Þjóðviljinn - 05.08.1973, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 05.08.1973, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN |Sunnudagur 29. júlí 1973. Gleymdi beygjunni Það gerðist aðfaranótt sunnu- dagsins s.l. á dansleik á Iðavöll- um á Héraði i sambandi við hestamannamótið þar, að ein- hver ökuglaður ungur maður tók ófrjálsri hendi Volgubil, sem stóð á bilastæðinu. Ferðin varð þó ekki lengri en 300 metrar, þvi að á vegamótum við þjóðveginn gleymdi hann að taka beygjuna, en stakk Volgunni á bólakaf i skurð, sem er i beinu framhaldi af Iðavallaafleggjaranum. Ef gefnar væru einkunnir fyrir að stinga bil fallega i skurð, hlyti ökuþjófur þessi aö hafa fengið hátt. Myndin sýnir er verið var að draga bilinn upp. Ráðuneytið um stjórnunarkostnað: Hækkað um 22% milli ára Vegna skrifa i Morgunblaðinu sunnudaginn 29. júli og þriðju- daginn 31. júli sl. um skrifstofu- kostnað stjórnarráðsins og stjórnunarkostnað Reykjavikur- borgar, skal eftirfarandi tekiö fram: 1. Rlkisreikningur og reikningur Reykjavikurborgar eru ekki settir fram þannig, að unnt sé að bera saman gjaldliði reikninganna án sérstakra skýringa. Gjöld aðalskrifstofa ráðuneytanna skv. rikisreikningi eru ekki að öllu leyti hliðstæð gjaidalið þeim i reikningi Reykjavikurborgar, sem nefndur er „stjórn borgarinnar”. Sá mun- ur kemur m.a. fram vegna mis- munandi starfsskipulags og reglna við röðun og framsetningu gjalda i reikningunum. Sem dæmi má nefna, aö ný fjárfesting i skrifstofuvélum, áhöldum og hús- næði er I rikisreikningi bókfært að fullu með gjöldum þess árs, sem til hennar er stofnað, en i reikningi Reykjavikurborgar er fjárfestingin færð sem eign i efnahagsreikningi og afskriftir reiknaðar. Eru þær tilgreindar i sérstökum gjaldalið i reikningi borgarinnar en ekki innifaldar i gjaldaliðnum „stjórn borgarinnar”. Móttaka erlendra gesta og risna er i rikisreikningi heimfærö á hverja einstaka aðalskrifstofu, en i reikningi Reykjavikurborgar koma þau gjöld fram i liðnum „óviss útgjöld”. Ýmis viðfangsefni falla undir einstakar aðalskrifstofur ráðu- neytanna, sem fela i sér gjöld er eigi geta talizt almennur skrif- stofu- eöa stjórnunarkostnaður. Slikir gjaldaliðir koma einkum fram hjá aðalskrifstofum for- sætis- og utanrikisráöuneyta. Má þar nefna kostnaö við fálkaorðu, þjóðhátiðarundirbúning, viðhald og endurbætur á Arnarhvoli, stjórnarráðshúsi og ráðherra- bústað og fleiri liöi, er koma fram á aöalskrifstofu forsætisráðu- neytisins. Með gjöldum aðalskrif- stofu utanrikisráöuneytisins eru framiög til upplýsinga og kynningarstarfsemi, kostnaður vegna þátttöku i alþjóðaráð- stefnum og vegna samninga við erlend riki og fleiri viðfangsefni. Endurbætur á húsnæði ráðuneyta voru mun meiri árið 1972 en 1971 og kostnaður vegna landhelgis- málsins varð verulega hærri árið 1972 en árið 1971. Allir þessir gjaldaliðir koma fram á aðal- skrifstofum forsætis- og utan- rikisráðuneyta. 2. Við samanburð á gjöldum aðalskrifstofa ráðuneytanna árin 1972 og 1971 þarf einnig að hafa i huga, að með gjöldum aðalskrif- stofu menntamálaráðuneytisins árið 1972 koma gjöld vegna þeirrar starfsemi, er fræðslu- málaskrifstofan annaðist og haldið var utan við aöalskrif- stofuna allt fram til ársloka 1971. Það ár námu þau 52,8 m. kr. 3. Með hliðsjón af framan- greindu er villandi aö bera saman sem gjöld aðalskrifstofa ráðu- neytanna annars vegar 333,3 m. kr. árið 1972 og 211,2 m. kr. árið 1971 eins og gert hefur verið. Réttari samanburöur væri 241,3 m.kr. árið 1971 og 294,4 m kr. árið 1972, sem sýnir 22,0% hækkun á árinu 1972. Þessar fjárhæðir eru reiknaðar út þannig, að annars vegar er gjöldum fræðslumálaskrif- stofunnar áriö 1971, 52,8 m. kr. bætt við heildarfjárhæðina þaö ár, 211,2 m kr. og hins vegar eru ekki taldir með þeir gjaldaliðir aðalskrifstofa forsætis- og utan- rikisráðuneyta bæöi árin, sem til- heyra öðrum viöfangsefnum en yfirstjórn sbr. skýringar hér að framan. Þeir gjaldaliðir námu hjá aðalskrifstofu forsætisráðu- neytis 12,1 m kr. áriö 1971 og 23.3 m kr. árið 1972, en hjá aðalskrif- stofu utanrikisráöuneytis 10,6 m. kr. árið 1971 og 15,6 m kr. árið 1972. 4. Hækkun íramangreindra gjaldaliða um 22% á árinu 1972 stafaði að nokkru leyti af ýmsum leiðréttingum á launum vegna kjarasamningsins, sem gerður var i desember 1970, og eigi komu til framkvæmda fyrr en á árinu 1972. Þar á meðal voru leiðréttingar skv. 19. gr. samningsins, er náöu aftur til gildistöku hans hinn 1. júli 1970. 2. ágúst 1973. 9 Kópavogsbúar Leikskólinn og dagheimilið Kópasteinn við Hábraut verður lokað miðvikudaginn 8. ágúst vegna viðgerðar. Forstöðukona SPRUN GUVIÐGERÐIR simi 10382 auglýsa: Framkvæmum sprunguviðgerðir i steyptum veggjum og þökum, með hinu þrautreyn’Ia ÞAN-kitti. Leitið upplýsinga. SIMI 10382 — KJARTAN HALLDÓRSSON.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.