvæmda til að bæta
hafnaraðstöðu Vest-
mannaeyjabáta og að
unnið yrði að aukinni
hafnargerð I Þorláks-
höfn, Grindavik og á
Höfn i Hornafirði.
Þá var einnig skýrt
frá þvi, að rikissjóður
muni afla i 300-400
miljóna króna láns til
sömu framkvæmda.
Þjóðviljinn sneri sér
til Björns Jónssonar,
samgöngumálaráð-
herra, og spurðist nánar
fyrir um þessar fram-
kvæmdir.
— Hefur verið ákveðið hvernig
rlkissjóður útvegi þær 300-400
miljónir, sem ætlunin er að hann
leggi beint fram til þessara fram-
kvæmda?
— Ég get nú ekki svarað þvi
beint. Það hafa komið fram hug-
myndir um það, en málið er
þannig vaxið,að ég get ekki svar-
að þessu, þvi málið er enn á
athugunarstigi. Ég get þó sagt,að
það standa nokkuð góðar vonir til
að það verði ekki sérstaklega
erfitt.
— Eftir að rlkiö hefur lagt fram
þá upphæð, sem talað er um verð-
ur um einn miljarö að gera. Hefur
veriö ákveðið hvernig upphæðin
skiptist á þessar þrjár hafnir?
— Það er ekki hægt að gefa upp
neinar ákveðnar tölur I þessu
sambandi, en það hefur verið gert
ráð fyrir, að framlag til hámarks-
framkvæmdanna gæti orðiö um 1
miljarður.
Tölur um hvernig fram-
kvæmdaféö skiptist niöur á hafn-
irnar eru með verulegum fyrir-
vörum, þvl eftir er aö hanna stór-
an hluta framkvæmdanna. En
samkvæmt þvl, sem við gerum
ráð fyrir er Grindavfk með allt að
375 miljónum I heildina, Þorláks-
höfn með 600 miljónir og Höfn I
Hornafirði með 30 miljónir.
— Er búiö að ákveða hvaö
aöallega verði framkvæmt á
þessum stöðum?
— Aö no"kkru leyti er búið að
ákveöa þaö. Ef við tökum Grinda-
vik fyrst, er þar um að ræða að
bæta hafnaraðstöðuna eins mikið
eins og mögulegt er á yfirstand-
andi ári, þannig að þær fram-
kvæmdir komi til góða á næstu
vertið. Siðan verði svo á næsta ári
unnið aö frekari framkvæmdum
þar, til dæmis endurbótum á inn-
siglingarrennu. Gert er ráö fyrir
þvi, að aukning á viðlegurými I
Grindavik verði með þessu móti
fyrir 25 báta.
Um Þorlákshöfn er það að
segja, að þar koma nokkrir val-
kostir til greina til að bæta hafn-
araðstööuna og skapa öryggi
fyrir öllum áttum og veörum, er
gert ráð fyrir að viðbótarrými
geti skapazt fyrir allt að 40 báta.
Þessar framkvæmdir eru þó
ekki lengra á veg komnar en það
að þær eru ennþá óhannaöar. Eft-
ir er að prófa möguleikana I
módeli, en búið er að semja um aö
það verði gert úti i Danmörku,
þannig aö ekki er enn fullljóst
hvaða kostur verður valinn.
— Það verður þá ekki unniö við
framkvæmdir á öllum þessum
stöðum I einu. 1 Þorlákshöfn
verður eingöngu unniö aö undir-
búningi þetta árið, en hins vegar
er vonazt eftir að framkvæmdum
verði það langt komið á árinu 1974
að þær komi að gagni nokkurn
veginn fullgert á vertið 1975.
Hins vegar er gert ráð fyrir þvi
að verkinu á Höfn verði hraöaö
svo að framkvæmdir þar komi að
notum á vertiðinni I vetur, og
gæti skapað pláss fyrir um það bil
10 báta.
— Framkvæmdirnar eru þvi
aðallega miöaöar við aukið við-
legupláss og löndunarrými?
— Já, fyrst og fremst fram-
kvæmdir,sem miða að þvi að geta
tekiö við fleiri skipum.
— Eru þessir þrir staðir þannig
búnir verkunarhúsum, aö þeir
geti sjálfir tekið að sér vinnslu
þess fisks, sem þangað berst I
auknum mæli á land, eða er ætl-
unin að keyra hann á aðra verk-
unarstaði?
— Grindavlk hefur áreiðanlega
ekki aðstöðu til að verka allan
fisk sem þangað gæti borizt á
land eftir að höfnin er fullgerö, og
Þorlákshöfn ekki heldur. Þannig
veröur það vafalaust þannig til að
byrja með, að fiskurinn verður
fluttur á aðra staði, en siðar kem-
ur vissulega til athugunar um
aukningu íiskiðjunnar á þessum
stöðum,
— Er það, sem nú er I bigerð
eftir þeim hugmyndum, sem
kjörin þingmannanefnd, sem ætl-
aö var það starf að gera tillögur
um hafnarframkvæmdir á Suður-
landi, hefur látiö frá sér fara?
— Það má segja, að þetta sé
unniö út frá því nefndaráliti, og
fullt samræmi sé þar á milli.
— Hugmyndin um höfn viö
Dyrhólaey er ekki inni i þessu
prógrammi nú, eða hvað?
— Nei. Það er I raun og veru
alveg sérstakt mál. Möguleikarn-
ir á aö leysa akkúrat þessi mál á
þessum þremur stööum, eru
bundnir við það, að verið sé að
bæta um eftir hamfarirnar I Vest-
mannaeyjum. Þessir þrlr staðir
standa næst þvl að geta komizt
fljótt I gagnið, og alla vega á þvi
timabili, sem við gerum ráð fyrir
að eftirhreiturnar af Vestmanna-
eyjavandanum séufyrir hendi, og
llka framkvæmdir, sem Alþjóða-
bankinn, eftir rannsókn, er fús að
lána fé til, og þannig gert þetta
mögulegt.
Höfn við Dyrhólaey kæmi hins
vegar ekki I gagnið fyrr en eftir5-
6 ár I fyrsta lagi, en þá má segja
að Vestmannaeyjavandamál
verði úr sögunni. Hins vegar get-
ur það alltaf verið á sinum stað og
athugun á þvl ef við teljum það
hagkvæm't að byggja nýja höfn
þar og nýjan bæ. En það er sér-
mál sem ekki verður tengt við
þetta.
— A þeim stöðum þrem, sem
hafnarframkvæmdir verða nú
gerðar á, hefur verið skortur á
vinnuafli, að minnsta kosti yfir
vetrarmánuðina. Er ekki viðbúiö
að straumur fólks liggi til þessara
staða frá þá öðrum minni stöö-
um?
— Það má búast við þvl,að I bili
verði nokkur vertlðarbragur á
þessum stöðum, eins og við
þekktum hann frá eldri tlö. Hins
vegar er þarna tvennt, sem ekki
endilega þarf að vera samtengt,
þaö er afkastagetan á þessum
stöðum og möguleikar báta til að
setja fisk á land, þvl samgöngur
við þessa staði eru nokkuð góöar
og fullir möguleikar á að dreifa
hráefninu til annarra staða, sem
ekki hafa kannski nægilegt hrá-
efni.
— Er gert ráð fyrir, að leggja
þurfi i mikinn kostað við höfnina I
Vestmannaeyjum til þess aö
koma henni I fullt gagn aftur?
— Þar eru mikil verkefni fyrir
hendi. Sérstaklega varðandi það,
að höfnin hefur um leiö og hún
batnaði með hraunrennslinu og
orðið kyrrari, hefur horfið
straumur, úr henni þannig að
þarna hefur orðið mikil mengun,
sem aö meðal annars mun koma I
veg fyrir það, að fiskur verði unn-
inn þarna i frystingu að verulegu
marki á næstu vertið. Það verður
þvi töluvert stórt mannvirki.sem
bara þarf að gera út af því einu.
Þar að auki hafa svo hús og
mannvirki við höfnina skemmzt.
En það mál teljum við að sé fyrst
og fremst mál Viðlagasjóðs, og
eftir atvikum eðlilegar hafnar-
framkvæmdir eftir venjulegum
leiðum.
— Ef dregin er saman aukning
viðleguplássins I þessum þremur
höfnum Björn, þá veröur hún
hver?
— Það yrðu 25 báta aukning I
Grindavík og 10 á Höfn fyrir
þessa vertið, en Þorlákshöfn
kæmi svo meö 40 báta rými á
næstu vertlð þar á eftir. Það hefur
verið taliö varlegt að reikna með
þvl, að um það bil þriðjungur
Vestmannaeyjaflotans yrði ekki
horfinn til Eyja 1975 þannig að
vandamáliö verður þá einnig
fyrir hendi. — úþ