Þjóðviljinn - 05.08.1973, Síða 9
Sunnudagur 5. ágúst 1973., ÞJóÐVILJINN — SIÐA 9
Aðstaöa lækna úti
á landsbyggðinni
er mjög misjöfn
Rætt við Ólaf Ólafsson, landlækni
Þjóðviljinn náði í gær tali
af landlækni, ólafi ólafs-
syni, en hann er nú á förum
í visitanzíu i læknishéruð á
Norðausturlandi og á Aust-
fjörðum, og spurði hann
hvernig ástatt væri nú í
læknamálum í dreifbýlinu.
— Ástand læknamála dreifbýl-
isins er meö betra móti þetta
sumar, sagöi Ólafur. öll læknis-
héruö eru setin. Tæpur helmingur
læknishéraöa er setinn af fast-
skipuöum læknum. Innan viö 20
héruö eru setin af settum læknum
til lengri eöa skemmri tima, eða
læknakandidötum. 10 læknishér-
uö eru setin af nágrannalæknum.
— Þýðir þetta að það góða á-
stand sem nú rikir i læknamálum
landsbyggöarinnar standi ekki
nema til hausts, þar sem nokkur
hluti starfandi lækna er aðeins
settur og hluti þeirra eru kandi-
datar?
— 1 og meö mætti kannski álita
þaö. Þó er langt siðan tekizt hefur
að manna læknishéruð yfir sum-
artimann eins vel og nú. Næsti
vetur er aö visu áhyggjuefni. Þó
er von til aö takast megi aö
manna flest héruðin, þvi tölu-
verður hópur ungra lækna hefur
fengið styrki og lán til náms, en
þvi hefur fylgt sú skylda, að þeir
eigi aö gegna þjónustu i héraöi i
eitt ár.
Ég hef borið fram við lækna þá
tillögu, að einmenningshéruö, en
þar vilja menn siður gegna af
mörgum ástæðum, svo sem þeim,
aö á læknum slikra héraða hvilir
sifelld vaktskylda, að i slikum
héruðum tækju þrir eða fjórir sig
saman, og gegndu þeim og ná-
grannahéruðum, þannig að sami
maður þyrfti ekki að vera heilt ár
i senn i einmenningshéruðum;
heldur skiptu þeir árinu með sér,
en störfuðu þess á milli á stærri
heilsugæzlustöðvum. Læknar
hafa tekið mjög vel undir þessa
tillögu.
Hitt er svo annað, og á þaö hef
ég lagt mikla áherzlu siðan ég tók
við þessu starfi, að útbúa þessi
héruð vel, þannig að það eigi ekki
að hindra að menn fáist þangað,
en það hefur einmitt gert mörg
þessara einmenningshéraða
mjög fráhrindandi fyrir lækna
hversu tækjabúnaði hefur veriö
ábótavant, og sum hver mjög illa
útbúin. Þvi hvernig sem fer, að
ekki verði þar læknar staðsettir i
framtiðinni heldur verði slikum
stööum gegnt frá heilsugæzlu-
stöð, verður eigi að siður aö vera
aðstaða fyrir hendiá slikum stöð-
um, þannig að læknir sem færi
þangað hefði aðstöðu til að sinna
lækningum þar.
— Það heyrast stundum raddir
um það, að læknamál höfuöborg-
arinnar hafi verið vanrækt á
kostnað dreifbýlisins, og sizt auð-
veldara sé fyrir fólk hér aö fá til
■ sin lækni en fyrir dreifbýlisfólk að
komast til læknis. Teluröu að
þannig sé i raun og veru málum
komið?
— Ef maður veikist hér i höfuð-
borginni kemst hann til læknis, og
þeirri þjónustu þurfum við að
koma upp úti á landi, að fólk geti
komizt til læknis. En slikt er ekki
fyrir hendi þar viða.
Hitt er annað mál, að það er
margt i ólestri hér i höfuðborginni,
sem mætti laga, og ég held að
það, að við getum ekki náð i lækni
hér á svipstundu, sé á nokkrum
misskilningi byggt. Ef menn
verða alvarlega veikir og ná ekki
til heimilislæknis sins, er hverj-
um sem er heimilt að biðja um
sjúkrabil, sem kemur þeim á
sjúkrahús. Þessu má ekki
gleyma, að þessa þjónustu hefur
fólk úti á landsbyggðinni ekki.
Þess vegna leggjum við höfuðá-
herzluna á það núna að útbúa
læknisstöðvar i dreifbýlinu þann-
ig, að hægt sé að koma fyrir góðri
læknisþjónustu þar.
— Þú ert að fara i visitaziu
núna, ólafur. Hvert er feröinni
heitið?
- Ég ætla að fara á Norðaustur-
land og Austfirði. A helgum hef ég
farið um Suðurland, i júni fór ég
um Skagafjörð, Húnavatnssýslur,
Borgarfjörð og Dalasýslu. Mér
finnst gott og nauðsynlegt að
komast á sem flesta læknisstaði
og ræða þá ekki einvörðungu við
læknana, heldur einnig sveitar-
stjórnirnar.
— Og aðkoman er misjöfn?
— Það er nú upp og niður.
Sums staðar er aðstaðan ekki
góð. Sums staðar er ekki haldið
við læknamóttökunum og læknis-
bústöðunum. Sums staðar vantar
tækjabúnað. Og eins og ég sagði
áðan leggjum við höfuðáherzlu á
aö bæta úr þessu og búa þessi hér-
uð tækjum og bæta aðbúnaðinn,
og höfum til þess fullan stuðning
heilbrigðisráðherra, þvi við verð-
um að gæta þess að skapa ekki
slikt ástand, aö i höfuðborginni
einni séu fullkomnustu sjúkrahús
Framhald á bls. 15.
Þetta segja ungir íhaldsmenn um flokkinn sinn
Hvað segja ungir Sjálfstæðismenn um
Sjálfstæðisflokkinn? Þeirri spurningu má
fá ýtarlega svarað i nýlegu hefti Stefnis,
málgagns Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna. Eins og kunnugt er, er yfirgnæf-
andi meirihluti unga fólksins i landinu i
fullri andstöðu við Sjálfstæðisflokkinn og i
þeim hópum á þessi flokkur fylgi sem
samsvarar i mesta lagi 10% eða ámóta og
hægriflokkarnir hafa i nágrannalöndum
okkar. Þeir úr hópi yngstu kynslóðar sem
af kynlegum orsökum hafa leiðst undir
merki Sjálfstæðisflokksins velta þvi eðli-
lega fyrir sér. hvers vegna þeir séu svo
einangraðir sem raun ber vitni um.
Flestir vitum við raunar svarið við þeirri
spurningu, en miklu fróðlegra er að hlýða
á þeirra eigin orð. Þess vegna birtir Þjóð-
viljinn hér nokkra orðrétta kafla úr um-
ræðum ungra Sjálfstæðismanna um Sjálf-
stæðisflokkinn. Það skal tekið fram —
áður en við gefum ungum ihaldsmönnum
orðið — að ummæli þeirra um flokkinn
voru tekin upp á skrifstofum Morgun-
blaðsins og með sérstakri aðstoð ritstjór-
anna þar. Blaðalesendur vita aftur á móti
hversu ritskoðunarvinnubrögðin eru i al-
gleymingi á þeim skrifstofum þannig að
án alls efa hefur verið skorið út úr um-
mælum ungu ihaldsmannanna eitt og
annað — en það er engu að siður fróðlegt
að lesa það sem hér fer á eftir. Millifyrir-
sagnir eru blaðsins.
Þá rikir lögmál
merkurinnar!
(Um val manna á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins) „Fámennir hópar innan sjálf-
stæðisfélaganna velja og hafna i þessu til-
liti i skjóli valdaaðstöðu sinnar og þá skipa
þeir jafnan trygga fylgifiska sina og sálu-
félaga sem fulltrúa viðkomandi félags á
landsfundinn.
Sé torfa fylgifiskanna of þétt og valið
reynist erfitt fyrir „stórlaxana” reyna
smáfiskarnir, hver sem betur má, að ota
fram sinni totu i von um náð og pólitiska
upphefð. Má með sanni segja að þá riki i
fylgifiskatorfunni hið svokallaða „lögmál
merkurinnar.” Sá sterki sigrar þann
veikari!”
Hverfasamtökin: Traglskur feigðardans
„Hverfasamtökin eru bráðnauðsynleg!
En með stofnun þeirra var stigið stórt
skref i þá átt að opna flokkinn og skapa
aukin tengsl við kjósendur. En fram-
kvæmd starfa á vegum hverfasamtak-
anna svo og skipulag þeirra og stjórnun
hefur verið tragiskur feigðardans frá önd-
verðu.
Það á að vera hægt að byggja upp mikið
og öflugt flokksstarf i hverfunum. En
þegar þessi mál eru krufin til mergjar, þá
endurspegla hverfasamtökin þá starfsemi
og þá skipulagshætti, sem rikja i Sjálf-
stæðisflokknum.”
Þessir mannlegu brestir!
„Ég hef nú alltaf verið hlynntur þessum
hverfasamtökum og tel að þau séu á sinn
hátt starfi sinu vaxin. Aftur á móti mega
menn ekki kenna skipulaginu um galla
þeirra manna, sem starfa innan skipu-
lagsins. Það er ekki skipulaginu að kenna,
heldur eru það mannlegir brestir, sem hér
um ræðir, og á þá rekum við okkur, án til-
lits til um hvaða skipulag er að ræða.”
Andskotans sama
„En hvað sem öllu lýðræðishjali liður,
þá er það staðreynd að almenningi er and-
skotans sama um allt slikt.”
Málsvari myrkraaflanna
„Við vitum, að það hefur átt sér stað
siðustu árin nokkuð merkileg og sérstæð
stjórnmálaþróun meðal ungs fólks á
Vesturlöndum... Nú vil ég halda að þessi
þróun ógni ekki á nokkurn hátt kjarna
Sjálfstæðisstefnunnar, en hitt er svo
annað mál, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
reynt að leiða þessa rödd samvizkunnar
hjá sér, en einn og einn flokksmaður hefur
svo litið á málin svipað og McCarty sálugi
gerði á sinum tima. Afleiðingin verður svo
sú að ungt fólk á íslandi litur á þessa fáu
flokksmenn sem dæmigerða málsvara
Sjálfstæðisflokksins og i ljósi afstöðuleysis
flokksins til þessara tveggja mála (þ.e.
mengun, firring og hernaðarstefna,— inn-
skot Þjv.) dregur þetta unga fólk þá
fáránlegu, en samt á inargan hátt skiljan-
legu ályktun (leturbreyting Þjóðviljans),
að Sjálfstæðisflokkurinn sé málsvari allra
þeirra illu afla, sem gott fólk berst nú
gegn um allan heim”.
Eitur i beinum ungs fóks
„Haldið þið að ungt fólk aðhyllist ekki
stefnu Sjálfstæðisflokksins i nógu rikum
mæli?....
(Svar:) Nei, nei, Sjálfstæðisflokkurinn
er eitur i beinum allra skólamanna.
(Annað svar:) Ekki segja skólamanna.
Það á ekki að klina þessu á skólamenn
frekar en annað ungt fólk.”
Stefnulaus i flestum aðalmálum
„Við skulum gera okkur grein fyrir þvi,
að áróðursstaða okkar hefur verið mikið
veikari nú siðustu árin og þá helzt vegna
þess að við höfum verið stefnulaus i
flestum aðalmálum.”
(Spurning:) Hver er þá afstaða Sjálf-
Framhald A bls. 15.
Tragískur feigðardans